Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 3. NOVEMBER 1998
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Ágúst Guðmundsson
kærir atkvæðagreiðslu
um Oskarstilnefningu
Uppsagnir meinatækna á Landspítala
Sýni verða send
til útlanda
Verðbréfaþing Islands
Vinnubrögð ÍS
og Landsbank-
ans gagnrýnd
VERÐBRÉFAÞING íslands átelur
vinnubrögð Islenskra sjávarafurða
og umsjónaraðila hlutafjárútboðs
þeirra, Landsbanka íslands, í loka-
undirbúningi og birtingu útboðs- og
skráningaryfirlýsingar í hluta-
fjárútboði félagsins. Það er mat
Verðbréfaþings að fresta hefði átt
birtingu útboðs- og skráningarlýs-
ingarinnar og seinka útboðinu um
nokkra daga þar sem sama dag og
lýsingin var birt kom stjóm IS sam-
an og tók ákvarðanir sem breyttu í
verulegum efnum þeirri mynd sem
gefin hafði verið í lýsingunni.
A morgun hefst forkaupsrétt-
"'^irtímabil í sölu á nýju hlutafé í ÍS.
Heildamafnverð nýs hlutafjár er
200 milljónir króna. Forkaupsrétt-
artímabilið stendur til 13. nóvember
og er sölugengi til forkaupsréttar-
hafa 1,75. Hinn 16. nóvember hefst
almenn sala á sölugenginu 1,80.
I gær vora viðskipti með hluta-
bréf í IS á genginu 1,60 og 1,70 á
Verðbréfaþingi Islands og lækkaði
gengi IS um 5,6% frá síðustu við-
skiptum með bréf félagsins á VÞÍ.
■ Verðbréfaþing/18
Kolla
hjálpar til
ÞÓRÐUR Halldórsson, bóndi á
Breiðabólsstað á Fellsströnd, er
að byggja 500 kinda (járhús.
Koma þau í staðinn fyrir eldri
hús, meðal annars fjárlnís frá ár-
inu 1925, en einnig hyggur Þórð-
ur á stækkun búsins. Segir hann
heldur bjartara yfír sauðfjárbú-
^skannum. Hér er verið að sefja
þakið á fjárhúsin og að almennum
sið í sveitinni komu nágrannarnir
til hjálpar. Heimilishundurinn
Kolla tók fullan þátt í því að hífa
þakpapparúllurnar upp á þak
húsanna. Halldór Þórðarson,
bóndi á Breiðabólsstað, faðir
Þórðar, tók við.
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
mun á næstu dögum leggja fram
frumvarp á Alþingi sem gerir ráð
fyrir að fyrirtæki geti aukið
greiðslur sínar í lífeyrissjóð starfs-
manna gegn því að tryggingagjald
- 'lækki á móti. Geir segir að með
þessu sé stefnt að því að auka
verulega sparnað í þjóðfélaginu, en
á því sé full þörf.
Geir sagði að ríkisstjórnin vildi
stuðla að því að fólk nýtti sér
ákvæði laga um tekju- og eigna-
skatt, sem tekur gildi um næstu
.^raramót, um að launþegar geti lagt
^*til hliðar 2% af launum skattfrjálst
ÁGIJST Guðmundsson kvik-
myndagerðarmaður hefur lagt
fram kæru vegna atkvæðagreiðslu
um kvikmynd sem tilnefnd verður
sem fulltrúi íslands til
Óskarsverðlauna á næsta ári.
Mynd Ágústs, Dansinn, fékk einu
atkvæði færra en mynd Ara Krist-
inssonar, Stikkfrí. Kæran verður
rædd á fundi hjá Kvikmyndasjóði í
dag.
Að útnefningu á myndinni
standa Félag kvikmyndagerðar-
manna, Samtök kvikmyndaleik-
stjóra og Samband íslenskra kvik-
myndaframleiðenda. Fulltrúar
þessara þriggja samtaka munu
koma saman í dag til að fjalla um
kæru Ágústs. Búist er við að
annaðhvort verði tekin efnisleg
afstaða til hennar eða henni verði
vísað til stjórna félaganna.
