Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 35 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SJONARSPIL OG STAÐREYNDIR ALOGUR á Reykvíkinga hafa verið að aukast með hvers kyns gjaldahækkunum og hækkun útsvars. Borgar- stjórnanneirihlutinn hefur í þessu sambandi reynt að setja á svið sjónarspil, sem betur á heima í Borgarleikhúsinu en í Ráðhúsinu. Astæðan er sú, að talsmenn R-listans vilja ekki láta rifja upp kosningaloforðin, sem a.m.k. sumir þeirra gáfu fyrir borgarstjórnarkosningamar sl. vor þess efnis, að gjöld borgarbúa yrðu ekki hækkuð á þessu kjörtímabili héldi R- listinn meirihlutanum. Einn helzti leiðtogi R-listans, Helgi Hjörvar, hefur haldið því fram að undanfórnu, að kosninga- loforðin hafi ekki átt við þær hækkanir, sem nú hafa dunið á borgarbúum, heldur einhverjar allt aðrar. Það er ansi vítt svið, sem væntanlegur forseti borgar- stjórnar telur ekki falla undir kosningaloforð R-listans: Utsvar hækkar um tæp 7% (úr 11,25 í 11,99%) sem færir borgarsjóði um milljarð króna í viðbótartekjur, nýtt 6 þús- und króna sorphirðugjald er sett á miðað við eina tunnu (boðuð er lækkun fasteignagjalda á móti), dagvistunargjöld hækkuðu um áramót um allt að 14%, aðgangur að sundstöð- um, skíðasvæðum og söfnum hefur hækkað verulega, svo og hundagjald. Heilsdagsskólagjöld hafa hækkað um allt að 36%. Þjónustugjöld hafa og hækkað og m.a. hefur verið lagt nýtt 6.500 króna gjald á mánuði á þjónustuíbúðir fyrir aldr- aða, sem engin slík gjöld báru áður. Fyrirtækin í borginni, stór og smá, þurfa að taka á sig 17% hækkun heilbrigðis- gjalds. Að sjálfsögðu geta verið eðlilegar ástæður fyrir hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg sem öðrum sveitarfélögum. En ráðamenn eiga þá einfaldlega að segja það, færa fram rökin fyrir hækkun og bera pólitíska ábyrgð á verkum sínum. Það sjónarspil, sem hefur verið leikið fyrir borgarbúa að undan- fómu til að fela gjaldahækkanirnar, gerir ráðamenn borgar- innar ekki aðeins hlægilega heldur veldur því, sem þeir sízt vildu, þ.e. að beina sjónum að kosningaloforðunum frá því sl. vor. CLINTON OG ÖLDUNGADEILDIN OLDUNGADEILD Bandaríkjaþings hóf í gær réttar- höld yfír sitjandi forseta í íyrsta skipti í 130 ár en í síð- asta mánuði voru samþykktar tvær ákærur á hendur Bill Clinton Bandaríkjaforseta í fulltmadeild þingsins. Þrátt fyr- ir að réttarhöldin séu hafin hefur ekkert samkomulag náðst um endalegt fyrirkomulag þeirra. Margir öldungadeildar- þingmenn hafa verið andvígir því að vitni verði kölluð fyrir en sú virðist engu að síður ætla að verða raunin. Öldunga- deildin hefur nokkra kosti í stöðunni. Hún getur sýknað Clinton, hún getur sakfellt hann og vikið úr embætti eða þá komist að þeirri niðurstöðu að þótt allar þær sakir sem á hann eru bornar séu réttar réttlæti það ekki að réttkjörnum forseta sé vikið úr embætti. Undanfarnar vikur hefur mikið verið rætt um að ná málamiðlun um vítur á forsetann í stað þess að taka ákvörðun um sekt eða sýknu að loknum erfíð- um réttarhöldum. Hafa nokkrir fyrrverandi forsetar og for- setaframbjóðendur verið meðal þeÚTa sem mælt hafa með slíkri lausn. Færa má sterk rök fyrir því að