Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 14

Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AUGLÝSING Leitum úrræða sjálf og stöndum á eigin fótum Menn sem fara á þing þurfa að eiga þangað erindi og þeim sem þeir fara með umboð fyrir þarf að finnast þeir eiga þangað erindi. Það þarf ekki lengi að tala við Jón Gunnarsson, sem nú býður sig fram til þings fyrir Reykjaneskjördæmi, til þess að skynja að þar fer maður sem margt hefur reynt og safnað hefur í sjóð dýrmætri reynslu. Sú reynsla hefur ekki fengist ókeypis fremur en annað sem er einhvers virði í lífinu. Jón Gunnarsson hefur óhikað lagt á sig erfiði til þess að verða öðrum að liði og í einkalífi hefur hann haft áræði og kjark til þess að snúa við blaðinu og takast á við ný verkefni í hvert sinn sem nauðsyn hefur krafið. Þegar æviferill hans er skoðaður sést að í bland við kjark og áræðni er hann gæddur varkárni og útsjónarsemi sem dugir til þess að fyrirætlanir hans heppnast yfirleitt vel. Jón Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1956, sonur hjónanna Gunnars Jónssonar rafvirkjameistara og Erlu Dórotheu Magnúsdóttur kaupmanns. Erla lést árið 1988, aðeins 52 ára. Foreldrar Jóns skildu þegar hann var fjórtán ára gamall. Hann á eina alsystur, Unni Helgu, hálfsystur, Margréti Einarsdóttur. Fyrstu árin bjó Jón með foreldrum sínum f Laugar- neshverfi í Reykjavfk en fluttist síðan með þeim sjö ára f Safamýri. Tólf ára fluttist Jón með foreldrum sínum og systur á Hraunbraut í Kópavogi. „Við vorum ekki sameinuð þar nema skamman tíma, foreldrar mínir skildu þegar ég var fjórtán ára, eins og fyrr kom fram. Ekki veit ég gjörla hvað olli þeirri ákvörðun þeirra líklega hefur þroskinn beint þeim á ólíka vegu," segir Jón. Hann segir skilnað- inn auðvitað hafa verið áfall, en ég átti góða að og það hjálpaði mér mikið. Ég fór til afa míns og ömmu, Jóns Agústssonar, málarameistara, og Helgu Þorbergsdóttur; þau bjuggu á Otrateig; hjá þeim átti ég gott skjól. En lengst af bjó ég hjá mömmu minni á Hraunbrautinni og gekk í skóla í Kópavogi. Ég var í skóla á vetuma og á sumrin var ég í sveit." Jón telur að það hafi óhjákvæmilega breytt lífi sínu talsvert að foreldrar hans skildu. „Það er ómögulegt annað," segir hann. „Ég var ekki ósáttur við ákvörðun foreldra minna, en þetta varð mikil röskun. Það hafði t.d. sín áhrif að pabbi fluttist norður í land, á Blönduós, þar sem hann vann ýmis störf. Vegna þess var ég oft fyrir norðan, auk þess sem ég var lfka í sveit þar nyrðra. Ég tel að það sé mjög persónubundið hvaða áhrif skilnaður hefur á börn, en rótið er vafalaust nokkuð svipað hver sem í hlut á. Ég fann að skilnaðurinn og afleiðingar hans heftu mig nokkuð jafnframt því sem hann olli vissu rót- leysi og óstöðugleika." Jón lauk gagnfræðaprófi frá Víg- hólaskóla í Kópavogi. Sfðan fór hann í Iðnskólann. „Þar tók ég verknáms- deild málmiðnaðar og lauk því námi," segir Jón. Eftir það fór hann út á vinnumarkaðinn. „Ég fór á sjó frá Grindavík, var á Oddgeiri ÞH 222 hjá Jóni Ragnarssyni, skipstjóra, eina vertíð. Það var mikill og góður skóli. Síðan fór ég að vinna sem sölumaður hjá Heimilistækjum og var hjá þeim alls í ein fjögur ár. Þá fluttist ég norður í land og gerðist bóndi. Á þeim árum sem ég var fyrir norðan sem unglingur kynntist ég konunni minni, Margréti Höllu Ragnarsdóttur. Hún er fædd og uppalin á Barkarstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Ég var á þeim slóðum í sveit sem ungl- ingur. Við byrjuðum að vera saman þegar við vorum sextán ára. Við vor- um svo ástfangin að okkur datt ekki einu sinni í hug að „smakka það“ eins og margir félagar okkar gerðu við ýmis tækifæri; við vorum í nægilegri vfmu fyrir. Áfengi hefur raunar aldrei skipað stóran sess í okkar lífi þó að Forvarnarstarf_______ gegn vímuefnaneyslu þarf að auka ________ og það á að vera hluti af skólastarfinu. við höfum það vissulega um hönd ef svo ber undir. Við Halla vorum líka samtíða í Iðnskólanum, þar sem hún lærði tækniteiknun meðan ég var í málmiðnaðamáminu. Við giftum okkur árið 1977 og elsta bamið, Gunnar, fæddist 1978. Hann er nú nemandi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Arndís Erla fæddist árið 1982, hún er nemandi í Mennta- skólanum í Kópavogi. Loks eigum við svo Arnar Boga sem varð sex ára í haust. Ég sneið fjöldann allan af pappaeyrum og markaði þau samviskusamlega Forsaga þess að við hjónin flutt- umst norður f land og snemm okkur að búskap var sú að árið 1981 fékk tengdafaðir minn, Ragnar Benedikts- son, hjartaáfall. Hann var þá um sex- tugt og hafði lengi rekið bú á Barkar- stöðum. Halla kona mín hringdi í mig í vinnuna og sagði mér að faðir henn- ar væri alvarlega veikur og sjúkraflug- vél væri að leggja upp í ferð til að sækja hann og fara með hann hingað suður á sjúkrahús. Ég hafði lært flug og var oft úti á flugvelli í tengslum við það. Ég hljóp nú út á flugvöll og fór norður með sjúkraflugvélinni sem átti að sækja Ragnar. Hann var kom- inn á bömr og beið vélarinnar en ég fór heim á bæinn til þess að taka við störfum hans. Þetta var stórt bú, nær sex hundruð íjár og um 70 hross. Þetta var í byrjun aprfl og það var að byrja sauðburður. Ég neita því ekki að ég leit dálítið kvíðnum augum til íjár- hússins þar sem rösklega fimm hundmð kindur biðu þess að bera á næstu vikum. Ég var ekki vanur þess- um störfum þó að ég hefði verið f sveit sem unglingur og hefði raunar tekið nokkur námskeið á búnaðar- skólanum á Hvanneyri. Einkum kveið ég því að marka lömbin, ég hafði aldrei komið nálægt því. Ég tók það til bragðs að ég sneið fjöldann allan af pappaeyrum og míukaði þau samviskusamlega inni í eldhúsi. Ég verð þó að gangast við því að það var ekki erfitt að þekkja lömb- in Ifá Barkarstöðum í réttunum þetta haust. Þau voru nokkuð stórkarlalega mörkuð hjá mér, ekki síst fyrstu hundrað lömbin. Konan mín og sonur komu fljótlega til mín og við seldum íbúðina sem við höfðum nýlega eignast. Fyrsta búskaparárið leigðum við á Njálsgötunni en svo keyptum við litla íbúð í Engihjalla af Byggung. Við reistum okkur hús á Barkarstöð- um og ræktuðum mikið, gerðum tals- vert mikið á þeim fjórum árum sem við vorum þarna. Við gerðum allt eins ráð fyrir að setjast þama að en höfð- um þó aldrei tekið um það fullnaðar- ákvörðun. Þetta var árið 1981 og ekki bjart framundan í sauðfjárrækt, en við höfðum farið svolítið út í svínarækt. Svo kom að því að við vildum alveg eins flytja í bæinn aftur. Mágur minn, Benedikt Ragnarsson, hafði hins vegar mikinn áhuga á að hefja búskap svo að það varð endirinn á að hann og kona hans tóku við. Þau héldu upp- byggingunni áfram og búa nú ágætu búi á Barkarstöðum. Ef fólk hefur vinnu samhliða búskapnum meðan það er að koma undir sig fótunum í búskapnum, þá er það leið til að lifa þokkalegu lífi. Ef fólk hefur svo sæmilega stór bú, sem eru skuldlítil, getur það lifað nokkuð góðu lífi á bú- skapnum einum. Ég hef trú á að einingar í búskap eigi eftir að stækka og þær verði færri og þannig skapist grundvöllur fyrir mannsæmandi líf fyrir bændur. Ég hafði tekið einkaflugmannspróf og jafnvel haft í hyggju að gerast llugmaður áður en ég fór norður. Meðan ég bjó fyrir norðan átti ég flugvél með tveimur bændurn og ein- um