Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 22
22 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKiPTI
Sláturfélag Suðurlands hagnaðist um 111 milljónir króna
Bjart útlit á
erfíðum markaði
REKSTRARHAGNAÐUR Slátur-
félags Suðurlands á síðasta ári nam
111 milljónum króna, sem er um 30
milljónum meira en árið 1997 þeg-
ar félagið skilaði 81 m.kr. hagnaði.
Þetta er fimmta árið í röð sem fé-
lagið skilar hagnaði. Rekstrartekj-
ur Sláturfélagsins og dótturfélags
voru 2.771 m.kr. á árinu 1998, en
2.545 m.kr. árið á undan. Velta
samstæðunnar jókst um 9% frá
fyrra ári.
Rekstrargjöld án afskrifta námu
2.519 m.kr. samanborið við 2.313
m.kr. árið áður, sem er tæp 9%
aukning á milli ára. Afskriftir
rekstrarfjármuna voru 109 m.kr. en
99 m.kr. árið 1997. Rekstarhagnað-
ur án fjármunatekna og fjármagns-
gjalda var 142 m.kr., en var 134
m.kr. árið áður. Fjármagnsgjöld
umfram fjármunatekjur voru 23
m.kr. en á árinu á undan 43 milljón-
ir og lækkuðu um 21 m.kr. Hagnað-
ur af reglulegri starfsemi var 119
m.kr. en nam 90 m.kr. árið áður. Að
frádregnum sköttum og tapi hlut-
deildarfélaga var hagnaður Slátur-
félagsins því 111 milljónir.
í árslok 1998 voru heildareignir
Sláturfélags Suðurlands og dóttur-
félags 2.018 m.kr., sem er 6,2%
hækkun frá fyrra ári. Skammtíma-
skuldir voru 408 milljónir, lang-
tímaskuldir 700 m.kr. og eigið fé
911 m.kr. og hafði hækkað um
12,7% eða 102 m.kr. Eiginfjárhlut-
fall í lok ársins 1998 var 45% sam-
anborið við 43% árið áður. Arðsemi
eiginfjár var 13% en 12% árið áður.
Aðalfundur Sláturfélags Suður-
lands verður haldinn föstudaginn
26. mars nk. Samkvæmt fréttatil-
kynningu mun stjórn félagsins
leggja til að greiddur verði 7% arð-
ur af nafnverði hluta í B-deild
stofnsjóðs og reiknaðir verði 7%
vextir á höfuðstól inneigna í A-
deild stofnsjóðs.
Reikna með svipaðri afkomu
Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélagsins, segist mjög sáttur
við afkomuna, miðað við þá at-
vinnugrein sem félagið er í. „Við
höfum góðu starfsfólki á að skipa
og niðurstaðan hjálpar okkur
áfram á þeirri braut að hagræða í
þessum afurðageira, sem er lífs-
nauðsynlegt fyrir innlendan land-
búnað.“
Á síðasta ári fjárfesti félagið í
varanlegum rekstrarfjármunum
fyrir 298 m.kr. Lokið var við um
1.800 fm stækkun kjötvinnslu fé-
lagsins á Hvolsvelli. Ný sláturlína
var sett upp í stórgripasláturhús-
inu á Selfossi auk nýrra brautar-
kerfa í kjötvinnslu og stórgripa-
sláturhúsi, að því er segir í frétta-
tilkynningu. Áð sögn Steinþórs
hafa þessar fjárfestingar lítil áhrif
á afkomu síðasta árs en hann telur
ljóst að til lengri tíma litið komi
þær til með að skila auknu hagræði
og meiri umsvifum.
Steinþór segir að ákveðið hafi
verið að fresta áformum félagsins
um stofnun kjötvinnslu í Dan-
mörku þar sem útflutningur dilka-
kjöts til Noregs á næstu árum
veldur því að ekki fæst nægilegt
magn til að arðsemi vinnslunar sé
tryggð.
Vísar gagnrýni um óeðlilegt
eignarform á bug
Samvinnufélög líkt og Sláturfé-
lagið hafa sætt nokkurri gagnrýni
vegna skiptingai' eiginfjár í A- og
B-deild stofnsjóðs. Hlutir í A-deild
stofnsjóðs ganga ekki kaupum og
sölu á markaði en veita eiganda
rétt til að kjósa fulltrúa á aðalfund.
Eigendur hlutafjár í B-deild stofn-
sjóðs geta ekki kosið í stjóm fé-
lagsins en hafa þess í stað forgang
að arði. Steinþór segist vísa allri
gagnrýni um óeðlilegt eignarform
á bug enda hafi Sláturfélagið sýnt
að það séu rekstur og stjórnun fé-
laga sem skipti meginmáli en ekki
félagsformið. Hann segir þessi
málefni hafa verið í umræðunni um
nokkurt skeið en ekki séu uppi
áætlanir um breytingar á félags-
formi.
Aðspurður um rekstrarhorfur
Sláturfélagsins á þessu ári, segist
Steinþór reikna með svipaðri af-
komu og í fyrra. Það geti þó auðvit-
að breyst í báðar áttir, allt eftir því
hvemig innlendi markaðurinn þró-
ast.
