Morgunblaðið - 06.02.1999, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Það er af sem áður var
Oddviti Bessastaða-
hrepps um húshitun
á Álftanesi
Verð á
heitu vatni
er of hátt
„KJARNI málsins er að það er
óviðeigandi að íbúar í Bessastaða-
hreppi séu að borga skatt til
Reykjavíkurborgar í gegnum
heitavatnsverðið," sagði Guð-
mundur G. Gunnarsson, oddviti
hreppsnefndar Bessastaðahrepps,
aðspurður um ummæli Guðmund-
ar Póroddssonar, forstjóra Orku-
veitu Reykjavíkur, hér í blaðinu á
miðvikudag.
„Mér finnst að verið sé að ýja að
því að við séum að þiggja ein-
hverja ölmusu hérna útfrá,“ sagði
Guðmundur G. og vísaði til um-
mæla Guðmundar Þóroddssonar.
Það er ekki óeðlilegt að einhver
arður renni í borgarsjóð, en verðið
nú er of hátt og algerlega ótækt að
borgarsjóður hirði svo háar arð-
greiðslur til sín, bæði frá Bessa-
staðahreppi og öðrum viðskipta-
vinum, sagði Guðmundur G. Hann
vildi jafnframt taka það fram að
orðið „okur,“ eins og forstjóri
Orkuveitunnar kaus að kalla það,
hafi aldrei verið notað í erindi
hreppsnefndarinnar til borgar-
stjórnar.
Einkennilegl að taka mið af
fjárfestingu í einstöku hverfi
Forstjóri Orkuveitunnar taldi
húshitunarkostnað á Alftanesi
hafa lækkað um 50% síðan Hita-
veita Reykjavíkur keypti Hitaveitu
Bessastaða fyrir fimm árum. Enn-
fremur benti hann á að mun dýr-
ara væri að sjá íbúum Bessastaða-
hrepps fyrir vatni en Reykvíking-
um, þar sem um dreifðari byggð
væri að ræða og að fjárfesting
Hitaveitu Reykjavíkur á svæðinu
hefði verið komin í 114 milljónir í
desember 1998.
„Það er einkennilegt að taka mið
af fjárfestingu í einstöku hverfi
eins og forstjórinn gerir,“ sagði
Guðmundur Gunnarsson. „Hita-
veitan ætti að geta borgað upp
þessa fjárfestingu á 5 til 6 árum
miðað við að tekjurnar af Bessa-
staðahreppi hafi verið um 20 millj-
ónir á síðasta ári,“ sagði hann.
LOKIÐ er niðurrifi á Nýja bíói í
Reykjavik sem stórskemmdist í
eldi á siðasta ári og þannig blasir
nú lóðin við þegar skyggnst er
Hætt að
HÆTT hefur verið að endurvarpa
efni dönsku sjónvarpsstöðvarinnar
TV2 á breiðvarpi Landssíma Is-
lands hf. vegna þess að á dagskrá
hennar er efni, sem Islenska út-
vai’psfélagið hefur keypt á sýning-
arrétt á Islandi. Þess í stað er nú
efni dönsku stöðvarinnar DR2 sent
út.
Olafur Stephensen, talsmaður
Landssíma Islands hf., sagði í gær
að gerður hefði verið samningur
við fyrirtækið Telenor Satellite
Semces um að dreifa efni norrænu
sjónvarpsstöðvanna og hefð væri
fyrir því að gera pakkasamning um
endurvarp á Norðurlöndunum öll-
um þar sem um grannríki væri að
ræða.
um á svæðinu. Framundan er að
hefja uppbyggingu en þarna á að
rísa verslunar- og skrifstofuhús-
næði á næstu misserum á vegum
„í einhverjum tilfellum virðist
hafa verið á reiki hver væri skil-
greiningin á Norðurlöndum," sagði
Olafur. „Við gerðum okkar samn-
inga við Telenor í þeirri góðu trú
að þeir hefðu rétt til endurvarps á
viðkomandi efni á öllum Norður-
löndunum. Þegar gengið var á Tel-
enor virtist endurvörpunarréttur á
þessari stöð ekki vera á hreinu
þannig að hún var tekin út úr
breiðvarpinu og DR2 kom í stað-
inn.“
Höfundarréttarmál
í óvissu
Hann bætti því við að efni þess-
ara stöðva skaraðist að litlu leyti
við það efni, sem hér væri sent út,
Bónuss. Vegfarendur verða því
að hafa nokkra þolinmæði vegna
þrenginga á Lækjargötu meðan
framkvæmdir standa yfir.
og höfundarréttarmál væru um
þessar mundir í mikilli óvissu. Það
væri spurning hvort hægt væri að
kaupa einkarétt á ákveðnu sjón-
varpsefni í löndum þar sem efni
flæddi endurgjaldslaust yfir landa-
mæri. Norðurlöndin væru að verða
einn sjónvarpsmarkaður. Island
hefði litið á sig sem hluta af þessu
menningarsvæði og því hefði verið
talið mikilvægt að geta boðið upp á
norrænt sjónvarpsefni. Hins vegar
væri verið að ræða þetta mál við
Telenor og fullur vilji væri fyrir því
að halda áfram að senda út nor-
rænt efni.