sú niðurlæging er Clinton hefur orðið að þola síðastliðið ár sé nægjanleg refsing fyrir breyskleika hans. Flestir ættu að geta verið sammála um að miklu skiptir að öldungadeildin komist að niðurstöðu sem fyrst. Bandaríkin eru öflugasta ríki veraldar. A tímum efnahagslegra erfíð- leika í heiminum og margvíslegra hættumerkja á alþjóða- vettvangi skiptir miklu að þau sinni því forystuhlutverki sem þau ein geta gegnt við slíkar aðstæður. Undanfarið ár hafa bandarísk stjórnmál hins vegar vart snúist um annað en mál forsetans. Meirihluti repúblikana í fulltrúadeild þingsins var staðráðinn í að koma forsetanum frá. Svo virð- ist sem margir repúblikanar í öldungadeildinni vilji feta í fótspor starfsbræðra sinna í fulltrúadeildinni. Þrátt fyrir það dregur ekki úr vinsældum forsetans meðal þjóðarinnar og raunar virðist sem Bandaríkjamenn hafí gert upp hug sinn í málinu fyrir löngu. Niðurstaða þingkosninganna síð- astliðið haust var jafnframt á þann veg að pólitískt umboð repúblikana fyrir þeirri hörku er þeir sýna er vægast sagt umdeilanlegt. Flestar kannanir benda raunar til að gjáin á milli stjórnmálamanna í Washington og almennings hafí sjaldan verið breiðari en í þessu máli. Þjórsárveranefnd telur lón í 581 m hæð við Norðlingaöldu ekki viðunandi Landsvirkjun leitar umhverfisvænni leiða Þjórsárveranefnd var árið 1981 falið að meta hvort framkvæmd Norðlingaöldulóns með yf- irborð við 581 metra raskaði óhæfílega nátt- úruverndargildi Þjórsárvera. Nefndin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að lón við 581 m hæð sé ekki viðunandi og hefur Landsvirkj- un, sem á fulltrúa í nefndinni, hafíð athuganir á öðrum möguleikum. Ragna Sara Jónsdóttir kynnti sér möguleikana sem Landsvirkjun veltir fyrir sér við virkjun Efri-Þjórsár. VirkjanirogveituiV^rta^P?^ á Þjórsár- og WyU'Mx Tungnaársvæði rí Norðlinqaöldumj0lun 325 Cl 581. mý' ' Cljúfurleitarmiðlun 310 Cl 518 m.y.s. Gljúfurleitarvirkjun 240 MW JÓRSÁRVERANEFND hefur til athugunar áhrif lóns við Norðlingaöldu á lífríki Þjórsárvera. Nefnd- inni ber að meta hvort lón við 581 metra yfir sjávarmáli lýrí óhæfílega náttúraverndargildi veranna. Nefndin var stofnuð í kjölfar þess að verin voru friðlýst árið 1981 og hef- ur starfað síðan. Hún hefur ekki skilað áliti sínu en að sögn Gísla Más Gíslasonar, formanns nefndarinnar, ríkir sátt innan hennar um að lón við 581 metra sé ekki viðunandi af nátt- úruverndarástæðum. Gerir hann ráð fyrir að nefndin skili áliti á næstu vikum. Forsendurnar nefndarinnar til að meta áhrif lóns við Norðlingaöldu hafa tekið nokkrum breytingum frá því hún tók til starfa árið 1981. Hug- myndir um 6. áfanga Kvíslaveitu hafa komið inn í myndina og haft töluverðar breytingar í för með sér. Með honum yrði vestustu Þjórsár- kvíslum veitt í Kvíslaveitu, í stað þess að þær myndu renna í gegnum Þjórsárver, eða Norðlingaöldulón ef það kæmi til framkvæmda. Er það samdóma álit nefndarinnar að fram- kvæmd 6. áfangans og lóns við Norðlingaöldu með yfirborði í 581 m sé ekki raunhæfur kostur. Lands- virkjun hefur því hafið athugun á öðtum möguleikum sem gætu talist viðunandi. Að sögn Helga Bjarnasonar, deildarstjóra