Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 52

Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 52
. 52 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ _____UMRÆDAN/PROFKJÖR___ Vorum við spurð? JAKOB Bjömsson, fyrrverandi orkumála- stjóri, sér ástæðu til að stinga niður penna í Morgunblaðinu sl. fimmtudag og gera at- hugasemdir við grein mína sem ég reit í blaðið 28. janúar sl. Þar var klausa sem Jakobi fannst tilefni til að snú- ast Landsvirkjun til varnar. Klausan var á þessa leið: „Munum að við eigum • bara eitt ísland. Vissu- lega þurfum við að nýta gögn og gæði landsins en það er bókstaflega út í bláinn að ríkisrekið fyrirtæki með einokun á orkuöflun og orkusölu skuli hafa nær algert sjálfdæmi um vii’kjanir fallvatna ís- lenskrar náttúru án þess að þing eða þjóð fái þar að hafa nægjanleg áhrif.“ Það er gott að fá tækifæri til að þríbirta þetta kjarnaatriði í Morgun- blaðinu. Þótt Jakob vitni í orkulög því til staðfestingar að leyfi Alþingis þurfi til að reisa orkuver í landinu er staðreyndin sú að þing og þjóð hafa ekki nægjanleg áhrif í þeim efnum. Við þessa fullyrðingu stend ég pg y tek þar undir skoðanir þúsunda Is- lendinga á liðnum árum. Það er orðhengilsháttur að tala um að Landsvirkjun sé ekki „einok- unarfyrirtæki á sviði orkuöflunar og orkusölu“. Margt má gott um það fyrirtæki segja en það breytir ekki því að Landsvirkjun er fyrir löngu orðið ríki í ríkinu, slíkur risi á sínu sviði að það virkar sem lélegur brandari að tala um að það búi við virka samkeppni. Eða kannast Jakob ekki við áhuga annarra aðila, m.a. Hitaveitu Suður- nesja, á að nýta guf- urorku til rafmagns- framleiðslu? Hvernig skyldi hafa staðið á því að það leyfi fékkst ekki árum saman þótt sýnt væri að það myndi stórlækka orkureikn- inga Suðurnesja- manna? Vissulega er það rétt að Alþingi fjallar um og gefur leyfi til að reisa raforkuver yfir ákveðinni stærð. Um það er ekki ágreiningur. Kjarninn í mínu máli er sá að það vantar lög- gjöf sem tryggir að allur almenning- ur hafi um það að segja hvar og hvort skuli virkja. Auðvitað vantar okkur heildstæða framkvæmdaáætlun um vernd og sjálfbæra nýtingu á auðlindum landsins. Orkustefna með forgangs- röðun um nýtingu og vernd vatns- falla og hitasvæða er ekki fyrir hendi í dag og þjóðin hefur því lítið sem ekkert um málið að segja fyrr en búið er að taka allar stefnumark- andi ákvarðanir. Þannig er ljóst að hvorki þing né þjóð hafa nægjanleg áhrif á það hvar skuli virkjað og hverju skuli fórnað af óspilltri nátt- úru landsins. Eg vitna aftm' í fyrrgreinda Morgunblaðsgrein mína: „Vilja Is- lendingar virkja fallvötnin okkar í þeim mæli sem áform eru uppi um? Er það vilji þjóðarinnar að fórna Eyjabökkum? A að sleppa Lands- virkjun við að framkvæma lögform- legt umhverfismat? Erum við al- mennt sátt við það að hoggið verði nær Þjórsárverum? Vorum við Það er orðhengilshátt- ur, segir Valþór Hlöðversson að tala um að Landsvirkjun sé ekki „einokunarfyrir- tæki á sviði orkuöflun- ar og orkusölu“. spurð þegai’ hverasvæðin við Há- göngur voru sett á kaf? Finnst okk- ur akkur í því að byggja risavirkjun á Austurlandi, sem auðvitað mun taka sinn toll af víðerninu þar?