Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stjórn siðaráðs hvetur lækna til að taka ekki þátt í gerð gagnagrunns Aðalfundur LI sættir sig ekki við gagnagrunnsfrumvarpið Margrét Frímanns- dóttir um samþykkt Kvennalistans Vel í lagt miðað við styrkleika „MÉR finnst þetta nokkuð vel í lagt miðað við styrkleika Kvennalistans. Það er hins vegar fyrst og fremst kjördæmanna og samráðshópanna, sem vinna að framboðsmálum í ein- stökum kjördæmum, að svara þess- um kröfum," sagði Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, um kröfur landsfund- ar Kvennalistans um sæti á fram- boðslistum samfylkingar. Margrét sagðist hafa rætt við for- ystukonur Kvennalistans, en engin formleg viðbrögð hefðu korriið fram við kröfunni. Það yrði fundur í hópnum sem stýrir vinnunni af hálfu flokkanna í þessari viku og væntanlega yrði einnig fundur í samráðshópunum í Reykjavík og Reykjanesi í vikunni. Þá myndu koma fram formleg viðbrögð. Margrét sagði að Kvennalistinn vildi halda þeim þremur þingsætum sem hann hefur í dag í Reykjavík og á Reykjanesi, en krafan fæli einnig í sér varaþingmannssæti og hugsan- lega þingsæti í öðrum kjördæmum. Þetta væri því vel í lagt miðað við styrkleika flokksins. ■ Kvennalistinn/12 --------------- Vatnaflugvél bætist í flotann NÝ flugvél bættist í flugvélaflota landsmanna þegar Kári Guðbjörns- son lenti nýsmíðaðri Aventura 2, flugvél á Hafravatni. Þetta er fyrsta vatnaflugvélin sem flutt er til landsins f mörg ár. Vélina keyptu Kári og tveir fé- lagar hans nýsmíðaða í Flórída. Hún er tveggja sæta, eins hreyfils og ber tæplega 300 kílé. STJÓRN siðaráðs Læknafélags ís- lands hyggst beina því til íslenskra lækna að þeir taki ekki þátt í gerð miðlægs gagnagrunns á heilbrigðis- sviði. Þetta kemur fram í umsögn stjórnarinnar um lagafrumvarpið frá í gær. Aðalfundur Læknafélags ís- lands samþykkti í gær ályktun þar sem segir að fyrirliggjandi frumvarp um gagnagrunn á heilbrigðissviði sé óviðunandi. Að sögn Guðmundar Björnssonar, formanns Læknafélags íslands, samþykkti fundurinn ályktun um stuðning við álit stjórnar félagsins með 25 atkvæðum gegn 8. Að sögn Guðmundar urðu gagnlegar umræð- ur á fundinum og var það eindreginn vilji fundarmanna að styðja stefnu stjórnarinnar í málinu. „Með þessari tillögu höfnum við ekki frumvarpinu heldur teljum það óviðunandi í nú- verandi mynd og að það þurfi að koma til á því talsverðar breytingar til þess að læknar geti fallist á það,“ sagði hann. Annarri tillögu vísað til stjórnar með 16 atkvæðum gegn 14 Fundurinn í gær var framhaldsað- alfundur en afgreiðslu fyrri tillögu stjórnarinnar var frestað á aðalfundi í síðasta mánuði. A þeim fundi var deilt annars vegar um tillögu stjórn- aiúnnar og hins vegar um tillögu þriggja lækna, sem voru hlynntir frumvarpinu með skilyrðum. Einn þremenninganna, Högni Óskarsson geðlæknir, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að tillaga stjórnarinnar, sem samþykkt var á fundinum í gær, hefði verið nokkuð breytt frá fyrri aðalfundi, m.a. væri nú frumvarpinu ekki hafnað eins og þá heldur lagt til að málinu yrði frestað og gerðar á frumvarpinu breytingar. Hann sagði að þrátt fyrir sam- þykkt fyrri aðalfundar hefði stjórn Læknafélagsins ekki haft samráð við flutningsmenn hinnar tillögunnai- um breytingar á tillögugerðinni milli funda. Tvær tillögur lágu því fyrir aðalfundinum í gær og eftir úrskurð fundarstjóra um að aðeins yrði hægt að samþykkja aðra tillöguna var samþykkt með 16 atkvæðum gegn 14 tillaga um að vísa tillögu Högna og félaga til stjórnar. Högni sagði að eftir samþykkt þeiiTar tillögu hefði tillaga stjórnarinnar verði borin upp og samþykkt með 25 atkvæðum gegn 8 eins og fyrr sagði. Fresta afgreiðslu I ályktuninni sem framhaldsaðal- fundurinn samþykkti í gær segir að grundvallaratriðum um persónu- vernd, samþykki sjúklinga, eftirlit með nýtingu gagnagrunnsins og tak- markað aðgengi annarra vísinda- manna sé ábótavant í frumvarpinu iim miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði og þurfi frekari umfjöll- un. „Ekki hefur verið skoðað hvort frekari þróun og uppbygging á dreifðum gagnagrunnum geti upp- fyllt vísindaleg mai-kmið miðlægs grunns. Aðalfundurinn telur því að fresta beri afgreiðslu frumvarpsins þar til þessum atriðum hafa verið gerð fullnægjandi skil,“ segir í álykt- uninni, sem felur í sér að fallist er á álit stjórnar