Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 06.02.1999, Blaðsíða 76
76 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Brynhildur Guðjónsdóttir leikur hjá tveimur Þjóðleikhúsum Ég er skellibjalla Brynhildur Guðjónsdóttir leikur Skelli- - bjöllu í Þjóðleikhúsinu breska í London og verður í aðalhlutverki í rokkóperunni Rent í uppfærslu íslenska Þjóðleikhússins í apr- ík Ingibjörg Þórðardóttir talaði við þessa ungu og efnilegu leikkonu. ÞAÐ HEFUR löngum verið talið erfítt fyrir unga leikara að hasla sér völl í stórborg eins og Lundún- um og þá sérstaklega fyrir þá sem hafa enskuna ekki sem móðurmál. En fyrir suma virðist það vera leikur einn eins og - nýútskrifaða leik- konan Brynhildur Guðjónsdóttir hefur sannað. Hún lauk námi frá Guildhall- leiklistarskólanum í Lundúnum nú í sum- ar og hennar fyrsta hlutverk hér í Bret- landi er í sýningunni Pétur Pan sem National Theatre eða Þjóðleikhúsið í Lund- únum setti upp rétt fyr- ir jól. En hvemig stend- ur á því að annars óreynd leikkona kemst strax að hjá svona virtu leikhúsi? Valdi úr tilboðum „Mér voru upphafíega boðin tvö hlutverk, annars vegar hjá Royal Shakespe- are Theatre í Stratford og hins vegar í Pétri Pan hjá breska Þjóð- leikhúsinu. Það var í raun tvennt sem réð úrslitum hjá mér. I fyrsta lagi þykir mér mjög vænt um Pét- ur Pan sem leikrit og mér var ein- _ staklega vel tekið þegar ég mætti til starfa. í öðru lagi vildi ég ekki flytja frá Lundúnum, þar sem tækifærin era fleiri en í Stratford." Brynhildur leikur í raun þrjú hlutverk en það helsta er að vera rödd Skellibj öllu, litla álfsins sem fylgir Pétri Pan hvert sem hann fer. „Yfirleitt er rödd Skelli- bjöllu bara bjalla en í þetta skiptið var breytt út af venjunni og henni gefin rödd. Þetta er mjög skemmtilegt og gefandi hlutverk ekki síst þar sem krökkun- um finnst Skellibjalla svo skemmtileg og salurinn iðar í hvert einasta skipti sem hún birtist.“ Brynhildur segir líka að Skellibjalla hafi alltaf verið í sérstöku uppá- haldi hjá sér og það að hafa tæki- færi til að segja „ég er Skelli- bjalla“ átta sinn- um í viku sé tækifæri sem ekki sé hægt að láta ganga sér úr greip- um. Brynhildur hefur jafnframt þurft að hlaupa í skarðið fyrir að- alleikonuna og leika sjálfa Vöndu en það þurfti hún að gera á tveim- ur sýningum fyrir fullu húsi þegar aðalleikkonan veiktist. A tiolv . rr“du-'Vw- j lOKSKKÁNNl uppf®rs'una’ Morgunblaðið/Jim Creighton BRYNHILDUR Guðjónsdóttir eða Inka Magnusson eins og hún er kölluð í Bretlandi. BRYNHILDUR verður í aðal- hlutverki í rokkóperunni Rent í Þjóðleikhúsinu. Það var mjög góð reynsla og sérstaklega þar sem sýningarnar gengu báðar mjög vel, að sögn Brynþildar. Hún bætir við að það sé mjög skemmtilegt að leika í þessum sal og ekki spilli fyrir að þetta sé stærsti salurinn í húsinu sem taki 1.200 áhorfendur. Harður heimur En skyldi það hafa haft erfið- leika í för með sér að Brynhildur er ekki bresk? „Ég held að það geti oft valdið erfiðleikum," svarar hún. „I mínu tilfelli breytti ég nafninu mínu í Inka Magnusson sem er mun auðveldara fyrir enskumælandi fólk að bera fram og svo er ég ekkert að segja frá því í óspurðum fréttum hvaðan ég er. Þetta er mjög harður heimur og oft verður maður að segja bara nákvæmlega það sem fólk vill heyra“. Biynhildur segir jafnframt að það eigi eftir að koma sér mjög vel fyrir hana í framtíðinni að hafa starfað hjá breska Þjóðleikhúsinu. „Fyrirkomulag hjá leikurum í Bretlandi er töluvert frábragðið fyrirkomulaginu á Islandi en hér er mjög mikilvægt fyrir leikara að fá umboðsmenn sem sjá um að út- vega prufur,“ segir hún. „Þetta er í raun mjög gott form fyrir leikara þar sem listamaður- inn getur einbeitt sér að listsköp- uninni á meðan umboðsmaðurinn sér um öll formsatriðin eins og laun og samninga. Heima á Islandi verður maður að vera sinn eigin umboðsmaður og það getur oft tekið á taugarnar.