Morgunblaðið - 06.02.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 35
Vor- og
sumarlistinn
VOR- og sumarlisti Freemans er
kominn til landsins. I fréttatil-
kynningu frá fyi'irtækinu segir að
þar sé að fínna fatnað á alla fjöl-
skylduna þar sem áhersla er lögð á
vöruúrval í öllum stærðum. Enn-
fremur kemur þar fram að verðið
hafí að meðaltali lækkað um 10%
frá síðasta lista. I listanum sem er
um 700 blaðsíður er að fínna vörur
frá mörgum þekktum tískuhönn-
uðum. Listinn er fáanlegur hjá
Freemans, Bæjarhrauni 14, Hafn-
arfirði, og í helstu bókabúðum
landsins.
Handprjóna-
band
ULLARVERKSMIÐJA ístex hf.
hefur sett á markað nýja tegund af
lopa sem heitir Bulky Lopi. I
fréttatilkynningu
frá ístex hf.
kemur fram að
um er að ræða
sérstaklega
þykkan lopa sem
er engu að síður
léttur og loftmik-
ill og fljótlegt á
að vera að prjóna
úrhonum.
ístex hf. hefur þegar gefið út
eina uppskrift sem er sérstaklega
ætluð fyrir Bulky Lopa og eru
fleiri uppskriftir væntanlegar á
næstunni.
-----♦-♦-♦----
Nikótínlyf í
formi tungurót-
artöflu
NÝTT nikótínlyf er komið á
markað, Nicorette-tungurótart-
öflur. I fréttatilkynningu frá fyr-
irtækinu Pharmaco kemur fram
að tungurótartöflurnar séu nýr
kostur fyrir þá sem vilja hætta að
reykja eða draga úr reykingum.
Taflan er svo smá að notandinn
finnur lítið fyrir henni þegar hún
hefur verið lögð undir tunguna.
Tungurótartaflan inniheldur 2 mg
af nikótíni og er ráðlagður dag-
skammtur ein tafla á klukku-
stundar fresti.
Ennfremur kemur fram í
fréttatilkynningunni að einstak-
lingar sem eru mjög háðir nikótíni
eða sem reykja yfír 25 sígarettur
á dag eigi að nota tvær tungurót-
artöflur á hverri klukkustund.
Pharmaco hefur umboð fyrir
Pharmacia & Upjohn á íslandi.
Sérstök ráðgjöf um val á nikótín-
lyfjum verður í Apótekinu Smára-
torgi í dag, laugardaginn 6. febrú-
ar, frá 14-17 og þriðjudaginn 9.
febrúar í Apótekinu Smiðjuvegi
frá 14-16.30.
Apétekið
Morgunblaðið/Ásdís
Ein dreifíngarmiðstöð fyrir öll apótekin
Markmiðið er að geta
lækkað lyfjaverð
VERIÐ er að leggja grunn að því
að stofna vörudreifingarmiðstöð
fyrir apótekin í samstarfi við aðra,
jafnvel erlenda aðila. Guðmundur
Reykjalín, framkvæmdastjóri
nýju keðjunnar, segir að auk þess
sem dreifingarkostnaður lækki í
kjölfarið þá muni samkeppni
aukast meðal lyfjaheildsala.
„Hvert apótek hefur daglega verið
að kaupa lyf frá sex lyfjaheildsöl-
um. Rekstrarkostnaður lækkar
þegar apótekin þurfa einungis að
snúa sér til vörudreifingarmið-
stöðvarinnar með lyfjapantanir."
Þá segir Guðmundur að fram til
þessa hafi samkeppnin á lyfja-
markaðnum ekki náð til lyfja-
heildsalanna. „Ef við fáum ekki
hagstætt verð hjá lyfjaheildsölum
munum við flytja sjálfir inn lyf til
að ná niður verði.“
25% markaðshlutdeild
Apótekin og Lyfjaverslanir
Hagkaups voru nýlega sameinuð.
Apótekin eru átta talsins en á
næstu mánuðum verða þrjú apótek
opnuð til viðbótar, í Spöng Grafar-
vogi, Hraunbæ og Kringlunni. Öll
eru apótekin á höfuðborgarsvæð-
inu nema eitt sem er á Akureyri.
Að sögn Guðmundar eru forsvars-
menn apótekanna einnig að leita
að húsnæði á Laugavegi fyrir
tólfta apótekið. Hann telur að apó-
tekin hafi nú um 25% hlutdeild á
markaðnum á höfuðborgarsvæð-
inu.
„Öll apótekin munu framvegis
bera nafn apótekanna og verð-
stefnu þein’a verður haldið áfram
en apótekin hafa komið best út úr
þeim verðkönnunum sem gerðar
hafa verið. Samkeppni á lyfjamark-
aði hefur að sögn heilbrigðisráðu-
neytisins skilað 20% verðlækkun til
almennings. Samruninn er fram-
hald af þessari þróun því með hon-
um náum við auknu hagræði í
rekstri og innkaupum og neytend-
ur munu njóta góðs af með lægra
verði á lyfjum“.
Guðmundur segir að áhersla
verði lögð á gæðamál og innra eft-
irlit. „Við erum með gæðahand-
bækur í apótekunum og leggjum
áherslu á að unnið sé eftir þeim til
að tryggja öryggi í afgreiðslu. Þá
erum við einnig að vinna með
heilsugæslustöðvum í að setja sam-
an gæðahandbók um meðferð lyfja
á heilsugæslustöðvum.
Auk þess sem apótekin þjónusta
einstaklinga þá er í apótekinu í
verslunarmiðstöðinni Firði í Hafn-
arfirði þjónusta fyrir skip. Enn-
fremur er boðið upp á þjónustu
fyrir dvalarheimili aldraðra, boðið
upp á lyfjaskammtanir fyrir sam-
býli og fólki stendur frí heimsend-
ingarþjónusta til boða.“
Almenningi boðið hlutafé
Guðmundur segir að með sam-
runa apótekanna hafi Fjárfesting-
arbanki atvinnulífsins eignast 10%
hlut í félaginu, Baugur hf. 12%,
Guðmundur Reykjalín 9% og Fjár-
festingafélagið Gaumur hf. 69%
hlut. Til stendur að á síðari hluta
ársins verði almenningi boðin bréf í
keðjunni.
1
0.000 kn
Fmmn m/tJmersimðar meirafym\
Traustur, alvöru, upphækkanlegur, 4x4 jeppi á ÓTRÚLEGU verði • Hátt og lágt drif
Byggður á grind • Kraftmikil og hljóðlát vél • Einstaklega góður í endursölu
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn i rúðum og speglum •
• styrktarbita i hurðum •
• samiitaða stuðara •
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is