Morgunblaðið - 06.02.1999, Síða 49

Morgunblaðið - 06.02.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 49 UMRÆÐAN Biblíudagurinn 1999 og Hið íslenska biblíufélag HINN árlegi Biblíu- dagur er á morgun og er þá í kirkjum landsins minnst þess hlutverks sem Hið íslenska biblíu- félag gegnir fyi-ir hönd íslenskrar kinstni sem er útgáfa og dreifing heil- agrar ritningar. Grund- völlur kristinnar kh-kju er Kristur og Biblían geymir vitnisburðinn um hann. Til hennar sækir kristið fólk næringu trú- ar sinnar. Hið íslenska biblíufé- lag er ekki áberandi fé- lag í samfélaginu, þó hef- ur það verið starfandi frá árinu 1815. Markmið félagsins er að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. Undanfarin tíu ár hefur á vegum félagsins verið unnið að endurskoðaðri þýðingu Bi- blíunnar - Biblíu 21. aldarinnar. Sér- hver ný kynslóð þarf að geta nálgast Guðs orð og meðtekið það á því máli sem hún skilur. Hlutverk Biblíunnar í varðveislu íslenskrai- tungu er jafn- framt mjög mikilvægt. En það er skoðun félagsins að bæði þessi sjón- armið fari saman og að vandað ís- lenskt málfar skili boðskap Biblíunn- ar best áfram til komandi kynslóða. Um þessi markmið félagsins geta allir kristnir menn á Islandi samein- ast. Hið íslenska biblíufélag er þátt- takandi í Hinum sameinuðu biblíufé- lögum sem eru samtök þein-a 137 biblíufélaga sem eru starfandi í heiminum. Söfnunarstarf hefur alla tíð verið mikilvægur og gefandi þátt- ur í starfsemi biblíufélaganna. Alls staðar þai- sem kristin trú er boðuð er þörf fyrir Biblíuna. Sameiginlegt markmið þeirra er: Að gera Guðs orð aðgengilegt öllum, - á þehTa eigin tungumáli - án kenn- ingarlegra athuga- semda eða skýringa; og á viðráðanlegu verði. Kraft sinn sækja biblíufélögin til orða Jesú Krists: „Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skirið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður.“ Starfið hefur því aldrei einskorðast við eigið land heldm- alla tíð verið alþjóðlegt. Ekki er svo ýkja langt síðan við Islendingar nutum aðstoðar Hins breska og erlenda biblíufélags við útgáfu Biblíunnar á íslensku. Núna er því komið að okk- ur að endurgjalda þessa aðstoð með því að styðja önnur biblíufélög sem eru að vinna að þýðingu, útgáfu og dreifingu Biblíunnar til síns fólks í fyrsta skipti. Hið íslenska biblíufélag hefur í tengslum við Biblíudaginn ár hvert efnt til söfnunar. Að þessu sinni er safnað til kaupa á Nýja testamentum fyrir Konsó. Konsómenn hafa lengi beðið eftir að eignast Biblíu á eigin tungumáli og nú sér loksins fyrir endann á þeirri bið. Hvergi í heiminum vex hin kristna kirkja eins ört og í Afríku. Sú gleði- lega staðreynd hefur aftur á móti haft í för með sér að gríðarlegur skortur er á Biblíum handa því fólki sem snúist hefur til kristni. Að upp- Biblíudagurinn Það kostar okkur Islendinga ekki nema 250 krónur, segir Jón Pálsson, að koma einu Nýja testamenti í hendur kristins manns eða konu í Konsó. fræða alla þá sem nýir era í trúnni er gríðarlegt verkefni, segja íslensku kristniboðarnir í Konsó. A hverju ári snúast um 220 þúsund manns til kristinnar trúar í Eþíópíu. Margir þeirra fyrir boðun íslensku