Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 68
>68 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
DUSTIN Hoffman vann einn af mörgum leiksigrum sem SYDNEY Pollack að stýra Barbra Streisand ROBERT Redford hefur leikara oftast unnið fyrir Pollack.
atvinnulaus leikkona (!) í hálf-klassíkinni Tootsie. í The Way We Were. Hér er hann sem hinn eftirminnilegi einfari og fjallamað-
ur í Jeremiah Johnson.
LíKT og ótrúlega margir í kvik-
myndaiðnaðinum er leikstjórinn,
leikarinn og framleiðandinn
Sydney Pollack, (1934-), af gyð-
ingaættum. Nánar tiltekið sonur
rússneskra innflytjenda sem
komu til „fyrirheitna landsins"
seint á þriðja áratugnum. Settust
að í New York, þar sem sonurinn
nam leiklist hjá Sanford Meisn-
er, víðkunnum kennara, sem rak
„The Neighborhood PIayhouse“.
'Þar kenndi hann um sinn, siðan
Iá leiðin í sjónvarpið. þar sem
hann lék m.a. í verkum sem voru
sýnd í beinni útsendingu. Vann
þá fyrir John Frankenheimer,
sem síðar útvegaði honum fyrsta
starfíð við kvikmyndagerð, við
tökur The Young Savages, (‘61).
Því næst tóku við nokkur ár við
leikstjórn sjónvarpsþátta og -
mynda, fyrsta leikstjórnarverk-
efni hans fyrir hvíta tjaldið var
The Slender Thread, (‘65), nokk-
*.ið athyglisverð mynd um neyð-
SYDNEY POLLACK
arhnuþjónustu. Áður hafði
Pollack leikið á móti Robert
Redford í The War Hunt, (‘62), æ
síðan hefur andliti leikstjórans
brugðið fyrir á tjaldinu með
mislöngu millibili en oftast með
frekar eftirminnilegum hætti.
This Property Is Condemned,
(‘66), var byggð á leikriti eftir
Tennessee Williams, með Red-
ford og Natalie Wood. Ekkert
meira en þokkaleg, líkt og fyrsta
myndin. Þá var röðin komin að
The Scalphunters, (‘67), vestra
með Burt Lancaster og Ossie
Davis í fimastuði í miklum ærsl-
um og skondnum fíflagangi.
Lancaster Iék roskinn kúasmala
en Davis frelsingja sem talaði
með Oxford-hreim, ef minnið
svíkur mig ekki. Besta skemmt-
un. Castle Keep, (‘67), var ábúð-
armikil en h'fvana hrærigrautur
ímyndunar og raunvemleika úr
seinna stríði, þar sem Lancaster
naut sín engan veginn.
Þá var komið að They Shoot
Horses, Don’t They?, (‘69), fyrstu
mynd Pollacks sem dró að sér
fjiilda áhorfenda og hlaut undan-
tekningarlítið fína dóma. Bak-
grunnurinn er táknrænn fyrir
lífsbaráttuna á erfiðum tímum,
maraþondanskeppni á kreppuár-
unum. Döpur, óvægin, vel skrif-
uð, gerð og leikin, einkum af Gig
Young, sem fékk Óskarinn fyrir
túlkun sína á sjúskuðum dans-
stjóranum. Myndin skipaði
Pollack í hóp eftirsóttustu leik-
stjóra þessa tímabils, hann gat
valið úr verkefnum og kaus
STJORNMALASKOLI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS 1998
helgar- og kvöldskóli
Staður: Valhöll, Háaleitisbraut í. - Tími: 9. til 20. nóvember.
Innritun í síma: 515 1700/1777 - bréfsími 515 1717 og netfang xd@xd.is
Heimasíða http://www.xd.is
DAGSKRÁ:
Mánudagur 9. nóvembcr:
Kl. 19.00-19.30 Skólasetning: Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 19.30-21.00 Ræðumennska: Gísli Blöndal, markaðsstjóri.
Kl. 21.15-22.45 Starfsemi Sjálfstæðisflokksins, alþingiskosningar í maí:
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Þriðjudagur 10. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Atvinnu- og kjaramál: Magnús L. Sveinsson, formaður VR.
