Morgunblaðið - 03.11.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 03.11.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hlutafjárútboð hjá Islenskum sjávarafurðum hefst á morgun Verðbréfaþing átel- ur vinnubrögð IS VERÐBREFAÞING íslands átel- ur vinnubrögð Islenskra sjávaraf- urða og umsjónaraðila hlutafjárút- boðs þeirra, Landsbanka Islands, í lokaundirbúningi og birtingu út- boðs- og skráningaryfirlýsingar í hlutafjárútboði félagsins. A morgun hefst forkaupsréttar- tímabil í sölu á nýju hlutafé í IS. Heildamafnverð nýs hlutafjár er 200 milljónir króna. Forkaupsrétt- artímabilið stendur til 13. nóvem- ber og er sölugengi til forkaups- réttarhafa 1,75. Hinn 16. nóvember hefst almenn sala á sölugenginu 1,80. í yfírlýsingu sem Verðbréfaþing hefur sent frá sér kemur fram að sama dag og útboðs- og skráning- arlýsingin var birt opinberlega kom stjórn IS saman og tók ákvarðanir og gaf yfirlýsingar sem breyttu í verulegum efnum þeirri mynd sem gefin hafði verið í lýsingunni. Afkoma Iceland Seafood afar slæm í fréttatilkynningu sem IS sendi frá sér og er viðauki við hlutafjár- útboð félagsins kemur fram að af- koma dótturfyrirtækis íslenskra sjávarafurða hf. í Bandaríkjunum, Iceland Seafood Corp., ISC, sé afar slæm og þar sem fyrirtækið er stórt innan rekstrar- og efnahags- reiknings samstæðunnar hefur af- koma þess veruleg áhrif á sam- stæðuuppgjör. „Stjóm íslenskra sjávarafurða hf., sem ræddi útboðið á fundi sín- um hinn 30. október sl., komst að þeirri niðurstöðu að í útboðslýsingu IS, sem send hafði verið til Verð- bréfaþings þann sama dag, mætti túlka upplýsingar um rekstur ISC þannig að halli félagsins hefði farið minnkandi frá því að sex mánaða uppgjör samstæðunnar var birt,“ segir í fréttatilkynningu IS. Þar kemur jafnframt fram að staðreynd málsins sé sú að tap fé- lagsins var afar mikið á tímabilinu janúar til júní, sem endurspeglist í sex mánaða uppgjöri samstæðunn- ar. Tapið hafi einnig verið mikið í júlí en hafi síðan farið minnkandi. Félagið sé enn rekið með tapi en ekki jafnmiklu og íyrstu sjö mánuði ársins. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu ákváðu stjórnir ÍS og ISC að Benedikt Sveinsson, for- stjóri IS, tæki að sér yfirstjórn Icelandic Seafood með aðsetur í að- alstöðvum þess í Bandaríkjunum. í viðaukanum við hlutafjárútboð ÍS vill stjóm félagsins koma því á framfæri að jafnhliða útboðinu sé unnið að fleiri þáttum sem varða fjárhagslega endurskipulagningu og styrkingu fjárhags IS. Þar beri hæst sölu á eignarhlutum í félögum sem ekki eru hluti af meginstarf- semi samstæðunnar og framtíðar- sýn. „Reiknað er með að heildarnið- urstaðan verði sú að um 1.000 millj- ónir króna komi til ráðstöfunar og fjárhagslegrar endurskipulagning- ar,“ segir í viðaukanum. Hefði átt að fresta útboðinu Það er mat Verðbréfaþings að stjórn félagsins hljóti að hafa verið ljóst að hverju stefndi nokkru fyrr en sl. fóstudag er stjórnarfundur- inn var haldinn. „Því hefði tvímæla- laust átt að fresta birtingu útboðs- og skráningarlýsingarinnar og seinka útboðinu um nokkra daga. Úr því að málin fóru ekki í þenn- an farveg og lýsingin hafði þegar verið birt telur Verðbréfaþing að rétt hafi verið staðið að framhald- inu, þ.e. að birta fréttatilkynningu og jafnframt viðauka við lýsinguna. Félaginu og umsjónaraðila ber að sjá til þess að útgáfa viðaukans verði auglýst með jafnáberandi hætti og gert hafði verið þegar