Morgunblaðið - 12.12.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vestfírskir trillukarlar berjast gegn áformuðum breytingum á fískveiðistjórnunarkerfinu
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
FIMM stútfull ker voru hífð upp úr Norðurljósum IS á Isafirði í gær. Ágætur árangur eftir einn dag hjá tveimur mönnum, bræðrunum Jónasi og Gunnlaugi
Finnbogasonum. Myndin var tekin þegar Jónas var að þrífa eftir uppskipun.
„Dauðadómur yfír smá-
bátaútgerð á Vestfjörðum“
Trillukarlar á norðanverðum Vestfjörðum
eru komnir í herferð gegn frumvarpi til
breytinga á lögum um fískveiðistjórnun
vegna afleiðinga þeirra fyrir margar smá-
bátaútgerðir. Sumir fullyrða að breyting-
arnar marki endalok smábátaútgerðar á
Vestfjörðum, jafnvel byggðar. Helgi
Bjarnason blaðamaður og Halldor Svein-
björnsson ljósmyndari fóru um svæðið og
heyrðu hljóðið í sjómönnum.
SMÁBÁTASJÓMÖNNUM á
norðanverðum Vestfjörðum
er heitt í hamsi vegna áforma
um breytingar á fískveiðistjórnun-
inni sem fram koma í margum-
ræddu frumvarpi sjávarútvegsráð-
herra. Þeir kalla á þingmenn kjör-
dæmisins einn af öðrum til fundar
við sig til að knýja á um afstöðu
þeirra til frumvarpsins og hefur
orðið vel ágengt, að minnsta kosti
hvað varðar Einar Odd Kristjáns-
son. Gunnlaugur M. Sigmundsson
var varkár í yfirlýsingum á fundi
sem framsóknarmenn héldu í Bol-
ungarvík. Bolvíkingurinn Kristinn
H. Gunnarsson, sem nýlega gekk
til liðs við þingflokk framsóknar-
manna, var ekki á þeim fundi.
Það virðast einkum vera tvö at-
riði sem valda áhyggjum trillu-
karla. Annars vegar er það kvóta-
setning ýsu og steinbíts en útgerð
margra báta hefur byggst á frjálsri
veiði þeirra en þorskurinn verið
nokkurs konar meðafli. Hins vegar
er afnám sóknardagakerfisins og
útdeilding á heildaraflanum á mik-
inn fjölda báta sem trillukarlar
fullyrða að þýði að hver bátur fái
aðeins 9-10 tonna þorskkvóta sem
eigi að koma í stað möguleika til
frjálsra veiða í 40 daga á ári. Þetta
segja margir að kippi gersamlega
rekstrargrundvellinum undan út-
gerð bátanna.
Vöxtur hefur verið í útgerð smá-
báta á Vestfjörðum, ekki síst í Bol-
ungarvík. Þeir sem hafa verið að
kaupa báta, eldri báta eða nýsmíði,
hafa enn ekki öðlast veiðireynslu í
ýsu og steinbít og eiga því ekki von
á kvóta í þessum tegundum. Sumir
segja að með þessu séu rekstrar-
forsendur fallnar. Sjónarmið eru
reyndar aðeins mismunandi eftir
stöðum. Þannig er áberandi minni
ótti við breytingarnar á Suðureyri
en í Bolungarvík. Helgast það
væntanlega af því að Súgfirðingar
ÁGÆTT fiskirí hefur verið hjá smábátum fyrir vestan að undan-
fórnu. Myndin var tekin þegar Gísli Hermannsson var að landa úr
báti sínum Fundvís ÍS í smábátahöfninni á Isafirði í gær.
hafa mikið veitt af ýsu og steinbít
og hafa því öðlast allgóða veiði-
reynslu þegar til úthlutunar kem-
ur. Mikill vöxtur hefur aftur á móti
orðið í smábátaútgerð í Bolungar-
vík á þessu ári og þeir bátar hafa
enga eða litla veiðireynslu og fá því
lítinn ýsu- og steinbítskvóta ef að
líkum lætur.
Einn útgerðarmaður, sem blaða-
maður ræddi við á ferð um Isa-
fjörð, Suðureyri og Bolungarvík,
hefur nýlega keypt úreldingarrétt
fyrir tæpar 11 milljónir. Sú fjár-
festing verður væntanlega verð-
laus með breytingum á lögunum.
Sá sagði slæmt að þurfa að lifa í ei-
lífðar lottói vegna breytinga á
regluumhverfinu.
Margir viðmælendur óttuðust af-
leiðingar margumræddra breyt-
inga á þróun byggðar á Vestfjörð-
um og notuðu stór orð. Dæmi:
„Dauðadómur yfir byggðunum."
„Aðför að landsbyggðinni.“ „Ætla
þeir fyrir sunnan að leggja byggð-
ina í rúst og fá okkur alla suður?“
„Það blasir við mér núna að setja
dótið aftur í gáminn og það verður
ekki tekið úr honum hérlendis."
„Aðför að landsbyggðinni"
„Þetta er dauðadómur yfir þeim
byggðum sem byggja mikið á smá-
bátaútgerð," segir Falur Þorkels-
son, formaður Hörpu, sem er félag
smábátaeigenda í Bolungai-vík.
Falur var í gær ásamt 25-30 félög-
um sínum á fundi smábátasjó-
manna með Gunnlaugi M. Sig-
mundssyni, þingmanni Framsókn-
arflokksins, þegar blaðamaður tók
hann tali.
„Það er búið að taka frá okkur
togarana og kvótann og útgerð
smábáta hefur verið eini vaxtar-