Morgunblaðið - 12.11.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 1 3
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
FJÖLMENNT var á stofnfundi Samtaka ferðaþjónustunnar á Hótel Sögu í gær.
UM 180 manns sóttu stofnfund
Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF) sem haldinn var í gær.
SAF eru hagsmunasamtök fyrir-
tækja í ferðaþjónustu.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum kemur fram að Steinar
Logi Björnsson, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða,
hafi einróma verið kosinn for-
maður. A fyrsta stjórnarfundi,
sem haldinn var í lok stofnfund-
arins, var Einar Bollason, Ishest-
um, kosinn varaformaður og
Erna Hauksdóttir ráðin fram-
kvæmdastjóri. Aðrir í stjóm eru
Aslaug Alfreðsdóttir, Hótel Isa-
firði, Garðar Vilhjálmsson, Bfla-
leigunni Geysi, Helgi Jóhanns-
son, Samvinnuferðum, Omar
Oskarsson, Austurleið, og Stefán
Sigurðsson, Perlunni.
Að sögn Ernu Hauksdóttur
gengu tugir fyrirtækja í samtök-
in á stofnfundinum, meðal annars
fiugfélögin Flugleiðir, Atlanta,
Flugfélag íslands og Islandsflug,
Samtök
ferðaþjón-
ustufyrir-
tækja stofnuð
fjölmargar ferðaskrifstofur, veit-
ingastaðir, bflaleigur og önnur
ferðaþjónustufyrirtæki.
Arleg ljölgun ferðamanna
verður um 5%
Halldór Blöndal samönguráð-
herra flutti ávarp á stofnfundin-
um og benti meðal annars á að
ferðamönnum hefði Qölgað að
meðaltali um 5% á ári á þessum
áratug og störfum í ferðaþjón-
ustu hefði fjölgað um 17% frá
1990. Þau hefðu þá verið fjögur
þúsund en væru nú 4.800.
Hann þakkaði þennan árangur
meðal annars því jafnvægi sem
verið hefði í efnahagsmálum og
stöðugu verðlagi. „Það hefur gert
samanburð við önnur lönd mögu-
legan, sem aftur hefur ýtt undir
heilbrigða samkeppni," sagði ráð-
herrann. Hann sagði frjálsa og
óhindraða samkeppni í öllum
greinum ferðaþjónustunnar vera
forsendu þess að hún gæti
blómstrað hvarvetna í landinu.
„Lengi hefur verið áhugi innan
ferðaþjónustunnar á að samning-
ar geti tekist við ríkið og fleiri
aðila um árvissa ljárhæð til
markaðssetningar og kynningar
á fslandi erlendis. Samtök ferða-
þjónustunnar hafa nú gert það
mögulegt að þessi gamli draum-
ur geti ræst. Á næstu vikum mun
samönguráðuneytið vinna að því
með hinni nýju stjórn Samtaka
ferðaþjónustunnar að útfæra
þessar hugmyndir nánar, gera
sér grein fyrir hversu miklar
fjárhæðir séu til reiðu og hvernig
þeim skuli ráðstafað,“ sagði Hall-
dór.
Starfshópur um undirbúning að
nýju stjórnskipulagi hjá lögreglu-
stjóranum í Reykjavík
Ákveðið hverjir
skipa fram-
kvæmdastj órn
STARFSHÓPUR dómsmálaráð-
heira, sem vinnur að undirbún-
ingi að nýju stjórnskipulagi hjá
lögreglustjóranum í Reykjavík í
samræmi við tillögur í skýrslu
VSÓ ráðgjafar frá 29. október
síðastliðnum, hefur ákveðið
hverjir muni skipa fimm manna
framkvæmdastjórn embættisins
að undanskildum framkvæmda-
stjóra rekstrar- og þjónustu-
sviðs, en sú staða verður auglýst
á næstu dögum.
Frá og með 16. nóvember mun
Hörður Jóhannesson verða yfir-
lögregluþjónn lögreglusviðs og
framkvæmdastjórn lögreglu-
sviðs með honum skipa Karl
Steinar Valsson, sem verður að-
stoðaryfirlögregluþjónn í for-
vama- og fræðsludeild, Geir Jón
Þórisson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í almennri löggæsludeild,
og er hann jafnframt staðgengill
yfirlögregluþjóns, Sigurbjörn
Víðir Eggertsson aðstoðaryfir-
lþgregluþjónn _ stoðdeilda, og
Ómar Smári Ármannsson, sem
verður aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í rannsóknardeild. Yfirlög-
regluþjónarnir Jónmundur
Kjartansson og Guðmundur
Guðjónsson færast til ríkislög-
reglustjórans frá og með 16. nóv-
ember.
Starfshóp dómsmálaráðherra
skipa þeir Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri, sem er
formaður starfshópsins, Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, Georg Kr. Lárusson,
varalögreglustjóri í Reykjavík
og Björg Thorarensen, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu.
I tilkynningu starfshópsins
kemur fram að markmiðið með
breytingunum á stjórnskipulagi
embættisins sé að gera boðleiðir
einfaldari, stjórnun embættisins
skilvirkari og ábyrgð stjómenda
skýrari. Þá segir að frekari und-
irbúningur að hinu nýja stjóm-
skipulagi, sem tekið verður upp
hjá lögreglustjóranum í Reykja-
vík frá og með 1. janúar 1999,
verði í höndum framkvæmda-
stjórnar lþgreglustjórans í
Reykjavík. Áréttað er að störf-
um hjá embættinu muni ekki
fækka, heldur séu áform um að
lögreglumönnum fjölgi, og
breytingar þessar hafi ekki áhrif
á starfs- eða launakjör.
Reynsla og þekking
Kristján Pálsson
skiptir máli
Við sjómenn kjósum kraftmikinn mann
sem er traustsins virði:
Om Einarsson Erling KE 140
Pétur Sæmundsson Nonni KE 151
Guðmundur Garðarsson Sólfell
Reynald Þorvaldsson Hafborg KE 54
Kristmundur Jónsson Bjarmi KE 3
Helgi Hilmarsson Stafnes KE 130
Jón Agnar Gunnlaugsson Jón Gunnlaugs GK 444
Almar Þórólfsson Erling KE 140
Árni Jens Einarsson Happasæll KE 94
Emil Þórðarson Eyrarröst KE 25
Eðvald Björnsson Happasæll KE 94
Sigurður Kristófersson Stafnes KE 130
Sigurður Garðarsson Helga RE 49
Svavar Garðarsson Erling KE 140
Hilmar Magnússon Stafnes KE 130
Hinrik Jónsson Happasæll KE 94
Smári Karlsson Erling KE 140
Ásgeir Hilmarsson Stafnes KE 130
Jónas Jakobsson Óli Gísla GK 112
Bergur Vernharðsson Lára KE 161
Sigurgeir Jónsson ísbjöm GK 87
Gunnar ísleifs Karlotta
Steinar Smári Guðbergsson Sigrún GK 17
Ólafur Gunnarsson Ernir GK
Magnús ívar Guðbergsson Katrín GK 117
Leifur Ólafsson Happasæll KE 94
Sumarliði Þór Jónsson Stafnes KE 130
í 2. sætið
Stuðningsmenn
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 14. nóv. nk.