umhverfisdeildar Landsvirkjunar og fulltrúa fyrir- tækisins í Þjórsárveranefnd, er ver- ið að kanna nokkra möguleika til að minnka lónið eða færa það og koma þrír kostir helst til greina. Lónið minnkað og vatninu dælt í Kvíslaveitu Fyrsti kosturinn er að stífla við Norðlingaöldu en jafnframt að lækka yfirborð lónsins. Verið er að skoða áhrif lóns miðað við yfirborð í 575 metrum og upp í 580 metra og liggja niðurstöður þeirra rannsókna ekki fyrir. Að sögn Helga væri unnt að lækka yfirborð Norðlingaöldu- miðlunar niður í allt að 578 metra ef 6. áfangi Kvíslaveitu kæmi jafn- framt til framkvæmda. Án hans sé hins vegar ekki hagkvæmt að lækka í lóninu. Reynist hins vegar nauð- synlegt að lækka yfirborðið meira en niður í 578 metra, er hagkvæmni lónsins, miðað við að veita frá því yf- ir í Þórisvatnsmiðlun með jarðgöng- um, ekki lengur fyrir hendi. Annar kosturinn er því að dæla vatni og auka þar með nýtingu miðl- unarinnar. Vatni yrði dælt úr Norð- lingaöldumiðlun og yfir í Kvíslaveitu þar sem hún fellur til Þórisvatns. Með þessu móti er lónið minnkað verulega, Norðlingaöldumiðlun næði lítillega inn í friðlandið Þjórsárver og minni gróður færi undir vatn. „Ef 6. áfangi Kvíslaveitu kæmi til framkvæmda yrði unnt að lækka yf- irborð í Norðlingaölduveitu um allt að þrjá metra. Þar með myndi gróð- ur sem færi undir vatn minnka um helming,“ segir Helgi Bjarnason deildarstjóri umhverfisdeildar Landsvirkjunar. Á móti kemur að vatn sem rennur með Þjórsá í gegn- um verin er skert um milli 10 og 20% með 6. áfanga Kvíslaveitu. Að auki er dæling vatnsins kostnaðarsöm að- ferð og er einungis inni í myndinni ef ekki fæst heimild fyrir lóni í 578-9 m hæð, að sögn Helga. Áin virkjuð í farveginum Þriðji kosturinn er að hverfa frá hugmyndinni um Norðlingaöldu- veitu en gera þess í stað minna inn- takslón neðar í farvegi Þjórsár, Gljúfurleitarmiðlun. Með því yrði áin virkjuð í farvegi sínum, eins og allar áætlanir fram til 1994 miðuðust við. Er þá reiknað með stíflu nokkru of- an við fossinn Dynk og 2-300 gíga- lítra miðlunarlóni (Til viðmiðunar þá yi’ði Norðlingaöldumiðlun við 581 m 325 gígalítrar). Vatnið yrði leitt í jarðgöngum meðfram farvegi árinn- ar og niður að Sultartangalóni þar sem það yrði virkjað áður en það yrði leitt í lónið (Gljúfurleitai-virkj- un). Með þessu móti er unnt að framleiða 1.200 gígawattstundir af raforku, sem er 300 gígawattstund- um umfram það sem fæst með fram- kvæmd Norðlingaöldulóns. Þessi kostur er hins vegar dýrari og veld- ur meiri röskun og spjöllum á um- hverfinu, að sögn Helga. Að auki hafa þessar hugmyndir mætt and- stöðu heimamanna vegna þess gróð- urs sem myndi glatast með lóni á þessu svæði. Á þeim kafla sem áin yrði leidd í göngum em fossarnir Dynkur og Gljúfurleitarfoss. Vatnsrennsli um þá yrði nánast ekkert að vetri til en eitthvað að sumarlagi. Rennsli um þá yi’ði meira ef Norðlingaöldumiðl- un yrði framkvæmd, en um þessar mundh- er verið að reikna út hve mikil skerðing vatnsrennslisins verður, miðað við ólíka kosti. Að sögn Helga er hagkvæmara og að mörgu leyti umhverfisvænna að velja iýrsta kostinn. Allir era þeir þó í athugun og sá valinn