Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 26

Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 26
26 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Nelson Mandela flytur síðustu stefnuræðu sína á þingi Suður-Afríku Hvetur til þjóðareining- ar í komandi kosningum Höfðaborg. Reuters. Reuters NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, gengur inn í þinghúsið í Höfðaborg til að flytja sfðustu stefnuræðu sína áður en hann lætur af embættinu eftir kosningar sem ráðgerðar eru í maí. Bíllinn settur í öndvegi í Peking Peking. The Daily Telegraph. NELSON Mandela, forseti Suður- Afríku, flutti í gær síðustu stefnu- ræðu sína á þingi landsins áður en hann lætur af embætti síðar á árinu. Forsetinn fór lofsamlegum orðum um störf fyrstu ríkisstjórnarinnar eftir afnám kynþáttaaðskilnaðarins og hvatti til einingar meðal þjóðar- innar í kosningum sem eru ráðgerð- ar í maí. í afriti af ræðu forsetans, sem sent var fjölmiðlum, kom fram að stjórnin stefndi að því að næstu kosningar færu fram á tímabilinu 18.-27. maí. Mandela sleppti þó þeim hluta þegar hann flutti ræðuna og talsmaður stjómarinnar sagði að það hefði verið gert að ráði lögfræð- inga vegna málshöfðunar Nýja þjóð- arflokksins, stærsta stjórnarand- stöðuflokksins, sem vill að slakað verði á nýjum reglum um skráningu kjósenda. Hann bætti við að stjórnin stefndi þó enn að því að kosningarn- ar færu fram 18.-27. maí. Mandela hyggst draga sig í hlé eftir kosningarnar og gert er ráð fyrir því að Thabo Mbeki varaforseti taki við forsetaembættinu. Búist er við að flokkur þeirra, Afríska þjóð- arráðið, fari með sigur af hólmi í kosningunum. Sagður sniðganga vandamálin Leiðtogar stjórnarandstöðunnar gagnrýndu ræðu forsetans, sögðu hana rýra og sökuðu forsetann um að hafa látið hjá líða að ræða það, sem miður hefur farið á valdatíma stjórnarinnar. „Hann átti í mestu vandræðum með að verja störf stjórnarinnar. Hann viðurkenndi í raun að hún hef- ur ekki náð árangri hvað varðar glæpi, atvinnusköpun og mennta- mál,“ sagði leiðtogi Nýja þjóðar- flokksins, Marthinus van Schalk- wyk. „Hann sagði ekkert um árangurs- leysi stjórnarinnar," sagði Tony Le- on, leiðtogi Lýðræðisflokksins. „Frá því hún komst til valda hafa 500.000 störf tapast og á síðasta ári einu voru 20.000 Suður-Afríkumenn myrtir." Hrina tilræða fordæmd Ræðan tók 90 mínútur og Mand- ela sagði að stjórnin hefði náð mikl- um árangri á mörgum sviðum frá því hún komst til valda árið 1994 í fyrstu kosningunum eftir afnám kynþáttaaðskilnaðarins. „Göngunni löngu er ekki enn lokið,“ sagði hann og bætti við að sigur hefði ekki enn EFTIRMENNTUN VELSTJÓRA Munið námskeiðið um: Nýjar aðferðir í 11.-13. febrúar nk. VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS Eftirmenntun vélstjóra, sími: 562 9062, veffang: www.vsfi.is unnist í baráttunm fynr betri lífs- kjörum blökkumanna. Forsetinn nefndi nokkur dæmi um árangur stjórnarinnar og sagði að henni hefði m.a. tekist að tryggja milljónum fátækra Suður-Afríku- manna rennandi vatn, rafmagn og síma. Hann viðurkenndi hins vegar að stjórnin hefði ekki náð því mark- miði sínu að láta smíða milljón nýrra íbúða og ekki tekist sem skyldi að stemma stigu við glæpum og spUl- ingu. Forsetinn