Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 35
LISTIR
Óendanlegir
möguleikar
Morgunblaðið/Kristinn
KJARTAN Olafsson, tónskáld og höfundur tónsmíðaforritsins Calmus.
FYRIR skemmstu kom út geisla-
diskur með tónverkum eftir Kjartan
Ólafsson sem hann kýs að kalla Tón-
list með Calmus. Nafn disksins vísar
í að verkin á disknum eru samin
með aðstoð tónsmíðaforritsins Cal-
mus, sem Kjartan samdi á sínum
tíma og þróaði í námi sínu til licenti-
at prófgráðu við Síbelíusar-tónlist-
arakademíuna í Finnlandi.
Calmus er komið út í útgáfu 4.2 og
Kjartan Ólafsson segir að ný útgáfa,
5.0, komi út í janúar. Sú útgáfa verði
í Macintosh-umhverfi líkt og hinar
íyiri, en ytra séu menn að vinna við
að snara forritunarmálinu yfir í PC-
umhverfi. „Eg breyti notendaviðmót-
inu veruleg í nýrri útgáfu, enda er
Calmus mjög flókið forrit og not-
endaviðmótið hefur verið fullflókið.
Undanfarin ár hef ég notað fomtið
og kennt á það þannig að ég veit
mjög vel hverju þarf að breyta til að
gera það auðveldara í notkun."
Fyrir stuttu kom út platan frá
Kjartani eins og getið er, með safni
verka sem hann hefur samið með
Calmus. Kjartan segir að platan,
Tónlist með Calmus, spanni átta ár.
„Á plötunni er fyrsta verkið sem ég
samdi með Calmus en nýjast er
verk sem ég lauk við á síðasta ári
og hljóðritað var á þessu ári. Á
disknum koma fyrir einleiksverk,
kammerverk og hljómsveitarverk,
en það síðasttalda reyndar samið
með Calmus og síðan endurskrifað
með Calmus. Það er forsenda fyrir
útgáfu sem þessari að gott sam-
starf takist með tónskáldi og flytj-
endum og það er mitt lán að hafa
fengið til versksins frábæra flytj-
endur.“
Kjartan segist ekki telja að menn
eigi eftir að hejra á disknum að tón-
listin sé samin með aðstoð tölvu.
„Calmus hefur ekki staðið í vegi fyr-
ir tónsmíðum eða tálmað þær að
nokkru leyti, enda hef ég getað yfir-
stigið allar tálmanir með því að
breyta forritinu ef svo ber við,“
segri Kjartan. „Kosturinn við Calm-
us er hvað maður fær góða svörun
frá því. Maður gerir eitthvað á
ákveðnum forsendum og fær strax
svörun sem síðan er metin af not-
andanum á fagurfræðilegan hátt. Á
þann hátt held ég að þetta forrit hafi
tekið þátt í að þróa mig sem tón-
skáld, en tónlistin spannar minn og
þróunarferil sem tónskáld. Það er
nákvæmlega sama við forritun og
tónlist að það takmarkast allt við
manns eigin getu og finnist mönnum
tónlistin takmörkuð þá er það vegna
þess að ég næ ekki lengra sjálfur í
dag. Ég skynja þróunina í minni eig-
in tónlist í gegnum tíðina með því að
hlusta á diskinn. Það er aftur á móti
ómögulegt að segja hver þróunin
hefði orðið ef ég hefði ekki notið
Calmus, þó mér þyki líklegt að hún
hefði orðið önnur.“
Kjartan segir að diskurinn sé ekki
auglýsing íyrir fomtið að einu eða
neinu leyti, hann sé fyi'st og fremst
tónlistarinnar vegna. „Það hefur
alltaf verið mér hugleikið að nota nú-
tímatækni við tónsköpun og samspil
listamannsins við tæknina sem snýst
mikið um samviskuspurningar og
fagurfræðilegar. Nafnið sem ég vel
disknum á sér aftur á móti einfalda
skýi-ingu. Frá því fyrsta verkið sem
ég samdi með Calmus var frumflutt
hef ég alltaf getið þess í tónleikaskrá
að verkið sé samið með þessu
ákveðna forriti. I kjölfarið hafa allir
þeir sem um tónlistina fjalla varla
fjallað um tónlistina sjálfa, bara það
að hún sé búin til með tækni. Ég hef
alltaf skemmt mér yfir þessu og
nafnið á disknum er því birting
minnar persónulegu íróníu gagnvart
þein’i hugsun að menn eigi erfitt
með að sætta sig við það að list getur
verið búin til með öðru en blýanti og
strokleðri.