út- boðs- og skráningarlýsingin var birt. Verðbréfaþing hefur lagt áherslu á að stjórnendur geri sér grein fyr- ir inntaki þeirrar yfirlýsingar sem þeir undirrita og fylgir útboðs- og skráningarlýsingu. I slíkri yfirlýs- ingu er yfirleitt tekið þannig til orða að sá sem undirritar lýsi því yfir að útboðs- og skráningarlýs- ingin sé samin eftir bestu vitund, í fullu samræmi við staðreyndir, og engu mikilvægu atriði sé sleppt sem áhrif gæti haft á mat á útgef- andanum eða bréfum hans. Það er því afar óheppilegt þegar gripið er til þeirra ráða strax daginn eftir að slík yfirlýsing er undirrituð að birta nýjar upplýsingar sem geta haft veruleg áhrif á mat fjárfesta á verð- gildi bréfanna. Að sama skapi hefur þingið lagt áherslu á að umsjónaraðilar útboðs og skráningar leggi sig fram um að gæta þess að þegar útboðs- og skráningarlýsing er birt sé öll framkvæmd með þeim hætti að ekki þurfi að koma til breytinga eft- ir það nema vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna. Mikilvægt sé að tímasetja birtingu lýsingar og upphaf útboðs með þeim hætti að sem minnstar líkur séu á að eitthvað nýtt komi fram á útboðstímabilinu. Umsjón- araðilar þurfa því að eiga mikil og náin samskipti við útgefendur á lokadögum undirbúningsferlisins til að leitast við að stýra allri fram- kvæmdinni í farsælan farveg. Það er því afar óheppilegt að umsjónar- aðili undirriti sambærilega yfírlýs- ingu og útgefandinn um innihald útboðs- og skráningarlýsingar og síðan breytist myndin verulega daginn eftir, eins og hér gerðist,“ segir í yfirlýsingu frá Verðbréfa- þingi Islands, sem er undirrituð af framkvæmdastjóra þess, Stefáni Halldórssyni. I gær voru viðskipti með hluta- bréf í ÍS fyrir 330 þúsund krónur á Verðbréfaþingi Islands. Lækkaði gengi bréfanna um 5,6% frá síðustu viðskiptum. fdg Pji mest seldu fólksbíla- " |- )tegundirnarí Breyt frá J —J jan.- okt. 1998 fyrra án Fjöldi % % 1. Tovota 1.977 16,6 +30,8 2. Volkswaqen 1.187 10,0 +23,6 3. Nissan 1.039 8,7 +54,8 4. Subaru 1.010 8,5 +8,0 5. Mitsubishi 758 6,4 -10,0 6. Opel 701 5,9 +14,5 7. Suzuki 667 5,6 +33,9 8. Daewoo/Ssanq. 647 5,4 +276,2 9. Hyundai 577 4,9 -16,6 10.Honda 523 4,4 +76,7 H.Renault 464 3,9 +30,0 12.Peuqeot 406 3,4 +153,8 13. Daihatsu 337 2,8 +137,3 14.Ford 326 2,7 -12,6 15.Galloper 200 1,7 Aðrar teg. 1.068 9,0 +46,9 Samtals 11.887 100,0 +32,8 11 887 Bifreiða- innflutn. I janúar til okt. 1997 og 1998 VORU-, SENDI- og HÓPFERÐA- BÍLAR, nýir 1.068 1997 1998 1997 1998 Endurnýjað af kappi Nýskráning bifreiða hefur aukist um 33% fyrstu tíu mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Alls hafa selst 11.887 bílar það sem af er árinu, en á sama tíma í fyrra höfðu aðeins 8.949 bílar selst. Flestir kaupa bíla af gerðinni Toyota en 1.977 bílar af þeirri tegund hafa selst á árinu sem er tæplega 31 % aukning frá sama tima á síðasta ári. Næstflestir kaupa síðan Volkswagen en í þriðja sæti listans yfir mest seldu bíla er Nissan með 1.039 selda bíla og hafa nú selst um 55% fleiri Nissan bílar það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Nú er sala á Daewoo- og SSangyongbifreiðum í fyrsta skipti birtar undir sama lið þar sem fyrirtækin hafa verið sameinuð og skýrir það mikla breytingu frá fyrra ári en Daewoo kom fyrst á markað hér á þessu ári. BMW vill fleiri uppsagnir Canley, Englandi. Reuters. ÞÝZKA BMW bifreiðafyrirtækið hefur sagt verkalýðsfélögum að það vilji að 2.400 