Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vonast til að starfsemi fbúðalánasjóðs komist í eðlilegl horf í næstu viku
Langþráð forrit komið
í hendur bankamanna
Tölvuforrit sem gerir
möguleg samskipti
banka, sparisjóða og
Ibúðalánasjóðs barst
bönkunum á fímmtu-
dag. Pétur Gunnarsson
ræddi við talsmenn
bankakerfis og Ibúða-
lánasjóðs.
BANKAR og sparisjóðir
fengu á fímmtudag afhenta
fyrstu útgáfu af greiðslu-
matsforritinu, sem gera á þeim
kleift að reikna út greiðslumat og
standa í tölvusamskiptum við
íbúðalánasjóð. Finnur Svein-
björnsson, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra viðskipta-
banka, segir að íbúðalánasjóður
virðist hafa vanmetið þá vinnu sem
leggja þyrfti í forritun áður en
stofnunin tók til starfa. Gunnhildur
Gunnarsdóttir, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri íbúðalánasjóðs, seg-
ir stefnt að því að vinna úr þeim
umsóknum sem safnast hafa upp
frá áramótum í næstu viku. AJlt til-
tækt lið sé önnum kafið við að
leysa vandann.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu á fimmtudag gætir óánægju
hjá fasteignasölum með hvemig
tekist hefur til um starfsemi Ibúða-
lánasjóðs frá áramótum. Auk þess
sem tölvuforrit vanti til að banka-
starfsmenn geti annast útreikning
greiðslumats og samskipti við
Ibúðalánasjóð var kvartað undan
drætti á afgreiðslutíma fasteigna-
veðbréfa og húsbréfa og lélegu
upplýsingastreymi frá stofnuninni.
Bankar og sparisjóðir sömdu
skömmu fyrir áramót við Ibúða-
lánasjóð um að taka að sér gerð
greiðslumats og samskipti við sjóð-
inn.
Ekki gefinn nægur tími
til undirbúnings
„Það virðist hafa verið óskyn-
samlegt að fara af stað um áramót
án þess að gefa sér tíma til undir-
búnings," sagði Finnur Svein-
bjömsson. Hann sagði að þegar
bankamir hefðu gengið til samn-
inga við íbúðalánasjóð í desember
um greiðslumat hefðu þeir varað
við knöppum tíma og lýst því yfír
að tímasetning samningsins væri
samkvæmt ákvörðun Ibúðalána-
sjóðs en ekki bankakerfísins.
Helga Björg Bragadóttir, deild-
arstjóri hjá Islandsbanka, annast
samskipti við Ibúðalánasjóð, fyrir
hönd bankans. Hún sagði í samtali
við Morgunblaðið á fímmtudag að
starfsmenn Ibúðalánasjóðs virtust
allir af vilja gerðir til að leysa
vandamálið en meðan fonitið væri
ekki komið til bankans gætu
starfsmenn hans ekki annast út-
reikning greiðslumats, eins og nýja
kerfið geri ráð fyrir. Starfsmenn
taki hins vegar við umsóknum við-
skiptavina, fari yfír þær og kanni
hvort nauðsynleg fylgiskjöl séu
fyrir hendi. Síðan sendi bankinn
umsóknir til íbúðalánasjóðs. St-
arfsmenn hans geri greiðslumat,
sendi bankanum og bankinn til-
kynni viðskiptavinum um niður-
stöðuna.
Helga segir að við eðlilegar að-
stæður mundi það taka starfsmenn
bankans 2 daga að reikna greiðslu-
mat. Nú hafí bankinn sent frá sér
um 130 umsóknir en fengið um það
bil 10 svör til baka.
Hún segir að upphaflega hafí
forritið, sem vantar til að eðlileg
samskipti geti hafist, átt að afhend-
ast bankanum 4. janúar; síðan hafí
verið sagt að það mundi liggja fyrir
klukkan 11 að morgni 6. janúar; 14.
janúar hafi hins vegar verið ákveð-
ið að Ibúðalánasjóður mundi fyrst
um sinn annast útreikning
greiðslumats en bankarnir aðeins
safna saman gögnum eins og fyrr
var rakið.
Virðist vera að leysast
Helga segir að síðast á fimmtu-
dag fyrir viku hafí hún fengið þær
upplýsingar að forritið yrði tilbúið
á föstudag eða mánudag, á föstu-
degi hafí verið sagt að það yrði til á
mánudag en á mánudag var enn
tekinn frestur. Það var svo síðdegis
á fimmtudag að forritið barst
bankamönnum í hendur. Helga
sagði að tölvudeild bankans hefði
prófað forritið og það virtist virka.
Málið virðist því vera að leysast.
Starfsmenn Búnaðarbankans
fengu fon-itið einnig í hendur á
fimmtudag í fyrsta skipti. Hjá
Búnaðarbankanum og einnig Is-
landsbanka fara öll samskipti við
sjóðinn fram á miðlægan hátt, þ.e.
upplýsingum frá öllum útibúum er
safnað saman á einn stað innan
bankans áður en þær eru sendar
sjóðnum.
