Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 29
ERLENT
Efnahags- og myntbandalag Evrópu
Danir jákvæðari
og Bretar auka
undirbtíning
Kaupmannahöfn, London. Reuters, Daily Telegraph.
HELMINGUR Dana er nú reiðu-
búinn að gefa undanþáguna frá
þátttöku Danraerkur í Efnahags-
og myntbandalagi Evrópu, EMU,
upp á bátinn, ef marka má niður-
stöður skoðanakönnunar sem birt-
ar voru um helgina, og Gordon
Brown, fjármálaráðherra Bret-
lands, kynnti í gær tilmæli til
brezkra fyrir-
tækja um undir-
búning fyrir aðild
að myntbandalag-
inu.
Fimmtíu af
hundraði að-
spurðra í könnun
Megafon-stofnunarinnar dönsku,
sem niðurstöðumar vour birtar úr
á sjónvarpsstöðinni TV2 um helg-
ina, voru fylgjandi því að Danmörk
gengi í EMU, sem stofnað verður
um áramótin með þátttöku ellefu af
fimmtán aðildarríkja Evrópusam-
bandsins (ESB).
Þetta er fyrsta skoðanakönnunin
af þessu tagi, þar sem stuðnings-
menn EMU-aðildar Danmerkur
mælast afgerandi fleiri en and-
stæðingar. 38% aðspurðra sagðist
andsnúinn henni og 12% sögðust
óákveðnir. Efna verður til þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Danmörku ef
nema á úr gildi undanþágurnar við
Maastricht-sáttmála ESB sem
Danir sömdu um árið 1993.
EMU-stefna Breta sögð óbreytt
A ársþingi sambands brezkra
iðnrekenda í Birmingham kynnti
Gordon Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, í gær meðal annars til-
lögur ríkisstjóm-
ar Verkamanna-
flokksins um
hvemig ráðlegt
sé fyrir brezk
íyrirtæki að búa
sig undir að
stunda viðskipti í
hinum sameiginlega Evrópugjald-
miðli, evróinu.
Að sögn The Daily Telegraph
fjallar áætlun Browns um þau
skref sem bæði stjórnvöld og fyrir-
tæki þurfi að taka til að vera undir
það búin að taka upp viðskipti í
evróum í stað sterlingspundum. Að
sögn talsmanna fjármálaráðuneyt-
isins í Lundúnum mun þetta þó
ekki þýða neina stefnubreytingu;
stjórnin haldi sig við að stefna að
því að bera EMU-aðild undir þjóð-
ina eftir næstu þingkosningar, en
þær fara væntanlega fram árið
2002.
Schröder
hælir Blair
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, sagði í Lundúnum í
gær að Bretland væri undir for-
ystu Tonys Blairs að sýna raun-
verulegan vilja til uppbyggi-
Iegrar þátttöku í Evrópusam-
vinnunni. Hér heilsast leiðtog-
arnir kankvísir á svip á sameig-
inlegum blaðamannafundi að
loknum viðræðum þeirra. Þetta
er fyrsta opinbera heimsókn
Schröders út fyrir landsteinana
frá því hann tók formlega við
kanzlaraembættinu í liðinni
viku.
Reuters
Jataverslanir
Barnakot
Du Pareil Au Méme
DýrBlingarnir
Helly Hansen
Hagkaup
Lapagayo
Lipurtá
Monsoon
Polarn og Pyret
Rollingar
Sportkringlan
börnin
Afgreiðslutími:
mánudaga til fimmtudaga
frá kl. lOtil 18.30,
föstudaga frá kl. 10 til 19,
laugardaga frá kl. lOtil 18.
Ceikfangaverslanir
Hagkaup
Leikfangabúáin Vedes
Penninn
Skóverslanir
Hagkaup
Steinar Waage
Skæði
RR - skór
KRiNGMN