Morgunblaðið - 03.11.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.11.1998, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Talið að allt að 7.000 kunni að hafa farist í flóðum og aurskriðum í Mið-Ameríku „Fjallið sprakk og flóð- bylgja aurs ruddist niður“ Managúa, Tegucigalpa. Reuters. ALLT að 7.000 manns kunna að hafa látið lífið af völdum hitabelt- islægðarinnar Mitch sem gengið hefur yfir Mið-Ameríku. Er það haft eftir embættismönnum í Níkaragva og Hondúras. Flest eru dauðsfollin í Níkaragva, þar sem allt að 1.100 manns hafa látist en um 1.500 manns er enn saknað eft- ir gríðarmikla aurskriðu er féll á þorp er stóðu undir eldfjallinu Cas- itas. Þá hafa 317 farist í Hondúras en stjómvöld í landinu sögðu í gær að tala látinna gæti farið yfir 4.000, þar sem fjölmörg svæði væru ein- angruð og ekkert væri vitað um af- drif fólks á þeim. Þá eru 144 látnir í E1 Salvador, 37 í Gvatemala og sjö í Kosta Ríka. Mjög hefur dregið úr krafti Mitch, sem telst ekki lengur fellibylur. Hann veldur engu að síður gríðarlegu úrhelli sem orðið hefur til þess að hann er mann- skæðasta óveður sem gengið hefur yfir Mið-Ameríku frá 1974. Aðkoman í þorpunum við Casit- as var skelfileg, að sögn hjálpar- starfsmanna og fréttamanna. Hvarvetna sáust lík manna í aum- um innan um tré, grjót og rústir húsa, sem borist höfðu langa leið með skriðunni, sem féll sl. laugar- dag. Björgunarstarf gengur erfið- lega en í gærmorgun höfðu t.d. fundist 500 lík í bænum Posaltega, sem er um 140 km norður af höfuð- borginni Managúa. „Fjallið sprakk og flóðbylgja aurs, vatns, steina og trjáa mddist niður og skildi ekkert eftir í slóð sinni,“ sagði Raul Espinosa, sem komst lífs af úr skriðunni en liggur nú slasaður á sjúkrahúsi. Tölur um látna og slasaða eru nokkuð á reiki en talsmaður Rauða krossins í Níkaragva sagði að margir mánuð- ir kynnu að líða áður en ljóst yrði hve margir hefðu látist. „Þetta er harmleikur sem veldur hryggð í landinu öllu,“ sagði vamarmál- aráðherra Níkaragva, Pedro Joaquin Chamorro. Borgarstjóri ferst Yfirvöld í þeim löndum sem verst hafa orðið úti lýstu um helgina yfir neyðarástandi en í Níkaragva einu eru 172 þorp og bæir einangruð. I Hondúras hefur hálf önnur milljón manna verið flutt frá heim- Reuters BJORGUNARMAÐUR leitar að lífsmarki í aurskriðunni sem féll úr eldfjallinu Casitas á laugardag. Yfir 1.100 manns fórust í henni og um 1.500 er saknað. Er aðkoman skelfileg, hvarvetna sést í lik í aurnum. MITCH MANNSKÆÐUR Flóð og aurskriður hafa kostað yfir 1.500 manns lífið í Mið-Ameríku og á annað þúsund manns er saknað eftir að hitabeltislægðin Mitch gekk yfir. Hitabeltis- lægðin Mitch KYRRAHAF Bandaríkin f Aurskriða á Casita- fjalli fellur á þorp og kostar að minnsta kosti 610 manns lífið, en 1.500 ersaknað 1.071 (Níkaragva 317 íHondúras 144 í El Salvador 37 í Gvatemala 7 í Kosta Ríka 1 íMexíkó 1 íBelís r 3 1 PANAMA KÓLUMBfA '\ % km 500 ilum sínum vegna flóða. Vegir og brýr hafa eyðilagst, síma- og raf- magnslínur slitnað og í höfuðborg- inni hefur um helmingur húsanna skemmst eða eyðilagst. A meðal fórnarlambanna í Hondúras var borgarstjórinn í Tegucigalpa, Ces- ar Castellanos, en þyrla sem flytja átti hann og fjóra aðra til flóða- svæðanna hrapaði. Castellanos var talinn einn líklegasti forsetafram- bjóðandi stjórnarandstöðunnar í