Kl. 21.15-22.45 Sjálfstæðisflokkurinn og allir hinir flokkarnir: Sigurður Líndal, prófessor.
Miðvikudagur 11. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Upplýsinga- og fjarskiptamál: Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur.
Kl. 21.15-22.45 Ræðumennska og fundarsköp: Gísli Blöndal, markaðsstjóri.
Kjartan Gunnarsson Magnus L. Sveinsson Fimmtudagur 12. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Heilbrigðismál: Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður.
Kl. 21.15-22.45 Greina- og fréttaskrif: Hanna Katrín Friðriksen, blaðamaður.
Laugardagur 14. nóvember:
Kl. 13.00-16.00 Ræðumennska og sjónvarpsþjálfun: Gísli Blöndal, markaðsstjóri og
Bjöm G. Bjömsson, kvikmyndagerðarmaður.
sigurður Líndai Guðbjörg^C. Mánudagur 16. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Utanríkismál: Hreinn Loftsson, hæstaréttarlögmaður.
Kl. 21.15-22.45 Efnahagsmál: Geir H. Haarde, fjármálaráðherra.
Þriðjudagur 17. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Kjördæmamál: Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisfl.
Kl. 21.15-22.45 Iðnaðar- og orkumál: Sigríður A. Þórðardóttir, alþingismaður.
Miðvikudagur 18. nóvember:
Kl. 19.30-21.00 Menntamál: Björn Bjarnason, menntamálaráðherra.
Kl. 21.15-22.45 Jafnréttismál: Helga Guðrún Jónasdóttir, stjómmálafræðingur.
Fimmtudagur 19. nóvember:
KI. 19.30-21.00 Sjálfstæðisstefnan: Sólveig Pétursdóttir, alþingismaður.
KI. 21.15-22.45 Kvótakerfið og önnur sjónarmið: Dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor.
Föstudagur 20. nóvember:
Kl. 20.00-22.00 Heimsókn á Alþingi og skólaslit: Ólafur G. Einarsson, forseti alþingis.
Lára Margrét Hanna Katrín
Ragnarsdóttir Friðriksen
Björn G. Björnsson Hrcinn Loftsson
Geir H. Haarde Sigríður A.
Þórðardóttir
Sólveig Pétursdóttir Dr. Hanncs H.
Gissurarson
□lafur G. Einarsson
vestrann Jeremiah Johnson,
(‘71). Útkoman ein hans besta
mynd, með firnagóðum Robert
Redford. Hann hefur leikið í fjöl-
mörgitm myndum vinar síns,
næst fór hann með aðalhlutverk-
ið í The Way We Were, (‘73), vin-
sælli mynd, þar sem leikstjórinn
reynir að gægjast undir yfir-
borðið í sögu af elskendum (Red-
ford og Barbra Streisand). Hún
á að gefa róttæka mynd af
bandarísku þjóðfélagi og stjórn-
málum frá því á fjórða áratugn-
um fram á tíma McCarthy. Tón-
Iistin er eftirminnilegust. Því
leiksfjórinn er, þrátt fyrir viður-
kennda fagmennsku og góða frá-
sagnargáfu, fyrst og fremst fyrir
augað frekar en andann, persón-
ur hans ná sjaldan innúr skinn-
inu. Pollack var aftur í topp-
formi tveimur árum síðar, er
hann lauk við The Three Days of
the Condor, frábæran njósna- og
ofsóknartrylli. The Yakuza,
mynd um japönsku mafiuna,
kom síðar sama ár. Minnisstæð-
ust fyrir stórleik Roberts Mich-
um í aðalhlutverkinu og handrit
Pauls Schrader (Taxi Driver).
Bobby Deerfíeld, (‘77), kappakst-
ursmynd með A1 Pacino, var
mikið mun slakari. Þá var röðin
komin að The Electric Horsem-
an, (‘79), enn einni myndinni með
Redford (Jane Fonda og Willie
Nelson). Þessi nútímavestri risti
ekki djúpt þrátt fyrir tilraunir í
þá veru, en var vinsæll og ágæt
afþreying. Tootsie, (82), er tví-
mælalaust besta mynd Pollacks
og sú vinsælasta. Að sigurför
hennar lokinni fór hann að eyða
æ meiri tíma í framleiðslu
mynda annarra Ieiksfjóra, sneri
aftur ‘85 með Out of Africa,
gustmikla mynd og metnaðar-
fulla um veru dönsku skáldkon-
unnar Karen Blixen í Afríku.
