Morgunblaðið - 06.02.1999, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Þrívíður
heimur
Á NÝJUM vef Coca-Cola á ís-
landi, www.coca-cola.is/, sem
opnaður var fyrir skemmstu, er
að sögn fyrsti þrívíði heimurinn
á hérlendum vef og reyndar er
fátt um eins umfangsmikla þrí-
víða vefi erlendis. Þríðvíður hluti
vefjarins er upp settur af
OZ.com, sem setti vefinn upp
sem eins konar tilraunaverkefni.
Þrívíddartæknin á Kókvefnum
er tækni sem OZ hefur verið að
móta undanfarin ár og byggist á
því að sá sem fer inn á vefinn
velur sér staðgengil, eða avatar,
sem sér um að hreyfast um vef-
inn fyrir hann. Staðgengillinn er
eins konar framlenging af not-
andanum, hreyfir sig eftir því
sem honum er stýrt, gengur eða
dansar eftir því sem notandinn
vill, og einnig getur sá sem hon-
um stýrir átt samskipti við aðra
á vefnum, spjallað við þá, nú eða
dansað, allt eftir því sem verkast
vill. Með þessum staðgengli er
síðan hægt að fara um þrívíðan
heim, þvælast herbergi úr her-
bergi, en í þeim herbergjum er
ýmislegt að finna, tónlist, fróð-
leik og skemmtan.
Eyþór Arnalds, þróunarstjóri
OZ, segir að samstarf fyrirtækj-
anna að vefnum megi rekja til
þess að OZ kynnti áþekka tækni
á IMARK-sýningu fyrir tveimur
árum. Þar voru staddir menn frá
Vífilfelli sem leist svo bráðvel á
hugmyndina að þeir vildu endi-
lega eiga samstarf um vef helg-
aðan Coca Cola, sem hafði verið í
undirbúningi alllengi. Eftir tals-
verðan undirbúning og vanga-
veltur hófst eiginleg vinna svo á
siðasta ári og vefuninn var svo
opnaður með miklu húllumhæi
fyrir skemmstu. Á honum er
ekki bara heimurinn þrívíði, sem
hér er til umfjöllunar, heldur er
þar einnig að finna ýmsar upp-
lýsingar um Kók, fyrirtækið og
framleiðsluna, aukinheldur sem
á vefnum verða upplýsingar og
fréttir af tónlist, plötudóma og
fleira nýsilegt.
Visindaskáldskapur
Á þeim tíma sem OZ kynnti
tæknina fyrir forviða gestum á
IMARK-hátíðinni má segja að
tæknin hafi verið nánast eins og
vísindaskáldskapur, netvæðing
hér á landi rétt að hefjast fyrir
alvöru og tölvur yfirleitt ekki vel
til þess fallnar að vinna úr svo
flóknum upplýsingum. „Síðan
hefur margt breyst,“ segir Ey-
þór, „og Islendingar eru komnir
langt fram úr öllum þjóðum í að-
gangi að Netinu. Tölvueign er
líka orðin almennari og orðið
hefð að gefa tölvu í fermingar-
gjöf og þá alvöru tölvu með þrí-
víddarkorti og mikilli vinnslu-
getu. Fyrir vikið fannst okkur til-
valið að setja upp þetta verkefni
sem eins konar tilraun, að búa til
svo umfangsmikinn þrívíðan vef
og sjá hvernig honum verður
tekið, en það er hvergi betra að
jjera slíka tilraun en hér á landi;
Island er einstakt að því leyti að
netaðgangur er hvergi meiri í
heiminum og tölvueign mjög al-
menn, smæðin er okkar styrkur."
Eyþór segir að grunnhug-
myndin sé komin, en framundan
sé að bæta inn á vefinn ýmsum
öðrum nýjungum, leikir, mynd-
bönd og fleira sé í aðsigi á næstu
mánuðum. „Eftir ár munum við
síðan meta hvernig hafi til tekist,
hvað megi betur fara og hvert
eigi að stefna."
OZ hefur unnið með ýmsum
stórfyrirtækjum erlendum á síð-
ustu misserum og meðal annars
með símarisanum Ericsson, en á
bás Ericsson á CeBit-sýningunni
á síðasta ári var einmitt settur
upp þrívíður heimur á stórum
skjám fyrir gesti og gangandi.
Kókvefurinn er aftur á móti frá-
brugðinn í því að hann er lifandi
og breytist og mótast fyrir til-
stilli þeirra sem nota hann. Ey-
þór segir og að OZ eigi væntan-
lega oft eftir að vísa í Kókvefinn
þegar sýna þurfi fram á hvað sé
hægt að gera á vefnum, aukin-
heldur sem Coca Cola sjálft hafi
sýnt verkinu mikinn áhuga.
Eins og áður segir er Kókvef-
urinn unnin í samstarfi Vífilfells
og OZ, en fleiri koma að. Þannig
er tvívíður hluti hans unninn af
veffyrirtækinu Hiper og innihald
vefjarins að mestu frá Undirtón-
um komið. Blaðamenn Undirtóna
munu þannig sjá til þess að alltaf
sé nýtt efni á Kókvefnum, skrifa
inn á hann plötudóma, viðtöl og
greinar um tónlist og tónlistar-
menn, en þar er einnig að finna
vinsældalista með tóndæmum í
samvinnu við útvarpsstöðvar.