skólastjóra. Við byggðum einnig saman fiugskýli. Einnig starfaði ég lítilsháttar fyrir Arnarflug, sá m.a. um sjúkraflug. Við áttum sjálfir ákveðið frumkvæði að því að svona fór svo að það kom okkur ekki á óvart Þegar ég kom aftur suður bauðst mér starf hjá innanlandsdeild Amar- flugs í flugafgreiðslunni. Þar var ég í stuttan tíma. Þá var mér boðið starf í markaðsdeild Amarflugs, hjá Magnúsi Oddssyni, núverandi ferðamálastjóra. Þar var ég í rúmt ár. Þá var „fjöl- miðlabyltingin" að hefjast, þetta frelsi í Ijósvakamiðlun. Þetta var árið 1986 og mér bauðst starf sem yfirmaður söludeildar Stöðvar 2. Ég hóf störf skömmu áður en stöðin „fór í loftið". Síðar varð ég einnig yfirmaður áskriftardeildar. Hjá Stöð 2 var ég til ársins 1990. Uppgangur var talsverður árin á undan en Stöð 2 varð að brjóta sér leið inn á óhefðbundinn aug- lýsingamarkað og það tók sinn tíma. Þetta var kröfuhart en skemmtilegt uppbyggingar- og skipulagsstarf. Um þetta leyti komu nýir eigendur að Stöð 2 og mikið rót var á rekstrinum. Á sama tíma var verið að stofna nýja sjónvarpsstöð af aðilum eins og Vífil- felli, Dagblaðinu og fleirum. Þrír starfsmenn vom ráðnir af Stöð 2 til hinnar nýju stöðvar ég var þeirra á meðal. Við vorum í nær hálft ár að undirbúa starfsemi stöðvarinnar en þá keypti Stöð 2 nýju stöðina. Við vomm búnir að velja efni og nafn á stöðina, það var nafnið Sýn. Hlutirnir gerðust hratt en við áttum sjálfir ákveðið fmmkvæði að því að svona fór svo að það kom okkur ekki á óvart. Ég starf- aði svo um hríð sem markaðsstjóri hjá Þýsk-íslenska og einnig hjá prent- smiðjunni Odda. En nokkru síðar tók ég stökkið og ákvað að helga mig ein- göngu starfi við fyrirtæki sem konan mín fór að starfa við og móðir mín átti þegar við fluttumst aftur suður. Ég hef oft þurft að sinna björgunarverkefnum sem reynt hafa á Jafnhliða öðmm störfum mfnum hafði ég frá tvítugsaldri starfað mikið með björgunarsveitum og það hefur jafnan verið mitt aðaláhugamál. Ég hef alla tíð verið félagi í Flugbjörg- unarsveitinni í Reykjavík. Ég fór í gegnum þjálfun hjá þeirri sveit og æfði einnig um tíma fallhlífarstökk. Ég hafði gaman af ýmsu sem tengdist Stundum eru menn vonlitlir í byrjun leitar eða björgunarstarfa en svo kemur í ljós að matið var rangt. Það kennir manni að miða öll vinnbrögð við að það sé von. starfi björgunarsveita, til dæmis ferða- lögum og útivist. Ég hef tekið þátt í mörgum leitum sem margar eru eftir- minnilegar. Þegar ég fluttist norður stofnaði ég Flugbjörgunarsveit Vestur- Húnavatnssýslu sem núna er öflug og góð sveit. Þegar ég flutti suður fór ég fljótlega í stjórn Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur og var formaður hennar á árabilinu 1989 til 1991. Starfi íbjörg- unarsveit fylgir oft erfið reynsla. Eftir alvarleg slys höfum við stundum séð á bak góðum björgunarsveitarmönnum; þeir hafa ekki komið til starfa á ný. Fyrst skildum við ekki hvað þama var á ferð en nú eru við farnir að bregðast við með því að veita mönnum okkar áfallahjálp eftir erfiða björgunar- reynslu. Sjálfur hef ég oft þurft að sinna verkefnum sem reynt hafa á. Fyrsta reynsla mín var á vinnustað, einn vinnufélagi minn fékk hjartaáfall f bíl fyrir utan. Ég reyndi að koma í hann lífi með því að beita hjartahnoði og blása í hann þangað til sjúkrabíll kæmi, en það stoðaði ekki; hann var dáinn. Við höfum fengið á okkur áföll eins og gerist í svona rekstri en okkur hefur tekist að komast yfir það Stundum koma líka miklar gleði- stundir í þessu starfi. Þær aðstæður sem kalla fram einna mest viðbrögð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.