fordæmdi einnig hrinu sprengjutUræða og skotárása í Höfðaborg á síðustu misserum og hét því að þeir, sem bæru ábyrgð á árásunum, yrðu sóttir til saka. Suð- ur-afríska lögreglan segir að róttæk hreyfing múslima, Þjóðin gegn glæpahópum og eiturlyfjum, hafi staðið fyrir árásunum, sem hafa m.a. verið gerðar á ferðamannastaði og lögreglustöðvar. Enginn hefur þó enn verið dæmdur fyrir tilræðin. „Það sem byrjaði... sem herferð gegn glæpahópum er orðið að of- beldisfullri og grimmdarlegri sókn gegn venjulegum borgurum og lög- reglumönnum," sagði Mandela. „Eg vil fullvissa íbúa Höfðaborgar um að við vitum hverjir þessir menn eru; við vitum hverjir þjálfa og styðja þá; og við höfum jafnt og þétt safnað saman óyggjandi sönnunum fyrir staifsemi þeirra.“ Spillingin verði upprætt Mandela ræddi einnig efnahags- málin og sagði að efnahagur lands- ins væri traustur og að stjómin myndi hvergi hvika frá aðhalds- stefnu sinni í fjármálum. Hann bætti við að stjómin þyrfti að endurskoða stefnu sína í atvinnumálum til að tryggja að samkeppnisstaða suður- afrískra fyrirtækja versnaði ekki. Forsetinn lagði einnig ríka áherslu á að uppræta þyrfti spillingu á öllum stigum stjórnsýslunnar og öll þjóðin þyrfti að taka höndum saman til að tryggja að friðnum í landinu yrði aldrei aftur stefnt í hættu. „Við stráfellum hvert annað með orðum okkar og viðhorfum. Við stráfellum hvert annað og brjótum niður land okkar með því að ýkja veikleika þess fyrir umheiminum. Þessu verður að linna.“ Forsetinn bætti þó við að hann vonaðist til þess að í næstu kosning- um kæmu fram „raunverulegir leið- togar sem byggja boðskap sinn á von fremur en ótta; á bjartsýni at- orkunnar fremur en svartsýni hæg- indavælsins." MONICA Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlka í Hvíta húsinu, sagði saksóknurum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í eiðsvömum vitn- isburði sínum fym í vikunni að Bill Clinton forseti hefði aldrei beðið hana að bera Ijúgvitni til að leyna kynferðislegu sambandi þeirra. Þetta kemur fram í útdrætti úr vitnisburði Lewinsky, sem birtur var í gær. Hún kveðst þar hafa „blendnar tilfinningar" í garð Clint- ons og mótmælti þegar einn sak- sóknaranna lýsti sambandi þeirra sem „lostafullu“. Lewinsky sagði að Clinton hefði hringt í hana að næturlagi 17. des- ember 1997 og sagt að henni kynni BORGARYFIRVÖLD í Peking í Kína hafa ákveðið að ryðja burt miklu af gömlum og sögrdegum byggingum til að gera borgina „nútímalegri" og rýma til fyrir bílana. Um er að ræða 240 hektara svæði og verður byijað á húsum, sem „eru fyrir umferðinni eða al- mennt til óþæginda" að því er kín- verska fréttastofan Xinhua sagði. Mörg hundruð ára gömul hús Sumt af þessum húsum er ótta- leg hrófatildur en önnur eru að verða stefnt sem vitni vegna máls Paulu Jones, sem sakar forset- ann um kynferðislega áreitni. Hann hefði ráðlagt henni að leggja fram eiðsvama yfirlýsingu til að komast hjá vitnastefnunni. Lewinsky sagði hins vegar að Clinton hefði aldrei beðið hana að bera ljúgvitni í yfirlýsingunni. „Við ræddum aldrei hvað ætti að vera í yfirlýsingunni. Ég held ekki að ég hafl talið á þessum tíma að hún þyrfti endilega að vera ósönn.