Morgunblaðið - 03.11.1998, Page 11
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 11
FRETTIR
Miðstjórn Alþýðubandalagsins ræddi framboðsmál
og verkefnaskrá um helgina
Formanni veitt umboð til
að semja um samfylkingu
MIÐSTJÓRN Alþýðubandalagsins
samþykkti á fundi um helgina að
veita Margi'éti Frímannsdóttur,
formanni flokksins, umboð tO að
ganga frá samstarfssamningi við
Alþýðuflokk og Kvennalista um
sameiginlegt framboð í alþingis-
kosningunum vorið 1999.
A fundinum lýsti Svavar Gests-
son, formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, yflr afdráttarlausum
stuðningi við sameiginlegt fram-
boð félagshyggjuflokkanna. Hann
sagðist hafa verið þeirrar skoðun-
ar að það hefði mátt standa öðru-
vísi að málum í sumar. Nú væri
hins vegar kominn tími til að
leggja til hliðar allar vangaveltur
um það sem liðið væri. Hann skor-
aði á alla alþýðubandalagsmenn að
standa saman og ljúka undirbún-
ingi sameiginlegs framboðs. Menn
yrðu að sýna þann þroska að ýta
ágreiningi til hliðar og starfa sam-
an.
títgjöld ekki meiri en 3-5%
Svavar tekur þátt í vinnu svo-
kallaðs stýrihóps, sem hefur m.a.
farið yfir málefnasamning flokk-
anna. Hann sagði að hópurinn
myndi aðeins gera þær breytingar
á málefnasamningnum sem allir
flokkarnir væru sammála um.
Jafnframt hefði verið mörkuð sú
stefna að kosningastefnuskráin
endurspeglaði ábyrgar tillögur
sem væru efnahagslega fram-
kvæmanlegar. Þetta þýddi að
kostnaður við stefnuskrána mætti
ekki vera meiri en 3-5% af árleg-
um tekjum ríkissjóðs.
Svavar sagði að vinnu við verk-
efnaskrána væri að ljúka, en hún
yrði hins vegar ekki kynnt fyrr en
eftir nokkrar vikur og sérstakur
starfshópur ynni að tillögum í
kynningarmálum.
Svavar sagði að verkefnaskráin
hvíldi á fjórum stoðum. I fyrsta
lagi á jafnréttis- og kvenfrelsismál-
um. M.a. væri gert ráð fyrir átaki í
að bæta fæðingarorlof. Stefnt væri
að því að til yrði sérstök Jafnréttis-
stofnun sem m.a. væri ætlað að
fylgjast með launamun karla og
kvenna. I öðru lagi gerði verkefna-
skráin ráð fyrir að sérstakt átak
yrði gert í menntamálum og stefnt
væri að því að framlög til mennta-
mála yrðu í lok næsta kjörtímabils
svipuð og í nágrannalöndum okkar.
Þriðji þátturinn fjallaði um um-
hverfi og auðlindir og gerði hann
ráð fyrir róttækum tillögum í um-
hverfismálum.
Stefnan í utanríkismálum
óbreytt
Fjórði þátturinn bæri yfirskrift-
ina réttlátt þjóðfélag. Þar væri
fjallað um velferðarmál, heilsu-
gæslu, öryrkja og aldraða. I þess-
um kafla væri einnig að finna nýj-
ungar í byggðamálum, sem gengju
út á að hver íbúi ætti rétt á að velja
sér búsetu. Gert væri ráð fyrir að
nota skatta og skattaívilnanir til að
stuðla að jafnvægi í byggðum
landsins.
Svavar sagði að ekki væri gert
ráð fyrir að breyting yrði gerð á því
samkomulagi sem flokkarnir náðu í
utam-íkismálum í haust. í verkefna-
skránni kæmi fram að flokkarnir
væru ósammála í utanríkismálum
og að þeir hefðu ekki fallið frá
markaðri stefnu sinni. A kjörtíma-
bilinu myndu þeir hins vegar vinna
að utanríkismálum í samræmi við
málefnasamninginn sem náðist
milli flokkanna fyrr í haust.
Svavar sagði að nokkur mál
væru ekki ófrágengin og nefndi
þar viss atriði í atvinnumálum og
umhverfismálum. Hann sagði að
sjávarútvegsmálin væru erfið á
landsbyggðinni og viss hætta á að
þau yrðu notuð gegn samfylking-
unni. Menn þyrf'tu því að sýna að-
gætni í þessum málaflokki.
A fundinum var farið stuttlega
yfir framboðsmál í einstökum kjör-
dæmum. Fram kom að í flestum
kjördæmum er fyrir hendi viss
ágreiningur milli flokkanna. Al-
þýðuflokksmenn vildu almennt við-
hafa opið prófkjör, en alþýðu-
bandalagsmenn væru því andvígir.