sem talinn er best viðunandi fyrir alla aðila. Hugmyndir þessar verða lagðar fyrir Þjórsárveranefnd innan nokk- urra vikna. I kjölfarið er verið að íhuga að leggja saman undir mat á umhverfisáhrifum á 6. áfanga Kvíslaveitu og Norðlingaöldu. Matið mun þá væntanlega miðast við lágt vatnsborð í Norðlingaöldumiðlun og veitu til Þórisvatns en jafnframt er gerð grein fyrir öðram kostum. Virkjun í Neðri-Þjórsá? Með aukinni miðlun í Þjórsá og Tungnaá hafa áratuga gamlar hug- myndir um litlar rennslisvirkjanir í byggð, við Búðafoss, Hestfoss og Urriðafoss komið upp á borð að nýju. Helgi segir að líklega verði far- ið að líta á þær sem raunhæfa kosti eftir u.þ.b. áratug þar sem þær verða hagkvæmari eftir því sem meira er virkjað ofan við þær. Rennslinu er haldið stöðugu með miðlunum ofar í farveginum sem er bæði heppilegt og nauðsynlegt fyrir rennslisvirkjanir en þær krefjast ekki mikilla miðlunarlóna. Morgunblaðið/Sverrir HÆSTIRÉTTUR hafnaði 1997 beiðni Sævars Ciesielskis um endurupptöku Geirfinnsmálsins, en í frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingu á meðferð opinberra mála er heimild til endurupptöku dæmdra refsimála, sem gefur kost á því að rétturinn fjalli um málið á ný. Rýmkun heimilda til endurupptöku í frumvarpi dómsmálaráðherra sem lagt var fram fyrir jól er að fínna ákvæði þar sem rýmkaðar eru heimildir til endurupptöku dómsmála. Ekki virðist fara á milli mála að tilefnið sé að gera Hæstarétti kleift að fjalla á ný um endurupptökubeiðni Sævars M. Ciesielski. Páll Þórhallsson kynnti sér þessa tillögu dómsmálaráðherra. FRUMVARP dómsmálaráð- herra, Þorsteins Pálssonar, til breytinga á lögum um meðferð opinberra mála var lagt fram um miðjan desember. Framvarpið er 47 greinar þannig að hér er um að ræða viðamikla endur- skoðun á núgildandi lögum. Samt er ekki um heildarendurskoðun að ræða því eins og segir í athugasemdum með frumvarpinu þarfnast hún meiri undirbúnings. Fyrst og fremst er um að ræða ákvæði er bæta réttarstöðu brotaþola sem og ýmislegt fleira sem brýnt þykir að lagfæra. Má nefna að lagt er til að hert verði skilyrði fyrir símhlerunum, þ.e.a.s. að alltaf þurfi dómsúrskurð, en ekki nægi sam- þykki umráðamanns eða eiginlegs notanda síma eins og nú er. Þá er kveðið á um rétt sakbornings til að kynna sér sakargögn. Það hefur einmitt verið gagnrýnt að sá réttur er ekki ótvíræður samkvæmt núgild- andi lögum. Dómari getur þannig bannað verjanda að sýna sakborningi eða láta honum í té eintak af máls- skjölum, sbr. umtalaðan dóm Hæsta- réttar frá því síðla sumars árið 1997 í máli Hollendings sem ákærður var fyrir fíkniefnasmygl (H.1997.2155). Ein fréttnæmasta breytingin í framvarpi dómsmálaráðherra snert- ir þó heimildir til endurapptöku dæmdra refsimála. Eins og lesendur muna þá hafnaði Hæstiréttur árið 1997 endurapptökubeiðni Sævars M. Ciesielski með þeim rökum fyrst og fremst að ekki hefðu verið lögð fram nein ný gögn sem ekki lágu fyrir þegar málið var dæmt lokadómi árið 1980. Þarna birtist í hnotskurn hversu takmarkaðar heimildir era í íslenskum lögum til að endurskoða refsidóma. Engin heimild er til end- urupptöku ef dómur reynist eftir á að