I kæru Ágústar er því haldið
fram að gallar hafi verið á fram-
kvæmd atkvæðagreiðslunnar.
inn á lífeyrissparnaðarreikninga.
Frumvarpið gerði ráð fyrir að
launþegar gætu fengið viðbótar-
framlag frá vinnuveitanda inn á
þessa reikninga sem næmi 0,2% af
því fé sem atvinnurekandinn myndi
ella greiða í almennt trygginga-
gjald.
Tryggingagjald
lækkar á móti
Geir sagði að í þessu fælist
hvatning fyrir launþega að nýta sér
þennan möguleika á skattfrjálsum
lífeyrissparnaði. Sömuleiðis mætti
vænta þess að atvinnurekendur
Meginatriðið í kærunni er að fyrir
mistök hafi atkvæði Ólafs Engil-
bertssonar ekki verið tekið gilt.
Ólafur var ekki viðstaddur at-
kvæðagreiðsluna, en sendi fulltrúa
sinn með umboð til að greiða at-
kvæði. Með kæranni fylgir bréf
frá Ólafi þar sem fullyrt er að
hann hafi ætlað að greiða Dansin-
um atkvæði sitt.
Samkvæmt reglum um at-
kvæðagreiðsluna máttu taka þátt í
henni félagsmenn í fyrrnefndum
þremum samtökum og þeir sem
uppfylla skilyrði um aðild að
félögunum. Ölafur er ekki félagi í
ncinu félaganna, en enginn vafi
þykir leika á að hann uppfyllir
skilyrði um aðild að Félagi kvik-
myndagerðarmanna. Misskilning-
ur mun hafa ráðið því að atkvæði
hans var ekki tekið gilt á fundin-
um.
■ Stikkfrí sigraði/70
vildu frekar greiða þessi 0,2% til
launþega en ríkisins. Geir sagðist
telja raunhæft að ætla að þessi að-
gerð gæti stuðlað að því að nokkrir
milljarðar yrðu lagðir í hreinan
sparnað á ári. Þarna væri um að
ræða sparnað sem kæmi til viðbót-
ar þeim sparnaði sem væri fyrir í
landinu.
Geir sagðist telja eftirsóknar-
vert fyrir þá aðila sem mega taka
við þessum lífeyrissparnaði, sem
eru lífeyrissjóðir, bankar, spari-
sjóðir og verðbréfafyrirtæki, að
keppa um þetta fjármagn. Þeir
ættu án efa eftir að reyna að gera
UPPSAGNIR 47 meinatækna af 60
á rannsóknarstofum Landspítalans í
blóðmeina- og meinefnafræði tóku
gildi um helgina og hefur þegar
skapast alvarlegt ástand á spítalan-
um. I undirbúningi er að senda sýni
til rannsókna erlendis og leitað hef-
ur verið eftir því að sjálfstæðar
rannsóknarstofur mæli sýni. Þá hef-
ur verið rætt við Sjúkrahús Reykja-
víkur um aðstoð og verða sýni mæid
þar ef nauðsyn krefur.
Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir
á rannsóknarstofum í blóðmeina- og
meinefnafræði, segir að það sé
aðeins tímaspursmál hvenær eitt-
hvað fer úrskeiðis vegna ástandsins
á spítalanum. „Þetta er stórhættu-
legt ástand ef þetta varir lengur en
örfáa daga,“ segir hann.
Enginn fundur hafði í gær verið
boðaður með meinatæknum og við-
semjendum þeirra.
þetta aðlaðandi fyrir launþega.
