Morgunblaðið - 03.11.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 51%
FRÉTTIR
Landbúnaðarráðuneytið um skýrslu Rflrisendurskoðunar
Einhliða framsetning at-
hugasemda og ábendinga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá land-
búnaðarráðuneytinu vegna stjórn-
sýsluendurskoðunar Ríkisendur-
skoðunar á jarðadeild ráðuneytisins:
„Ríkisendurskoðun hefur nýlega
sent frá sér skýrslu um stjórnsýslu-
endurskoðun á jarðadeild landbún-
aðarráðuneytisins. Landbúnaðar-
ráðuneytið telur að framsetning at-
hugasenda og ábendinga af hálfu
Ríkisendurskoðunar sé gerð með
einhliða hætti, sem gefí ekki rétta
mynd af þeirri starfsemi sem fer
fram í jarðadeild landbúnaðairáðu-
neytisins, þó svo að margar ábend-
ingar í skýrslunni séu gagnlegar,
sem ráðuneytið mun taka til eftir-
breytni að því leyti sem breytingar
hafa ekki þegar verið gerðar. I al-
mennum inngangskafla um starf-
semi jarðadeildar er ekki vikið að
þeim meginhlutverkum jarðadeild-
ar, að kaupa og leigja jarðir sem
ekki er unnt að selja á almennun
markaði; að leigja jarðir á þann hátt
að tryggð sé búseta á jörðinni og at-
vinnustarfsemi til staðar og að ætt-
liðaskipti tryggi eftir því sem unnt
er áframhaldandi starfsemi á jörð-
inni. Af texta skýrslunnar mætti
frekar ráða að jarðadeildin annaðist
jarðeignir ríkisins eingöngu í mark-
aðsskyni án tillits til áðurnefndra
markmiða um búsetu og fram-
leiðslustarfsemi, skv. ákvæðum laga.
Ráðuneytið vekur athygli á að á
því tímabili sem um ræðir, þ.e.a.s.
árin 1993-1997 versnar rekstraraf-
koma bænda verulega. Loðdýrabú-
skapur á í verulegum rekstrarerfið-
leikum og stórfelldur samdráttur
varð í sauðfjárraskt og allverulegur í
nautgriparækt. Áhrifa þessa gætti í
ríkum mæli hjá ábúendum ríkisjarða
sem og öðnim bændum, sem leiddi
til þess að mun fleiri umsóknii’ bár-
ust jarðadeild um að ríkið keypti
jarðir af bændum, sem ekki seldust á
frjálsum markaði og fleiri mál til úr-
lausnar bárust deildinni um kaup á
jörðum eða eignum vegna ábúenda-
skipta en áður hafði gerst. Fjárveit>
ingar til þessara verkefna jukust
ekki í samræmi við aukna þörf sem
leiddi af sér að dráttur hefur orðið á
afgreiðslu einstakra erinda sem
gagnrýnt er af Ríkisendurskoðun.
Skoðun ráðuneytisins er sú að í
skýrslu Ríkisendurskoðunar sé ekki
tekið tillit til þessara staðreynda.
Þannig er ráðuneytið gagnrýnt fyiTr
að lofa ekki skilyrðislaust að kaupa
jarðir, sem falla innan nauðsynlegra
lagaheimilda til að verða við erind-
unum, þó svo fyrir liggi að ekki sé
unnt að verða við þessum erindum
að þbreyttum fjái-veitingum.
I skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram það mat að skjalavarsla
og skjalaskráning jarðadeildar,
vegna þeirra mála sem skoðuð voru,
sé ófullnægjandi og í mörgum tilvik-
um í ósamræmi við vandaða stjórn-
sýsluhætti. Ráðuneytið er ósammála
þessu mati. Öll mál eru bókuð og
skráð hjá skjalaverði og vistuð á
tveimur stöðum eftir því hvað gögn-
in fela í sér; annarsvegar í almennu
skjalasafni ráðuneytisins og hins-
vegar í sérstakri geymslu þegar um
heimildarskjöl er að ræða.
í dag fer öll skjalaskráning hjá
ráðuneytinu fram eftir reglum sem
gilda fyrir stjórnarráðið sem heild.
Skráning gagna fer fram í Lotus
Notes og eru öll innkomin sem og
útsend gögn vistuð í málaskrá auk
þess sem frumrit eru varðveitt.
Þá telur Ríkisendurskoðun að
málsmeðferð ráðuneytisins við kaup
og sölu jarða sé ábótavant. Jarðir
eru auglýstar eins og lög standa til
og ráðuneytið telur sér óskylt að
auglýsa jarðir í þeim tilvikum sem
hefur ekki verið gert. Nefna má sem
dæmi að auglýsing á jarðnæði til
sölu sem leigutaki óskar eftir að
kaupa þegar hann á hluta fram-
kvæmda eða jafnvel allar fram-
kvæmdir á jörðinni, myndi leiða til
óraunhæfra tilboða ef þau þá kæmu
fram. Kæmi til greina af hálfu jarða-
deildar að selja jörðina öðrum en
leigutaka hennar yrði kaupandinn
að kaupa af leigutaka allar eignir
leigutakans á jörðinni þá væntan-
lega gegn vilja leigutakans. Þá
þyrfti væntanlegur kaupandi einnig
að kaupa að bústofn og vélar, því
hann hefði enga möguleika til að
eiga viðskipti við fyrrverandi leigj-
anda, sem jörðin væri seld undan.
Hinsvegar myndi leigjandi, sem
hefði óskað eftir kaupum á eignar-
hluta ríkisins í þeirri jörð sem hann
situr, væntalega draga beiðni sína til
baka við þessar aðstæður.