“ Langflesth’ Islendingar svara þessum spurningum neitandi. Gall- inn er sá að við fáum aldrei slíkar spurningar fyrr en eftir á. Við erum einfaldlega ekki spurð. Höfundur býður sig fram í 2. sæii í prófkjöri Sunifylkingnr d Reykja- nesi. Valþór Hlöðversson Samfylking til sigurs ÞAÐ ER orðið stað- reynd að Alþýðuflokk- ur, Alþýðubandalag og Kvennalistinn bjóða fram sameiginlega i öll- um kjördæmum í al- þingiskosningunum í maí. Það hlýtur að telj- ast fagnaðarefni fyrir okkur sem viljum breytingar á ríkis- stjórnarmynstrinu því sameinaðir eiga flokk- arnir meiri möguleika á að ná meirihluta á Al- þingi rétt eins og í Reykjavík. Markmið framboðs- ins er að vinna að sam- félagi félagshyggju, jafnaðar og kvenfrelsis. I því sam- bandi er mikilvægt að standa vörð um velferðarkerfið í formi heilbrigð- is-, félags- og menntamála. Nýta ber allar auðlindir á sjálfbæran hátt með umhverfissjónarmið og réttláta skiptingu arðsins að sjónarmiði. í skjóli núverandi ríkisstjórnar hefur einkavinavæðingar- púkinn makað krókinn svo um munar og bilið á milli ríki’a og fátækra breikkar stöðugt. Það er stöðug togstreita milli ríkisvaldsins og hagsmunasamtaka aldraðra, öryrkja og launþega í heilbrigðis- geiranum svo eitthvað sé nefnt. Þrátt fyrir það tekst valdhöfum ár eftir ár að slá ryki í augu kjósenda þegar kemur að uppgjörsdög- um í lok kjörtímabils. Eg held að sá tími sé á enda runninn og mun ekki láta mitt eftir liggja í að flýta fyrir því. Ég hef tekið þeirri áskorun að taka þátt í prófkjöri Samfylkingar- innar fyrir hönd Alþýðuflokks og Markmið framboðsins er, segir Valdimar Leó Friðriksson, að vinna að samfélagi félags- hyggju, jafnaðar og kvenfrelsis. Bæjarmálafélags Mosfellsbæjar og stefni á 5. sætið. Það eru nítján í framboði en einungis sex sæti í boði og því ljóst að slagurinn verður erf- iður, en mér líður best í brekku. Tökum virkan þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjaneskjör- dæmi 5. og 6. febrúar og sýnum höf- uðandstæðingnum að okkur er al- vara. Höfundur er þdtttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar og stefnir d 5. sæti. Valdimar Leó Friðriksson ÞAÐ sannaði sig í prófkjöri Samfylkingar- innar í Reykjavík að flokkakerfið er í upp- stokkun. Samfylkingin er komin til að vera. Glæsilegur árangur við skipan á framboðslist- ann þar veit á gott um framhaldið. Lífsviðhorf félagshyggju og sjónar- mið jafnræðis hafa náð saman í einni fylkingu sem er tilbúin til átaka við sjónarmið sér- hyggju, þar sem stjórn- arstefnan hefur verið í þágu hinna efnameiri í samfélaginu fyrst og fremst. Föstudags- kvöld, 5. febrúar og á laugardag, 6. febrúar, fer fram prófkjör Samfylk- ingarinnar í Reykjaneskjördæmi. Mikilvægi prófkjörsins felst í þeim sóknarmöguleikum sem okkur gef- ast í framhaldinu. I Reykjaneskjör- 4 dæmi höfum við tækifæri til þess að stilla saman strengi og velja lista yfir flokkslín- ur eins og okkm- sýnist best. I sameiginlegri samfylkingu til framtíð- ar er samt mikilvægt að velja fólk til forystu sem þorir að takast á við valdaöflin í samfé- laginu, hefur þor til að stokka upp og standa vörð um velferðarkerfið og er fært um að fara nýjar leiðir í nýsköpun atvinnulífsins. Það verður hlutverk