Morgunblaðið - 06.02.1999, Page 72
72 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í DAG
Landgrunns-
rannsóknir
á Orkustofnun
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu 2.
febrúar sl. undir fyrirsögninni
„Engin fjárveiting til landsgrunns-
rannsókna" hefur Þorkell Helga-
son orkumálastjóri sent eftirfar-
andi til birtingar:
„Atriði í frétt í Morgunblaðinu
hinn 2. febr. sl. undir fyrirsögninni
„Engin fjárveiting til landgrunns-
rannsókna“ þarfnast leiðréttingar
við. Þannig er sjálf fyrirsögn frétt-
arinnar ekki í samræmi við stað-
reyndir. Þvert á móti hefur undan-
farin ár verið fjárveiting til land-
grunnsrannsókna á lið iðnaðar-
ráðuneytisins á fjárlögum. Hún
hefur seinustu árin numið 2 m.kr.
og hefur ráðuneytið ráðstafað þeim
til verkefna sem Orkustofnun hef-
ur annast. Sama fjárveiting er á
fjárlögum 1999.
Starfshópur iðnaðarráðherra
um olíuleit skilaði áliti á síðast-
liðnu hausti og lá þá frumvarp til
fjárlaga fyrir Alþingi en ekki
vannst tími til að ræða tillögur
starfshópsins um frekari rann-
sóknir meðan á afgreiðslu frum-
varpsins stóð. Og meðan beðið var
álits hópsins taldi Orkustofnun
ekki rétt að gera sjálf tillögur um
fjárveitingar í umraeddu skyni.
Það er því heldur ekki rétt sem
fram kemur í fréttinni að Orku-
stofnun hafi lagt fram beiðni um 7
m.kr. framlag til þessa mála-
flokks. Það er því ekki við stjórn-
völd eða Alþjngi að sakast í þess-
um efnum. A hinn bóginn væntir
Orkustofnun þess að nú taki
stjórnvöld afstöðu til tillagna fyrr-
greinds starfshóps og ráðstafi því
fé sem þurfa þykir.
Iðnaðarráðherra mun á næst-
unni skipa samráðsnefnd með full-
trúum iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytisins, utanríkisráðuneytisins
og Orkustofnunar. Hlutverk nefnd-
arinnar verður að vaka yfir íslensk-
um hagsmunum á sviði olíu- og
landgrunnsmála, samhæfa við-
brögð við fyrirspurnum erlendra
aðila, gera tillögu um stefnu við
veitingu rannsókna- og vinnslu-
leyfa og bæta yfirsýn yfir mála-
flokkinn í heild. Orkustofnun mun
aðstoða nefndina eftir þörfum.
Fyrsta verk nefndarinnar verður
að ræða við þá erlendu aðila sem
lýst hafa áhuga á olíuleitarrann-
sóknum hér við land og kanna vilja
þeirra til samstarfs við íslenska
rannsóknaraðila. Þá mun nefndin
gera tillögu til stjórnvalda um
framhald rannsókna og fé sem til
þeirra þarf.“
Nýr stjdrnarformaður
N ámsgagnastofnunar
MENNTAMALARAÐHERRA hef-
ur skipað Arna Sigfússon fram-
kvæmdastjóra stjórnarformann
Námsgagnastofnunar í stað Guðna
Níelsar Aðalsteinssonar sem lætur
af formennsku.
Námsgagnastofnun starfar sam-
kvæmt lögum nr. 23/1990. Hlutverk
stofnunarinnar er að sjá grunnskól-
um fyrir námsgögnum í þeim skyldu-
námsgreinum og námsviðum sem að-
alnámskrá grunnskóla kveður á um.
I stjórn Námsgagnastofnunar
eiga sæti tveir fulltrúar Kennara-
sambands Islands, einn fulltrúi
Skólastjórafélags íslands, einn full-
trúi Hins íslenska kennarafélags,
einn fulltrúi Kennaraháskóla Is-
lands, einn fulltrúi sveitarfélaga og
einn fulltrúi menntamálaráðherra.
Landssamtök foreldra, Heimili og
skóli, eiga áheyrnarfulltrúa í
stjórninni með málfrelsi og tillögu-
rétt.
Póstsendum samdægurs
á löngum laugardegi
Opið kl. 10-17
Mikið úrval á útsölunni
Litir: Bláir, grænir o.ffl.