Hvað leigu eftir ríkisjarðir varðar
gera ábúðarlögin ráð fyrir að aðilar
semji um jarðarafgjald og hafa lögin
að geyma ákveðið viðmið í því efni
en ekld fasta viðmiðun séu frá taldir
erfðaleigusamningar. Afgjald af
jörðum hefur um langt árabil verið
umsamin 3% af fasteignamati lands
og hlunninda og af kaupverði mann-
virkja og annan-a framkvæmda á
jörðinni. í skýrslunni er haldið fram
að talin sé hætta á að þetta fyrir-
komulag við ákvörðun leigu geri
hlut sjálfseignarbænda lakari sam-
anborið við leigjendur ríkisjarða.
Hér er sett fram fullyrðing sem eng-
an veginn er rökstudd. Má minna á
að fjárfestingar í landbúnaði hafa
gegnum árin notið niðurgreiddra
fjárfestingalána, verðhækkanir
eigna umfram almennar verðbreyt-
ingar hafa fallið eiganda þeirra í
skaut og jarðartengd réttindi, s.s.
greiðslumark í mjólk og sauðfé, fell-
ur eiganda jarðarinnar í skaut en
ekki leiguliða. Landbúnaðarráðu-
neytið telur að öll þessi atriði og
önnur sem ekki eru nefnd hér en
hafa áhrif á þennan samanburð, beri
að taka til hliðsjónar áður en áður-
nefndur samanburður er gerður, en
ekki er að sjá af skýrslunni að svo
hafí verið gert.
Ríkisendurskoðun telur að máls-
meðferð jarðadeildar samrýmist
ekki svonefndri málshraðareglu
stjórnsýslulaga. Að því tilefni minnir
ráðuneytið á að afgreiðsla erinda
sem deildin sinnir getur vart talist
til hefðbundinna stjórnsýslumála.
Málsforræði og afgreiðslutími mála
er ekki síður háð viðbrögðum þess
sem erindið rekur en ráðuneytinu
sjálfu. Þannig má nefna að sex mán-
aða fyrirvari er á uppsögnum á jarð-
næði og lokaafgreiðsla máls getur
því fyrst farið fram að þeim tíma
liðnum, að því gefnu að samningar
hafi tekist við fráfarandi ábúanda og
viðtakanda, sem byggja á einni eða ^
eftir atvikum tveimur matsgerðum*^
frá óháðum utanaðkomandi aðilum
sem einnig ráða miklu um af-
greiðslutíma málsins. Ráðuneytið
fellst á þau sjónarmið Ríkisendur-
skoðunar að dráttur hafi orðið á er-
indum til deildarinnar, sem varð
vegna fjölgunar erinda af ástæðum
sem áður eru raktar. Á því varð
hinsvegar breyting á liðnu ári eftir
að fjölgað hafði verið starfsmönnum
deildarinnar, sem hefur fært af-
greiðslu mála í ásættanlegt form.
Að lokum vill ráðuneytið taka
fram að þann 27. maí sl. var skipuð m
nefnd til að endurskoða lagaákvæði
sem snerta jarðir. Hlutverk nefnd-
arinnar er að athuga sérstaklega
eftirfarandi atriði:
• Kaupskylda jarðeiganda á fram-
kvæmdum og umbótum leiguliða,
sbr. 16. gr. ábúðarlaga nr. 64/1976.
• Rétt leiguliða til framkvæmda á
ábúðarjörð sinni, sbr. 12.-14. gr.
ábúðarlaga nr. 64/1976.
• Mat á framkvæmdum fráfarandi
ábúanda - úttektarmenn skv. 1.
mgr. 16. gr. ábúðarlaga nr. 64/1976.
• Ákvæði ábúðarlaga nr. 64/1976
um erfðaábúð.
• Skipan og hlutverk jarðanefnda í
sýslum landsins, sbr. jai’ðalög nr.
65/1976.
• Stofnun lögbýla, sbr. III. kafla '
jarðalaga nr. 65/1976.
• Lagaákvæði um óðalsjarðir, sbr.
jarðalög m’. 65/1976.
• Lög um jarðasjóð ríkisins nr.
34/1992.
Þá er nefndinni heimilað að taka
til umfjöllunar fleiri atriði en að ofan
eru nefnd og gera tillögur að laga-
breytingum um það atriði, þyki
ástæða til.
3 ára ábyrgð
DAIHATSU
fínn í rekstri
Staðalbúnaður í Daihatsu Terios:
Vökvastýri, rafdrifnar rúður að framan, rafdrifnir speglar, tveir
loftpúðar, samlæsing, útvarp og segulband, ræsitengd þjófavörn,
álfelgur, læsanlegur millikassi, tregðulæsing á afturdrifi,
sex ára ryðvarnarábyrgð og þriggja ára almenn ábyrgð.
Beinskiptur frá kr. 1.598.000
Sjálfskiptur frá kr. 1.678.000
Limited útgáfa kostar aðeins kr. 50 þús. í viðbót
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5 • Akureyri
Sími 462 2700
Fjölhæfni og svakaseigla
Daihatsu Terios sameinar lipurð í borgarakstri og frábæra
aksturseiginleika á slæmum vegum. Næmt vökvastýri, lítill
beygjuradíus og gott útsýni gera þrengstu svæði aðgengileg.
Sítengt aldrif, læsanlegur millikassi og tregðulæsing á afturöxli
skila honum örugglega áfram í þungri færð. Hæð undir
lægsta punkt er 185 mm.
| Bílasala Keflavikur I Bíley | Betri bílasalan
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi
1 Sími 421 4444 1 Simi 4741453 1 Sími 482 3100 1
Tvisturinn
Faxastíg 36 • Vestmannaeyjum
Sími 481 3141
ABS hemlakerfi,
Limited litur og
Limited mælaborð.
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010