Á Austurlandi hefur þó verið
ákveðið að reyna að ganga frá list-
anum með uppstillingu. í Reykja-
vík hefur verið lögð fram tillaga
um að hver flokkur fengi tvo full-
tnla í efstu sæti, auk þess sem gei-t
er ráð fyrir að Jóhanna Sigurðar-
dóttir fái öruggt sæti.
Trúnaðar-
upplýsingar
fylgdu hér-
aðsdómi, seg-
ir þingmaður
GAGNRÝNT var á Alþingi í gær,
að trúnaðarupplýsingar, sem aflað
var við yfirheyrslur yfir börnum,
skyldu fylgja með héraðs-
dómi sem almenningur hefði að-
gang að og birt var grein upp úr í
tímariti.
Sigríður Jóhannesdóttir þing-
maður Alþýðubandalags vakti at-
hygli á málinu í fyrirspurnartíma.
Sagði hún að í skaðabótabótamáli,
sem höfðað var í kjölfar þess að
heimilisfaðir á Islandi var dæmdur
í fangelsisvist fyrir misþyrmingu á
börnum sínum, hafi verið haldnar
yfirheyrslur yfir börnunum undir
miklum trúnaði. Tilsjónarmenn
barnanna hefðu ekki fengið að vera
viðstaddir, aðeins viðkomandi sál-
fræðingar, og fyrir tilstilli þeirra
hefðu börnin gefið yfirlýsingar við-
komandi málinu.
,Svo er dómur kveðinn upp en í
kjölfar þess er dómurinn seldur út
um borg og bý fyrir 2.500 krónur
og þar fylgja með allar trúnaðar-
upplýsingarnar sem voru gefnar
fyrir tilstilli sálfræðinganna inni í
réttinum. Nú liggja þær nánast
fyrir hunda og manna fótum og er
slegið upp í blaðinu Allt, þar sem
þær eru tíundaðar mjög svo per-
sónugreinanlega," sagði Sigiáður.
Sagði hún að þetta væri mikill
harmleikur og hefði valdið við-
komandi miklu tjóni og hugar-
angi-i.
Hún spurði Pál Pétursson fé-
lagsmálaráðherra í kjölfarið
hvenær trúnaður í slíkum málum
hætti að vera trúnaður. Páll sagð-
ist ekki kannast við umrætt mál en
hann sagðist myndi láta Barna-
verndarstofu kanna það.
Sjálfstæðiskonur skora
á Sólveigu Pétursdóttur
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning:
Á fulltrúaráðsfundi Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna, sem hald-
inn var í Kópavogi 31. október sl.,
kom fram áskorun á Sólveigu Pét-
ursdóttur alþingismann að gefa
kost á sér í embætti varaformanns
Sjálfstæðisflokksins á landsfundi
hans í mars, 1999, en legið hefur
fyrir um skeið að núverandi vara-
formaður, Friðrik Sophusson, gefi
ekki kost á sér í það embætti.
Áskorunin var samþykkt með
dynjandi lófataki.
Fulltrúaráðsfundurinn sam-
þykkti jafnframt stjórnmálaálykt-
un þar sem áhersla er lögð á jafn-
réttis- og velferðarmál. Meðal ann-
ars er gjaldfalli kvenna á vinnu-
markaði við barneignir mótmælt
og skorað á stjórnvöld að vinna
gegn áhrifum þess með því að
koma á fót, með lagasetningu,
sjálfstæðum rétti móður til fæðing-
arorlofs, sjálfstæðum rétti föður til
slíks orlofs, og síðan sérstöku fæð-
ingarorlofi sem foreldrar geta
skipt milli sín eftir þörfum og í
samvinnu við vinnuveitendur.
Sveigjanlegur vinnutími og
fæðingarorlof
Þá ályktaði fulltrúaráðsfundur
Landssambands sjálfstæð-
iskvenna að sveigjanlegur vinnu-
tími og fæðingarorlof væri ein
meginforsenda þess að rétta
mætti hlut kvenna og þar með
stuðla að raunverulegu jafnrétti
kynjanna í þjóðfélaginu. Um leið
og fundurinn áréttaði það að gott
almannatryggingakerfi væri eitt
einkenna velferðarþjóðfélagsins,
voru fundarmenn einhuga um
nauðsyn þess að endurskoða bæri
m
i
HIÐ nýja slagorð.
reglur um greiðslu eftirlauna og
bóta, en núverandi kerfi væri í
raun fátæktargildra þar sem
tekjutenging bóta letti fremur en
hvetti einstaklinga til sjálfsbjarg-
ar og drægi þar með úr sjálfstæði
þeirra. í lok stjórnmálaályktunar-
innar er áhersla lögð á sterka
stöðu Sjálfstæðisflokksins undir
forystu Davíðs Oddssonar.
xD kona
stendur á þér?
