Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 37 MENNTUN skólar þátt í samstarfínu og er meirihluti þeirra, að sögn Gerðar, af landsbyggðinni. Frumleg og metnaðar- full verkefni Gerður segir að við val á verkefn- um til að styrkja sé reynt að hafa jafnvægi milli skólastiga, milli höf- uðborgarsvæðisins og lafidsbyggð- arinnar og milli lítilla skóla og stórra. Verkefnin innan Comenius- ar-1, sem hlotið hafa styrk, eru fjöl- breytt og metnaðarfull. Meðal þátt- takenda er Fjölbrautaskóli Suður- lands þar sem nemendur könnuðu mengun, næringarinnihald og dýra- líf í Olfusá. Nemendur og kennarar í Gaulverjaskóla hafa einnig hlotið styrk til að vinna að umhverfismál- um og segir Gerður að mjög vel hafi tekist til að fá foreldra barn- anna til samstarfsins einnig. Þá hafa böm í Hjallaskóla í Kópavogi samið útvarpsleikrit sem flutt hefur verið í tvígang á Rás 1 auk þess sem þau gerðu leikið myndband þar sem þau settu þjóðsögur frá Kópavogi á svið. Comenius-2 er samstarfsverkefni tengt minnihlutahópum, fjölmenn- ingarlegri menntun og menntun barna sem flytjast milli menningar- svæða vegna atvinnu foreldra. Styrkir til þessara verkefna sem og Comeniusar-3 verkefna eru veittir frá aðalskrifstofu áætlunarinnar en að fenginni umsögn frá Gerði. Gerður fylgist síðan með að verk- efnin gangi eins og til er ætlast. Is- lendingar hafa ekki tekið þátt í mörgum verkefnum af þessum toga en þó er verið að vinna að einu í hvorum flokki um þessar mundir. Bendir Gerður, að öðrum verkefn- um ólöstuðum, sérstaklega á verk- efni sem unnið er að í Hjallaskóla og Nýbúasamtökunum. Guðlaug SnoiTadóttir í Hjallaskóla stjórnar verkefninu sem er unnið m.a. í sam- starfi við sænskan og spænskan grunnskóla. Markmið þess er að hanna kennsluefni fyrir tvítyngd börn og hefur Netið m.a. verið not- að í þágu þess. Heimasíða þeirra hefur slóðina http://rvik.is- mennt.is/—sigda. Borgaði farmiðann þrátt fyrir afsvar Þriðja Comeniusaráætlunin skiptist í tvennt. Annars vegar eru veittir styrkir til fjölþjóðlegra samstarfsverkefna, sem ætluð eru til að koma á fót endurmenntunar- námskeiðum. Hins vegar eru ein- staklingar styrktir til endurmennt- unar eða starfsþjálfunar erlendis. Markmiðið með Comeniusi-3 er að efla samstarf milli samtaka og stofnana sem hafa það hlutverk að auka faglega hæfni kennara og annarra sem tengjast kennslu- störfum og að stuðla að fjar- kennslu með notkun nýjustu upp- lýsinga- og samskiptatækni. I ágúst sem leið var haldið námskeið sem hannað var í Kennaraháskóla Islands á Varmalandi og styrkt af Comeniusi-3. Var námskeiðið afar vel sótt að sögn Gerðar og komust mun færri að en vildu. „Námskeið- ið var um notkun Netsins í kennslu. Það var vel skipulagt og gott námskeið." Nemendur á nám- skeiðinu lögðu margir hverjir mik- ið á sig til að komast á námskeiðið og einn borgaði jafnvel farmiðann til landsins þótt hann hefðu fengið afsvar. Rrni m. í 1. sæti Skrifstofa stuðningsmanna Árna M. Mathiesen er við Bæjarhraun 14 í Hafnarfirði Opið aila daga kl. 10-22. Allir velkomnir! Símar: 565 9523 / 565 9524 og 565 9528 • Fax: 565 9538 ua/MrM- wnnuknv imsih i Námi 3.0 • HUGBÚNAÐARKERFIÐ NÁMI 3.0 hefur verið sett á markað íþriðju útgáfu. Hugbún- aðurinn er hannaður með það að markmiði að stjórnendur fyrir- tækja geti haft yfirsýn yfír sí- og endurmenntun starfsmanna sinna og gert áætlanir er varða hana. Segir í fréttatilkynningu frá Smálausnum sf., þar sem hugbúnaðurinn er hannaður, að gott skipulag og markviss áætl- un um sí- og endurmenntun og sérhæfíngu starfsmanna séu nauðsynleg til að tryggja að hverju starfí gegni réttur og hæfur starfsmaður. Gerír Námi 3.0 mönnum t.d. kleift að halda til haga öllu er varðar þátttöku starfsmanna á námskeiðum, gera áætlanir um kostnað ásamt því að hafa yfírsýn yfír sundur- liðaðan kostnað. Mögulegt er að verða sér úti um prufueintak af NÁMA á h ttp://www.media.is/~smalausn. Skálar B-C-D 75-95. Skálar B-C-D-DD 75-100. Svartur með breiðum hlýrutn Hvítur, kræktur að framan. lyrriFiíi Kringlunni 8-12, sími 553 3600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.