Zappa
í mp3
ÚTGEFENDUR tónlistar hafa verið
seinir að bregðast við mp3-byltingunni
og helst reynt að bregða fæti fyrir fyi-ir-
tæki sem framleiða vildu slíka spilara.
Sum smáfyrirtæki hafa gefið notendum
kost á að sækja sér mp3-skrár á vefsetr-
um sínum og þá sem kynningu á lítt
þekktum tónlistarmönnum, en banda-
ríska fyrirtækið Rykodisc, sem er allum-
fangsmikil útgáfa, hefur tekið upp á því
að selja mp3-skrár á Netinu.
Vefsetur GoodNoise, http;//www.-
goodnoise.com/, er helgað mp3-tónlist og
þar er hægt að nálgast spilara fyrir slíkt
og mikið af tónlist. Rykodisk býður á
GoodNoise-setrinu 175 lög frá fjölda
listamanna, þar á meðal Frank Zappa,
Bruce Cockburn og Richard Thomp-
son, og kostar hvert lag um 65 kr. Á
setrinu kemur fram að Rykodisc hygg-
ist fjölga lögunum verulega á næstu
mánuðum.
Rykodisc er stærsta útgáfufyrir-
tækið sem tekið hefur mp3 upp á
arma sína og samkvæmt yfirlýsingu
frá fyrirtækinu er það einfaldlega að
bregðast við því sem tiðkist um heim
allan; mp3 hafi náð slíkum vinsæld-
um að ekki verði aftur snúið og ef
fyrirtæki bregðist ekki við óskum
tónlist á mp3-sniði verði það bara
til að ýta undir stuld á tónlist.
GoodNoise bregst þannig við laga-
stuldi að það fellir stafræna undirskrift
inn í hvert lag, svonefnt MMI, sem skrá-
ir kaupandann og lagið í gagnagrunn
fyrirtækisins. Fyrir vikið sé hægt að
rekja hvaðan lag sé fengið ef það fer á
flakk.
Eins og getið er kostar hvert lag í
kringum 60 krónur, en hægt að kaupa
breiðskífur sem kosta í kringum 500 kr.
Eins má síðan breyta mp3-sniðinu í wav-
skrár og brenna á disk í framhaldinu, en
auður diskur kostar í kringum 150 kr.,
og þá fæst plata á um 650 kr., tollfrjálst
vitanlega.
Fyrir yng’stu spilarana
sig bakvið en
aðrir standa í vegi
fyrir Flik og þarf
mikla kænsku til
að komast fram
hjá þeim.
Áfar mikið af
þrautum er í
leiknum og þarf
Flik oft að ferð-
ast langar og erf-
iðar leiðir tO að fínna persónur sem hjálpað
geta honum í leiknum.
Þó Traveler’s Tales hafí tekist afbragðs
vel að endurskapa persónuleika og umhverfi
leiksins er nokkuð greinilegt að ekki hefur
tekist jafnvel til með restina. Leikurinn hef-
ur nokkra alvarlega galla og er ekki fyrir al-
varlega þenkjandi spilendur.
Þó að A Bugs Life sé hannaður fyrir
yngstu spilarana vantar þónokkuð upp á að
hann hafí allt sem góður krakkaleikur þarfn-
ast. Allir hafa gaman af litlu teiknimynda-
bútunum er sjást eftir hvert borð en um
leið og eitthvert verulegt fjör byrjar
hægir leikurinn á sér. Slíkt er auðvitað
fáranlegt í ljósi þess hversu langt er síð-
an byrjað var að framleiða leiki íyrir
PlayStation.
Öll stjórn leiksins er fremur óþægileg og
Flik er afar lengi að bregðast við öllum skip-
unum. Allt umhverfi er afar flott en um leið
og Flik kemur mjög nálægt því byrjar að
sjást í gegnum það og það verður kassalaga.
Hljóð leiksins eru mjög góð og ná hljóð
Fliks og annarra dýra í umhverfinu næstum
að vinna upp annars afar leiðinlega og sí-
byljutónlist.
Úng börn gætu haft gaman af því að stýra
Flik um í nokkra tíma en þau munu fljótt fá
leið á leiknum sökum þess hversu erfiður
hann er og eldri spilendur munu án vafa
ekki hafa gaman af leiknum lengur en í fimm
mínútur eða svo.
Ingvi M. Árnason
TEIKNIMYNDIN A Bugs Life frá Pixar
hefur notið vinsælda vestan hafs, en Disney
gaf nýlega leik frá Traveler’s Tales, sem
byggður er á
myndinni. A
Bugs Life fjallar
um ungan maur,
Flik, sem
verður einn eftir
úti þegar hópur af
engisprettum reynir
að leggja undir sig
maurabúið. Flik ákveður að verja heimili
sitt og vina sinna.
Ailt umhverfi leiksins er fyllt af alls konar
blómum og náttúrulegum hlutum og stát-
ar af afar góðri og nákvæmri
grafík. Ásamt plöntum og
steinum er einnig að
fínna helling af
hlutum
sjást dag-
lega
görð-
um
LEIKIR
A Kugs Life
A Bug’s Life, leikur fyrir PlayStation frá
Disney, Traveller’s Tales og
Pixar. Leikurinn styður Dual
Shock stýripinna.
hjá venju-
legu fólki.
Suma þess-
ara hluta
er hægt að
nýta í bar-
áttunni
og fela