næstu kosningum. Um 100 manns fórust í E1 Salvador er fljótið Rio Grande flæddi yfir bakka sína og tók með sér stærsta hluta bæjarins Chilanguera. Þá hafa á fjórða tug manna látist af völdum Mitch í Gvatemala en fellibylurinn gekk yf- ir landið í fyrrinótt. Fórust tólf trú- boðar í flugslysi í Gvatemala sem rekja mátti til úrhellisins. Þá hefur um þrjátíu manns, sem voru um borð í 282 feta snekkju á Karíba- hafi, verið saknað í viku. Bræður bönuðu leikfélaga Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. TVEIR sænskir bræður, fimm og sjö ára gamlir, urðu síðastliðið sumar valdir að dauða Kevins, fjögurra ára drengs. Lögreglan í Arvika, þar sem drengirnir bjuggu, segir að málið hafi verið upplýst fyrir tveimur vik- um og þá hafi félagsmálastofnun bæjarins verið falið að taka bræð- urna og foreldra þeirra í meðferð, enda ekki um það að ræða að bræð- urnir verði sóttir til saka. Um miðjan ágúst hvarf Kevin þar sem hann var að leik með öðrum börnum. Um kvöldið fannst drengur- inn látinn og hafði honum verið mis- þyrmt. Nokkrar vikur liðu áður en lögreglan beindi athyglinni að leik- félögunum. A blaðamannafundi í gær lýsti lögreglan í stórum dráttum hvað gerðist. Kevin hafði hitt bræðuma, sem hann þekkti, og fóru þeir afsíðis. Leikur þeirra endaði með því að bræðurnir misþyrmdu Kevin og á endanum þrýstu þeir priki að hálsin- um á honum, þar sem hann lá. Bana- mein Kevins var áverkar á hálsi. Bræðurnir gerðu sér grein fyrir verknaðinum og földu líkið. Það var svo afi Kevins sem fann líkið um kvöldið, eftir að fjölskyldan og fleiri höfðu leitað hans síðan fyrr um dag- inn. -------------- Anwar kem- ur fyrir rétt Kuala Lumpur. Reuters. RÉTTARHÖLD yfir Anwar Ibra- him, fyrrverandi aðstoðarforsætis- ráðherra Malasíu, hófust í höfuð- borginni Kuala Lumpur í gær, en hann er ákærður fyrir spillingu og kynferðisafbrot. Dómarinn hafnaði kröfu verjenda Anwars um að fjórum kærum vegna spillingar yrði vísað frá vegna form- galla. Beiðni um að erlendir lög- fræðingar og fulltrúar mannréttinda- samtaka fengju að vera viðstaddir réttarhöldin var einnig hafnað, á þeirri forsendu að hún væri van- virðing við dómstólinn. Um 500 stuðningsmenn Anwars komu saman við dómhúsið í gær og stóðu fyrir friðsamlegum mótmælum. Mahathir Mohamad, forsætis- ráðherra Malasíu, vék Anwar úr ríkisstjórninni fyrir tveimur mánuð- um, að sögn vegna þess að hann hefði átt mök við karlmenn, sem er lögbrot í Malasíu. Anwar var handtekinn í lok september. Stjórnarandstæðing- ar hafa síðan krafist lausnar Anwars og afsagnar Mahathirs. Diskóteksbruninn í Gautaborg Prímakov kynnir efnahagsaðgerðir sínar í dúmunni Leigutaki hússins sóttur til saka? Sagðar tilraun til að friða dúmu og IMF u. Reuters. Kaujimannahöfn. Morgunblaðið. SKÓLAR í Gautaborg hófu daginn í gær með minningarstund vegna brunans aðfaranótt föstudagsins er kostaði tugi ungmenna lífið. Rannsókn lögreglunnar beinist nú að því að finna upptök eldsins og athuga hvort ungmennin átta, sem fengu sal- inn leigðan, beri ábyrgð á eldsvoðan- um og afleiðingum hans. Tvö ung- menni í viðbót létust um helgina, svo nú hafa alls 62 látið lífið sökum brun- ans. Enn eru 73 ungmenni á sjúkra- húsum. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að greiða fjölskyldum hinna látnu um 200 þúsund íslenskar krónur í bætur án tillits til hvort foreldramir eru tryggðir eða ekki. I skólum hverfisins þaðan sem flestir hinna látnu koma báru auðir stólar í kennslustofunum hinum sorglega atburði vitni. Allir skólar í Gautaborg minntust hinna látnu, en sérstaklega þeir sem fómarlömb eldsvöðans gengu í. Ljóst er nú að óþarflega langur tími leið áður en lögregla og slökkvi- lið komu á vettvang. Astæðan er sú að fyrsta símhringingin úr hinum brennandi samkomusal kom úr far- síma. Sá sem hringdi var í öngum sínum og mikill hávaði í bakgmnni, þannig að skilaboðin vora óskýr. Hver ber ábyrgð? Það var hópur átta ungmenna, sem fékk salinn á leigu, en ábyrgðin mun að öllum líkindum ekki dreifast jafnt á þau. Nítján ára piltur sem skrifaði undir beiðnina um að fá samkomusal- inn leigðan, mun að öllum líkindum verða sóttur til saka. í gær höfðu verið birt nöfn 59 þeirra er létu lífið. I flestum tilvikum er um innflytjendur að ræða og fórn- arlömbin era fædd á árunum 1979- 1984. Enn eru sextíu unglingar á sjúkrahúsum í Gautaborg og þrettán utan borgarinnar. JEVGENÍ Prímakov, forsætis- ráðherra Rússlands, kynnti í gær fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir stjórnar sinnar fyrir þingmönnum dúmunnar, neðri deildar þingsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, hefur hafnað því að greiða út 4,3 milljarða dala lán til Rússa á grand- velli aðgerðanna og rússneskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt þær harð- lega, sagt þær óraunsæjar, og aðrir gagnrýnendur finna það helst að að- gerðunum að þær séu ekki nógu sértækar. Á fundi með flokksleiðtogum í dúmunni sagði Prímakov ríkisaf- skipti af efnahagsmálum nauðsynleg til að koma á reglu í efnahagslífinu. Sagði forsætisráðherrann það „stundað um allan heim“ í löndum sem efnahagskreppa hefði dunið yf- ir. Tillögur stjórnar Prímakovs, sem hún samþykkti á laugardag, hafa ekki enn verið birtar opinberlega en drög að þeim birtust í viðskipta- blaðinu Kommersant. Þar eru boðuð aukin ríkisafskipti af efnahagsmál- um og gengi rúblunnar, lægri skatt- ar til iðnfyrirtækja og seðlaprentun, auk þess sem stjórnin heitir því að greiða laun og ellilífeyri. Ekki er hins vegar að finna neinar útlistanir á því hvaðan stjórnin ætlar að fá fé til að standa við þessi loforð og ekki eru nefnd nein tímamörk. Endanlega verður gengið frá til- lögunum hinn 5. nóvember og stjórn- in leggur fram fjárlög hálfum mán- uði síðar. Rússneskir fjölmiðlar hafa farið háðulegum orðum um tillögurn- ar, t.d. sagði dagblaðið Sevodnja þær vera „uppfullar af draumum og byggðar á tálsýn". Um 17 milljarða dala erlendar skuldir Rússa gjaldfalla snemma á næsta ári, auk þess sem Rússar skulda milljarða rúblna í laun og elli- lífeyri. í gær kvaðst Viktor Gerasjenkó seðlabankastjóri ekki búast við þvi að 90 daga frestur rúss- neskra banka til að greiða erlendar skuldir sínar yrði framlengdur, en hann rennur út 18. nóvember nk. Fundað um matvælaaðstoð I gær var haldinn fundur rúss- neskra og bandarískra embættis- manna um hugsanlega matvælaað- stoð þeirra síðarnefndu við Rússa en hvorugir vildu tjá sig um málið í gær. Bandaríkjamenn hafa sett það skilyrði fyrir matvælahjálp að tryggt sé að hún berist þeim sem séu í mestri neyð. Hafa þeir spáð þvi að langan tíma taki að tryggja slíkt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.