“ Þegar saksóknaramh gengu á hana viðurkenndi þó Lewinsky að hún hefði hugsað með sér, þegar hún ræddi við Clinton, að hún myndi neita því að hafa átt í kynferðislegu mörg hundruð ára gömul og gáfu lengi Peking sinn sérstaka svip. Sögulegar minjar voni lengi þyrnir í augum kínverskra kommúnista og á sjötta áratugn- um skipaði Maó svo fyrir, að gömlu borgarmúrarnir í Peking skyldu rifnir. Sagt var, að hann ætti sér þann draum að svipast um frá hinni forboðnu keisaraborg og sjá eldspúandi reykháfa allt um kring. Nú er draumurinn stál og gler, verslanamiðstöðvar og bfla- brautir. sambandi við forsetann þar sem þau hefðu alltaf ætlað að leyna því. „Ég var plága“ Lewinsky neitaði að svara því hvort hún liti svo á að Clinton hefði logið þegar hann neitaði því að hafa snert hana með kynferðislegum hætti. Saksóknararnir hafa reynt að sanna að forsetinn og Vernon Jord- an, lögfræðingur hans og vinur, hefðu reynt að útvega Lewinsky nýtt starf í því skyni að fá hana til að bera ljúgvitni um sambandið. „Ég var plága,“ sagði hún þegar hún var spurð um þátt Jordans í at- vinnuleit hennar. Rushdie fær óblíðar móttökur EINN af klerkum mú- hameðstrúarmanna á Indlandi sagði í gær að múslimar í landinu yrðu að vera reiðu- búnir að vaða eld og brenni- stein til að koma í veg fyrir að rithöfundurinn Salman Rushdie stigi fæti á indverska jörð. Sagði Syed Ahmad Buk- hari á trúarsamkundu í stærstu mosku Indlands, sem er í Nýju Delhí, að múslimar yrðu að fylgjast með hverju fótmáli Rushdies heimsækti hann Indland. Rushdie fædd- ist á Indlandi og veittu ind- versk stjórnvöld honum á mið- vikudag vegabréfsáritun til landsins. Segjast þau ætla að tryggja öryggi hans í fyrstu heimsókn hans til Indlands frá því að æðstuklerkar múslima dæmdu hann réttdræpan fyrir guðlast í bókinni Söngvar Satans. Barak á uppleið STUÐNINGUR við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, fer minnkandi, ef marka má nýja skoðana- könnun sem birt var í gær, og bendir allt til að hann nái ekki kjöri í kosningum sem fram eiga að fara í maí. Sýndi könnunin að Ehud Barak, leiðtogi Verkamanna- flokksins, myndi hljóta 49% stuðning kjósenda í annarri umferð forsætisráðherrakosn- inga en Netanyahu einungis 43%. Skoðanakönnun í síðustu viku sýndi fylgi við Barak 48% og Netanyahu 46%. Khatami á fund páfa MOHAMMAD Khatami, for- seti Irans, mun hitta Jóhannes Pál páfa í heimsókn sinni til Italíu í næsta mánuði, að sögn talsmanna Páfagarðs. Yrði þetta fyrsti fundur forseta Irans með páfanum frá því keisaranum í íran var steypt af stóli árið 1979 og klerka- veldi íslamskra bókstafstrúar- manna tekið upp. Hanson í vanda PAULINE Hanson, leiðtogi stjórnmálaflokksins Einnar þjóðar í Astralíu, sem er sagð- ur ala á kyn- þáttahatri, hafnaði í gær gagnrýni á forystu sína í flokknum. Höfðu þrír þingmenn flokksins á ríkisþinginu í Queensland áður sagt skilið við flokkinn og sjö aðrir hót- uðu að gera slíkt hið sama segði Hanson ekki af sér og leyfði opið kjör um leiðtoga- embættið. Segja uppreisnar- mennirnir að lýðræði ríki ekki í flokknum meðan Hanson og tveir ráðgjafar hennar sitja í forystu hans. Vitnisburður í máli Bills Clintons gerður opinber Lewinsky segir hann ekki hafa sagt sér að ljúg'a

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.