Það að geta ekki nýtt sér nútíma-
tækni og velja úr þeim möguleikum
sem við búum yftr í dag flokkast
undir fordóma. Kosturinn við að
vera starfandi tónskáld í dag eru
óendanlegir möguleikar til þess að
búa til það sem hugur okkar stendur
til.“
Dagskrá um
Guðberg
Bergsson á
Súfístanum
í TILEFNI útkomu annars bindis
skáldævisögu Guðbergs Bergsson-
ar, Eins og steinn esm hafið fágar,
verður dagskrá um Guðberg á
Súfistanum, Laugavegi 18, í kvöld,
þriðjudag kl. 20.30. Þar mun Silja
Aðalsteinsdóttir bókmenntafræð-
ingur fjalla um Guðberg og spjalla
við hann, auk þess sem Guðbergur
les úr bókinni. Fyrir fyrri hluta
bókarinnar, Faðir og móðir og dul-
magn bernskunnar sem kom út í
fyrra, hlaut Guðbergur Islensku
bókmenntaverðlaunin.
--------------
Námskeið
um listmeðferð
fyrir konur
AÐALHEIÐUR Elva Jónsdóttir
heldur námskeið í listmeðferð fyrir
konur sem hefst laugardaginn 7.
nóvember. Námskeiðið verður
haldið á Smiðjuvegi 4 í Kópavogi.
Listmeðferðarfræði er tækni þar
sem notast er við sköpun. I með-
ferðinni eru gefnir möguleikar á að
tjá sig; í tvívíðan flöt, mála á pappir
eða í þrívídd, t.d. í leir. 011 verkefn-
in miðast að sjálfsstyrkingu.
Aðalheiður Elva Jónsdóttir hlaut
MA gráðu í listmeðferð frá Lesley
College í Boston árið 1997.
Músíkalskt par
TONLIST
IVorræiia húsið
KAMMERTÓNLEIKAR
Rúnar Óskarsson klarinettuleikari
og Sandra de Bruin píanóleikari
fluttu tónlist frá 20. öld.
Sunnudag kl. 17.
EFTIR framúrskarandi
debúttónleika Rúnars Óskarsson-
ar í Hafnarborg í fyrra hefur það
verið tilhlökkunarefni að
heyra í honum aftur; - og á
sunnudaginn var loks lag.
Nú sem þá var meðleikari
hans hollenski píanóleikar-
inn Sandra de Bruin, og nú
sem þá var efnisskráin sér-
lega smekklega valin, með
úrvali verka frá okkar öld,
- sumum glænýjum.
Það kom ekkert á óvart
að þetta voru frábærir tón-
leikar. Þau Rúnar og
Sandra eru óhemju gott
dúó; - hafa bæði allt það
sem til þarf, - næmi fyrir
meðleikaranum, - mjög
góða tækni og óbrigðult
músíkalitet. Það er hrein unun að
hlusta á þau. Fantasia Breve frá
1983 eftir norska tónskáldið Olav
Berg var fyrsta verkið á efnis-
skránni. Þau fluttu verkið líka á
tónleikunum í Hafnarborg í fyrra,
- og tókst flutningurinn ekkert
síður í þetta skipti. Þetta er vel
samið verk byggt á dramatískum
andstæðum í hraða og styrk. Þar
skiptast á seiðandi og dulúðug
stef klarinettunnar yfir draum-
kenndri hljómaslæðu píanósins
og þróttmiklir og rytmískir kaflar
þar sem bæði hljóðfærin láta til
sín taka.
Nýtt verk, Night Music eftir
Bart Visman, var fiumflutt á tón-
leikunum, en verkið er samið fyrir
þau Rúnar og Söndru. Þetta var
ljóðrænt verk og hæglátt með
stígandi og auknum styrk um
miðbikið. Það var heldur langt, -
hugmyndir tónskáldsins full ítar-
lega dregnar á langinn, og hefði
vel þolað að vera styttra.
Sónatína eftir Malcolm Ai-nold
frá 1951 er skemmtilegt virtúós
stykki, rytmískt, byggt að hluta
á alþýðlegum stefjum. Fyrsti
þátturinn dregur úr sjóðum
djasstónlistar og er líflegur og
hraður. Annar þátturinn er and-
stæða ytri þáttanna, - lýrískur
og syngjandi. Lokaþátturinn er
byggður á stefi sem gæti allt eins
verið ættað úr grískri tónlist eða
klezmer tónlist gyðinga. Rúnar
og Sandra léku Sónatínuna með
miklum glæsibrag, - höfðu tón-
listina algerlega á valdi sínu og í
sér.
