Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ i KRISTÍN MARGRÉT HELGADÓTTIR + Kristín Margrét Helgadóttir fæddist í Bolungar- vík 26. apríl 1915. Hún lést á Hrafn- istu, Reykjavík, 28. desember síðastlið- inn. Foreldrar Kristínar voru Helgi Einarsson, formaður í Bolung- arvík, f. 9.7. 1889 í Miðhúsum, Garði í Gerðahreppi, d. 31.11. 1947 á ísa- firði og Guðbjörg Sigurðardóttir, húsmóðir í Bolungarvik, f. 18.7. 1891 í Geiradalshreppi í Austur-Barðastrandarsýslu, d. 16.1. 1928. Börn Helga og Guð- bjargar auk Kristínar voru Einarína, f. 13.6. 1911, d. 4.11. 1914; Magnús Ellert Kristján, sjómaður í Bolungarvík, f. 14.2. 1913, d. 26.5. 1948, kona hans var Jónína Líneik Jónsdóttir, f. 24.8. 1918, d. 22.5. 1947. Systk- ini Kristínar samfeðra eru Bragi, f. 12.6. 1933, Helga Svandís, f. 11.10. 1935, Einar Kristinn, f. 27.1. 1937, Gísli, f. 23.7. 1938, Ágúst Guðjón, f. 20.8. 1939 og Guðbjörg, f. 21.1. 1941. Móðir þeirra er Anna Svandís Gísladóttir, f. 31.7. 1908, á Breiðabóli í Skálavík, Hóls- hreppi, Norður-Isa- fjarðarsýslu. Hún dvelur nú á Sjúkra- húsi Bolungarvík- ur. Kristín giftist 25.10. 1947 Bernód- usi Ö.G. Finnboga- syni, f. 11.4. 1911, á SnæfjöIIum á Snæfjallaströnd, d. 4.7. 1998. Sonur þeirra er Grétar Guðbjörn, f. 17.7.1947, kona hans er Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 18.1. 1949. Þeirra börn eru 1) Kristín Benný, f. 15.8. 1969, maður hennar er Davíð Héðinsson, synir þeirra eru Grétar Atli, f. 7.1. 1993, og Gunnar Atli, f. 20.4. 1994. 2) Óskar Eyjólfur, f. 22.9. 1976. Kristín og Bernódus bjuggu í Bolungarvík til ársins 1953, fluttu þá til Reykjavíkur og áttu heimili að Laugar- nestanga 60. Utför Kristínar fer fram frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Aftur á skömmum tíma fer hugur okkar að leita í minningasafninu. Nú hefur hún amma okkar kvatt þennan heim og haldið til hans afa á ný sem kvaddi okkur skömmu á undan henni. Minningasafnið er stórt og þegar flett er í því birtast ■^pkkur ýmsar myndir sem Ijúft er að minnast. Nokkur brot eru okkur þó minnisstæðari en önnur, kleinu- bakstur, fjöruferðir í Laugamesinu, bæjarferðir, prjónaskapur, en ullar- sokkarnir hennar ömmu munu minna okkur á hana um leið og þeir ylja okkur á tánum. Okkur systkin- um er það báðum í fersku minni þegar við fórum með ömmu og afa í þeirra fyrstu flugferð til útlanda. Haldið var til Amsterdam þar sem foreldrar okkar voru og tóku á móti okkur. Þetta fannst okkur mikið ævintýri því báðum fannst okkur við bera nokkra ábyrgð á ömmu og afa. Öll komumst við á áfangastað og áttum skemmtilegt sumarfrí saman. Ömmu var alltaf gott að heimsækja og vera hjá, hún var ljúf kona með afar létta lund og gott er að geta í huganum heyrt hana hlæja og syngja. Amma sagði okkur sög- ur, bæði af lífinu fyrr á öldinni í Bol- ungarvík og Reykjavík, og svo líka sögur sem hún bara bjó til. Uppá- haldssagan okkar var sagan af stráknum sem fauk. Ofarlega er okkur einnig í huga draumur sem amma sagði okkur frá sem hana dreymdi unga, draumurinn um himnastigann sem nú hefur verið genginn á enda. Til ömmu: Við upphaf lífs er himnastiginn reistur. Fyrstu skerfin tekin með styrkri hjálparhönd. + Ástkær unnusta mín, móðir, dóttir, systir, mág- kona og tengdadóttir, KRISTBJÖRG ODDNÝ ÞÓRÐARDÓTTIR, Áshamri 63, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 9. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsam- legast bent á að opnuð hefur verið spari- sjóðsbók við Sparisjóð Vestmannaeyja og Is- landsbanka (1167-26-3015 og 582-26-3015). Arnar Richardsson, Bertha María Arnarsdóttir, Óskírð Arnarsdóttir, Þórsteina Pálsdóttir, Þórður Karlsson, Sigurbjörn Árnason, Edda Daníelsdóttir, Þórdís Þórðardóttir, Eyþór Þórðarson, Guðný Steinsdóttir, Richard Sighvatsson. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNSJÓNSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóra, Goðalandi 1, Reykjavík. Hólmfríður Einarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Sif Thorlacius, Gylfi Jón Ásbjörnsson, Ragnhildur Kristjana Ásbjörnsdóttir. Þegar hendinni sleppir skeflur stiginn ofúrlítið, áfram er haldið á eigin vegum og þrepin eru stigin, eitt og eitt. Sum er erfitt að stíga, í öðrum brestur, önnur stigin létt. í sumum er löngun til að staldra við en gangan verður að halda áfram, meðan tímahjólið snýst. Þegar ofar dregur eru skrefin erfiðari en samt svo létt því framundan er dásamleg birta í heimi þar sem hamingja og kærleikur ráða ríkjum. í hinu efsta þrepi er maðurinn umvafinn hlýju ættingjar og vinir breiða út arma sína, vellíðanfæristyfir lífsgöngunni lokið eilífðinni er náð. (K.B.G.) Elsku amma, nú er komið að kveðjustund. Við kveðjum þig með söknuði en hjá okkur höfum við dýr- mætar minningar um þig sem við varðveitum í hjarta okkar. Guð geymi þig. Kristín Benný og Óskar Eyjólfur. Að morgni 28. desember barst okkur sú fregn að Kristín systir okkar hefði látist þá um nóttina. Okkur langar til að minnast hennar með fáeinum fátæklegum orðum. Stína eins og hún var oftast kölluð, var hálfsystir okkar, áttum sama föður. Þegar hún var þrettán ára missti hún móður sína eftir erfið veikindi og varð því fljótt að taka til hendi og hjálpa til við heimilis- störfin, hún byrjaði líka snemma að fara í vist og aðra þá vinnu sem til féll. Við yngri systkinin hennar mun- um hana best eftir að hún var orðin fullorðin og þau Benni höfðu stofn- að heimili í Bolungarvík og nefndu húsið sitt Arnarhól við Bakkastíg nr. 10. Þegar við vorum börn hlökk- uðum við alltaf til að heimsækja þau enda stutt að fara og gott að eiga stórusystur svo nærri. Þau rifjast oft upp fyrir okkur jólin heima á Holtastíg 10 í Bolungarvík þegar Stína og Benni komu á hverju að- fangadagskvöldi og gengu með okk- ur kringum jólatréð og sungu jóla- sálma og jólasöngva, bæði höfðu þau mjög gaman af söng og Benni var í karlakómum, ekki vora jóla- pakkarnir opnaðir fyrr en þau komu. Árið 1953 fluttu þau til Reykjavíkur og reistu fljótlega hús á góðum friðsælum stað á Laugar- nestanganum nr. 60. í ferðum okkar til Reykjavíkur var fyrsti viðkomu- staðurinn oftast hjá Stínu og Benna, þaðan lá svo vegurinn heim að lok- inni dvöl, vel útbúin af nesti sem hún hafði tekið til handa okkur. Árið 1993 fluttu þau úr Laugar- nesinu til Grétars sonar síns og Guðrúnar komu hans að Fljótaseli 14 og þaðan á Hrafnistu í Reykja- vík, Benni árið 1995 og Stína í júní 1997. Margs er að minnast þótt hér verði staðar numið, við færum þér þakkir aldraðrar móður okkar, Onnu Svandísar Gísladóttur, sem dvelur nú á Sjúkrahúsi Bolungar- víkur, fyrir alla þína tryggð og vin- áttu í hennar garð. Einnig færum við innilegar kveðjur og þakklæti frá tengda- sysystkinum og systkinabörnum. Elsku systir, það er komið að kveðjustund, við vitum að þú kveiðst ekki þeirri ferð sem við öll fórum að lokinni tilvist okkar hér á jörð, þú varst sannfærð um að ást- vinirnir sem á undan fóru yrðu til- búnir á ströndinni hinumegin til að taka á móti þér, við biðjum góðan guð að geyma þig í náðarfaðmi sín- um. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur sendum við Grétari og fjölskyldu hans. Kveðja frá systkinum. Nú þegar ég kveð kæra mágkonu mína Kristínu Helgadóttur - kveð ég góða konu og einlæga vinkonu. Minningin um allt það góða sem hún gerði fyrir mig, allt frá æskuár- um mínum rennur eins og myndir á tjaldi í gegnum hugann. Og hjart- ans þakklæti fyrir að hafa átt hana að vini. Ung að árum hóf hún bú- skap með elsta bróður mínum, Bernódusi. Heimili þeirra var fljótt eins og annað heimili okkar systkinanna. Stína, eins og hún var jafnan nefnd, var reynd stúlka þótt ung væri. Hún missti móður sína í bernsku og tilfinning mín er sú að móður- missirinn hafi valdið straumhvörf- um í lífi hennar. Lífsbaráttan var hörð, á ung- lingsaldri réðst hún til mjög strangrar vinnu, og aftur vinnu. Laun hennar og kjör ræði ég ekki. Hún var ein þeirra mörgu ung- menna þess tíma sem hafði ekkert svigrúm til menntunar eða að rækta þá hæfileika sem þau fengu í vöggu- gjöf. Stína hafði einkar fallega söng- rödd, en hugleiddi það ekki neitt sjálf fyrr en á vegi hennar varð merkur söngstjóri þegar hún var í vist í