Morgunblaðið - 12.12.1998, Side 28
28 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Hert eftirlit með
kaupskipunum
ÍSLAND verður fullgildur aðili að
samkomulagi um hafnaríkiseftirlit
á næsta ári. Sautján Evrópuríki,
auk Kanada, hafa frá árinu 1982
undirritað samkomulagið, sem
kennt er við París, og setur strang-
ar reglur um aðbúnað og öryggis-
mál í flutningaskipum, auk þess að
skuldbinda aðildarríki til eftirlits
með því að reglunum sé framfylgt.
Síðastliðin þrjú ár hefur íslenska
n'kið verið aukaaðili að samkomu-
laginu og tíminn verið notaður til
þess að uppfylla kröfur um fulla að-
ild. Ný lög um hafnaríkiseftirlit
voru sett á þessu ári, en að sögn
Hálfdáns Henrýssonar, deildar-
stjóra eftirlitsdeildar Siglingastofn-
unar, á Alþingi enn eftir að fullgilda
samþykkt Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar númer 147 um aðbúnað
og hollustuhætti skipverja en hún
er m.a. skilyrði fullrar aðildar að
Parísarsamkomulaginu.
Ber að skoða Ijórðung
erlendra kaupskipa
Samkvæmt Parísarsamkomulag-
inu ber Siglingastofnun að skoða
25% erlendra flutningaskipa sem
leggja að í íslenskum höfnum með
íilliti til þess hvort þau uppfylli al-
þjóðlegar kröfur, svokallaðar ISM-
reglur, um aðbúnað áhafnar, hrein-
læti, öi-yggi og ástand skips og vél-
búnaðar. „Sérstakt átak var gert á
vegum aðildarríkjanna í sumar í
eftirliti með erlendum kaupskipum.
Hér heima voru 100 skip, af þeim 7-
800 sem komu til landsins, skoðuð,
en þegar við verðum fullgildir aðil-
ar að samkomulaginu þurfum við
að skoða fjórðung allra flutninga-
skipa sem hingað koma,“ segir
Hálfdán. „Þess vegna mun Sigl-
ingastofnun bæta við einu stöðu-
gildi í ársbyrjun til þess að geta
uppfyllt kröfur um eftirlit."
Hálfdán telur nýjar og strangari
reglur hafa reynst mjög vel og eft-
irlit með skipum er stunda vöru-
og fólksflutninga batnað til muna.
Fjöldi skipa hafi verið stöðvaður
vegna þess að aðbúnaður eða ör-
yggismál voru í ólagi. Eftir-
litsátakið sem gert var aðildar-
löndunum í sumar leiddi til þess að
5% skoðaðra skipa voru kyrrsett
þar sem þau uppfylltu ekki ISM-
kröfurnar, en ástandið var verst í
svokölluðum búlkurum, 8% þeirra
hafi verið stöðvuð vegna reglu-
brota.
Gert er ráð fyrir að Evrópusam-
bandið muni á næsta ári gefa út til-
skipun þess efnis að sömu reglur
gildi um fiskiskip innan hins evr-
ópska efnahagssvæðis.
FISKAFLINN í nóvembermánuði
síðastliðnu varð alls um 120.000
tonn, sem er þúsund tonnum minna
en í fyrra. Þorskafli nú varð um
23.400 tonn tonn, sem er ríflega
6.000 tonnum eða þriðjungi meira
en í nóvember í fyrra. Loðnuafli
varð 55.000 tonn, sem er 10.000
tonnum minna en í fyrra. Síldarafli
varð um 18.300 tonn, sem er 5.000
tonnum minna en í fyrra. Úthafs-
rælguafli varð aðeins 2.300 tonn,
sem er nærri 2.000 tonnum minna
en í fyrra.
Sé litið til aflans á almanaksárinu,
er hann alls um 1.341.000 tonn, en
það er miklum mun minna en á
sama tíma í fyrra. þá var aflinn
1.808.000 tonn, en fiskaflinn á öllu
árinu í fyrra fór alls vel yfir tvær
milljónir tonna og hefur aldrei verið
meiri. Langmestu munar um loðnu-
afla. Á þessum tíma í fyrra varð
loðnuafli alls 1.263.000 tonn, en er
nú aðeins 731.000 tonn. Þorskafli
þessa 11 fyrstu mánuði ársins er um
220.000 tonn, sem er nærri 40.000
tonnum meira en á sama tíma í
fyrra. Litlu minna hefur nú veiðst af
ýsu, ufsa, karfa og grálúðu, en í
fyrra. Úthafsrækjuaflinn er nú um
47.000 tonn, sem er 10.000 tonnum
minna en í fyrra.
