Morgunblaðið - 06.02.1999, Qupperneq 78

Morgunblaðið - 06.02.1999, Qupperneq 78
7$ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Ljósmynd/Anton Corbijn. Ljósmynd/Anton Corbijn. COURTNEY Love. BJÖRK Guðmundsdóttir séð með linsu Corbijn. ANTON Corbijn er maður- inn sem bjó til ímynd írsku sveitarinnar U2 og hljóm- sveitin birtist áhorfendum í gegnum myndir hans. Hann er fyrir löngu orðinn heimsþekktur fyrir ljósmyndir sínar og mynd- bönd, en hann hóf að taka ljósmynd- ir árið 1972. Áhugi hans á tónlist dró hann upphaflega að ljósmynd- un, enda er hann maðurinn sem margir telja að hafi búið til nýja ímynd, nýtt útlit fyrir tónlistar- heiminn. Hann vann á tónlistartímaritinu NME til ársins 1985 og komst þar í kynni við marga þá tónlistarmenn sem hann hefur unnið með síðan. Corbijn hóf að starfa sjálfstætt eftir 1985 og tók ljósmyndir fyrir mörg þekkt tímarit eins og Rolling Stone, Elle, Esquire, W og Stem, auk þess sem hann tók myndir á plötuumslög fyrir þekktar sveitir. Einnig hefur hann gert myndbönd fyrir Nirvana, Joni Mitchell, Metallica, Naomi Campbell, David Sylvian, Nick Ca- ve auk U2, svo aðeins fátt eitt sé talið. Þrjár bækur hafa komið út eftir Corbijn, Famouz, Allegro og Star Trak og er væntanleg ný bók frá honum í lok ársins. Það sem fyrst vekur athygli manns við Corbijn er hversu hávax- inn hann er. Þegar sest er niður og byrjað að tala við manninn kemur fljótt í Ijós eðlislæg hógværð. Hann er fyrst spurður út í fyrirlesturinn í dag. „Þetta er eiginlega jafnmikil sýning á verkum mínum og fyrir- lestur. Ég hef skipt nokkrum mynda minna í hópa til skýringar. Það er samt ekki beinlínis eftir breytingum á stíl, því ég er ekki ljósmyndari sem skiptir um stíl vikulega. En ég ljósmynda alltaf frægt fólk og ég skipti myndunum í hópa eftir þeim tijfinningum sem birtast í myndun- um. Ég sýni líka hluta af þeim myndböndum sem ég hef gert, en sýningin tekur tæpan klukkutíma." -Hvernig eru stórstjörnur sem Ijósmyndaviðfangsefni? Þessi heimur heillaði mig frá upphafi og ég nálgaðist hann fyrst utan frá í gegnum áhuga minn á tónlist. Síðan varð ég svo ná- tengdur tónlistarheiminum að ég fór að skrá hann á filmu frá sjónar- homi þess sem er innan hringiðunn- ar.“ - Geturðu skýrt þetta nánar? „Ja, ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra þetta betur. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem ég vinn með. En á sama tíma er ég stundum með myndum mínum að breyta tilfinningu fólks fyrir sjálfu sér, búa til nýja ímynd, eða breytta imynd. Ég reyni alltaf að koma til “Jíöla í myndunum tilfinningu fyrir Anton Corbijn með fyrirlestur í dag Fagurfræðin ekki eina takmarkið Ljósmyndarinn Anton Corbijn er með fyrir- lestur í dag á fagstefnu ljósmyndara í Tónlist- arhúsi Kópavogs. Dóra Osk Halldórsdóttir spjallaði við Corbijn um ferilinn og ljósmyndun. manneskjunni og tónlistinni. Bono sagði eitt sinn við mig að ég tæki ekki myndir af fólki heldur tónlist- inni.“ -Nú hef ég heyrt því fleygt að þú eigir heiðurinn af þeirri ímynd sem tónlistarheimurinn hefur í dag. S Eg hugsa að ég hafi nálgast ljósmyndunina öðruvísi en gert var á þeim árum sem ég var að byrja,“ segir Corbijn og bæt- ir við með afsakandi tón að hann vilji ekki gera of mikið úr sínum verkum. „Enginn annar var að gera þessa hluti á þessum tíma.