Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kjósa Bandaríkjamenn " um afstöðu til forsetans? ------iKosningarnar að þessu sinni eru sagðar snúast ekki eingðngu um einstaka fram- bjóðendur heldur ekki síður um afstöðu almennings til hneyksl ismála forsetans, MIKIL eftirvænting ríkir hjá friðelskandi fólki úti um allan heim um hvort bandaríska þjóðin muni meta forsetann að verðleikum. Morgunblaðið/Kristinn Allra heilagra messa ALLRA heilagra messa var á sunnudaginn en þann dag er látinna minnst. Fjölmargir lögðu leið sína í kirkjugarða til að vitja leiða ástvina sinna. Starfs- fólk kirkjugarðanna í Reykjavík var fólki til þjón- ustu þennan dag, veitti upplýsingar um legstaði og vísaði gestum veg. Þá var ’uoðið upp á margháttaða tónlistardagskrá í Fossvogskirkju og var hún fjölsótt. ™ Nýkomið! Dúkar, diskamottur, pottaleppar og púðaver - sérlega skemmtilegar vörur. Einnig mjúk vattefni með efni báðum megin. Góð í úlpur, vesti, kápur og fleira. -búðirnar Unnið að framtíðarsýn Hrafnistu Skj ólstæðingar orðnir um 800 HRAFNISTA er rekin af Sjó- mannadagsráði og annast vistun og ýmsa aðhlynningu fyrir aldraða. Heimilið í Reykjavík var opnað 1957 og var upphaf- lega ætlunin að einbeita sér að þjónustu fyrir aldraða sjómenn og ekkj- ur þeirra og enn er reynt að sjá til þess að um helm- ingur vistmanna sé úr röðum þeirra. Heimilið í Hafnarfirði var reist 1977. Starfsmenn stofnunarinn- ar eru alls um 750 og skjólstæðingar um 800 ef með eru taldir allir þeir sem fá einhverja þjón- ustu, að sögn Sveins H. Skúlasonar forstjóra. „Heilbrigðisráðuneytið setur ákveðnar kröfur um lágmarksþjónustu sem stofnanir af þessu tagi skuli veita til að fá daggjöld greidd,“ segir Sveinn. „Þar sem við fáum rekstrarféð frá opinberum aðilum fmnst okk- ur að við verðum að taka við fólki alls staðar af landinu. Við önnumst vistun aldraðra en einnig fólks sem þarf auk þess hjúkrun inni á stofnuninni og sá þáttur er sífellt að aukast. Nú eru alls 318 manns á deildum Hrafn- istu í Reykjavík og 227 í Hafnarf- irði.“ - Sumir búa á eigin heimilum við stofnunina. Hvers njóta þeir? „Hátt á annað hundrað manns býr í grennd við dvalarheimilin tvö og njóta margs konar þjón- ustu af okkar hálfu. Fólkið getur fengið mat hér, notað sundlaug- ina og getur nýtt sér ákveðna læknisþjónustu, fengið fötin þvegin, fengið hárgreiðslu, fótsnyrtingu og fleira. Prestar annast helgihald hjá okkur með reglubundnum hætti. Hjá okkur er næturþjónusta og fólkið er með neyðarhnappa, félagslífið er fjölbreytt hér og öflug fóndurkennsla. Einnig eru hér verslanir. Þetta er eins og Iít- ið bæjarfélag, það eina sem vant- ar er lögreglustjóri eða fangelsi!" - Hvernig gengur að sinna um- sóknum? „Þörfín er að aukast og alls eru um 800 manns með umsóknir á biðlista. Vegna biðlistanna er fólk nú orðið eldi'a þegar það kemur til okkar og því oft orðið stutt í hjúkrunarþörfina. Aður var kannski litið tfl þess hve umsóknirnar hefðu verið hjá okkur lengi en nú eru þær ekki raunverulega virkar fyrr en vist- unarmat hefur farið fram. Því má svo ekki gleyma að stundum get- ur borist umsókn og viðkomandi getur haft svo brýna þörf að við teljum nauðsynlegt að bregðast strax við. En því miður er þetta alltaf val vegna þess að plássin eru of fá. Forsendan fyrir daggjöldunum er samkvæmt lögum vistunar- matið, sem starfshópur hér annast í samstarfi við sveitarfélögin. Nær 400 hafa nú verið metnir svo að þeir hafi brýna þörf fyrir að vera hér.“ - Hvað með framkvæmdir á næstu árum? „Hér hefur nú farið fram stefn- umótunarvinna í 18 mánuði. Við viljum gjarnan auka sértekjum- ar. Við erum með í Reykjavík nýja og vel búna sundlaug sem er einhver sú besta á Reykjavíkur- svæðinu. Sennilega gætum við nýtt þessa aðstöðu betur til þjón- ustu fyrir aldraða. Fleiri þyrftu að geta notað hana. Ef nægilegt fjármagn fæst til ► SVEINN H. Skúlason er fæddur 1944 í Reykjavík og lauk prófi frá Verzlunarskóla Islands. Hann vann f nokkur ár hjá tryggingafélaginu Ábyrgð, var einnig framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Reykja- víkur og var framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík. Árið 1985 hóf hann störf hjá Iðnaðarbankan- um og síðar Islandsbanka og gegndi þar ýmsum stjórnunar- störfum og var útibússtjóri 1993-1998. Hann tók við starfi forstjóra Hrafnistu I. september sl. Sveinn er kvæntur Sólveigu Erlendsdóttur og eiga þau tvö börn. þess verður m.a. reynt að auka vægi hjúkrunarinnar. Við stefn- um að því að reisa 60 rúma sjúkradeild á lóðinni í Reykjavík og í Hafnarfirði á að vera hægt að bæta við deild með 90 rúmum. Einnig eru hugmyndn- um 60 íbúða leigublokk í grennd við Hrafnistuheimilið í Hafnarfírði. Heimilið í Reykjavík var mikil framfór á sínum tíma en er á vissan hátt barn síns tíma. Her- bergin eru lítil, alveg niður í 9 fermetra og ljóst að þau fullnægja ekki kröfum nútímans í því tilliti." - Er kannað skipulega meðal skjólstæðinga hvernig þeim líkar aðbúnaðurinn? „Ekki hefur það nú verið gert svo ég viti og reyndar væri það kannski athugandi að gera það í einhverjum mæli. Hins vegar finn ég það á báðum heimilunum, þótt þau séu mjög ólík vegna þess hve húsið í Hafnarfirði er miklu yngra og nýtískulegra, að fólk er almennt ánægt. Það geta verið ákveðnir erfið- leikar sem fylgja því að fara inn í mjög lítið herbergi en á móti kemur öryggið, stutt er í lækna og fólk losnar við einsemdina. Herbergið er ekki aðalatriðið heldur að fá alla þjónustu sem maður þarf á þessum aldri, segja margir slq'ólstæðinganna eftir að þeir eru komnir inn. í Hafnarfirði er dagvist fyrir um 50 manns, oft er hún fyrsta skrefið að fullri vist.“ - Er fólk farið að spyrja hvern- ig aðstæður séu til að nota tölvu á herbergjunum? „Ekki er það ennþá svo en varla langt í það. í Hafnarfu-ði er vistmaður hátt á níræðisaldri sem er formaður heimilisráðs. Hann hefur mikinn áhuga á ætt- fræði og notar þá tölvuna. Bréf sem hann sendir mér eru öll skrifuð á tölvu.“ Nær400 í brýnni þörf fyrir vistun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.