Sláturfélag Suðurlands
Úr ársreikningum 1998
Samstæða
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 2.770,8 2.545,5 +8,9%
Rekstrargjöld 2.519,4 2.312,6 +8,9%
Afskriftir 109,2 99,0 +10,3%
Hagnaður án fjármagnsliða 142,2 133,9 +6,2%
Fjármagnsgjöld (22,7) (43,4) -47,7%
Hagnaður tímabilsins 111,0 81,4 +36,4%
Efnahagsreikningur 31 des. 1998 1997 Breyting
I Eignir: ] Fastafjármunir Milljónir króna 1.348,1 1.199,7 +12,4%
Veltufjármunir 670,4 701,1 -4,4%
Eignir samtals 2.018,5 1.900,8 +6,2%
| Skuldir og eigið fé: Skammtímaskuldir 407,7 373,1 +9,3%
Langtímaskuldir 699,8 719,1 -2,7%
Eigið fé 911,0 808,6 +12,7%
Skuldir og eigið fé samtals 2.018,5 1.900,8 +6,2%
Kennitölur 1998 1997
Eiginfjárhlutfall 45% 43% •
Veltufjárhlutfall 1,6 1,9 •
Veltufé frá rekstri 231,2 199,9 +15,7%
Andri Sveinsson verðbréfamiðl-
ari hjá Búnaðarbankanum segir af-
komu Sláturfélagsins góða og
greinilega betri en markaðurinn
bjóst við, sem sést helst á því að
gengi bréfa hækkaði um tæp 10% í
gær, eða úr 2,75 í 3,0. Andri telur
þó ljóst að eignaskipting hlutafé-
lagsins í A- og B-deild sé óviðun-
andi og ekki til þess fallin að há-
marka hag hluthafa. „Ég tel þessa
afkomu sýna enn frekar þörfina á
breyttu rekstraifyrirkomulagi
Sláturfélagsins þannig að tryggt sé
að hluthafar fái hlutdeild í upp-
gangi þess og geti veitt félaginu
nauðsynlegt aðhald þegar kreppir
að“.
Andri segir gi-einilegt að þær
fjárfestingar sem ráðist var í á síð-
asta ári hafi styrkt stöðu félagsins
á innlendum vettvangi og skilað
Sláturfélaginu arði. Hann segir 4%
hagnað af veltu viðeigandi árangur
ef tekið er tillit tO þess að fyrirtæk-
ið er að keppa á mjög erfiðum
markaði. Andri spáir því að hækk-
un hlutabréfa félagsins komi til
með að halda sér í framhaldinu og
segir að ef stefnt verði að breyttu
rekstrarformi þá sé þarna um góð-
an fjárfestingarkost að ræða.
Tveimur keppi-
ímutum vikið úr
BMW
Misræmi í áliti Landsbankans og IMF
Hvorki ástæða til að
hækka vexti né lækka
stjórn
Frankfurt. Reuters.
FORSTJÓRA BMW, Bemd
Pischetsrieder, og keppinaut hans,
Wolfgang Reitzle, hefur báðum ver-
ið vikið úr stjóm fyrirtækisins að
sögn þýzkrar fréttastofu.
Nýr stjórnarformaður fyrirtækis-
ins verður Joaehim Milberg úr
stjórn þess að sögn eins samninga-
manns starfsmanna Roverdeildar
BMW í Bretlandi. Búizt er við opin-
berri tilkynningu.
Stjórn BMW hafði setið á fundi
allan daginn í Múnchen á sama
tíma og þrálátur orðrómur var á
kreiki um að Pischetsrieder yrði
rekinn fyrir að hleypa ekki nýju lífi
í Rover, sem hefur verið rekið með
tapi síðan BMW keypti deildina
fyrir fimm árum. Milberg hefur far-
ið með framleiðslumál í stjórn
BMW.
Hræringamar hjá BMW hafa
aukið ugg um framtíð Longbridge
bflaverksmiðjunnar í Birmingham,
þar sem starfsmenn eru 14.000.
BMW hefur ekkert viljað segja um
ugg, sem brezka stjómin hafi látið í
ljós um að vafi leiki á áframhaldandi
stuðningi fyrirtækisins við Rover-
deildina.
Stephen Byers viðskipta- og iðn-
aðarráðherra Breta skoraði á BMW
að ítreka stuðning sinn við Long-
bridge-verksmiðjuna vegna bolla-
legginga um framtíð hennar.
Blaðið Siiddeutsche Zeitung í
Múnchen sagði að sérfræðingar úti-
lokuðu ekki að nýr forstjóri BMW
lokaði Longbridge verksmiðjunni.
Wolfgang Reitzle, sem hefur ver-
ið vikið frá störfum um leið og
Pischetsrieder, hefur verið talinn
líklegasti eftirmaður hans. Hann
hefur verið markaðs-, þróunar- og
dreifingarstjóri BMW.
Reitzle vildi að rekstur Rover
yrði einfaldaður og framleiðslan
einskorðuð við Land Rover, Mini og
MG áður en BMW keypti fyrirtæk-
ið í marz 1994. Pischetsrieder vildi
að Rover framleiddi jafnmargar
tegundir og fyrr.