“ - Geturðu lýst þessari nálgun þinni íljósmyndun? „Það er svolítið erfitt að útskýra með orðum. Þetta snýst að miklu leyti um ákveðna næmni. Það er eins konar sambland af fagurfræði og tilfinningum. Það er eiginlega það eina sem ég get sagt.“ -Nú hefurðu tekið mikið af myndböndum. Gilda ekki allt önnur lögmálþar en íljósmyndun? „Jú, að mörgu leyti. Þú ert bund- inn af laginu og sú ímynd sem þú gerir er ekki jafn frjáls og í ljós- mynduninni. Lagið ákvarðar marga hluti í túlkuninni. En núna er ég hættur að gera myndbönd." - Af hverju? „Mér finnst að yngra fólk eigi að gera tónlistarmyndbönd. Þau eru öll sýnd á MTV-sjónvarpsstöðinni og ég horfi aldrei á hana. Hef engan áhuga á því. Aðeins ungt fólk horfir á þessa stöð. Mér finnst efnistök þar ekki alltaf byggð á fagurfræði- legum hugmyndum og markaðurinn stjómar þar of miklu. Einnig er talsverð ritstýring á efninu vegna þess hversu ungir áhorfendurnir Morgunblaðið/Kristinn ANTON Corbijn. Ljósmynd/Anton Corbijn. MICK Jagger gerður hættulegur og ögrandi. eru. Þetta er ekki eins og að sýna verk í galleríi." - Heldurðu að áhugi þinn á tón- list sé kannski lykilatriði í þinni ljósmyndun á tónlistarfólki? Já, ég held það alveg tvímæla- laust. í dag er mikill áhugi á tískuljósmyndun en ég hef minni áhuga á því. Þar er það fagur- fræðin ein sem ræður ríkjum. Þeg- ar ég tek myndir fínnst mér að þær verði að segja mér eitthvað um manneskjuna eða tónlistina. Hrein fagurfræði finnst mér ekki eins spennandi. Myndirnai- verða að gera eitthvað meira, að mínum dómi.“ Nú bendir Corbijn á mynd af Co- urtney Love til útskýringar. „Ég hafði unnið mikið með Kurt Cobain, en myndin er tekin eftir dauða hans. Hérna er Love að sumu leyti eins og gyðja Botticelli, en taktu eftir að hún stendur í hringiðu og það er eins og hún sé að sogast nið- ur í vatnið. Tunglið er fullt og fyrir mér er mikill tregi og angurvær fegurð í þessari mynd. En í myndinni af Mick Jagger var ég að gera allt aðra hluti. Ég sagði við hann að ég vildi reyna að koma einhverju af hættunni sem umlukti hljómsveitina á sínum ungdómsár- um aftur að. Mér fannst ímynd hljómsveitarinnar orðin örlítið þreytt og vildi enduivekja upp- reisnarandann og hættuna sem var stór þáttur í því að gera þá fræga og vinsæla á sínum tíma. Myndin sýnir mína leið að því marki.“ Corbijn segir að þótt fólk sé komið í hóp stórstjarna sé það ekkert minna óöruggt en þeir sem ekki eru jafnmikið í kast- ljósinu. „Mikil umfjöllun er um frægt fólk í fjölmiðlum og fólk kynn- ist því óbeint í gegnum þá umfjöllun. Því er í kringum hverja „stjörnu" heilmikil vitneskja sem tengist hennar opinberu persónu. Stundum vinnur maður með þeirri vitneskju í ljósmynduninni, en í öðrum tilfellum fer maður á skjön við þá ímynd sem manneskjan hefur í huga fólks. Reynir að draga fram aðrar hliðar sem eru minna þekktar." - Það er mjög spennandi að spá í hversu sterk ímyndin er í nútíma samfélagi. Stundum jafnvel sterkari en fyrirmyndin. „Það er nákvæmlega það sem mér finnst, og ekki síst í samhengi við frægt fólk, þar sem konur eru t.d. oft gerðar að persónulausum kynbombum og sífellt unnið með ákveðna staðla og týpur. Þess vegna vil ég ekki vinna við tískuljós- myndun, þar sem ímyndin er látin vinna á þennan hátt. Það er ekki minn stíll.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.