Læknafélagsins um frumvarpið frá 27. október sl. I umsögn stjórnar siðaráðs Læknafélags Isiands um frumvarp- ið, sem send var Alþingi í gær, segir að stjóm siðaráðs Læknafélagsins telji að frumvarpið stríði gegn 10. grein laga um réttindi sjúklinga frá 1997 og 4. mgr. 2. gr. sömu laga um samþykki fyrir vísindarannsóknum. Einnig telur stjórnin að frumvarpið stríði gegn reglum Evrópuráðsins um lífsiðfræði. „Stjórn siðfræðiráðs telur að um- ræða um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sé skammt á veg komin og fjölmörgum spurningum ósvarað varðandi öryggi persónu- upplýsinga. Stjórnin leggst því ein- dregið gegn frumvarpinu og mun beina því til íslenskra lækna að þeir taki ekki þátt í gerð slíks grunns,“ segir í umsögninni. Morgunblaðið/Rax Andlát HULDA JAKOBSDÓTTIR HULDA Jakobsdóttir, fyrrum bæjarstjóri Kópavogs, lézt á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sl. laugardagskvöld 87 ára að aldri. Hún var fyrsta konan, sem gegndi _ bæjarstjóra- starfi á íslandi og var bæjarstjóri frá 1957 til 1962. Hulda var ásamt eiginmanni sínum, Finnboga Rút Valde- marssyni í forystu fyrir uppbyggingu Kópavogs á fyrstu árum bæjarfé- lagsins. Hún var kjörin heiðursborgari Kópavogs árið 1976. Hulda Jakobsdóttir fæddist 21. október árið 1911. Foreldrar hennar voru Jakob Bjarnason vélstjóri og Guðrún Armannsdóttir. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1931. Þau Hulda og Finnbogi Rútur eignuðust fimm böm og eru fjögur þeirra á lífi. Á yngri árum starfaði Hulda Jakobsdóttir mikið að félagsmálum og var m.a. formaður byggingamefndar Kópavogskirkju og skólanefndar Kópavogs um langt árabil. Auk starfa sinna, sem bæjar- stjóri Kópavogs, átti hún sæti í bæj- arstjóm í eitt kjörtímabil. Hún var sæmd riddarakrossi Hinnar íslenzku fálkaorðu árið 1994. Sólveig Pétursdóttir um áskorun sjálfstæðiskvenna * Ihuga þetta mál alvarlega SÓLVEIG Pétursdóttir, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segist taka áskomn Landssambands sjálf- stæðiskvenna um að hún gefi kost sér í kjöri til varaformanns Sjálf- stæðisflokksins á næsta landsfundi mjög alvarlega og þyki sér vænt um þessa stuðningsyfirlýsingu. „Ég er að íhuga þetta mál alvar- lega og stefni að því að taka ákvörðun fljótlega,“ sagði Sólveig ennfremur. „Ég minni á að ég fékk þó nokkum fjölda atkvæða á síðasta landsfundi í þetta embætti án þess að hafa lýst yfir framboði. Mér finnst að það sé bæði eðlilegt og skynsamlegt að konur séu kallaðar til frekari ábyrgðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar lít ég fyrst og fremst á sjálfa mig sem sjálfstæðismann sem starfar í þágu sjálfstæðis- stefnunnar. Ég hef verið nokkuð lengi í stjómmál- um og hef auðvit- að metnað til þess að sækjast eftir frekari ábyrgðarstörfum fyrir flokkinn. Ég vil líka minna á að það eru al- þingiskosningar í vor og ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn hafi öflug sóknarfæri í þeim kosningum,“ sagði Sólveig. „Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins er ekki fyrr en í mars 1999,“ sagði Bjöm Bjamason, mennta- málaráðherra, aðspurður hvort Sólveig Pótursdóttir hann hefði í hyggju að gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Sjálf- stæðisflokksins. „Það er mikilvægt að menn nýti tímann vel og einbeiti sér að málefnalegu starfi vegna stefnumótunar með hliðsjón af þingkosningunum næsta vor, en ég tel hins vegar alveg ótímabært að hefja kosningabaráttu vegna vara- formannskjörs,“ sagði Bjöm enn- fremur. „Það eru rúmlega fjórir mánuðir til landsfundar og mér finnst ótímabært að fara að leiða hugann að þessu í alvöru. Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um framboð," sagði Geir H. Haarde fjármálaráð- hema, aðspurður um það hvort hann hyggðist gefa kost á sér við kjör til varaformanns Sjálfstæðis- flokksins. I Sérblöð í dag________www.mbi.is 32SÍMIR Á ÞRIÐJUDÖGUM HEFURÞÚ SPURNINGAR. VARÐANDl FJÁRíESTINGAR ogLÍFEVRISMÁL? UOQUMOOM WMUWUINMCUM ÁVERDBRÉFADÓGUM Ahokduou HÚMIUUUSÍHJ4U40M OGAIKXMWU HARUUMVT&lbtMHlM VERIÐ VELKOMIN! Blaðinu í dag fylglr auglýsingablað um verðbréfadaga Búnaðarbankans á Blönudósi og Hólmavfk dagana 4.-6. nóvember. Auglýsingunni er dreift á fyrrgreind- um stöðum. Helgi gerði tvö mörk í norska bikarúrslitaleiknum / C12 Þjálfari Kaiserslautern fylgdist með Pétri Marteinssyni / C1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.