Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 15
■
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 15
aður
Greiðsla á af lahlut, launum og tengdum
gjöldum 37,8%
Stærsti einstaki liðurinn í kostnaðaruppgjöri útgerðar er yfírleitt aflahlutur sjómanna
og síðan laun annarra við útgerðina.
Olíukostnaður 9,0%
Verð á olíu hefur ávallt verið einn af
viðkvæmustu þáttum útgerðar. Breytingar á
gengi eða heimsmarkaðsverði á olíu geta haft
mikil áhrif á reksturinn. Stærri útgerðir geta
þó gert sérstaka samninga við olíufélög og
eins færist í vöxt að þau geri framvirka
- samninga til að draga úr sveiflum.
Af borganir lána og vextir 17,5%
Skuldir sjávarútvegsins eru miklar. Auknar álögur yrðu síst til þess að auðvelda
fyrirtækjum að greiða þær niður.
Sjávarútvegurinn í heild skilar
ekki alltaf hagnaði. Þeim
útgerðarfyrirtækjum sem það
gera fer þó fjölgandi enda hefur
rekstrarumhverfið breyst
mikið á síðustu árum og
möguleikum til hagræðingar
fjölgað. Með áframhaldandi
stöðugleika má búast við
auknum hagnaði sem má þó ekki
hverfa úr greininni ef
einhver uppbygging á
að eiga sér stað.
hagnaður!
Útvegsfyrirtæki á landsbyggðinni hafa til umráða yfir 80% af
veiðiheimildum í íslensku lögsögunni. Það er því ljóst að gjaldtaka, í hvaða
formi sem væri, yrði í raun byggðaskattur. Víða um land halda
útvegsfyrirtæki uppi atvinnulífinu og eru forsenda byggðar. Auknar álögur
myndu þýða gífurlegan tilflutning á fjármagni til stjómsýslunnar í Reykjavík
og leiða til stórfelldrar röskunar á landsbyggðinni.
Það er ljóst að hvorki sveitarfélög á landsbyggðinni, sjómenn né aðrir sem
starfa við sjávarútveg gætu tekið að sér að greiða veiðileyfagjald eða
auðlindaskatt. Enn síður má búast við því að neytendur erlendis séu
reiðubúnir til þess að greiða skattinn með hækkuðu vömverði.
Auknar álögur yrði að greiða með hagnaði útvegsfyrirtækja, hagnaði sem
þarf að nota til áframhaldandi uppbyggingar innan fyrirtækjanna. Umræða
um auknar álögur á útvegsfyrirtækin og hugmyndir um að færa fjármagn
út úr greininni þjóna því hvorki hagsmunum sjávarútvegsins né þjóðarinnar
í heild.
Þessi auglýsing er liður í fræðsluátaki íslenskra útvegsmanna.
Ótímabært auðlindagjald
stefnir árangri útvegsins og
afkomu á landsbyggðinni
í voða.
www.liu.is
í S L E N S K I
VEGSMEN N
Fræðsluátak á ári hafsins
iL
I