Morgunblaðið - 03.11.1998, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUNNAR Dal, Sigurður K. Árnason og Baldur Óskarsson með bókina
fslenskir myndlistarmenn.
Nýjar bækur
Lifa þar fáir
en hugsa stórt
• ÍSLENSKIR myndlistarmenn -
stofnfélagar myndlistarfélagsins
er í samantekt Gunnars Dal, rithöf-
undar og Sigurðar K. Árnasonar,
myndlistarmanns.
I kynningu segir: „Þessi bók
fjallar eingöngu um Myndlistarfé-
lagið og þá listamenn sem þar
störfuðu.
Laugardaginn 16. september
1961 komu saman í Tjarnarkaffi
nokkrir myndlistarmenn til að
stofna með sér félag sem þeir
nefndu einfaldlega Myndlistarfélag-
ið. Þessir menn voru: Finnur Jóns-
son, Gunnlaugur Blöndal, Eyjólfur
J. Eyfells, Sigurður Kristján Árna-
son, Sveinn Björnsson, Þorlákur R.
Halldorsen, Guðmundur Einarsson
frá Miðdal, Gunnfríður Jónsdóttir,
Freymóður Jóhannsson, Nína Sæ-
mundsdóttir, Aage Nielsen-Edwin,
Asgeir Bjarnþórsson, Ríkarður
Jónsson, Höskuldur Björnsson, Jón
E. Guðmundsson, Þórdís Tryggva-
dóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Eg-
gert Guðmundsson, Gréta Björns-
son, Ólafur Túbals; Baldur Edwins,
Guðmundur Karl Ásbjörnsson og
Pétur Friðrik Sigurðsson. Nokkrir
listamenn bættust síðan í hópinn.
Tilgangur félagsins var að efla vöxt
og viðgang íslenskra lista innan
lands og utan. Að halda sameigin-
legar listsýningar og taka þátt í
sýningum erlendis. Að veita lista-
mönnum stuðning til éinkasýninga.
Félagar gátu þeir einir orðið sem
gerðu myndlist að aðalstarfí. For-
maður félagsins var kosinn Finnur
Jónsson með öllum greiddum at-
kvæðum. Aðrir í stjóminni voru
Pétur Friðrik Sigurðsson, Eggert
Guðmundsson, Sveinn Björnsson og
Guðmundur Einarsson frá Miðdal.
Félagið hélt vorsýningar árlega um
áratuga skeið. Síðasti aðalfundur
félagsins var haldinn í mars 1970 og
þá er Finnur Jónsson enn formaður
og aðrir I stjórn voru Pétur Friðrik
Sigurðsson, Sigurður Kristján
Árnason, Helgi Guðmundsson og
Jón Gunnarsson. Helga Weisshapp-
el Foster var einnig um skeið ritari
félagsins."
Gunnar Dal varð stúdent frá MR
1946. Stundaði heimspekinám við
Edinborgarháskóla, Háskólann í
Kalkútta, Indlandi og Háskólann í
Wisconsin, Bandaríkjunum. Hann
var m.a. kennari í heimspeki og ís-
lensku í FB til 1991. Hann var í
stjórn félags íslenskra rithöfunda
og formaður þess árin 1985-86.
Hann hlaut Bókmenntaverðlaun
Ríkisútvarpsins árið 1976.
Sigurður K. Ámason, f. 1925, Iauk
sveinsprófi í húsasmíði 1949. Hann
stundaði myndlistarnám í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur og síðar í
Myndlista- og handíðaskóla Islands.
Byggingarverktaki árin 1963-82 og
hafði umsjón rneð listaverkum
Landsbanka íslands árin 1982-95.
Gunnar Dal og Sigurður K. Arna-
son gefa bókina út ognýtur útgáfan
styrktar Menningarsjóðs. Hún er
320 bls., prentuð í Prentsmiðjunni
Odda hf. Bókina prýðir fjöldi lista-
verkamynda. Kápumynd var eitt
verkanna á sýningu Evrópuráðsins
sem nefnd var Brautryðjendur
Evrópulistar á 20. öld og er eftir
Finn Jónsson. Verð: 5.980 kr.