hyggja byggður á röngu mati á sönnunargögnum né ef í honum birt- ist rangur lagaskilningur. Fyrirmynd sótt til Damnerkur og Noregs Réttarstaðan í Þýskalandi er svip- uð og hjá okkur að þessu leyti. Hins vegar hafa bæði Danir og Norðmenn bætt inn í lög um meðferð sakamála ákvæðum er heimila endurupptöku þegar í ljós kemur eftir á að mistök hafa verið gerð. I Danmörku er þannig heimilt að taka upp mál að nýju ef sérstakar aðstæður gera það mjög líklegt að fyrirliggjandi sönnun- argögn hafi ekki verið metin rétti- lega (nár der i ovrigt foreligger sær- lige omstændigheder, der gor det overvejende sandsynligt, at de for- eliggende bevisligheder ikke har været rigtigt bedomt, 3. töluliður 1. mgr. 977. gr. réttarfarslaganna). I Noregi er sambærilegt ákvæði orðað þannig að taka megi upp mál að nýju ef vafi leikur á því við sér- stakar aðstæður að dómur sé réttur og veigamiklar ástæður mæli með því að sök ákærða verði prófuð á ný (særlige forhold gjor det tvilsomt om dommen er riktig, og tungtveiende hensyn tilsier at spprsmálet om siktedes skyld blir prpvd pá ny, 2. mgr. 392. gr.). I framvarpi dómsmálaráðherra er lagt til að heimildir 184. gr. laganna um meðferð opinberra mála verði rýmkaðar í sömu átt og þarna getur. Heimilt verði að taka mál upp að nýju „ef veralegar líkur eru leiddar að því að sönnunargögn sem færð voru fram í máli hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á niður- stöðu þess.“ I greinargerð segir að hér sé um að ræða ákvæði sem ætlað sé að treysta réttaröryggi við mjög sérstakar aðstæður, í líkingu við samsvarandi ákvæði í dönskum og norskum lögum. Beðið með aðra endurskoðun Þetta ákvæði virðist gagngert hugsað til að opna leið fyrir Hæsta- rétt að taka að nýju afstöðu til end- , urupptökubeiðni Sævars (komi hún fram). Ekki er til dæmis settur neinn frestur líkt og er hjá Dönum til að óska endurapptöku frá því mál er dæmt, en þar er hann fimm ár (eða tvö ár frá því manni er sleppt úr haldi). Ekki er heldur tekið á öðrum atriðum varðandi endurapptöku mála en þeim sem beinlínis urðu Hæstarétti tilefni til að hafna beiðni Sævars. Þannig er ekki hróflað við því hver fjalli um endurupptöku- beiðni, sbr. framvarp Svavars Gests- * sonar um kæradómstól að danskri fyrirmynd, né málsmeðferðarreglum eða öðrum heimildum til endurapp- töku svo sem vegna dóma alþjóða- dómstóla. Allt era það þó atriði sem hljóta að koma til athugunar við þá heildar- endurskoðun laganna sem stendur fyrir dyram. Segir einmitt í greinar- gerð að við fyrirhugaða endurskoðun laganna sé „nauðsynlegt að huga nánar að þessum ákvæðum". Ekki hefði verið nein ástæða til að flýta einum þætti endurskoðunar reglna um endurupptöku nema til þess að bregðast við úrlausn Hæstaréttar frá 1997. Ekkert skal hins vegar sagt um hvort efni yrðu til að fallast á t beiðni Sævars þótt þessari laga- hindran yrði ratt úr vegi að tillögu dómsmálaráðheiTa. Má geta þess að eftir sem áður vantaði heimild í lög- in, sem snertir málatilbúnað Sævars, en er að finna í norskum lögum, á þá lund að taka megi mál upp að nýju ef dómur byggist á lagatúlkun sem síð- ar hefur breyst. Aform um menningarhús á landsbyggðinni