kristni- boðanna sem hafa starfað þar um langt árabil. En það er ekki aðeins nóg að útvega Biblíur, þær verða einnig að vera á því verði sem fólk getur greitt. Fólkið í Konsó er fá- tækt og ekki nema lítill hluti þess sem getur greitt fullt verð fyrir Nýja testamentið, en þorstinn eftir Guðs orði er mikill. Þeir fjármunir sem safnast hér á Islandi verða notaðir til kaupa á Nýja testamentum sem dreift verður til kirknanna í Konsó þeim að kostnaðarlausu. Þær munu síðan sjá um að dreifa þeim til hinna allra fátækustu. Það kostar okkur Islendinga ekki nema 250 kr. að koma einu Nýja testamenti í hendur kristins manns eða konu í Konsó sem svo lengi hafa beðið eftir að fá að lesa Guðs orð á eigin tungumáli. I skýi-slu Sameinuðu biblíufélag- Jón Pálsson HERRA Karl Sigurbjörnsson, biskup Islands, heimsdtti bækistöðvar íslensku kristniboð- anna í Konsd í ferð sinni til Afríku síðastliðið vor og skírði þá þennan unga dreng. anna kemur fram að Biblían eða hlutar hennar hafa verið þýddh- á 2.197 tungumál. Tungumál í heimin- um eru talin vera um 6 þúsund þannig að enn er mikið verk fyrir höndum svo að öllum verði gert kleift að lesa Biblíuna á eigin tungu- máli. Þau 2.197 tungumál sem Biblí- an hefur verið þýdd á eru töluð af um 95% jarðarbúa. Þau mál sem eft- ir er að þýða á eru sum hver aðeins töluð af litlum þjóðflokkum og mörg eru við það að deyja út. Aftur á móti hafa þau mál sem Biblían hefur verið þýdd á fest sig í sessi. Reynslan hef- ur sýnt að þýðing Biblíunnar hefur orðið til að bjarga mörgum tungu- málum frá því að deyja út og þar með jafnframt viðhaldið þeim menn- ingai’samfélögum sem í hlut áttu. I skýrslunni kemur einnig fram að biblíufélögin di’eifðu alls 561.633.376 Biblíum eða hlutum hennar, sem var tæplega 6% aukning á milli ára. „Við getum ekki vegið árangur starfs okkar af slíkum tölum,“ segir Fergus Maedonald, fram- kvæmdastjóri Samein- uðu Biblíufélaganna. „Tölurnar hafa aðeins takmarkað gildi and- spænis því gríðarlega verkefni sem við eigum enn fyrir höndum. Þó má segja að slíkar tölur sendi ákveðin skilaboð til samtímans sem álítur trúna vera tímaskekkju; meira en 560 milljónir manna vora ekki á þeirri skoðun á síðasta áiá og era þá aðeins taldir þeir sem biblíufélögin náðu til.“ I bréfi sínu til presta landsins vegna Biblíu- dagsins segir biskup ís- lands, herra Karl Sigur- björnsson: „Trúfastur hópur félaga hefur í ár- anna rás haldið félaginu gangandi með félagsgjöldum og fyi’- irbænum sínum. Við þurfum nauð- synlega að stækka þann hóp til að fé- lagið geti með auknum styrk og efld- um þrótti tekist á við þau mikilvægu verkefni sem fyrir liggja, en það er að koma út endurskoðaðri þýðingu Biblíunnar - Biblíu 21. aldarinnar - og stuðla að dreifingu hennar og áhrifum með þjóðinni.