TONLIST
Langli oltskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Selkórinn, einsöngvarar og Sinfóníu-
hijómsveit Islands fluttu Messu í C-
dúr eftir Mozart og Sálumessu eftir
Fauré. Laugardag kl. 17.
SELKÓRINN á Seltjamamesi
hefur starfað í þrjátíu ár, og á af-
mælistónleikum kórsins á laugar-
daginn, var mikið lagt í, - og ein-
söngvarar og Sinfóníuhljómsveit Is-
lands undir stjórn Bernarðs Wilk-
inssonar fengin kórnum til fulltingis.
Á efnisskránni vora tvö verk, Messa
í C-dúr KV220 eftir Mozart og Sálu-
messa eftir Gabriel Fauré. Tónleik-
ana bar upp á AUraheilagramessu,
þegar látinna er minnst; og vora
þeir helgaðir minningu Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdóttur.
Messa Mozarts er stutt og yfír-
bragðið allt létt og glaðlegt. Mozart
samdi hana á þeim árum er hann
vann sem organisti og konsert-
meistari erkibiskupsins í Salzburg.
Fjórir einsöngvarar sungu með
kórnum í messunni; Þuríður G. Sig-
urðardóttir sópran, Alina Dubik alt,
Snorri Wium tenor og Aðalsteinn
Einarsson bassi. Heildarsvipurinn á
flutningi þessa verks var glæsileg-
ur. Einsöngvararnir voru allir góð-
ir, og var einstaklega gaman að
Gunnar Gránz
sýnir myndir á
Kaffi Krús
Selfoss. Morgunblaðið.
GUNNAR Gránz alþýðulistmálari
opnaði nýverið sýningu í Kaffi
Krús á Selfossi.
Á sýningunni eru 10 vatnslita-
myndir og ein olíumynd. Flestar
myndirnar eru málaðar á þessu ári
á ferð listmannsins um landið.
Myndirnar eru í frjálslegum, ein-
földum og kraftmiklum stíl í litum
og formi.
Gunnar hefur áður haldið einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda sam-
heyra þarna í röddum sem allt of
sjaldan heyrist í. Selkórinn stóð sig
með mikilli prýði, - söng hreint og
og af öryggi, - þó heldur hafí vantað
mátt og meiri styrk í karlaraddirn-
ar. Benedictuskaflinn var sérstak-
lega fallega fluttur, með fallegum
einsöngskafla sópransins áður en
hinir einsöngvararnir og kórinn
tóku undir. Leikur hljómsveitarinn-
ar var fínn og í góðu jafnvægi við
sönginn. I lokaþættinum, Agnus
dei, - var sungið af tilfinningalegi'i
dýpt, rödd Þuríðar Sigurðardóttur
naut sín vel hátt yfir söng dýpri
raddanna. Verkinu lauk á glaðlegri
friðarbæn, Dona nobis pacem.
Gabriel Fauré lauk við smíði
Sálumessunnar í árslok 1887. Örfá-
um dögum seinna, á gamlárskvöld,
andaðist móðir hans. Hann ákvað að
bæta í snatri fleiri þáttum við verk-
ið, - en þó varð ekki af frumflutn-
ingi við útför móður hans, - heldur
var verkið frumflutt 16. janúar
1888, við útför óþekkts sóknarbarns
Magðalenukirkjunnar þar sem
Fauré starfaði. Hann átti tvívegis
eftir að breyta verkinu talsvert, og
lauk því ekki endanlega fyrr en árið
1900. Þetta er eitt af fegurstu verk-
um sinnar tegundar, heiðríkt og
bjart í tignarlegum tærleika sínum.
Það vantaði þó herslumun á að
flutningur Sálumessunnar væri eins
og best verður á kosið, - og þar var
helst því um að kenna hversu mátt-
Morgunblaðið/Sig. Fannar
„SÉÐ til Herðubreiðar". Ein
mynda alþýðulistmálarans
Gunnars Granz.
sýninga á undanförnum árum.
Sýning Gunnars í Kaffí Krús
stendur fram í nóvember.
arvana karlaraddir kórsins vora.
