Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ágúst
HÁSKÓLANEFND Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, þau Guð-
mundur Gíslason, Helga Hreinsdóttir, Emil Björnsson og Einar Már
Sigurðsson, voru meðal þeirra sem sátu stofnfund Fræðslunets Aust-
urlands í Neskaupstað.
Fræðslunet Austurlands stofnað
Háskólanám auk-
ið á Austurlandi
FRÆÐSLUNET Austurlands var
stofnað í Neskaupstað sl. föstudag
en tilgangur með stofnun þess er að
bjóða upp á aukið háskólanám á
Austurlandi fi-á starfandi háskóla
með aðstoð fjarskiptabúnaðar og að
efla símenntun og fullorðinsfræðslu
í fjórðungnum.
Fræðslunetið er tengiliður milli
háskólastofnana og annarra stofn-
ana, sem bjóða upp á stutt og lengra
nám fyrir einstaklinga, fyiártæki og
stofnanir á Austurlandi. Þar fer
fram kynning, skipulagning og miðl-
un á námi til íbúa Austurlands sem
þess óska hverju sinni, segir í frétt
frá Háskólanefnd SSA, sem unnið
hefur að undirbúningi netsins.
Landssími Islands útvegaði
myndfundarbúnað og kom honum
upp í Verkmenntaskóla Austur-
lands, Framhaldsskóla Austur-
Skaftafellssýslu og Menntaskólan-
um á Egilsstöðum og leigir síminn
skólunum búnaðinn. Stofnaðilar
Fræðslunetsins eru Bændaskólinn
á Hvanneyri, Háskóli Islands, Há-
skólinn á Akureyri, Kennaraháskóli
Islands, Samvinnuháskólinn Bif-
röst, Framhaldsskólinn í Austur-
Skaftafellssýslu, Hússtjórnarskól-
inn á Hallormsstað, Menntaskólinn
á Egilsstöðum og Verkmenntaskóli
Austurlands ásamt Sambandi sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi,
samtök launþega og atvinnurek-
enda svo og einstök fyrirtæki á
Austurlandi.
Hvammi gefíð
sjónvarpstæki
Húsavík - Konur úr Félagi þing-
eyskra kvenna í Reykjavík tóku sig
saman og fóru 17 þeirra í hópferð
til heimaslóðanna á Húsavík. Áttu
þær góða kvöldstund með vinum
og kunningjum á svokallaðri
Stjörnuhátíð sem er árviss við-
burður nokkun-a félagasamtaka á
Húsavík.
Konurnar komu færandi hendi
og gáfu Hvammi, heimili aldr-
aðra, stórt sjónvarpstæki til af-
nota í samkomusal heimilisins.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
formaður félagsins, afhenti for-
stöðumanni heimilisins, Herði
Arnórssyni, tækið og gat hann
þess að þetta væri ekki fyrsta
gjöfin því frá því heimilið tók til
starfa hafa þær gefið píanó auk
fleiri gjafa sem hann vildi sér-
staklega þakka.
Kjördæmisþing sjálfstæðismanna á Norðurlandi vestra
Prófkjöri hafnað
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
SJÁLFSTÆÐISMENN á Norðurlandi vestra vilja starfa áfram í sama
kjördæminu en hafa ekki ákveðið hvort þeir vilja sameinastöðrum.
Blönduósi - Sjálfstæðismenn í Norð-
urlandskjördæmi vestra héldu kjör-
dæmisþing sitt um helgina á
Blönduósi. Hugmyndum kjördæma-
nefndar um að skipta núverandi
kjördæmi upp var mótmælt en eng-
in afstaða var tekin til þess hvoit
Norðurlandskjördæmi vestra ætti
að fylgja Vesturlandi og Vestfjörð-
um eða Norðurlandi eystra. Tillaga
um prófkjör var felld með miklum
meirihluta og ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að flytja verkefni veðdeildar
Landsbanka Islands til Sauðárkróks
var fagnað.
Geir Haarde fjármálaráðherra var
gestur fundarins og flutti hann yfir-
gripsmikla ræðu um stöðuna í
stjórnmálum, kjördæmamálið og það
starf sem framundan er. Fjármála-
ráðherra sagði það engum í hag að
landið sporðreistist með því að allir
flyttu á suðvesturhornið. Það þyrfti
að komast að því hvað veldur þess-
um straumi fólks á höfuðborgar-
svæðið. Geir greindi þingfulltrúum
frá því að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að flytja verkefni veðdeildar Lands-
bankans norður á Sauðárkrók og
sköpuðust við það a.m.k. sex árs-
verk.
I umræðum kom fram sú skoðun
hjá mörgum þingfullti-úum að íbúar
á höfuðborgarsvæðinu væru ekki
daglega að hugsa um misvægi at-
kvæðanna og þörfina á að leiðrétta
það. Hins vegar væri það nokkuð
ljóst að þrátt fyrir hið mikla vægi at-
kvæðis íbúa dreifbýlisins þyrfti hann
daglega að hugsa um það hvernig
verja ætti sína heimabyggð. I álykt-
un kjördæmaþingsins segir m.a. að
forsenda breytinga til jöfnunar at-
kvæðavægis sé að raunhæfar að-
gerðh' séu gerðar til að stuðla að
jafnvægi í byggð landsins. Nauðsyn-
legar ákvarðanir og fjái'veitingar
þurfa að koma til svo þetta megi
ganga eftir.
Geh' Haai’de fjármálaráðherra
flutti ræðu sína upp á „gamla móð-
inn“ eins og hann sagði sjálfur en
notaði ekki nútíma tækni til að koma
máli sínu á framfæri eins og t.d. að
varpa glærum á vegg eins og Vil-
hjálmur Egilsson þingmaður hafði
gert fyrr um daginn. Af þessu tilefni
varð Hjálmari Jónssyni að orði: Geir
vill efla allra hag/ og opna ríkissjóð-
inn./ Ætlar að tala í allan dag/ upp á
„gamla móðinn“.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Góð þátttaka í norrænu skólahlaupi í Vík
Fagradal - Allir nemendur, kenn-
arar og starfsfólk Grunnskóla
Mýrdalshrepps sem mættir voru í
skólann tóku þátt í norrænu
skólahlaupi sem hlaupið var í Vík
í blíðskaparveðri í sl. viku. Átta-
tíu og þrír af áttatíu og sjö nem-
endum skólans tóku þátt.
Að sögn Magnúsar Sæmunds-
sonar íþróttakennara hlupu nem-
endur samtals 455 km þ.e. 5,482
km á nemanda. Að loknu hlaupi
bauð Víkurskáli öllum upp á
kaffi og kakó.
Morgunblaðið/Silli
FÉLAGSKONUR úr Félagi þingeyskra kvenna er heimsóttu Húsavík.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Vetrarríki á Ströndum
Árneshreppi - Talsverður snjór
er kominn hér í sveit enda byrj-
aði að snjóa 13. síðasta mánaðar
og hefur verið snjókoma eða él
síðan.
Jarðlaust er orðið fyrir búfé
því klammi er mikill á jörð og fé
komið á hús eða við hús, þ.e. sett
inn og gefið og sett út á daginn
ef smá uppstytta kemur.