Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 26.02.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913 47. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Varað við frekari snjo- flóðum í Tíról Landeck. Reuters. Reuters Rússar harðorðir í garð Bandarrkjamanna Sætta sig ekki við þvinganir Moskvu. Reuters. ÞYRLUR í tugatali frá fjórum lönd- um fluttu í gær meira en 4.000 ferðamenn frá skíðasvæðum í Aust- urríki sem verið höfðu innlyksa vegna fannfergis í Alpafjöllunum. Ljóst var að a.m.k. 33 höfðu farist í snjóflóðum, sem féllu á bæina Galtiir og Valzur á þriðjudag og miðvikudag, og fimm var enn sakn- að. Þrátt fyrir að litlar líkur væru taldar á að fólkið fyndist á lífi hét Wendelin Weingartner, héraðs- stjóri í Tíról, því að gefast ekki upp. „Við munum halda leitinni áfram þar til allir eru fundnir," sagði hann við fréttamenn. Ferðamenn, sem í gær héldu loks heim á leið eftir margra daga bið, Frjáls eft- ir 41 ár Taejon, Seoul. Reuters. SUÐUR-Kóreustj(5rn lét í gær lausan úr haldi mann sem talið er að hafi setið bak við lás og lás lengst allra pólitískra fanga í heiminum. Woo Yong-gak, sem er sjötíu og eins árs, hefur setið í einangrun í Taejon-fangelsi í íjörutíu og eitt ár fyrir meintar njósnir á vegum N-Kóreustjórnar og var einn af sautján pólitiskum föngum sem Kim Dae-jung, for- seti S-Kóreu, ákvað að sleppa úr haldi í tilefni þess að hann hefur nú setið eitt ár í embætti. Woo, sem þjáist af sykursýki en sagðist að öðru leyti við bestu heilsu, vildi ekki tjá sig um hvort hann hygðist flytja aftur til N- Kóreu, en flestir þeirra sem látn- ir voru lausir í gær sátu inni fyr- ir njósnir eða aðra ólöglega starfsemi á vegum n-kóreskra yf- irvalda. „í meira en 40 ár hef ég setið í einangrun. í dag er ég því hamingjusamur yfir því að líta dagsbirtuna augum,“ sagði Woo. Suður- og Norður-Kórea eiga tæknilega séð enn í stríði þar sem aldrei var samið um frið vegna átaka þeirra árin 1950- 1953.1 kalda stríðinu var oft grunnt á því góða í samskiptum rikjanna enda fylgdi S-Kórea vesturveldunum að málum en ná- grannaríkið N-Kórea var slqól- stæðingur Sovétmanna. lýstu dvöl sinni í Galtúr eftir að snjóflóðið féll þar á þriðjudag sem martröð. „Þetta var hræðilegt, sér- staklega næturnar," sagði þýska konan Birgit Pick. „Við vissum ekki hvort annað snjóflóð myndi fylgja í kjölfar þess fyrra og sváfum því lít- ið sem ekkert í tvo daga.“ Brustu margir í grát af gleði þegar þeir loks sáu fram á að komast á brott af hættusvæðinu. Yfirvöld vöruðu við því í gær að búast mætti við enn frekari snjó- flóðum á þessu svæði þar sem lík- legt sé að hlýnandi veðurtíðin bræði snjó í fjöllunum. ■ Sjá umfjöllun á bls. 24 MIKIL spenna ríkir í Kosovo-hér- aði vegna liðssafnaðar Serba og hafa fulltrúar Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu (ÖSE) auk- ið eftirlit með hersveitum Serba og Frelsisher Kosovo (UCK) í héraðinu. Eftirlitsmönnum tókst að miðla málum er í brýnu sló á milli serbneskra örygg- issveita og skæru- liða UCK á milli bæjanna Ora- hovac og Suva Reka í gær. Javier Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), varaði Serba eindregið við því að hefja sókn gegn Albönum í Kosovo- héraði. Sagði hann hemaðaraðgerð- ir nú mundu „rjúfa friðinn". „Nú á að nota tímann til þess að tryggja friðinn,“ sagði Solana við frétta- menn en hann var staddur á ráð- stefnu í Valencia á Spáni. „Eg vil taka það skýrt fram að við munum Stefnumark- andi kosningar ÍRANAR kjósa menn í sveitar- sljórnir í fyrsta sinn í dag og geta úrslitin, einkum í höfuð- borginni, Teheran, skipt miklu um framvinduna í írönskum stjórnmálum. Þar takast á harð- hnumenn, klerkarnir, sem hafa töglin og hagldirnar í stjórn landsins, og stuðningsmenn hins fijálslynda forseta, Mohammads