Reykjavík. Hann heyrði rödd hennar og fann að hún var söng- næm. Hann kom sérstaklega á tal við hana og hvatti hana til þess að beita öllum ráðum til að hefja söngnám. Auðvitað var þetta ljósblik fyrir unga og djarfa stúlku - en það ljós- blik féll jafnskjótt til jarðar - hún eygði enga möguleika til þess að gefa þessum hæfileikum sínum menntun og fyllra líf - nei - á þeim tíma í einangruðu sjávarþorpi - gat ungt fólk sem aðeins studdist við vinnu sína ekki farið í söngnám. Nei - hún fékk ekki að læra söng - en fallega söngröddin var ekki tekin frá henni. Stína átti glaða lund, gleðin og söngurinn hafa löng- um átt samleið. Að vera glaður og skemmtilegur kallar á það, að allir vilja vera í samfélagi við þá sem lífs- gleðina eiga. Hún Stína átti hana svo sannar- lega. Öllum leið vel í návist hennar og vildu eiga gleðina með henni. Það auðgaði samfélagið með henni að hún var einkar gestrisin og gjalfmild, það var eins og hún væri alltaf viðbúin ef gest bar að garði, með veitingar og vinarþel. Góða manngerðin hennar Stínu bjó yfir því að vera vinur í raun. Ég var á fermingaraldri er við systkin- in misstum móður okkar, sem var bæði ljúf og sterk, barn sem á við- kvæmum aldri missir móður sína gengur í gegnum það sem það skil- ur ekki, en missir, saknar og finnur sárt til, spyr - hvers vegna - en ekkert svar. Sterkur og góður faðir okkar gaf okkur allt sem hann frekast gat með kærleika sínum og greind. En heimili bróður míns og Stínu mágkonu minnar, góðvild þeirra og rausn við fóður okkar og okkur systkinin varð okkur ljós á dimmum vegi sem gleymist eigi. Bernódus bróðir minn var sterk- ur og traustur maður, hann var eins og akkeri okkar systkinanna, hjá honum var leitað ráða - hann var okkar Njáll og Stína var hans Berg- þóra, þessa er ljúft að minnast. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1953 og bjuggu þar síðan. Það breytti ekki því að góðvinafjöldinn sótti þau heim sem áður, og síst vantaði börn í hópinn, enda dvöldu mörg börn á heimili þeirra oft um langan tíma, þar sem þau nutu góðrar umhyggju og hlýju. Þau nutu þess hvað Stína var óvenju baragóð og glöð. Bróðir minn lék á hljóðfæri en Stína söng, já allir sækja í söng og gleði ekki síður börn, og margir minnast þess- ara góðu og glöðu stunda. I löngum og erfiðum veikindum bróður míns reyndist Stína honum umhyggjusöm svo af bar - æðraðist ekki, leysti hvern vanda eins og henni var frekast unnt. Hjálp í veikindum og á erfiðum stundum er eitt af því sem ekki er hægt að meta né mæla, en aðeins þakka af einlægu hjarta. Það er Guðs gjöf. Guðsgjöfin til þeirra var sonurinn Grétar, sem var þeirra ljósgeisli, styrkm- og stoð sem aldrei brást. Hann átti góða foreldra og ber þeim fagurt vitni. Veikindi bróður míns höfðu varað lengi, en heilsa mágkonu minnar lét einnig undan og síðustu árin dvöldu þau bæði á Hrafnistu í Reykjavík og nutu þar góðrar umönnunar sem við ástvinir þeirra erum þakklát fyrir. Þau létust bæði á Hrafnistu með fáira mánaða millibili. Kæra mágkonu kveð ég með hjartans þakklæti fyrir öll gæðin og gleðina sem hún gaf svo ríkulega. Grétar minn, þér og allri fjöl- skyldunni og ástvinum öllum sendi ég mínar einlægustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning góðrar konu. Ég bið Guð að styrkja ykkur öll. Steinunn Finnbogadóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og tengdamóðir, FJÓLA RAGNHILDUR HÓLM SVEINSDÓTTIR, Bárustíg 4, Sauðárkróki, er lést föstudaginn 1. janúar, verður jarð- sungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 9. janúar kl. 14.00. Gísli Gunnarsson, Sigríður Gísladóttir, Björn Ottósson, Sveinn Gíslason, Jónína Þorvaldsdóttir, Pálmey Gísladóttir, Rúnar Ingólfsson, Haraldur Gíslason, barnabörn og aðrir aðstandendur. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KARLS B. JÓNSSONAR, Bólstaðarhlíð 42, Reykjavík. Erna Karlsdóttir, Bjarni Jónsson, Jón Stefán Karlsson, Hafdís Ólafsdóttir, Marteinn Karlsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, Birgir Karlsson, Halldóra Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.