Stærðir: 27-35
Tegund: ADI
Verð 1.295
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is /\LLTAF= e/TTH\SA4D A/ÝT7
Fréttir á Netinu /§/mbl.is
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hin hlutlausa
fréttastofa
í FRÉTTUM af prófkjöri
Samfylkingarinnar í
Reykjavík (sem sumir
kalla samflykkingu) sagði
fréttastofa Útvarpsins
maj'gsinnis að þátttakan
hefði verið meiri en hinir
bjartsýnustu menn hefðu
þorað að vona. Nokkrar
spurningar vakna:
1. Var talað við þessa of-
urbjartsýnu menn? 2. Er
þetta fréttamennska eða
áróður? 3. Er fréttastofan
komin á fullt í áróður íyrir
„vandræðabandalagið“
fyrir næstu kosningar?
Ég bara spyr.
Ólafur H. Hannesson,
Snælandi 4.
Fyrirspurn til ríkis-
útvarpsins
HELGI heitinn Hjörvar,
sá mikli góði íslensku-
maður stofnaði minning-
arsjóð um Daða Hjörvar
son sinn sem var mikill
íslenskumaður. Það átti
að veita verðlaun úr
sjóðnum einu sinni á ári.
Þrjú fyrstu árin voru
veitt verðlaun úr sjóðn-
um fyrir fegursta talað
mál í útvarpi en síðan
ekki söguna meir. Hvað
varð um þennan sjóð? Er
enginn Islendingur í út-
varpi verðugur verðlaun-
anna?
Helgi Pálmason.
Tvær fyrirspurnir
AUGLÝSINGAR hafa
birst í Mbl. að undanfórnu
frá íslenskum sauðfjár-
bændum með ýmsum
uppskriftum af lamba-
kjöti. Það sem vekur
undrun mína er að í þess-
um uppskriftum er alltaf
notast við sömu tegundina
af rauðvíni. Hvað veldur
því? Hin fyrirspurnin er
hvort Jón Viðar leiklistar-
gagnrýnandi sé hættur í
þætti sjónvarpsins sem
nefnist Mósaík?
Lesandi
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
SJÓNGLERAUGU,
hugsanlega kvenmanns-
gleraugu, fundust í Hlíð-
arhverfi í síðustu viku.
Uppl. í síma 568 1046.
GSM-sími týndist
SVARTUR Ericsson
GSM-sími týndist sl.
sunnudagskvöld á Njáls-
götunni. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma
552 1446.
Silfurgafflar týndust
TVEIR litlir silfurgafflar
týndust fyrir nokkrum
dögum, sennilega á
Tómasarhaga eða Mýrar-
ási. Vinsamlegast hringið
í síma 552 0947. Fundar-
laun.
Angóruhúfa tapaðist
SVÖRT angói'uhúfa tap-
aðist á Leifsgötunni fyiir
rúmri viku. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 552 3419.
Dýrahald
Dimmalimm er týnd
KOLSVÖRT læða hvarf
að heiman úr Háskóla-
hverfinu í fyirahaust.
Hún var með silfurlitaða
ól og rautt merkispjald.
Þeir sem búa eða vinna á
Öskjuhlíðarsvæðinu eru
sérstaklega beðnir um að
hafa augun opin og
hringja ef þeir verða varir
við svarta kisu. Uppl. í
síma 5515301 eða
698 0419.
Læðan Yrja týnd
ÞRÍLIT ársgömul læða
(Yrja) fór að heiman frá
sér á Kleppsveginum,
sunnudaginn 24. janúar.
Hún stakk af út um
gluggan ómerkt og er sárt
saknað. Þeir sem gætu
gefið uppl. eru beðnir að
hafa samband við Guð-
rúnu í síma 553 2830.
SKAK
Uinsjón Margeir
l’étursson
Rxg2 - h3 og þar sem ridd-
arinn á g2 er verri en eng-
inn í slíkum stöðum gafst
hvítur upp. Svarta h-peðið
verður ekki stöðvað.
ÞETTA enda-
tafl kom upp á
minningarmóti
um Vince Toth,
sem nú stendur
yfir í Ríó í Bras-
ilíu. Luis Galego
(2.425), Portú-
gal, hafði hvítt,
en Everaldo
Matsuura
(2.400), Brasilíu,
var með svart
og átti leik. 28.
- Bxg2U (leik-
bragð í endatafli
sem allir verða
að þekkja!) 29.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ JJann. rzxkstá. -fíokJ: smá,faunclQ_ 7'
MANSTU
þegar ég
sagði þér að
ég væri lyg-
ari af guðs
náð? Ég laug
því.