“ Þá hefur það breyst í Bretlandi að leikhúsin hafa ekki lengur fast- ráðna leikara á sínum snæram. Ofgnótt leikara og umboðsmanna býður ekki upp á það. I stað þess eru leikarar yfii-leitt ráðnir í eina til tvær sýningar í einu. Biynhild- ur segir það í raun bagalegt að fastráðningar séu ekki lengur við lýði þar sem þær séu mjög góð trygging fyrir leikara en aftur á móti megi segja að það sé ekki endilega af hinu góða fyrir áhorf- endur þar sem svo mikið öryggi geti að sjálfsögðu haft slæleg áhrif á frammistöðu leikaranna. Flatbökur og skyr En nú stefnir Brynhildur á heimferð þar sem henni bauðst hlutverk Mimi í nýrri uppfærslu Þjóðleikhússins á stórborgar- stykkinu og óperunni Rent sem byggð er á perlu óperubókmennt- anna La Boheme. „Þetta er alveg frábært og auðvitað er það alltaf draumurinn að fá að leika á ís- landi. Sérstaklega þar sem það getur verið erfitt fyrir leikara sem læra erlendis að komast að í leik- húsum heima. Þetta er mjög spennandi verkefni og ég hlakka mikið til að takast á við þetta hlut- verk.“ Rent hefur notið mikilla vinsælda í Lundúnum og sagði Brynhildur að hún efaðist ekki um að það ætti eftir að vera vinsælt heima líka en sjálf sagðist hún fyrst og fremst hlakka til að koma heim og fá flatkökur og skyi'. ■HBm Feiknin öll af pönnukökum London. Morgunblaðið. LISTA- og menningaraefnd Is- Iendingafélagsins í London stóð á sunnudag fyrir opnum menning- ardegi í húsakynnum Royal Col- lege of Art í Kensington-hverfi. Menningardaginn setti for- maður Islendingafélagsins, Sig- urður Sigurgeirsson, og síðan var íjölskyldumyndin Benjamín Dúfa sýnd við góðar undirtektir viðstaddra. Eftir kvikmyndasýn- inguna voru léttar veitingar á boðstólum, flatkökur og hangi- kjöt frá Sláturfélagi Suðurlands sem styrkti menningardaginn með þessu framlagi og Sigríður Ella Magnúsdóttir bakaði feikn- in öll af pönnukökum. Hvort tveggja lagðist vel í við- stadda, hvort sem_það voru for- vitnir Bretar eða Islendingar með heimþrá. I sýningarsölum Royal College sýndi Guðbjörg Hjartardóttir Leaman hefðbund- ?in olíumálverk, Guðrún Nielsen myndhöggvari líkan af fyrirhug- aðri liöggmynd á Greenham Common, Jón Trausti Bjarnason setti upp uppstillingu sérhann- aða fyrir rýmið (installation), Olöf Björnsdóttir var með gjörn- ing í samvinnu við þau börn sem voru viðstödd og Erla Kiernan sýndi gömul auglýsingaspjöld úr svokallaðri Rafskinnu frá fimmta og sjötta áratugnum sem eru í hennar eigu. Að sögn Guðrúnar Nielsen, sem er einn af meðlimum menn- ingarnefndarinnar, heppnaðist menningardagurinn vel. „Fólk var ánægt, það var mikil ánægja með kvikmyndina og það var gaman að sjá hvað margir krakkar voru mættir. Þetta var líka mjög blandaður hópur, ekki bara Islendingar sem mættu og fólk kom víða að.“ Páll Stefánsson ljósmyndari hélt sýningu á verkum sínum og VILMUNDUR Guðnason Iæknir, Borghildur Jónsdóttir listamaður og Sigurður Sigurgeirsson, skipamiðlari og formaður Islendingafélagsins á Bretlandseyjuni. sagðist hann hafa valið svolítið „öðruvísi" myndir vegna þess að hann vissi að það yrðu mörg börn á þessari hátíð. Páll sýndi litskyggnur og spjallaði við áhoiTendur. Guðrún Nielsen taldi miklar líkur á að framhald yrði á íslenskum listaviðburðum í Lundúnum: „Það era uppi laus- leg áform um að halda óraf- magnaða tónleika með islensku tónlistarfólki, það hafa nokkur nöfn verið nefnd, þar á meðal Emiliana Torrini, Finnur Bjarnason og rokkhljómsveitin Kolrassa krókríðandi, en ekkert hefur verið staðfest." Erla Kiernan sem einnig er í menningarnefndinni sagði að fyrir nokkrum árum hefði verið Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson LISTAMENNIRNIR Ólöf Björnsdóttir, Guðbjörg Iljartar- dóttir Leaman, árlegur Ijölskyldudagur íslend- ingafélagsins í tengslum við 1. des. hátíðarhöld, en það hefði lognast út af. Þá tíðkaðist að fá einn gest heiman frá íslandi til að skemmta. Þessi menningar- og listadagur sé liður í að end- urvekja þessa hefð og vonandi verði þetta að minnsta kosti að árlegum viðburði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.