„En til að hafa vaðið fyrir neðan
okkur var TV2 tekið út,“ sagði
Ólafur.
4 mánaða
fangelsi fyr-
ir skattsvik
RÚMLEGA fertugur Reykvíking-
ur hefur verið dæmdur í fjögurra
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
til að greiða fjórar milljónir króna
í sekt til ríkissjóðs fyrir brot gegn
lögum um virðisaukaskatt og brot
gegn lögum um staðgreiðslu opin-
berra gjalda.
Akærði, sem ekki hefur sætt
refsingu áður, játaði skýlaust brot
sitt og skýrði skilmerkilega frá
málavöxtum. Akærði rak verk-
takafyrirtæki í Reykjavík og sagði
fyrir dómi, að vegna mikils taps á
einu verki fyrirtækisins hefði fjár-
hagur þess farið úr skorðum.
Kvaðst hann hafa látið ganga fyiár
öðru að greiða starfsmönnum laun
og ekki hafi verið til fjármunir til
að standa skil á greiðslum virðis-
aukaskatts og staðgreiðslu opin-
berra gjalda. Fyrirtæki hans var
úrskurðað gjaldþrota hinn 3. des-
ember 1997.
Hjördís Hákonardóttir var dóm-
ari í málinu.
---------------
Ráðinn bæj-
arstjóri á
Hornafírði
Á FUNDI bæjarstjómar Horna-
fjarðar á fimmtudag var gengið frá
ráðningu Garðars Jónssonar sem
bæjarstjóra Homafjarðar.
Garðar er 34 ára viðskiptafræð-
ingur og hefur starfað hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga und-
anfarin 10 ár, en síðastliðin þrjú ár
sem deildarstjóri hagdeildar sam-
bandsins. Hann hefur komið að
ýmsum verkefnum er lúta að sveit-
arstjórnarmálum og hefur setið í
og starfað með fjölmörgum nefnd-
um á því sviði.
Garðar er kvæntur Huldu Ólafs-
dóttur kennara, og eiga þau tvö
börn. Hann var valinn úr hópi sex
umsækjenda.
Akveðið hefur verið að Garðar
komi til starfa þann 10. apríl nk.
Þangað til mun Tryggvi Þórhalls-
son, framkvæmdastjóri stjóm-
sýslusviðs bæjarins, gegna bæjar-
stjórastarfinu.
Breiðvarp Landssíma Islands hf.
endurvarpa TV2
Læknir sýknaður af
ákæru um misneytingu
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
sýknudóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur af ákæra á hendur heilsugæslu-
lækni á höfuðborgarsvæðinu fyrir
misneytingu og brot í opinbera
starfi. Hann hafði haft samræði við
sjúkling sinn um miðjan dag eftir
að hafa nóttina áður farið til hans í
vitjun og gefið honum róandi lyf.
Konan kom að kvöldi dags í jan-
úar 1998 á neyðarmóttöku Sjúkra-
húss Reykjavíkur og kvað lækninn
hafa nauðgað sér fyrr um daginn.
Hann hefði vitjað hennar nóttina
áður sem læknir hjá Læknavakt-
inni vegna meiðsla sem hún hafi
orðið fyrir. Hann hefði gefið henni
róandi lyf og síðan haft við hana
samfarir sem hún mundi óljóst eft-
ir. Samkvæmt vottorði sálfræðings
í maí 1998 sem hafði konuna til
meðferðar hefur líðan hennar verið
mjög bágborin eftir áfallið. Hún
finni fyrir öryggisleysi og mikilli
spennu. Hún eigi erfitt með að fara
út á meðal fólks af ótta við að
rekast á meintan geranda. Hún
sofi óvært, hvílist illa og fái oft
martraðir sem séu tengdar kyn-
ferðisbrotinu.
Læknirinn neitaði í fyrstu ásök-
unum þessum. Eftir að sýnt hafði
verið fram á með DNA-rannsókn
að sæði úr honum hefði verið í
leggöngum konunnar viðurkenndi
hann samræði en sagði að það
hefði verið með samþykki konunn-
ar. Sagðist honum svo frá að kon-
an hefði verið í slæmu ásigkomu-
lagi þegar hann fór til hennar um
nóttina. Vitjaði hann hennar
þrisvar þá um nóttina, síðast
klukkan sjö að morgni. Greinilegt
hefði verið að hún væri vímuefna-
sjúklingur. Hann hefði gefið henni
lyf í fyrstu og síðustu ferðinni, í
síðara skiptið eina ampúlu 10 mg
díazepam og í fyrstu ferðinni hafi
hann gefíð henni 20 mg díazepam
og phenergan í vöðva. Hann hafi
gefið henni díazepamið í bæði
skiptin í æð.