SENDU bæklingana
í ilmandi umslögum,
merktu eiginmönn-
unum þau og skrif-
aðu á umslögin að
þetta sé cinkamál.
Ég vil nefnilega að
konurnar opni
umslögin.
Víkverji skrifar...
KAFFI á íslenskum kaffihúsum
hefur tekið miklum framförum
síðustu árin. Ekki síst fagnar Vík-
verji því að nú fer það að verða regla
fremur en undantekning að hægt sé
að treysta á að espresso-kaffi standi
undir væntingum.
Flest betri kaffihús og fjölmörg
veitingahús virðast hafa fjárfest í góð-
um ítölskum espresso-vélum og nota í
þær gott kaffi. Víkverjj er í hópi þess
stöðugt vaxandi hóps íslendinga sem
miklu fremur kýs espresso-kaffi,
hvort sem er með morgunmatnum,
sem síðdegisbolla eða eftir máltíð á
veitingahúsi, heldur en hið venjulega
bragðdaufa íslenska síu-kaffi og hefur
jafnvel horn í síðu pressukönnu-kaff-
isins, sem enn nýtur mikilla vinsælda
á mörgum veitingahúsum.
Kaffi endurspeglar á margan hátt
menningu viðkomandi þjóðar. I
Norður-Evrópu hefur síu-kaffið ver-
ið allsráðandi framan af þessari öld
og á Norðurlöndum hefur þróast
kaffimenning sem felst í því að
þamba sem mest af fremur bragð-
litlu kaffi daginn út og daginn inn.
Svipað er uppi á teningnum í Þýska-
landi en þar er kaffið ef eitthvað er
ennþá bragðminna og daufara. A
Vesturlöndum er kaffið þó líklega
hvergi verra en í Bandaríkjunum en
það kaffi sem almennt er boðið upp á
þar í landi á fátt sameiginlegt með
þessum göfuga drykk annað en
áþekk litbrigði.
Auðvitað gerir Víkverji sér grein
fyrir því að á þessu eru undantekn-
ingar og bandarískar kaffisölukeðjur
á borð við t.d. Starbucks hafa átt
mikinn þátt í að hífa kaffidrykkju
upp á skárra plan. Enn verður mað-
ur þó að leggja á sig töluvert erfiði
til að hafa upp á bolla af góðu kaffi í
Bandaríkjunum.
xxx
SÚ ER hins vegar ekki raunin í
suðurhluta Ewópu enda vh-ðast
nú flestir líta þangað þegar reyna á
að endurskapa ósvikna kaffihúsa-
menningu. Hvort sem er í Frakk-
landi, á Italíu eða Spáni fær maður
nær undantekningarlaust gott kaffi
þegar beðið er um bolla af kaffi og
þá ávallt það sem á ítölsku er kallað
espresso en Frakkar telja nóg að
kalla café. Jafnvel á einföldustu
kaffihúsum er hægt að fá unaðslegt
kaffi fyrir lítinn sem engan pening.
Hér á landi og víðar í Norður-Evr-
ópu virðist þróunin vera í þá átt á
kaffihúsum að farinn er að myndast
bræðingur á milli norður-evrópsku
konditori-kaffihúsanna og suður-evi'-
ópsku kaffibaranna. Vonandi heldur
sú þróun áfram og kaffið áfram að
batna. Því miður er það nefnilega
enn svo að ekki er alveg hægt að
treysta á að espresso-kaffið á ís-
lenskum kaffihúsum sé viðunandi
þótt sem betur fer séu undantekn-
ingarnar ekki margar. Bolli af góðu
espresso er auðþekkjanlegur á því
að ljósbrúna froðan sem kemur úr
olíu kaffibaunanna (og ítalir kalla
crema) á að vera þykk og þekja sjálft
kaffið. Sé svo ekki hefur höndum
verið kastað til við kaffivélina. Tví-
vegis hefur Víkverji lent í því að
undanförnu að biðja um espresso-
bolla á kaffihúsi (ekki því sama) og fá
í hendurnar bolla þar sem einungis
vai- smá crema-hringur í útjaðri boll-
ans. Ekki nennti Víkverji að standa í
stappi og reyna að útskýra fyrir
starfsfólkinu að þetta væri gallað
espresso. Hann ákvað bara að fá sér
kaffi annars staðar næst.