kynnt Til að menning og listir fái blómstrað ÍKISSTJÓRNIN kynnti áform um byggingu menn- ingarhúsa á landsbyggð- inni formlega í gær. Um er að ræða aðstöðu fyrir lista- og menningarstarfsemi og nefndir vora fimm staðir þar sem húsin munu rísa: ísafjörður, Sauðárkrókur, Akureyri, Egilsstaðir og Vest- mannaeyjar. Forsætisráðherra kvaðst þó ekki útiloka þann mögu- leika að menningarhús muni rísa á fleiri stöðum í framtíðinni. Menningarhúsunum er ætlað að skapa nútímalega aðstöðu fyrir menningarstarf, tónlist og leiklist og taka mið af breyttum kröfum auk þarfa í ferðaþjónustu. Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir hefjast nákvæmlega eða hversu langan tíma þær munu taka en for- sætiráðherra benti á að mismun- andi aðstæður í hverju sveitarfélagi væru áhrifaþáttur. „Við væntum þess að geta byrjað frá og með næsta fjárlagaári en hefja undir- búningsvinnu og samningsvinnu við sveitarfélögin á þessu ári,“ sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, en áætlaði að um tveimur árum að meðaltali yrði varið í byggingu á hverju húsi. Áhersla verði fremur lögð á að menningarhúsin verði vegleg en að þau rísi ört. Framkvæmdirnar verða fjár- magnaðar sameiginlega af ríki og sveitarfélögum auk þess sem ein- staklingar munu taka þátt í verkefn- inu. Kostnaður liggur ekki fyrir en að sögn forsætisráðherra ræðst hann af mismunandi kröfum og að- stæðum hvers sveitarfélags. „Á stöðum eins og Isafirði er þeg- ar verið að vinna að endurbótum á svonefndu Edinborgarhúsi sem menn hafa hugsað sér sem menn- ingarhús á þeim stað. Þar hafa einkaaðilar haft frumkvæði og ríkið komið að með stuðningi. Það er því hægt að hugsa sér þetta með ýmsu móti,“ sagði Björn Bjarnason, menntamálaráðherra. Á Sauðár- króki þyrfti hins vegar að reisa nýtt hús þar sem ekkei’t félagsheimili er Morgunblaðið/Árni Sæberg BJORN Bjarnason, menntamálaráðherra, Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, foi’sætisráðherra, og Páll Pétursson, félagsmálaráðlierra, kynntu áforrn urn byggingu menningarhúsa á landsbyggðinni. í bænum. Mestu máli skipti hins vegar að á hverjum þessara staða skapaðist sú aðstaða sem nauðsyn- leg væi’i til að listir og menning mættu blómstra. Að sögn Páls Péturssonar, félags- málaráðherra, er ríkisstjórnin með þessari ákvörðun að koma til móts ' við landsbyggðina og telur að stai-f- semi í ki'ingum menningarhúsin geti oi’ðið lyftistöng fyrir sveitarfélögin. Tilvist þeirra muni ekki aðeins gefa sveitai’félögunum kost á að taka á móti allri menningarstai’fsemi held- ur einnig efla það menningarstarf sem fyrir er. Menntamálai’áðhei’ra hefur for- göngu um skipun nefndar til að end- urskoða lögin um félagsheimili frá 1970 og undirbúa byggingu menn- ingarhúsa. Síðan 1989 hefur það ver- , ið í höndum sveitai’félaganna að ' veita byggingarstyi’ki til félagsheim- ila en ríkissjóður veitti á sínum tíma styi’ki í uppbyggingu félagsheimila. I stað tekna af skemmtanaskatti mun Menningai’sjóði félagsheimila nú verða veitt fé á fjárlögum og er honum ætlað að stuðla að menning- arstarfsemi í félagsheimilum lands- c ins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.