Jón Emil Magnússon, forstöðu-
maður hjá Búnaðarbanka Islands,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
fyrradag að vonandi myndu starfs-
menn bankans fara að reikna út
greiðslumat næstu daga. Hann
sagði að bankinn hefði lokið við að
þjálfa starfsmenn sína til að þeir
gætu uppfyllt þær kröfur sem
samningurinn geri til bankanna.
„Seint í desember stóðum við
enn í þeirri trú að öll tölvuforrit og
tengingar yrðu til reiðu þegar kerf-
ið færi í gang um áramót. Svo
reyndist ekki vera og síðan hefur
þetta dregist," sagði hann.
Vegna þess hafa starfsmenn
Búnaðarbankans, líkt og Islands-
banka, uppfyllt sinn hluta samn-
ingsins við Ibúðalánasjóð með því
að taka við samþykktu kauptilboði
og öðram gögnum viðskiptavina og
senda þau til sjóðsins. Viðskipta-
vinir séu svo látnir vita strax og
greiðslumat berst frá íbúðalána-
sjóði.
Hann sagði að frá áramótum
hefði Búnaðarbankinn móttekið 94
umsóknir um greiðslumat og sent
Ibúðalánasjóði. Þarna á meðal era
umsóknir sem hafa borist í síðustu
viku og era því ekki komnar fram
yfír eðlilegan afgreiðslutíma, að
sögn Jóns Emils. 12 umsóknir hafa
verið afgreiddar.
Jákvæðir í garð breytinga
Eins og Helga Björg Bragadóttir
lagði Jón Emil áherslu á að starfs-
menn Búnaðarbankans væra já-
kvæðir í garð þeirra breytinga, sem
verið væri að gera. „Þetta verður
gott kerfí þegar það er farið að
virka,“ sagði hann. „Þegar fram í
sækir verður þetta til hagsbóta fyr-
ir viðskiptavini og svartími á eftir
að styttast frá því sem áður var.“
Gunnhildur Gunnarsdóttir, að-
stoðarframkvæmdastjóri Ibúða-
lánasjóðs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að nýtt kerfi hefði strand-
að á því hve illa gekk að koma á
nauðsynlegum tölvutengingum.
Hún staðfesti að tengingarnar
hefðu verið pantaðar skömmu fyrir
áramót og aðspurð hvort nægur
tími hefði verið ætlaður til þess
verkefnis sagði hún að þetta hefði
átt að vera nægur tími. Hins vegar
hefðu komið upp ákveðin vanda-
mál. Framgerð hugbúnaðarins
hefði verið tilbúin fljótlega eftir
áramót en hann hefði þurft þróun-
ar við og upp hefðu komið atriði
sem unnið hefði verið í síðan.
í Morgunblaðinu á fímmtudag
var haft eftir fasteignasölum að
mjög erfitt væri að ná símsam-
bandi við stofnunina og Gunnhildur
sagði að hringingum til stofnunar-
innar hefði fjölgað gífurlega og
þess vegna væri erfitt að ná sam-
bandi við Ibúðalánasjóð. Verið
væri að reyna að leysa málið.
Þá sagði hún að bið eftir útreikn-
ingi greiðslumats hefði lengst en
væri mjög orðum aukin í samtali
við fasteignasalana í blaðinu í
fyrradag. Hún sagði að breytingin
um áramót hefði falið í sér að sótt
væri í einu lagi um gi-eiðslumat og
húsbréfaviðskipti eftir að kauptil-
boð hefði verið gert en áður hefði
ferlið verið tvískipt. Vegna tölvu-
vandræðanna hefðu hinir fáu
starfsmenn Ibúðalánasjóðs tekið
að sér útreikning greiðslumats og
það segði sig sjálft að það væri
talsvert álag á starfsfólk, sem væri
mun færra en hefði að öllu eðlilegu
sinnt þessu hjá bönkunum.
Osanngjörn gagnrýni
Hún sagði að starfsfólki þætti
ósanngjarnt að lesa ummæli fast-
eignasala um að hugarfarsbreyt-
ingu þyrfti til að stofnunin gæti
sinnt markaðnum og sagði að
þessa byrjunarerfíðleika ætti að
vera hægt að leysa auðveldlega ef
allir sem að málinu koma væra
þess fúsir. Hún sagði fleira rangt í
gagnrýni fasteignasalanna, m.a.
hefðu 12 en ekki 57 umsóknir
borist Ibúðalánasjóði frá Fast-
eignasölunni Hóli frá áramótum.
Gunnhildur sagði að frá áramót-
um hefðu alls borist 390 umsóknir
um greiðslumat og húsbréfavið-
skipti. 100 hefðu verið afgreiddar
og 100 væra í vinnslu. Hún sagði að
hér væri m.a. um að ræða umsókn-
ir sem hefðu borist síðustu daga.
