Morgunblaðið - 03.11.1998, Side 21

Morgunblaðið - 03.11.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 21 ________________________VIÐSKIPTI____________________ Philips mun lokn þriðju hverri verksmiðju fyrir árið 2002 Amsterdam. Reuters. FORSTJORI Philips, Cor Boonstra, hefur tilkynnt að allt að þriðju hverri verksmiðju fyrir- tæksins verði lokað fyrir 2002 til að hagræða rekstrinum og auð- velda fyrirtækinu að bregðast við erfiðleikum í efnahagsmálum heimsins. Boonstra gaf í skyn að fram- leiðslugeta Philips væri orðin of mikil og vöktu orð hans ugg meðal 256.000 starfsmanna Philips en leiddu til þess að verð bréfa í fyrir- tækinu hækkaði um 5% í 104,90 gyllini eftir opnun í Amsterdam. Philips hefur lokað 25 verk- smiðjum síðan 1. janúar og stefnt er því að loka 18 til viðbótar fyrir áramót. I lok ársins mun verk- smiðjum fyrirtækisins hafa fækk- að úr 269 í 226. Árið 2002 verða þær 160-170. Sérfræðingur ABN AMRO tel- ur að „eitthvað verði að gera á Italíu og auka skilvirkni í Banda- ríkjunum og Brasilíu. „Verksmiðj- um verður lokað á kostnaðarfrek- um svæðum - Evrópu og Banda- ríkjunum,“ sagði annar sérfræð- ingur.“ Harður í horn að taka Boonstra hefur fengið orð fyrir að vera harður í horn að taka síðan hann varð stjórnai’formaður Philips í október 1996 og hét aukinni hag- ræðingu. Á síðustu tveimur árum hefur Philips losað sig við rúmlega 20 fyrirtæki, þar af mörg sem voru byggð upp í tíð fyrirennara hans, Jan Timmer. Meðal annars var samið við Seagram í Kanada um sölu á tónlistar- og skemmtideild- inni PolyGram - 10,4 milljarða doll- ara fyrr á þessu ári. Áður hafði Grundig í Þýzkalandi verið selt. í síðasta mánuði var hætt við eftirlæti Boonstra, sameiginlegt fjarskiptafyrirtæki Philips og Lucent í Bandaríkjunum. Sam- vinnan var kostnaðarsöm tilraun, sem var meginorsök þess að 750 milljóna gyllina tap varð á rekstri neytendadeildarinnar Philips Consumer Communications (PCC) á þessu ári. IIciniHsióu: :itliii*ii%.mmcitin.iv1iii:varoepYIH auping Microsoft NT verður Windows 2000 San Francisco. Reuters. MICROSOFT-hugbúnaðarrisinn hefur sagt að næstu útgáfu Windows NT línu stýrikerfa, sem tafizt hefur lengi, verði gefið nafnið Windows 2000. Fyrirtækið gerir enn ráð fyrir að afhenda hugbúnaðinn 1999, en vör- unni er gefið nýtt nafn til að sýna vaxandi notkun hennar í venjuleg- um viðskiptaforritum. Tvær aðalútgáfur kerfisins verða kallaðar Windows 2000 Pro- fessional og Windows 2000 Server. Microsoft hyggst útrýma heit- inu“vinnustöð“ úr orðaforða sínum til að sýna að Windows NT sé í vaxandi mæli notað í venjulegum skrifborðstölvum og ekki aðeins í kraftmiklum vinnustöðvum verk- fræðinga. I boði verða þrjár útgáfur af miðlurum, þar á meðal nýr Windows 2000 Datacenter Server, sem á að nota í stórum tölvuvædd- um gagnageymslum. Hinar miðlaraútgáfumar eru Windows 2000 Advanced Server og Windows 2000 Server. Síðan Microsoft markaðssetti NT kerfin 1993 hefur fyrirtækið selt 20 milljónir borðtölva og rúm- lega 3 milljónir miðlaraútgáfa. ----------------- LIFFE dregur saman seglin og segir upp starfsfólki London. Reuters. LIFFE, hinn kunni afleiðsluvið- skiptamarkaður Lundúna, hefur skýrt frá víðtækum uppsögnum til að draga úr kostnaði og fá nýja að- ila til samstarfs í því skyni að sigr- ast á harðri samkeppni. Aðalframkvæmdastjóri LIFFE, Hugh Freedberg, sagði að starfs- mönnum yrði fækkað í innan við 400 fyrir lok næsta árs úr rúmlega 1.000 nú. Stjórn LIFFE sam- þykkti áætlunina 20. október, en ákvörðuninni hefur verið haldið leyndri. LIFFE hefur mætt harðri sam- keppni frá aðalkeppinauti sínum, svissnesk-þýzka bandalaginu Eurex, sem hefur náð miklum við- skiptum frá LIFFE á síðustu 12 mánuðum, aðallega vegna tölvu- væðingar. LIFFE hefur boðað breytingu í þá átt á næsta ári, en fyrirtækið þykir hafa verið of lengi að rétta úr kútnum. LIFFE hefur verið þögult um nýja samstarfsaðila, en tilkynnt að leitað sé eftir nánari tengslum við London Clearing House (LCH). aftir Þórarin Eldjárn þar : sem öll helstu höfundareinkenni hans njóta sín til fulls: Hnitmiðaður stíll og leikni með íslenskt mál, instök frásagnargáfa og smeygilegur húmor sem oft og tíðum reynist igghvass þegar betur er að gáð. Þórarinn var tilnefndur til Evrópsku lókmenntaverðlaunanna fyrir síðustu bók sína, Brotahöfuð. VAKA- HELGAFELL SIÐUMÚLA6, 108 REYKJAVlK, SlMI 550 3000. Einstök frásagnargáfa - ísmeygileg aamansemi uml

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.