FORSTJÓRI Þjóðhagsstofnunar
segist hvorki geta séð rök fyrir því
að lækka vexti né hækka, eins og
staðan er í þjóðfélaginu í dag en
misræmis virðist gæta í áliti sendi-
nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
annars vegar og í ársfjórðungs-
skýrslu Landsbankans hinsvegar,
um aðgerðir í vaxtamálum til að
halda stöðugleika í fjármálum og til
að halda aftur af verðbólgu hér á
landi.
Sendinefndin segir að þar sem
svigrúm til umfangsmikilla aðgerða
í ríkisfjármálum sé að lfldndum tak-
markað á næstunni komi það í
auknum mæli í hlut peningamála-
stefnunnar að halda aftur af eftir-
spurn. Því telur hún að hækkun
vaxta væri viðeigandi aðgerð til að
skapa fyrirbyggjandi aðhald í pen-
ingamálum.
Landsbankinn talar hinsvegar
um lækkandi vexti í Bandaríkjun-
um, evrusvæðinu, Bretlandi og
Segir forstjóri
Þjóðhagsstofnunar
Norðurlöndum. Þeir segja í skýrslu
sinni að ekki sé hægt að útiloka
þann valkost að Seðlabankinn
lækki skammtímavexti og dragi
þannig úr vaxtamun milli Islands
og annarra landa. Síðar í skýrsl-
unnni segja þeir að til lengri tíma
myndi lækkun stýrivaxta draga úr
innflutningi og stemma þannig
stigu við viðskiptahallanum, sem
bankinn segir mestu ógnunina við
stöðugleikann.
Þunginn er á
peningamálastefnunni
Friðrik Már Baldursson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, segist
aðspurður, hvorki geta séð rök fyr-
ir því að lækka vexti né hækka,
eins og staðan er í þjóðfélaginu í
dag.
„Eins og sjóðurinn bendir rétti-
lega á hefur verið mikil þensla hér
og aukin eftirspurn eykur hættu á
að verðbólga fari að láta á sér
kræla aftur. Sendinefndin er raun-
verulega að segja að þunginn sé á
peningamálastefnunni, nú þegar
möguleikar á að móta ríkisfjármál-
in frekar á þessu ári séu ekki fyrir
hendi. Það eru engin rök fyrir að
slaka á í peningamálastefnunni með
lækkun vaxta, og ekki heldur
ástæða til að fara að hækka vexti,“
sagði Friðrik.
Hann segir að gripið hafi verið til
vaxtahækkana hér á landi í haust og
einnig hafi vextir erlendis farið
lækkandi að undanfömu. Því sé
ekki hægt að segja annað en að
raunvendegt aðhald hafi farið vax-
andi. „Ég tel að meðan við finnum
ekki merki verðbólgu þá sé ekki
ástæða til að bregðast við á þessari
stundu. Það eru enn engar mark-
tækar vísbendingar um að verð-
bólga sé að fara af stað, þrátt fyrir
að vísitala neysluverðs hafi hækkað
í janúar."
Um aðgerðir til að laga viðskipta-
hallann segir Friðrik ekki þýða að
kippa honum í lag með skammtíma-
aðgerðum, til þess þurfí lengri tíma
aðhald í opinberum fjármálum.
Friðrik segir auk þessa að erfitt
sé að bera saman vaxtamál hér á
landi og í nágrannalöndunum þar
sem við séum á öðrum stað í hag-
sveiflunni, eins og hann orðar það,
og í raun séu seðlabankar landanna
að nota vexti sem stýritæki eins og
bankinn hér, með lækkun vaxta
örva þeir hagvöxt, ekki sé þörf á að
beita aðhaldi eins og hér þar sem
uppsveiflan er enn í fullum gangi.
tf'JllllMIIHl
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJONUSTA
Lausafjárstaða banka og
sparisjóða versnar
= HÉÐINN =
SM IÐJA
Stórási 6 »210 Garöabæ
sími 565 2921 • fax 565 2927
á
«
ÚTLÁN banka og sparisjóða námu
327 milljörðum ki-óna í árslok og
jukust um 78 milljarða króna á ár-
inu eða 31%. Þar af jukust gengis-
bundin lán um 30 milljarða eða
54%. Verðtryggð útlán jukust um
20 milljarða eða 21%.
I ársfjórðungsskýrslu Lands-
banka Islands kemur fram að vægi
gengisbundinna lána í heildarút-
lánum hækkaði úr 22% í 26% en
vægi verðtryggðra lána lækkaði
hins vegar úr 39% í 36% af heildar-
útlánum.
Innlán jukust um 15% en að með-
talinni verðbréfaútgáfu nam aukn-
ingin á árinu 40 milljörðum króna
eða 17%. Innlán og verðbréfaútgáfa
námu samtals 274 milljörðum
króna um áramót. Útlán jukust því
mun hraðar en innlán með tilheyr-
andi verri lausafjárstöðu banka og
sparisjóða, að því er fram kemur í
árshlutaskýrslu Landsbankans.