I síðustu viku samþykkti fram-
kvæmdastjórn VSI ályktun þar
sem skorað var á ríkisstjórnina að
hætta við að lækka gjald í Atvinnu-
leysistryggingasjóð um næstu
áramót um 0,15%. Geir sagði að
ríkisstjórnin hefði ákveðið að verða
við þessum tilmælum og myndi þar
að leiðandi ekki leggja til að al-
menna tryggingagjaldið hækkaði
eins og áður var gert ráð fyrir til
að mæta lækkun á gjaldi í Atvinnu-
leysistryggingasjóð. Ríkissjóður
ætti því ekki að tapa tekjum á
þessari lagabreytingu.
Bráðamóttaka var á Landspítal-
anum í gær og þar er einnig
bráðamóttaka í dag, og hefur þess
verið farið á leit við héraðslækninn í
Reykjavík að hann beiti sér fyiir því
að læknar leitist við að fækka
sjúklingum sem sendir eru á
bráðamóttöku og freisti þess að
beita öðrum ráðum til úrlausnar. Þá
er ætlast til þess að læknar sem
hafa vísað sjúklingum til rannsókna
á Landspítalann vísi þeim á aðrar
rannsóknarstofur sé það mögulegt.
Fimm meinatæknar og tveir
læknar voru að störfum á dagvakt á
Landspítalanum í gær og að sögn
Páls Torfa er nú aðeins unnið þar að
algengustu og nauðsynlegustu
rannsóknum, en hins vegar fara
engar sérhæfðar rannsóknir fram.
■ Tímaspursmál/4
hreinum tekjum upp á samtals
1.119 milljónir króna í fyrra.
Heildartekjurnar, að meðtöldum
kostnaði og vinningum, náu samtals
1.695 milljónum króna.
Þetta kom fram í svari Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra við
fyrirspurn frá Rannveigu Guð-
mundsdóttur alþingismanni sem
spurði ráðherra á Alþingi hve miklu
söfnunarkassar og happdrættisvél-
ar hefðu skilað fyrirtækjunum
tveimur ár hvert frá setningu laga
um þau árið 1994.
I svari ráðherrans kemur fram
að tekjur Islenskra söfnunarkassa
á síðasta ári, að frádregnum vinn-
ingum og kostnaði, voru 809 millj-
ónir króna. Tekjur Happdrættis-
véla HHI, að frádregnum vinning-
um og kostnaði, voru 310 milljónir
króna á síðasta ári og 210 milljónir
króna fyrstu níu mánuði þessa árs.
Á tímabilinu frá 1994 hafa söfn-
unarkassar Islenskra söfnunar-
kassa skilað samtals 3.904 milljóna
króna tekjum. Að frádregnum vinn-
ingum og kostnaði eru tekjur ís-
lenskra söfnunarkassa á tímabilinu
2.657 milljónir króna.
Frá 1994 og til loka september í
ár eru tekjur happdrættisvéla HHÍ
2.298 milljónir króna, að meðtöld-
um vinningum og kostnaði. Að frá-
dregnum vinningum og kostnaði
eru tekjur HHI af happdrættisvél-
um samtals 1.140 milljónir króna.
Tekjur vaxa ár frá ári
Tekjur beggja fyrirtækjanna
hafa vaxið ár frá ári. Árið 1994 voru
tekjur fslenskra söfnunarkassa 535
milíjónir að frádregnum vinningum
og kostnaði en hagnaður ársins
1997 var 809 milljónir króna.
Hreinar tekjur happdrættisvéla
HHÍ árið 1994 voru 144 milljónir
króna en fyrstu 9 mánuði ársins
1998 var hagnaðurinn 210 milljónir
króna.
Morgunblaðið/Golli
Fjármálaráðherra boðar lagabreytingu sem er ætlað að stuðla að meiri lífeyrissparnaði
Vinnuveitendur greiði
0,2% lífeyrisiðgjald
Fyrirspurn á Alþingi
1,1 milljarða
gróði af
spilakössum
SÖFNUNARKASSAR Happ-
drættis Háskóla íslands og Is-
lenskra söfnunarkassa sf. skiluðu