“ Ég vil taka undir þessi orð biskups og hvetja alla landsmenn til að ganga í Hið ís- lenska biblíufélag og styrkja þannig starf þess í verki. Aðsetur félagsins er í Hallgríms- kii’kju, sími: 510 1040. Einnig er hægt að skrá sig í félagið beint á heimasíðu þess: www.biblian.is Söfn- unarreikningur félagsins er nr. 0101- 26-45144. Höfundur er framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags. Asíuundrið KREPPA í fjármál- um Asíulanda ógnaði jafnvægi í heimsviðskip- um á síðasta ári. Stór- fellt gengisfall mynt- anna í Taflandi, Indónesíu og Malasíu leiddi til verðlækkunar, sem nálgaðist hrun. Fyrir bragðið lækkaði dvalarkostnaður er- lendra gesta umtals- vert, auk þess að flugfé- lög lækkuðu verð til að halda uppi nýtingu. Ferðaheildsalar sáu sér leik á borði að bjóða ferðir til Austurlanda á lægra verði en áður þekktist. Útflutningur Asean-landanna stendur enn höllum fæti, en ferða- mannastraumur hefur stóraukist, og tekjur af ferðaþjónustu eru í augum margra bjartasta vonin. Ser- ee, formaður ferðamálaráðs Ta- flands, er í fararbroddi að kynna land sitt og fjölbreytt gæði þess og menningararf undir kjörorðinu „Undra-Taíland“ (Amazing Thai- land) með þeim árangri að gestum fjölgar um allt að milljón á árunum 1998-1999, eða um 8% milli ára. Mest er aukningin frá Evrópu, eða 23% á síðasta ári. Malasía og Singapúr koma næst á eftir Taílandi hvað vinsældir snertir og fjölda ferðamanna, þótt verðlag í Singapúr sé nærri tvöfalt hærra. Ví- etnam sækir á og er ein vinsælasta nýjungin á ferðamarkaðinum. Sold- ánsdæmið Brunei á Borneo, eitt auð- ugasta smáríki heims, leggur mikinn metnað í ferðamál sín og býr sig undir stóraukningu. Lönd eins og Myanmar (Burma) og Kambódía líða enn fyrir stjórnmálaástandið, og sama gildir að vissu marki um Indónesíu vegna uppreisna í Jakarta og víðar, en Balí er blessunarlega undanskilin, enda annar menningar- heimur, þar sem allt er með kyi-rum kjörum. Ferðalög á Filippseyjum hafa jafnan verið talsvert dýrari en í öðrum Ase- an-löndum. Það stend- ur til bóta, því að helstu móttakendur ferðamanna þar hafa bundist samtökum um lækkað verð á völdum ferðapökkum með flugi mflli staða, gistingu og leiðsögn innifalinni. Almennt má segja að Asíu-ferðakaupstefnan hafi að þessu sinni ein- kennst af samvinnu- anda undir kjörorðinu „Samtök um framfarir" (Partners in progress). Niðurstaða ráðstefnu, sem fram fór á undan ferðakaupstefnunni, og jafnframt almennt álit fagmanna í ferðaþjónustu alls staðar að úr heim- Suðaustur-Asía er helsti vaxtarbroddur í ferða- þjónustu í dag, segir Ingólfur Guðbrands- son, sem sat ferðakaup- stefnu í Singapúr fyrir skömmu. inum var, að Suðaustur-Asía sé helsti vaxtarbroddur í ferðamálum heimsins í dag sökum fjölbreytninn- ar, sem hún hefur að bjóða, ríku- legi’a menningarhefða og hins hag- stæða verðlags. Mikil áhersla er lögð á undirbúning aldamótanna, árið 2000, sem fullvíst er talið að verði mesta ferðaár í sögu mannkynsins til þessa. En hvað helst lága verðið lengi? Mörg teikn eru á lofti um bættan efnahag og hækkandi gengi Asean-landanna í náinni framtíð, og þá hækkar allt á nýjan leik. Höfundur er ferðamálafrömuður. Ingólfur Guðbrandsson Vebarfatnaðir Leíkfii t lifdtnaðir Fleeœfaitnaður Regnfatnaðu- Hettupeysu- Sturttfauxur HlýraboUr Golfvönjr Veiöivesti Poiofaolir Sunctföt Skyrtur Buxur Boiir Skór afsláttur »RUSSELL I. ATHLETIC ►Columbia Sportswear Cotnpany * OpÍðídag T1-18 HREYSTI , —spmí vöru fms Fosshálsi 1 - Sími 577-5858
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.