Á fundinum var kynnt slagorð
Landssambands sjálfstæðiskvenna
í komandi prófkjörum og vegna
uppröðunar frambjóðenda á lista
flokksins. Slagorðið er „xD kona
stendur á þér?“ I ræðu formanns
LS, Ellenar Ingvadóttur, kom
fram að slagorðinu væri ætlað að
hvetja konur til aukinnar stjórn-
málaþátttöku á vegum Sjálfstæðis-
flokksins, að hvetja þær til fram-
boða í sveitarstjórnar- og alþingis-
kosningum, og síðast en ekki síst
að styðja þær konur sem bjóða sig
fram. Slagorðið er gefið út á litríku
hringlaga merki, segulmerkingu,
sem festa má m.a. á ísskápshurðir.
Þannig verður það daglega fyrir
augum manna. Merkinu verður
dreift um allt land.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
FRAMKVÆMDIR á Gjögurflugvelli gengu samkvæmt áætlun.
Gjögur-
flugvöllur
endurbættur
Árneshreppi. Morgunblaðið.
NÝLEGA var sett nýtt slitlag á
flugbrautina á Gjögri. Keyrðir
voru á milli 2.500 og 2.800
rúmmetrar af efni í brautina.
Fyrst var sett gróft efni og
svo fínna ofaná sem var þjapp-
að vel en nokkurn tíma tekur
fyrir efnin að festast vel.
Brautin var lokuð í 8 daga á
meðan framkvæindir stóðu yfír
og ein áætlanarflugferð var
farin til Hólmavíkur á meðan
og keyrt þaðan sem er um 100
km leið. Guðbjörn Charlesson,
umdæmissljóri flugvalla á Vest-
Qörðum sá um verkið á vegum
Flugmálastjórnar.
Gagrýni á skipulags-
breytingar á embætti
lögreglustjórans
Stríða gegn
lögum
ÖGMUNDUR Jónasson, Þing-
flokki óháðra og formaður BSRB,
sagði á Alþingi í gær að fyrirhug-
aðar breytingar á yfirstjórn lög-
reglunnar í Reykjavík stríddu
gegn lögum.
I fyrirspurnartíma las Ögmund-
ur upp úr 6. grein lögreglulaga þar
sem segir að lögreglustjórar fari
með stjórn lögregluliðs hver í sínu
umdæmi. Þar segir einnig að lög-
reglustjórar annist daglega stjórn
og rekstur lögreglunnar í umdæmi
sínu og beri ábyrgð á framkvæmd
lögi-eglustarfa innan þess. Ög-
mundur sagði að samkvæmt tillög-
um dómsmálaráðheiTa væri nánast
búið að svipta lögreglustjórann
mannaforráðum og gera hann nán-
ast að staðgengli varalögreglu-
stjóra. Spurði Ögmundur Davíð
Oddsson, forsætisráðherra, hvort
hann hygðist taka fram fyrir hend-
urnar á dómsmálaráðherra í þessu
máli.
Davíð sagðist ekki hafa séð þær
tillögur sem kynntar hefðu verið í
fjölmiðlum um breytingar á skipu-
lagi lögreglunnar í Reykjavík, en
sagðist hafa skilið þær þannig að
um væri að ræða skipurit sem ráð-
gjafarstofa hefði unnið fyrir dóms-
málaráðuneytið. Forsætisráðherr-
ann sagði hins vegar að ef skipurit-
ið stangaðist á við lög þá giltu lögin
en ekki skipuritið.
Frábær fyrirtæki
1. Kvikmyndafyrirtæki sem er mjög þekkt og hefur framleitt fyrir
innlendan og erlendan markað til sölu. Mjög vel tækjum vætt.
Mikil verkefni. Einstakt tækifæri fyrir menn í þessum iðnaði.
Einnig er til sölu hljóðver sem einnig er búið góðum tækjum og
mjög þekkt.
2. Fiskframleiðslufyrirtæki til sölu með fjölbreytilegri vöru. Einstak-
lega vel tækjum búið, mikill markaður og góð sambönd.
Útflutningur.
Upplýsingar aöeins á skrifstofunni
r^nTTiT77?TT7I^rrirT7l
SUÐURVE R I
SÍMAR 581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Súrefiiisvörur
Karin
Herzog
• vinna gegn
öldrunareinkennuni
• enduruppbyggju liúöina
• vinna á appelsínuhúð
og sliti
• vinna á unglingabóluni
• viðhalila íerskíeika
Iuiðarmnar
Ferskir vindar í
umhirðu háðar
Ráðgjöf og kynning
í Rimaapóteki,
Grafarvogi,
í dag kl. 14-18
Kynningarafsláttur