Þreyttur
eftir vaktina
Sagðist hann hafa farið og vitjað
hennar í fjórða skipti um hádegis-
bil daginn eftir en þá í einkaerind-
um. Hann hefði sagt henni að hann
væri mjög þreyttur eftir vinnu
næturinnar og hún þá boðið honum
upp í rúm til sín. Þau hafi svo haft
samfarir með vilja hennar einu
sinni. Hann kvað andlegt ástand
hennar hafa verið miklu betra en
um morguninn, hún hafi verið gjör-
breytt frá því fyrr um morguninn,
með fullri rænu og viljað vera með
honum. Taldi hann lyfjagjöfina þá
um nóttina hafa verið eðlilega og
útilokað að konan hafi ekki getað
spornað við samræði vegna þess-
ara lyfjagjafa hans eða ástands
hennar að öðra leyti. Sagðist hann
ekki hafa viljað viðurkenna þetta í
fyrstu yfirheyrslu hjá lögi’eglu til
þess að stofna hjónabandi sínu ekki
í hættu.
í mars 1998 svipti heilbrigðis-
ráðuneytið ákærða læknaleyfi 11.
mars sl. á grundvelli 27. og 28. gr.
læknalaga nr. 53/1988 samkvæmt
tillögu landlæknis vegna alvarlegs
brots á læknalögum, að tillögu
landlæknis, sem taldi framangreint
atferli ósamboðið lækni.
Þá var höfðað opinbert mál á
hendur honum fyrir brot á 196. al-
mennra hegningarlaga sem leggur
meðal annars bann við því að menn
hafi samræði við manneskju sem
getur vegna ástands síns ekki
spomað við verknaðinum eða skilið
þýðingu hans. Þá var í ákæra
einnig vísað til 138. gr. almennra
hegningarlaga sem heimilar tvöfalt
þyngri refsingu við refsilagabroti
ef opinber starfsmaður telst
þannig um leið hafa misnotað stöðu
sína.
Ekki var hins vegar ákært fyrir
brot á 198. gr. almennra hegning-
arlaga sem leggur refsingu við því
að hafa samræði við manneskju ut-
an hjónabands með því að misnota
freklega þá aðstöðu að hún sé
skjólstæðingur í trúnaðarsam-
bandi.
Löng saga
um ofneyslu
I niðurstöðu fjölskipaðs héraðs-
dóms, sem kveðinn var upp af Ingi-
björgu Benediktsdóttur og Sigurði
T. Magnússyni héraðsdómurum og
Ásgeiri Karlssyni geðlækni, og
staðfestur var með tilvísan til for-
sendna í Hæstarétti, segir: „Kær-
andi á langa sögu um ofneyslu lyfja
og er fram komið að hún hefur
mikið lyfjaþol. Verður ekki litið
fram hjá þeim möguleika að hún
hafi útvegað sér og tekið inn lyf
sem hvorki stafa frá ákærða né
heimilislækni hennar og tekið þau
inn bæði fyrir og eftir að ákærði
hafði við hana samfarir. Ríkir því
óvissa um það hvaða lyfja hún
neytti, magn þeirra og áhrif á með-
vitundarástand hennar á þeim tíma
sem ákærði hafi við hana samræði.
Y hefur ekki borið á móti því að
hún hafi leyft ákærða að leggjast
upp í rám hjá sér, rámar í að hann
hafi beðið sig um þetta, en síðan
vaknað við að hann var að hafa við
hana samfarir. Símtöl sem hún átti,
meðal annars við læknavakt og
nafngreindan kunningja sinn norð-
ur í landi og hún mundi síðar ekki
eftir, þykja benda til þess að lyfja-
neyslan hafi fremur valdið minnis-
leysi en rænuskerðingu. Ekki era
bornar brigður á að Y hafi verið í
„black-out“-ástandi, eða minnis-
leysi, en hegðun og framkoma fólks
undir slíkum kringumstæðum þarf
ekki að benda til þess að um óeðli-
legt ástand sé að ræða.
Það er mat dómsins að fram-
burður ákærða hafí í heild sinni
verið fremur tráverðugur, þrátt
fyrir að hann hafi í fyrstu neitað
samræðinu og verið reikull um
lyfjagjafir sínar, en skoða verður
framburð hans við rannsókn máls-
ins í ljósi aðstæðna við yfirheyrslur
hans þá.
Þegar litið er til þess sem hér
hefur verið rakið, einkum minnis-
leysis kæranda um atburði, þess að
hún á vanda til langvarandi minnis-
leysis í kjölfar áfengis- og lyfja-
neyslu og óvissu um ástand hennar
er ákærði hafði kynmök við hana
þykir ekki fram komin lögíúll
sönnun þess að ákærði hafi framið
það brot sem hann er ákærður fyr-
ir...“
Málið sótti Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari af hálfu ákæravaldsins
en skipaður verjandi ákærða var
Andri Árnason hrl.