Það vantaði áræði í innkomum
þeirra, en það sem einkum mátti að
finna var að karlarnir sungu ekki
nægilega út, - og raddirnar bárust
ekki nógu vel um salinn. Þó er ekki
hægt að segja annað en að kórinn
megi vel við una, því margt var afar
fallega gert og af miklu músíkölsku
næmi. Það má tína margt til því til
staðfestingar eins og falleg blæ-
brigði sópransins í styrk í Exaudi
kafla Introitusþáttarins, þokkafull-
an söng altsins í Offertoriumþættin-
um, og sérstaklega fágaðan og mús-
íkalskan söng kórsins alls í Agnus
dei þættinum. Einsöngvararnir,
Þuríðui' G. Sigurðardóttir og Aðal-
steinn Einarsson, stóðu sig með
mestu prýði, - og Sinfóníuhljóm-
sveitin lék af mikilli snilli undir
stjórn Bernarðs Wilkinssonar.
Það má kalla mikið þrekvirki að
lítið sveitarfélag á annesi höfuð-
borgarinnar skuli búa yfír þeim
kröftum sem sýndir voru í Lang-
holtskirkju á laugardaginn. Hvernig
er þetta hægt? Hvernig má það
vera að fámennt bæjarfélag skuli
geta sýnt það þrek að bjóða gestum
að hlýða á svo fína tónleika sem
raun bar vitni? Það er ljóst að hér
hefur gríðarleg vinna og metnaður
verið lögð í að gera vel, og árangur-
inn er sannarlega fínn. Kórstjóri
Selkórsins, Jón Karl Einarsson, á
lof skilið fyi'ir þennan góða árangur
kórsins, - en ekki síður kórfélagar
sem hafa auðheyrilega lagt á sig
ómælda vinnu til að gera þessa tón-
leika að veruleika. Hér hefur fjöldi
manns lagt mikið af mörkum til að
kynnast og kynna stórvirki tónbók-
menntanna. Starf af þessu tagi er
íslensku tónlistarlífí ómetanlegt.
Bergþóra Jónsdóttir
Nýjar bækur
Framhald
sjálfsævisög’u
Guðbegs
• EINS og steinn sem hafið fágar
er eftir Guðberg Bergsson og er
sjálfstætt framhald skáldævisögu
Guðbergs, Faðir og móðir og dul-
magn bernskunnar, sem kom út í
fyrra og hlaut Is-
lensku bók-
menntaverðlaun-
in.
I kynningu
segir: „I þessari
bók heldur Guð-
bergur Bergsson
áfram sögunni
sem hófst í verð-
launabókinni
Faðir og móðir
og dulmagn
bernskunnar, og leitar uppi líf sem
hvergi er lengur að finna nema í
hugskotinu. Sagan um steininn sem
hafíð fágar er óður um lítið timbur-
hús við sjó, óður um fátækt og
óupplýst fólk sem býr yfir miklu
viti og djúpum tilfinningum. Sagan
lofsyngur engan né vorkennir nein-
um. Hún fylgir ekki framvindu
þess tíma sem menn trúa að sé
hinn eini rétti, heldur hrærist í sín-
um eigin tíma og lýtur einungis
lögmálum hugans og skáldskapar-
ins. Verkið ber undirheitið
„skáldævisaga“.“
Guðbergur Bergsson er fæddur
árið 1932. Fyrsta skáldsaga hans,
Músin sem læðist, kom út árið
1961, en meðal þekktustu verka
hans eru Tómas Jónsson metsölu-
bók, Ástir samlyndra hjóna, Hjart-
að býr enn í helli sínum og Svanur-
inn. Alls hefur Guðbergur sent frá
sér nær tvo tugi skáldsagna, smá-
sagnasöfn og ljóðabækur. Nokkrar
af skáldsögum hans hafa verið
þýddar á helstu bókmenntatungur
Evrópumanna og hlotið góða dóma.
Þá hefur Guðbergur sent frá sér
fjölmargar þýðingar sígildra skáld-
verka, einkum úr spænsku.
Utgefandi er Forlagið. Bókin er
411 bis., prentuð í Odda hf. Kápu
hannaði Guðrún Ragnarsdóttir.
Verð: 3.980 kr.
Guðbergur
Bergsson