Khatamis. Þeir boða meðal ann- ars aukið frelsi og siðað samfé- lag og segja kosningarnar vera mestu atlöguna að miðstýring- unni í landinu í 2.500 ár. ■ Geta grafið/23 ekki þola það að Serbar misnoti tækifærið og efni til ófriðar." Bandaríkjamenn sögðu í gær að Serbar hefðu flutt 4.500 hermenn, meira en 60 skriðdreka og önnur þungavopn til landamæra Kosovo. Háttsettur embættismaður hjá NATO lét hafa eftir sér í fyrradag að e.t.v. hefðu Serbar í hyggju að leggja til atlögu við Frelsisher Kosovo með það að markmiði að ráða niðurlögum hans fyrir 15. mars nk. Þá hefst önnur umferð samn- ingaviðræðna á milli UCK og stjómvalda í Belgrad. Klofningur í Frelsis- her Kosovo Yfirmaður herafla NATO, Wesley Clark hershöfðingi, lýsti einnig áhyggjum sínum yfir liðsafn- aði Serba, sem og Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, á fundi með öldungadeild- arþingmönnum. Clark hershöfðingi tók fram að ekki væri vitað hvað stjórnvöld í Belgrad hefðu í hyggju, en herafli NATO væri reiðubúinn DEILA Rússa og Bandaríkja- manna vegna samvinnu Rússa við Irana á sviði kjarnorkumála magn- aðist í gær þegar rússnesk stjórn- völd sögðust ekki geta sætt sig við að Bandaríkjamenn töluðu til þeirra á „tungumáli viðskiptaþvingana og þrýstings". Vísaði rússneska utan- að grípa í taumana ef skipanir bær- ust þar um. Serbar sögðu í gær að ásakanir um liðsafnað þeirra ættu ekki við rök að styðjast. Merki klofnings eru auðsæ á Frelsisher Kosovo að mati erlendra fréttaskýrenda. Talið er að bæði persónulegur og pólitískur ágrein- ingur valdi honum. „Einhvers kon- ar valdabarátta á sér stað innan raða Frelsishersins. Barátta sem byggist á ósamkomulagi um stefnu, persónur og baráttu á milli svæða,“ sagði vestrænn stjórnarerindreki í Júgóslavíu, sem ekki lét nafns síns getið. Hasim Thaqi, sem er 29 ára gam- all og leiðtogi hins pólitíska arms UCK, hefur haslað sér völl sem leið- togi Kosovo-Albana að undanförnu. Hann var einn af fimm fulltrúum UCK í 16 manna samninganefnd Kosovo-Albana i Rambouillet. Er sagt að hann einn hafi staðið gegn vilja hinna nefndarmannanna fimm- tán - og fengið sitt í gegn - er sett voru skilyrði við samkomulagi Al- bananna í Rambouillet. ríkisráðuneytið algerlega á bug staðhæfingum þess efnis að rúss- nesk fýrirtæki veittu Irönum um þessar mundir aðstoð til að þróa kjarnorku- og stýriflaugaáætlanir sínar. Viðskiptabann sem bandarísk stjórnvöld hafa sett á tíu rússnesk fyrirtæki og rannsóknarstofnanir var jafnframt fordæmt. Deila ríkjanna hefur m.a. orðið til þess að Bandaríkjamenn hafa hótað að beina ekki lengur viðskiptum til rússneskra geimvísindastofnana, sem að undanfömu hafa skotið gervitunglum á braut umhverfis jörðu fyrir Bandaríkjamenn. Mót- mæli Rússa nú virtust hins vegar tilkomin vegna þess að bandaríska viðskiptaráðuneytið birti nýlega lista yfir þau fyrirtæki og stofnanir sem sættu viðskiptabanni. Samtaka systur Catania. Reuters. EINEGGJA tvíburasystui' frá Italíu, sem kunnugir segja hafa verið óaðskiljanlegar allt sitt líf, sýndu enn og sönnuðu hversu samrýndar þær eru þegar þær ólu bam á nákvæmlega sömu stundu fyrr í vikunni. ítalska dagblaðið La Sicilia greindi frá því í gær að þær Ermelinda og Nuccia Nicotra, sem eru fertugar að aldri og koma frá bænum Giarre, sem stendur við rætur fjallsins Etnu á Sikiley, hefðu eignast sitt barnið hvor, strák og stúlku, nákvæmlega klukkan 14.35 á mánudag hvor í sínu sjúkrahúsinu. „Það er eins og við höfum alla tíð verið tengdar með einhverjum útvai'psbylgjum sem aðeins við getum numið,“ sagði Ermelinda við La Sicilia. Reuters Framkvæmdastjóri NATO varar Serba við því að rjúfa friðinn Mikil spenna ríkir í Kosovo-héraði Brussel, Pristina, Valencia. Reuters. Javier Soiana

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.