Mestu landað á Austfjörðum
Langmestum afla var í nóvember
landað á Austfjörðum, 43.200 tonn-
um eða rúmum þriðjungi alls aflans.
Uppistaðan í því er loðna, um 27.000
tonn og 8.600 tonn af síld. Næst
kemur Norðurland eystra með um
25.000 tonn og í þriðja sætinu er
Vesturland með um 14.800 tonn, en
ríflega helmingur þess er loðna og
á árinu
síld. Mestum þorski var landað á
Norðurlandi Eystra, tæpum 6.000
tonnum, en Reykjanes kom næst
með 4.300 tonn og í þriðja sæti eru
svo Vestfirðir með 3.500 tonn.
Mest af þorski á Iand
á Reykjanesi
Sé litið á almanaksárið bera
Austfirðir höfuð og herðar yfir önn-
ur kjördæmi með 482.000 tonn og
þar ráða loðna og síld úrslitum. Alls
var 340.000 tonnum af loðnu landað
á Austurlandi þetta tímabil. Næst-
mestum afla var landað á Reykja-
nesi, 202.000 tonnum og í þriðja
sæti er Suðurland með 169.000
tonn. Mestum þorski var landað á
Reykjanesi, 51.000 tonnum, næstir
koma Vestfirðir með með 33.250
tonn og Norðurland eystra er með
31.500 tonn.
Kristján Ragnarsson
Fagnaðarefni vilji
Norðmenn veiða sel
KRISTJÁN Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, segir að ekkert mæli
gegn því, að Norðmenn fái leyfi
til veiða á blöðrusel á rekísnum
innan lögsögu okkar. Samtök út-
gerðarmanna í Noregi hafa farið
þess á leit við norsk stjómvöld að
þau leiti eftir leyfi fyrir selveiði-
menn, að þeir fái að stunda veið-
ar á blöðrusel innan íslenzku lög-
sögunnar.
Norsku selveiðimennimir vilja
eiga þennan kost ef ísinn rekur
inn í lögsögu okkar áður en þeir
hafa náð leyfilegum selkvóta. Er-
indið hefur enn ekki borist ís-
lenzkum stjórnvöldum.
„Ef við viljum gera vinum
okkar, Norðmönnum, eitthvað
til geðs sé ég ekkert á móti því
að þeir fái að drepa hér sel,“
segir Kristján Ragnarsson. „Við
höfum aldrei drepið sel á ís og
ekki nýtt okkur blöðruselinn á
neinn hátt. Skaðinn sem hann
veldur okkur hér er sá, að hann
hefur komið í umtalsverðu
magni upp að Norðurlandi og
étur ókjör af fiski og skemmir
veiðarfæri báta fyrir Norður-
landi. Mér fyndist það sérstakt
fagnaðarefni ef Norðmenn vildu
taka það að sér að minnka þenn-
an stofn og minnka hættuna á
því að hann vaxi okkur yfir höf-
uð og komi í hópum til íslands.
Sem betur fer hefur það ekki
gerzt hér eins og víða annars
staðar. Eg sé ekkert í vegi fyrir
því að leyfa þeim að gera þetta
innan Iögsögu okkar,“ segir Kri-
stján Ragnarsson.
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Örfirisey breytt í Póllandi
ÖRFIRISEY RE, frystitogari
Granda hf„ hefur undanfarna
þijá mánuði verið í umfangsmikl-
um breytingum í Nauta skipa-
smíðastöðinni í Gdynia í Póllandi.
Þar var skipið lengt um 9,9
metra og er nú 64,55 metra
langt. Auk þess var skipt um
klæðningar á vinnsludekki og
unnin ýmiss konar stál- og við-
haldsvinna. Að sögn Sigurbjöms
Svavarssonar, útgerðarstjóra
Granda hf„ verða sett niður tæki
og lausfrystir á millidekk á næstu
vikum og gert ráð fyrir að skipið
komist á veiðar um miðjan janú-
ar. Skipstjóri á Örfirisey RE er
Trausti Egilsson.
Þorskafli hefur aukizt
um 40.000 tonn
Mikið úrval af
hornsófum með
leðri og áklæði
NatUvsd
Vandað sófasett 3+1+1
frá Natuzzi með
áklæði
Við bjóðum nú ótrúlegt úrval af
vönduðum borðstofuhúsgögnum á
góðu verði frá hinu heimsþekkta
fyrirtæki Skovby
Armúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
Mikið úrval af sófasettum með leðri og áklæði
Mmiehmí sólasfítt
■+1+1 mnð vönduðu
ieðri nða áklæðí
Nplu//t
idoð hornsófiwtt,
irn+2 með áklæði.