Morgunblaðið - 06.02.1999, Side 71

Morgunblaðið - 06.02.1999, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 71 BRÉF TIL BLAÐSINS Forsjárhyggja og húsnæðislán Frá Tiyggva Hjörvar: ÞAÐ ER nú svo að hin endalausa for- sjái-hyggja stjórnvalda gagnvart hin- um almenna borgara gengur oftast út í öfgai- og hefur ekkert að segja nema valda kostnaði, bæði einstaklingum og ríki. Við skulum aðeins skoða hús- næðislán húsbréfakerfisins og hið svokallaða gi'eiðslumat. Ef einhver ætlar að kaupa eða skipta um húsnæði og fá til þess lán úr húsbréfakerfinu er hann skyldaður til að ganga í gegnum greiðslumat sem er bæði auðmýkjandi og gagns- laust til þess sem það er ætlað. Til þess að fá lán þarf væntanlegur kaup- andi að gefa upp til þjónustufulltrúa skattskýrslu, fjármálastöðu og önnm- þau einkamál sem ráðuneytismönn- um kunna að detta í hug, þessir papp- írai- eru svo endurskoðaðh- af ráðu- neytismönnum eða fulltrúum þeirra, sem síðan synja eða samþykkja lán- veitingu. Þai-na er enginn munur á og þegar forfeður okkar stóðu með húfu- pottlokið milli handanna fyrii- framan þessa sömu menn sem þá voru innan- búðar hjá dönsku einokuninni og síð- ar hjá kaupfélögunum, og reyndu að fá úttekt í reikning. Hafa ber í huga að lánið fer ekki yf- ir 70% af söluverðmæti þeirrar eignar sem kaupa skal og er aðeins veitt út á 1. veðrétt í eigninni og er því full- tryggt á hverju sem gengur. Endaleysa Látið er í veðri vaka að verið sé að fyrirbyggja að kaupandi reisi sér hurðarás um öxl, því hinn venjulegi maður kunni ekki fótum sínum for- ráð. Þetta er þvílík endaleysa að engu tali tekur. Flestii- þeir sem ætla að kaupa eða skipta um íbúð vita gjörla hvað þeir eni að gera og þurfa ekki á slíkri forsjá að halda. Þeir sem ekki treysta sér og sínum í þessum málum geta leitað til þjónustufulltrúa bank- anna með sín mál. En það á engan veginn að vera skylda heldur val. Þjónustufulltrúamir eru síðan færir um að taka kaupanda í umsjón og ráðgjöf og ef til vill „gjörgæslu". Astæða þessarai- forsjái’hyggju ffitla ég að sé sú, hvað mikið er um greiðslufall og uppboð húsnæðis. Ég er þess fullviss að aðeins í fáum tilfell- um er hin raunverulega ástæða upp- boðs lánin sem voni tekin vegna hús- næðiskaupanna. Langoftast er um að kenna eyðslu eða óforsjálni í fjármál- um af öðrum toga. Fyrirhyggju í íjármáluin Nú skulum við snúa okkur aftur að kaupandanum sem fer í gegnum nál- arauga ráðuneytisins og hlýtur náð fyrir augum þess. Daginn eftii’ að gengið hefur verið frá kaupunum get- ur hann keypt sér innbú í húsnæðið á 36 mánaða raðgreiðslum hjá sínu kortafyrirtæki, keypt bifi’eið með að- stoð fjármálafyrirtækja og skroppið til Hawaii ásamt fjölskyldunni með aðstoð ferðaski’ifstofu. Þetta eru öfg- ar en ekki einsdæmi og meiningin er skýr. Ef maðm’ sýnir ekki fyrir- hyggju í fjármálum sínum leysh’ greiðslumat ekki vandann, en það getur hjálpað þeim sem treysta sér ekki til að reikna gi’eiðslugetu sína. Samkvæmt síðustu fi’éttum tölvu- nefndai’ er Stóri bróðir nú kominn með nefið niður í buddurnar okkar svo þarna kann að verða einhver breyting á. Ef það er raunverulegur vilji ráðu- neytis og annaira sem að þessum málum koma að draga úr uppboðum húsnæðis og tryggja fóiki eigið þak yfir höfuðið, þá er það allt annað sem skiptir höfuðmáli. Þeh’ sem lána til íbúðakaupa verða að fylgjast náið með því að lántakar standi í skilum og grípa inn í um leið og misbrestur verðrn- á. Hafa þá samband við lán- taka og athuga hvað hægt er að gera til að koma málum í samt lag. Oftast er um að ræða tímabundna erfiðleika vegna óvæntra útgjalda eða vinnu- taps. Þetta eru engin ný sannindi, Húsnæðisstofnun og Veðdeild unnu að þessum málum á sjðustu árum, en ég er ekki viss um að íbúðalánasjóður þrói þau áfram. Það er alltaf einhver leið út úr vandanum ef nógu snemma er á hon- um tekið. Annað væri líka af hinu góða; að fá sem flesta til að nota greiðsluþjónustu bankanna og ívilna þeim t.d. með niðurfellingu á kostnaði greiðsluseðils. TRYGGVI HJÖRVAR, eldri, Austurbrún 35 Reykjavík. TILBOÐ á löngum laugardegi Opið frá kl. 10-18 Verö: 3.995 ÁðmJHíínf’ Litur: Svartur • Stærðir: 41-46 • Tegund: 1104 Vandaðir leðurskór m/leðursóla STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN DOMUS MEDICA við Snorrabraut • Reykjavík • Sími 551 8519 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Vorvörurnar eru komnar Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Kœru vinir! Bestu þakkir til ykkar allra, sem glöddu mig á 70 ára afmœli mínu þann 1. febrúar og gerðu mér daginn ógleymanlegan með nœr- veru, hlýjum kveðjum og til styrktar krabba- meinssjúkum börnum. Jónína Níelsen. Síðustu dagar utsölunnar Rýmum fyrir nýjum vörum Hlíðasmára 14, Kópavogi, sími 564 5533. Útsalan á löngum laugardegi — opið kl. 10-17 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 1 loppskórinn L VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.