Eins og fyrr sagði barst bönkun-
um á fimmtudag hið langþráða
tölvuforrit, sem gerir fyrirhuguð
samskipti banka, sparisjóða og
íbúðalánasjóðs möguleg. Gunn-
hildur sagðist búast við að starfs-
mönnum íbúðalánasjóðs tækist í
næstu viku að hreinsa upp þann
bunka, sem safnast hefur fyrir.
Stefnt sé að því að heildarferillinn
frá því að umsókn berst og þar til
svar liggur fyrir taki 2-4 daga og
verði þá mun hraðvirkari en var
fyrir þær breytingar sem verið er
að gera.
Gunnhildur sagði að hluti skýi'-
ingarinnar á því að talað væri um
langan afgreiðslutíma gæti legið í
því að vegna þess að nú er umsókn
fyrir greiðslumat og húsbréfavið-
skipti ein, þui'fi að leggja fram ítar-
legi'i gögn um keyptar og seldar
eignir en þurfti með umsókn um
greiðslumatið eitt áður. Mikið beri
á því að gögn vanti með umsókn-
um, sem berast frá bönkum og
sparisjóðum, og því hafi þurft að
senda allmargar umsóknir til baka
með ósk um frekari gögn. Þetta
séu byrjunarörðugleikar sem muni
slípast af.
Hún sagði að starfsfólk íbúða-
lánasjóðs ynni langan vinnudag til
að leysa þennan vanda. Allt tiltækt
lið væri í því að gr-ynna á umsókna-
bunkanum og þeim stórauknu
verkefnum sem honum fylgja.
Yilja leggja
Atvinnu- og
ferðamála-
stofu niður
TILLAGA frá borg;arfulltrú-
um Sjálfstæðisflokksins um að
leggja niður Atvinnu- og
ferðamálastofu Reykjavíkur
var lögð fram á fundi borgar-
stjórnar síðastliðinn fimmtu-
dag. Samþykkt var samhljóða
að vísa henni til meðferðar hjá
borgarráði.
I greinargerð með tillög-
unni, sem Guðlaugur Þór
Þórðarson mælti fyrir, segir
að Atvinnu- og ferðamálastofa
hafi verið sett á laggirnar árið
1995 og hafi henni verið ætlað
að taka á atvinnumálum og
vera ráðgefandi varðandi
stefnumótun borgarinnar í
þeim. Segir einnig að það hafí
verið skoðun sjálfstæðis-
manna þá að ekki hafí verið
þörf fyrir stofnun hennar, ver-
ið væri að búa til óþarfa bákn.
Ljóst sé að enn síður sé þörf
fýrir hana nú og því eigi að
leggja hana niður. Virðist eina
hlutverk hennar hafa verið að
vera einhvers konar byggða-
stofnun fyrir Reykjavíkur-
borg.
Ingibjörg Sólrán Gísladóttir
borgarstjóri lagði til að tillög-
unni yrði vísað til meðferðar í
borgarráði og var það sam-
þykkt af borgarfulltrúum
meirihluta sem minnihluta.
Bæjarráð Kópavogs
Fleiri lög-
reglumenn
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur
samþykkt að beina þeirri
áskorun til dómsmálaráðherra
að löggæslumönnum í Kópa-
vogsbæ verði fjölgað.
„I dag era 855 íbúar á hvern
starfandi löggæslumann í bæj-
arfélaginu en landsmeðaltal er
493 íbúar á hvern löggæslu-
mann,“ segir í samþykktinni.
„Fjöldi stöðugilda hjá sýslu-
mannsembættinu hefur hald-
ist óbreyttur í nær 10 ár á
meðan íbúum bæjarins hefur
fjölgað um 6.000 manns.“
Þá er því beint til ráðherra
að húsnæðismál sýslumanns-
embættisins verði athuguð þar
sem húsnæðið sé of lítið íyrir
nauðsynlega starfsemi, auk
þess sem það standist ekki
kröfur um aðgengi fyrir fatl-
aða.
Frjálslyndi
flokkurinn
Kosið í stjorn
kjördæmis-
félags
Reykjaness
STOFNFUNDUR kjördæm-
isfélags Frjálslynda flokksins
á Reykjanesi var haldinn í
Borgartúni 6 í Reykjavík á
fimmtudag.
í aðalstjórn voru kosnir eft-
irtaldir: Hlöðver Kjartansson,
Garðabæ, sem er foi-maður
stjórnarinnar, Bjarni Olafs-
son, Vogum, Rannveig Jónas-
dóttir, Kópavogi, Albert Tóm-
asson, Hafnarfírði, og Halldór
Bjarnason, Mosfellsbæ.
í varastjórn voru kjörnir
Halldór Halldórsson, Seltjarn-
arnesi, og Ragnar Þórðarson,
Garðabæ.
Samþykktar vora reglur fé-
lagsins. Um 50 manns mættu
á stofnfundinn, segir í frétta-
tilkynningu.