Skaramús svítan eftir Milhaud
er eitt vinsælasta tónverk aldar-
innar, - upphaflega samið fyrir
leikhúsið árið 1939, en seinna út-
sett af tónskáldinu fyrir tvö píanó
og enn seinna fyrir saxófón og pí-
anó og loks klarinettu og píanó,
en sú útsetning mun hafa verið
gerð fyrir Benny Goodman. Það
gætti örlítils óöryggis hjá Rúnari
í upphafi fyrsta þáttarins; -
tempóið fullhratt. Áframhaldið
var þó engum vandkvæðum bund-
ið, og samleikur þeirra Söndru
hreint út sagt frábær, - ekki síst í
hinum fjörmikla lokakafla sem
byggður er á brasilískum alþýðu-
stefjum.
Næturljóð eftir Esa Pekka Sa-
lonen frá 1978 eru hrífandi tón-
smíðar í látlausum einfaldleika
sínum, - og maður spyr sig hvers
vegna þessi ungi maður sem er í
þann veginn að verða frægasti
hljómsveitarstjóri heims skuli
ekki sinna tónsmíðum í meira
mæli. Rúnar og Sandra léku þess-
ar litlu andrár af tilfinningu og
drógu fallega fram andstæður og
marglit blæbrigði verksins.
Dansprelúdíur Lutoslavskíjs
frá 1954 eru eins og Skaramús
svítan meðal vinsælustu
verka aldarinnar, og til í
ýmsum búningi, - bæði
sem einleiksverk og hljóm-
sveitarverk. Leikur Rún-
ars og Söndru var sérdeilis
músíkalskur.
Þjóðlagaútsetningar Þor-
kels Sigurbjörnssonar
samdar 1972 bundu enda-
hnútinn á þessa ágætu tón-
leika. Það var virkilega
gaman að heyra hvernig
Ljósið kom langt og mjótt,
út úr myrkri þagnarinnar
og óx úr engu upp í þetta
einmanalega stef; - þetta
var firna vel spilað. Laglín-
an í Björt mey og hrein fékk
einnig að njóta sín fallega í klar-
inettunni. Yfir kaldan eyðisand er
stigið þungum en ákveðnum skref-
um í báðum hljóðfærunum. Kvæð-
ið um Okindina ferlegu, sem dreg-
ur böm oní göt og hrellir og meið-
ir á ýmsa lund, var hrottalega
glæsilega leikið.
Flest verkin á efnisskrá þess-
ara tónleika vora byggð á alþýð-
legum stefjum, - enda klarinettan
sennilega það hljóðfæri sem víð-
ast hefur ratað um heiminn, - og
flestar þjóðir tekið ástfóstri við.
Rúnar Oskarsson er hörkugóður
klarinettuleikari og Sandra de
Bruin stenst snúning hvaða píanó-
virtúós sem. Saman eru þau mús-
íkalskt par svo af ber, sannarlega
frábært dúó sem gaman verður að
fylgjast með.
Bergþóra Jónsdóttir
SANDRA de Bruin og Rúnar Óskarsson.
Einstök tilboö sem gilda til 15. nóv.
Ferðatöskusett sem
flýgur út á niðurpökkuðu
Fjórar vandaðar töskur
fyrir fjölskyldur sem hafa mikið til að bera!
Verð kr. 9.795-
Tilboðsverð aðeins kr. 7.935-
Flugtaska á
„fríhafnarprís!”
Flugtaska með áfastri grind á hjólum.
Upplögð fyrir ferðaglaða!
Verð kr. 3.285-
Tilboðsverð aðeins kr. 1.995-
r
i
i
I Reykjavik:
. Bókabúðin Hlemmi
Drangey Laugavegi 58
1 Penninn Austurstræti
I Penninn Kringlunni
l Penninn Hallarmúla
l Bókabúöin í Mjódd
[ Hafnarfjörður:
1 Bókabúð Böðvars
i Penninn Strandgötu
I Keflavík
, Bókabúö Keflavíkur
I_______________________
Akranes
Bókav. Andrésar Nielssonar
Borgames
KB Vöruhús
Blönduós
Kaupfélag Húnvetninga
Sauðárkrókur
Skagfiröingabúð, Ártorgi
Akureyri
Bókval
Selfoss
K.Á. Selfossi
Húsavlk
Bókav. Þórarins Stefánssonar
Egilsstaöir
Kaupfélag Héraðsbúa
Isafjörður
Bókav. Jónasar Tómassonar
Vestmannaeyjar
Bókabúðin Heiöarvegi
L-Í.UUB-