Sam- fylkingarinnar að skapa traust um velferðar- kerfið og að gera það hagkvæmara og mark- vissara. Samfylkingin mun leggja til nýja hugsun þar sem samstaða kyn- slóðanna verður lykilatriði í umræð- unni um félagsmál í samfélagi allra aldurshópa. Það verður hlutverk Samfylkingarinnar að skapa pólitísk skilyrði til þess að öflug þróun og ný- sköpun atvinnulífsins geti átt sér stað, einkum í tengslum við Evr- ópska efnahagssvæðið. Það verður einnig mikilvægt hlutverk Samfylk- ingarinnar að skapa traust um fisk- veiðistjómunarkerfið, gera það hag- kvæmara og uppræta það ranglæti sem viðgengst um núverandi „eign- arhald“ sægreifa á kvótanum, sem er bæði siðlaust og ólöglegt. Mikilvægi prófkjörsins felst í þeim sóknar- möguleikum, segir Skúli Thoroddsen, sem okkur gefast í framhaldinu. Sem baráttumaður fyrir samfylk- ingu félagshyggjufólks um árabil, vil ég einnig vinna þessum málum lið sem hér hafa verið nefnd. Ég býð mig þess vegna fram í prófkjörinu í Reykjaneskjördæmi. Mér þætti vænt um að fá stuðning í 3. sætið á listanum. Höfundur er forstöðumaður Mið- stöðvar súnenntunar d Suðurnesj- um, tekur þátt í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjaneskjördæmi. Samfylkingin komin til að vera Skúli Thoroddsen Prófkjör Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999. Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is Eg styð Þórunni Olga Lísa Garðarsdóttir frambalds- skóiakennari skrifar: Ég vil hvetja okkur Reyknes- inga til að taka þátt i prófkjörinu um helgina og velja Þórunni Sveinbj arnar dótt- ur í 3.-4. sæti list- ans. Þórunn er ung og atorkumikil kona sem hefur haslað sér völl á sviði stjórnunar og stjórnmála svo eftir hefur verið tek- ið á undanfömum árum. Hún er varaþingmaður Kvennalistans á yf- irstandandi kjörtímabili og hefur komið að stefnumótun margra mála. Hún var fyrsti formaður stúd- entafélagsins Röskvu á námsárum sínum í Háskóla Islands, starfaði á erlendri grund sem alþjóðafulltrúi á vegum Rauða krossins, hefur verið framkvæmdastýra Samtaka um kvennalista og starfað sem blaða- maður. Þórunn er ein af þessum nútíma- konum sem gengur óhikað til verks og treystir bæði sjálfri sér og öðr- um til að takast það sem tekist er á við hverju sinni. Hún verður frábær fulltrúi yngri kjósenda, kvenna og sannra samfylkingarsinna í forystu- sveit Samfylkingarinnar á Reykja- nesi. Kjósum Þórunni og gerum vel við okkur sjálf og kjördæmið! „Til Sunn- lendinga“ Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins, skrifar: Frændi minn og kær vinur, Ai’ni Johnsen, á sannar- lega skilið forystu- sæti sjálfstæðis- manna í Suður- landskjördæmi. Ég hef fylgst með störfum þessa vökula baráttu- manns fyrir hag Suðurlandskjördæmis. Hann lætur ekkert stöðva sig, ekki innan- flokksandstæðinga, ekki andsnúna fjölmiðlamenn, ekkert. Hann frændi minn er maður sem fer oft ótroðnar slóðir, bæði í landafræði og mannlíf- inu. Fyrir það hefur hann verið hundeltur af þeim sem vilja halda sig við malbildð, en dáður af fjöld- anum sem líkar hreinskilnin. Arni er heillandi persónuleiki, einn þeirra sem ég hef alltaf ánægju af að hitta. Ég fer alltaf frá honum með nýjar hugmyndir og bros á vör. Þó er Árni fyrst og