Hún færði leikstjóranum, kvik-
myndatökuinanninum David
Watkins, tónsmiðnum John
Barry, og nokkrum fleirum,
Óskarsverðlaunin, auk þess sem
hún hlaut þau sjálf. I mínum
augum er hún fallegt póstkort
frá framandi heimsálfu, Iítið
meira. Segir þegar upp er stað-
ið, ósköp lítið um manneskjuna.
Nú liðu fimm ár að næstu
frumsýningu. Havana, (‘90), var
litrík, innantóm mynd um
bandan'skan fjárhættuspilara
(Redford) á ti'mum byltingarinn-
ar á Kúbu. Næstu árin fram-
leiddi Pollack fjórar myndir og
lék í þrem (þ.á m. Husbands and
Wives, fyrir vin sinn Woody Al-
len). 1993 kom kvikmyndagerð
The Firm, metsölubókar eftir
John Grisham, rétturinn var
seldur á metfé á þessum tíma.
Fagmannleg og skemmtileg af-
þreying. Það verður seint sagt
umSabrinu, (‘95), síðasta verk
leikstjórans og endurgerð
kunnrar gamanmyndar frá
sjötta áratugnum með Audrey
Hepburn.
Næsta mynd Sydneys Pollacks
lofar hins vegar góðu. Hún nefn-
ist Random Hearts, og er vænt-
anleg að ári. Státar af gæðaleik-
urunum Harrison Ford, Kristinu
Scott Thomas, Peter Coyote og
Charles Dutton, og kvikmynda-
tökusnillingnum Philippe Rous-
selot (Mississippi Burning). Sem
fyrr segir hefur Pollack jafnan
verið afkastamikill framleið-
andi, meðal nýrri mynda hans á
því sviði er Sliding Doors, sem
enn gengur við góðan orðstír í
borginni.
Sígild myndbönd
TOOTSIE (1982)
•k'k'k'A
Atvinnulausum leikara (Dustin
Hoffman) gengur ekkert að fá
vinnu íyrr en hann klæðir sig upp
eins og kona, fær hlutverk í sápu-
óperu og slær eftirminnilega í
gegn. Tekur um leið k\ænhlut-
verk sitt alvarlega. Frábærlega
fyndinn farsi með einkar góðum
leikurum en enginn slær þó eins í
gegn og Hoffman í hinu tvöfalda
gei’vi; lítur nógu glæsilega út til
að Chai'les Durning verður bál-
skotinn í honum. Pollaek nær öllu
því besta útúr kómískum kiing-
umstæðunum og kemur reyndar
fram í þessari hálf-sígildu mynd,
sem umboðsmaður Hoffmans.
Með Jessicu Lange.
THREE DAYS OF THE
CONDOR (1975)
•k'k'k'h
Feikigóður samsærisþriller um
starfsmann (Robert Redford) í
leyniþjónustu Bandaríkjanna
sem kemst að meiru en hollt er
að vita og leggur á flótta. Frá-
bærir leikarar (Cliff Robertson,
Faye Dunaway, Max Von Sydow,
John Houseman), samankomnir
undir ágætri stjórn Pollacks sem
hér gerir eina af sínum bestu
myndum. Spennandi, „nojuð“og
lævís afþreying í hæsta gæða-
flokki.
JEREMIAH JOHNSON (1972)
k'k'kVi
Tvímælalaust einn tilkomumesti
vestri allra tíma, sannkallað
augnakonfekt. Tekinn i ægifögr-
um Klettafjöllunum, jafnt í
hrikalegu vetrarriki sem litríkri
sumarfegurð. Robert Redford
hefur sjaldan eða aldrei verið
jafn aðsópsmikill og fjallamaður-
inn og einfarinn Johnson og Wíll
Geer er ekki síður eftirminnileg-
ur sem annar harðskeyttur og
mannfælinn veiðimaðui. Byggð á
besta handriti Johns Miliusar.
Hörð og tilfmningaþrungin í
senn.
Sæbjörn Valdimarsson