Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 37 Stafrænn vörulisti FYRIR tveimur árum reið Johan Rönning hf. á vaðið með útgáfu á vörulista sínum á geisladiski. Nú er komin út ný útgáfa og ekki bara á geisladiski og á prenti, heldur er vörulistinn aðgengilegur á Netinu. Prentaður er vörulistinn alls 464 blaðsíður með 1.800 myndum, en einnig er til smærri gerð hans í plastkápu. A geisladiskinum er aft- ur á móti ýmislegt fleira efni að finna en vörulistann, því þar var sett inn ýmislegt ítarefni frá er- lendum ft’amleiðendum. Eins og getið er má einnig finna allan vörulistann á Netinu í Adobe PDF-formi. Þar verður ævinlega að finna nýjustu útgáfu listans, enda hæg heimatökin að uppfæra þau gögn. Reyndar hefur vefútgáf- an verið í fullum gangi frá því síð- asti listi kom út fyrir tveimur ár- um. Fyrirtækið Johan Rönning hf. er einn stærsti rafbúnaðarinnflytj- andi landsins, stofnað árið 1933 af Norðmanninum Johan Rönning sem kom til íslands árið 1920 til að vinna við uppsetningu á Elliðaár- virkjun. Rönning hefur umboð fyr- ir ABB-samsteypuna, 3M, Erics- son, Phoenix Contact, Wibe, Thor- sman, Thorn Lighting, Hager og Elko og svo mætti lengi telja. AIls eru vöruflokkar í listanum um 70 talsins, og vörunúmer á lager eru yfn; 7.400. Asgeir Brynjar Torfason sér um útgáfuna fyrir Rönning og sá einnig um útgáfu á síðasta lista. Hann segir að þá hafi menn al- mennt ekki verið viðbúnir tækninni og því hafi verið um að ræða braut- ryðjandastarf þar sem enginn gat sagt fyrir um bestu leiðina fyrir rafræna útgáfu. Prófa þurfti ýms- an hugbúnað og þróa aðferðina við útgáfuna því enginn hafi verið bú- inn að gera þetta áður hér á landi þá. Asgeir vinnur vörulistann í Pa- ge Maker, sem hann segir henta einkar vel til útgáfu á stórum bók- um eins og vörulistanum, auk þess sem aðgengilegt sé að ganga frá skjölum á PDF-formi úr Page Ma- ker. PDF-formið býður síðan upp á mikla möguleika við að útbúa teng- ingar í vörulistanum auk þess sem öll leit verður auðveld fyrir not- endur. Síðan er Page Maker- skráin send í prentsmiðju , hérlendis og PDF-skráin til geisladiskaframleiðanda ytra, og um leið er vönilist- inn líka kominn á heima- síðuna, www.ronning.is. Hjá Rönning er 25 tölvu staðamet tengt við NT- þjón og Notes-þjón og vef- þjón. NT-þjónninn keyrir Fjölni og vöruskráin er keyrð þaðan yfir í Access þar sem unnið er með vöru- - númerin. Asgeir segir að myndir séu flestar fengnar frá erlendum birgjum á tölvutæku formi og sendar Rönning á geisla- diskum eða yfir Netið. Síðan er vörulistinn settur upp á síður í PageMaker og sendur í því formi til prentsmiðju. Pagemaker- skránni er jafnframt breytt í PDF- skrá og Acrobat notað til að ganga frá efnisyfirlitum, kaflayfírlitum, tenglum og lyklun fyrir leit. Síðan er PDF-skráin ásamt Acrobat Reader-forritinu og viðbótarefni brennt á geisladisk sem sendur er út til fjöldaframleiðslu. PDF-skránni er skipt í minni skrár fyrir Netið þar sem menn geta sótt þann hluta vörulistans sem þeir þurfa. Alls er vörulistinn 15 MB á vefnum, en 32 MB í hærri upplausn á geisladiskinum. Ymislegt ítarefni er á diskinum sem ekki er að finna í prentútgáf- unni, enda hafa erlendir birgjar Rönning útbúið tölvutæka vöru- lista sem sumir Nýr Netscape Communicator :w»/. eru á geisla- diskinum auk nokkurra hjálpar- forrita og Ásgeir