starfsmönnum til við- bótar verði sagt upp störfum hjá brezka Rover dótturfyrirtækinu til að bjarga bílaverksmiðjunni i Long- bridge, Birmingham. „I bezta falli sjáum við fram á þús- undir uppsagna og gífurlegan niður- skurð,“ sagði leiðtogi starfsmanna Rovers, Tony Woodley. „í versta falli sjáum við fyrir okkur lokun stærstu bílaverksmiðju landsins." BMW hefur þegar skýrt frá upp- sögnum 1500 starfsmanna og meiri- háttar niðurskurði. Beri ráðstafanir BMW ekki árangur verður versk- miðjunni í Longbridge lokað og 14.000 missa atvinnuna. „Fyrirtækið hefur sagt að það verði fyrir svo miklu tapi að alls ekki sé hægt að una því,“ sagði Woodley. Albert Jónsson forstöðumaður verðbréfamiðlunar Fjárvangs Hagræði af sameiningu SH og IS EF Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. og íslenskar sjávarafurðir hf. myndu sameinast og til yrði eitt stórt sölufyi-irtæki sem væri með veltu á bilinu 50-60 milljarða króna væri hægt að hagræða verulega í sölukerfinu auk þess sem hægt væri að ná verulegri hagræðingu hjá framleiðslufyrirtækjunum sem eru í Bandaríkjunum og Evrópu, segir AI- bert Jónsson, forstöðumaður verð- bréfamiðlunar Fjárvangs. Hann segir að jafnframt væri hægt að nýta betur þau vörumerki sem félögin hafa byggt upp á erlend- um mörkuðum. „Þess vegna verður að líta á ÍS sem fjárfestingartæki- færi fyrir SH og SIF miðað við nú- verandi verð á hlutabréfum félagsins ef menn líta eingöngu á þetta í við- skiptalegum tilgangi og sleppa allri tilfinningalegri nálgun a viðfangsefn- ið. Snertifletir SH og ÍS eru margir, m.a. verksmiðjurnar í Bandaríkjun- um og Evrópu auk þess sem SH og ÍS eru með söluskrifstofur í Banda- ríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Japan og Rúss- lanþi,“ segir Albert. Á síðasta ári nam hagnaður SH 277 milljónum króna, SÍF 155 millj- ónum króna en 310 milljóna króna tap var á rekstri ÍS á síðasta ári. Fyrirtækin þrjú sérhæfa sig í öflun, sölu og dreifingu á sjávarafurðum á heimsmarkaði. Tækifæri til yfirtöku Á morgun hefst sala á nýju hlutafé í IS til forkaupsréttarhafa. Heildar- nafnverð nýs hlutafjár er 200 millj- ónir króna. Fast gengi til forkaups- réttarhafa er 1,75 en í almennri sölu, sem hefst 16. nóvember, verður gengið 1,80. í gær lækkaði gengi hlutabréfa í ÍS um 5,6% á Verðbréfa- þingi Islands en viðskipti voru með bréf félagsins á genginu 1,60 og 1,70. Að sögn Alberts er Ijóst að tæki- færi er fyrir SH og SÍF að reyna yf- irtöku á IS með því að kaupa hluta- bréf í félaginu miðað við núverandi markaðsaðstæður og ná fram auk- inni hagræðingu í greininni. „Einnig væri hægt að hugsa sér frekari hag- ræðingu í sjávarútvegsfyrirtækjum sem hafa talist til framleiðenda á vegum Islenskra sjávarafurða í kjöl- far slíkrar sameiningar eða yfir- töku,“ segir Albert Jónsson. Að sögn Friðriks Pálssonar, for- stjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, eru engar viðræður í gangi milli fyrirtækjanna um sameiningu. NOSTRADAMUS HAFÐI RANGT FYRIR SÉR! Veröldin ferst ekki í lok 20. aldar, eins og spámaðurinn gamli helt fram. Þvert á móti er hún sprækari en nokkru sinni fyrr. Það vita sérfræðingar hlutabréfasjóða ACM sem fjárfesta í nýjum hugmyndum á hverjum degi með frábærum árangri. Leitaðu nánari upplýsinga um erlenda hlutabréfasjóði ACM hjá ráðgjöfum Landsbréfa. jjSf mmmmmmmmmm ACMOffshore Funds LANDSBRÉF www.landsbref.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.