fremst maður verkanna. Þannig menn á Sjálf- stæðisflokkurinn skilið að hafa í for- ystu sinni. Ég óska Sunnlendingum góðs gengis í prófkjörinu. Öflugan Suðurnesja- mann á þing Ólafur Tbordersen framkvæmdastjóri skrifar: Framundan er prófkjör Samfylk- ingarinnar í Reykjaneskjör- dæmi. Þar hefur Jón Gunnarsson gefið kost á sér í 2. sæti framboðslist- ans og fagna ég því að svo öflugur maður er tilbúinn að starfa fyrir okkar hönd á Alþingi. Ég hef fylgst með störfum Jóns í sveitarstjórnarmálum hér á Suður- nesjum og það vakið athygli mína hve öflugur hann hefur verið í sam- starfsverkefnum sveitarfélaganna hér, þrátt fyrir að koma úr minnsta sveitarfélaginu á svæðinu. Jón er fljótur að setja sig inn í mál og skilja kjarnann frá hisminu og þeir sem unnið hafa með honum virðast einróma um dugnað hans og elju. Mikil reynsla Jóns í málefnum sveitarfélaga á eflaust eftir að nýt- ast honum vel á þingi og ekki skemmir heldur fyrir að hann hefur mikla reynslu úr atvinnulífínu. Með því að velja Jón í 2. sætið á listanum erum við að tryggja okkur öflugan málsvara á Alþingi. Lúðvík á erindi á þing Hörður Þorsteinsson framkvæmda- stjóri skrifar: Lúðvík Geirsson bæjarfulltrúi, sem býður sig fram í prófkjöri Samfylk- ingarinnar, hefur sýnt með störfum sínum að hann á fullt erindi á þing. Fimm ára farsæll ferill Lúðvíks í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar og tíu ára fonnennska í Blaðamannafélaginu er góður bak- grunnur að þingmennsku. Hér er á ferðinni sterkur frambjóðandi sem er til þess fallinn að verða lista Samfylkingarinnar mikill styrkur. Lúðvík átti mikinn þátt í samfylk- ingu félagshyggjuflokkanna í Fjarð- arlistanum í Hafnarfirði og þrátt fyrir að ekki hafi tekist fullkomin sameining síðasta vor þá er nú í burðarliðnum endanleg sameining bæjarmálafélaga Fjarðarlistans og Alþýðuflokksins. Þar hefur einlæg- ur vilji Lúðvíks til samfylkingar spilað stórt hlutverk. Ég hef þekkt til Lúðvíks um ára- bil og veit að hann mun reynast kjördæmi sínu og landinu öllu vel verði hann kjörinn á þing. Kjósum einlægan samfylkingar- mann í öruggt sæti, sameinumst. Kjósum Lúðvík Geirsson. Rögnu í 4.-5. sæti Guðrún Sæmundsdóttir skrifstofumað- ur, Hafnarfirði, skrifar: Sögulegt próf- kjör Samfylkingar- innar í Reykjanes- kjördæmi fer fram nú um helgina. Ein þeirra sem býður sig fram er Ragna B. Björnsdóttir, verkakona úr Hafnarfírði, sem gefur kost á sér í 4. til 5. sæti listans. Ég þekki Rögnu úr áralöngu starfi hennar með Kvennalistanum, en hún hefur verið félagi í samtök- unum frá upphafi. Hún er ein af þeim konum sem skorast aldrei undan því að leggja sitt af mörkum og hefur hún gegnt fjölda trúnaðar- starfa fyrir Kvennalistann. Ragna er mikil baráttukona og hún hefur beitt sér sérstaklega fyrir auknum meðferðarúrræðum fyrir börn og unglinga í vímuefnavanda. Ragna hefur starfað sem bóndi, verkstjóri og fiskvinnslukona, en hún starfar nú við heimaaðhlynn- ingu hjá Hafnarfjarðarbæ. Það er mikilvægt að rödd verkafólks hljómi í Samfylkingunni og Ragna er verð- ugur fulltrúi þess hóps á lista henn- ar í Reykjaneskjördæmi. Olga Lísa Garðarsdóttir Ólafur Thordersen Guðrún Sæmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.