segir að það verði eflaust aukið í næstu útgáfu. Hann segir að fyrirtæki ytra verði sífellt meðvitaðri um möguleika stafrænnar útgáfu og íslensk fyr- irtæki eigi eftir að fara sömu leið; útgáfa í slíku formi sé ódýrari og einfaldari í framkvæmd þegar menn séu búnir að koma sér upp viðeigandi tækjakosti. NÝ ÚTGÁFA af Commun- icator vafravöndlinum frá Netscape kom á markað á fimmtudag. Nokkuð er síðan seinni beta-útgáfa kom út af Communicator, en nú er sem sagt komin lokagerð vafra- vöndulins. Netscape lagði mesta áherslu á að auðvelda notkun vafrans og treysta undirstöður hans, en minni á að hraða vinnslunni. Að sögn verður þess meiri áhersla lögð á þá þætti í Communicator 5.0 sem væntan- legur er á næsta ári. Meðal nýjunga í Communicator 4.5 er það sem Netscape-menn kjósa jP að kalla Smart Brows- ing og byggist meðal annars á aðgangi að sér- stökum gagnagrunni á vefslóð Netscape. Þannig er nóg að slá inn í slóðagluggann heiti eða vörumerki og vafrinn leitar að því. Einnig má smella á hnapp sem gefur lista yfir svipaðar slóðir og sækir í Alexa-gagnagrunn sem Netscape hefur sett upp. Hægt er að velja slóðir sem vafrinn á ekki að sýna svipað og hefur verið hægt í Explorer 4.0, en einnig er hægt að setja í gang siðsemissíu ef vill. Ein- faldara er að uppfæra 4.5 en fyrri gerðir og þarf ekki að eyða heilu dögunum í að sækja risapakka fyrir smávægilega uppfærslu, nóg er að sækja bara kóðann fyrir það sem á að uppfæra. Forritið tekur ekki meira pláss en eldri gerð, þ.e. 4.07, sem er sú síðasta sem kom út, en einnig getur forrit- ið séð um að uppfæra sjálft sig reglulega sé þess óskað. Með fylgir uppsetningarforrit sem auðveldar Explorer-notendum að skipta. Búið er að fella Collabra hópvinnuhugbúnaðinn inn í póstforritið Messenger sem fylgir. Messenger styður IMAP-staðalinn, sem nýtur æ meir hylli, en hann byggist meðal annars á þvf að póstur- inn er vistaður hjá þjónustuað- ila í stað þess að vera sóttur á vél viðkomandi. Fyrir vikið er hægt að komast í póstinn hvaðan sem er í heiminum og ekkert glatast ef heimavélin hrynur til að mynda. Ný útgáfa af Communicator er væntanleg á næsta ári eins og getið er og líklega kemur fyrsta betaútgáfa af Conunun- icator 5.0 fyrir áramót og um líkt leyti útgáfa 5.0 af Explorer Microsoft þannig að uppfærslu- hraðinn er óbreyttur á vafra- sviðinu. Ókeypis eintak af Communicator 4.5 má sækja á slóðina http://home.netscape.com/com puting/do wnload/index.html. WWW.CjieQnagrUnnUr.ííí HeímíIutt þekkÍNq Laugardaginn 24. október kl. 14 - 16 Kynningarfundaröð íslenskrar erfðagreiningar Skeggi G. Þormar Cand. Phil.: Notkun tölvutækni í kvikmyndagerð Skeggi G. Þormar stærðfræðingur starfar við hugbúnaðarþróun í upp- lýsingatæknideild íslenskrar erfða- greiningar. Hann lauk Cand. Phil. prófi í stærðfræði frá U.C. Berkeley 1997. í erindi sínu fer hann yfir reikni- og eðlisfræði sem notuð er við gerð útreiknaðra raunmynda og lýsir hugbúnaði og ferlum sem þarf til að útfæra slíka tækni við gerð kvikmynda. Gestum fundarins gefst kostur á að oS skoða rannsóknarstofur íslenskrar erfða- T3 greiningar undir leiðsögn vísindamanna og þiggja kaffiveitingar að því loknu. í S L E N erfðagrei S K n i n g Lyngháls 1,110 Reykjavík . OKTÓBER NYJAR VORUR með sérstökum afsleetti 20%-50%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.