Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
DÓMNEFNDARMANNA og aðstandenda keppninnar beið síðan hið erfiða starf að bragða á öllum réttunum.
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 39
MIKILL fjöldi áhorfenda fylgist með, þar á meðal hópur íslendinga.
mikla áherslu á að koma sínum af-
urðum á framfæri og í keppninni
nú hafi til dæmis verið eldað úr
norskum ufsa. „I næstu keppni
verður eldað úr barra og lambi og
enn er ekki búið að ákveða hvaðan
lambið kemur. Ég held að það væri
athugandi áð kanna hvort ekki sé
hægt að koma íslenska lambinu á
framfæri með þessum hætti. Vissu-
lega er það mjög dýrt en sé við-
komandi hráefni valið til þátttöku í
Bocuse d’Or er það búið að vinna
sér sess í matreiðsluheiminum og
færustu fagmenn kynnst því með
beinum hætti.“
Stór hópur íslenskra matreiðslu-
manna fylgdist með keppninni til
Lyon og ljóst er að hún hefur verið
mikil innspýting fyrir þá sem það
gerðu og ljóst að margir eru farnir
að hugsa sér til hreyfings fyrir
næstu Bocuse d’Or keppni. Ekki
síður er athyglisvert hversu sterk-
ar Norðurlandaþjóðimar komu út
úr keppninni, Norðmenn sigruðu
og allar Norðurlandaþjóðirnar var
að finna meðal efstu sæta. Oft er
það svo að allt í kringum keppni
skilar meiru heldur en keppnin
sjálf, undirbúningurinn og reynsl-
an situr eftir löngu eftir að keppni
lýkur. Vonandi munu því sem flest-
ir setja markið hátt og stefna að
þátttöku og hver veit, fyrst Norð-
menn geta unnið, af hverju ekki
við?
því hvernig draumurinn er settur á
svið (handritið). Þegar þessu öllu er
svo púslað saman til að fá út heild-
stæða mynd gæti hún litið svo út:
Þú glímir við áhyggjur (svarta slæð-
an) vegna ófyrirséðra aðstæðna en
kunnuglegra (maðurinn svart-
klæddi), þessar áhyggjur (sem
skapa óöryggi), gætu tekið á sig
mynd þunglyndis og breytt farveg
þínum til hins verra, en þú kýst að
ráða þeirri för og breytingum þeim
fylgjandi þó þær kosti fómir. Þar
með ertu komin á byrjunarreit (í
grasinu) og ný leið er fyrir höndum,
þó þú sért óöragg í fyrstu, reynist
þessi aðgerð rétt og það sem
íþyngdi (slæðan morknaði) þér
hverfur. Þarna hefst uppbygging
(planta trjám og raða kantsteinum)
sem unnin er af kostgæfni, byggð á
gæðum (pokinn með silfuráhöldun-
um) og djúpri reynslu (silfrið) en
Guðmundur stendur þaraa fyrir
þann kraft sem þér er gefinn og þá
einurð sem þú býrð að úr föðurhús-
um.
• Þeir lesendur sem viljn fá draunía
siim biría og rdðna sendi þá mcð
fullu nafni, fæðingardcgi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavfk
í þágu íþrótta,
ungmenna og
öryrkja