Morgunblaðið - 26.02.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 26.02.1999, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/ReR'nbofflnn, Sambíóin og Borgarbíó á Akureyri hafa tekið til sýninga myndina The Thin Red Line. Myndin er tilnefnd til sjö ósk- arsverðlauna, þ.á m. sem besta mynd og fyrir leikstjórn og handrit. Stríð og vinátta Frumsýning Myndin er byggð á skáldsögu eftir James Jones og segir sögu hóps bandarískra her- manna sem breytast, þjást og kynn- ast áður óþekktum þáttum í eigin fari meðan þeir taka þátt í orustunni um Guadalcanal i seinni heimsstyrj- öldinni. Sagan gerist frá því að herdeild mannanna tekur land á eyjunni til þess að leysa af þá sem fyrir eru. I myndinni er fylgst með landgöngu mannanna, sem gengur að óskum, hörðum og blóðugum orustum sem þeir heyja meðan á dvölinni stendur og loks brottför þeirra sem lifa af. Auk þess að segja sögu mann- anna sem áttu þátt í einni mikilvæg- ustu orustu seinni heimsstyrjaldar- innar í Kyrrahafí, fjallai- myndin um þau tengsl sem myndast milli manna sem mæta sameiginlega gíf- urlega erfiðum aðstæðum og mikilli illsku. Rithöfundurinn James Jones tók þátt í orustunni og lýsir tilfínninga- tengslum hermannanna á þann hátt að þau hafí þróast yfir í kærleiks- samband sem finnist í fjölskyldum. Myndin er fyrsta kvikmynd leik- stjórans Terrence Malicks í 20 ár. Hann á aðeins að baki tvær myndir sem leikstjóri og báðar eru þær róm- aðar; Badlands frá 1973 og Days of Heaven frá 1978. Malick er mynd- rænn og á stundum Ijóðrænn leik- stjóri. Hann hefur skrifað nokkur hand- rit að auki og leikið fáein hlutverk í sjónvarpi. Annars virðist Malick leggja mikla áherslu á að fá að lifa einkalífi og það er honum svo mikil- vægt að hann lætur ekki einu sinni taka við sig viðtöl til að kynna mynd- ina. Hann hefur nú verið tilnefndur til Óskarsverðlauna sem leikstjóri og höfundur handrits, auk þess sem myndin er tilnefnd sem besta mynd, og að auki m.a. fyiir tónlist, hljóð og myndatöku. Hann var í um það bil áratug að vinna aý undirbúningi The Thin Red Line. Arið 1988 keypti hann kvik- myndarétt að skáldsögu James Jo- nes og fór að skrifa handrit. „í upp- hafi ætlaði Terry bara að skrifa handritið en smám saman ákvað hann að þetta yrði næsta verkefni sitt sem leikstjóra,“ segir framleið- andinn Mike Medavoy, vinur leik- stjórans. Það var svo í september 1996 sem Fox kvikmyndafyrirtækið kom inn í myndina og gaf grænt ljós á kvikmyndagerðina og kvikmynda- tökur hófust í Astralíu. Þai' var Malick umkringdur kvikmyndagerð- arfólki, sem hafði unnið með honum við fyrri leikstjórnarverkefni. Það hefur verið til þess tekið hve vel hefur tekist til um að velja saman leikara í þessari mynd enda er Malick eftirsóttur og vinsæll leik- stjóri af leikurum. „Eg man ekki eft- ir mynd þar sem jafnmargir hæfi- leikaríkir leikarai- hafa verið til í að taka að sér hvaða hlutverk sem í boði var,“ segir einn framleiðenda, George Stevens. Nick Nolte, sem leikur Tall ofursta, segii-: „Það var einstök ánægja að vinna með Terry. Það er sjaldgæft að hann geri kvikmyndir. Þegar hann leikstýrir getur maður alveg eins átt von á að þetta sé hans síðasta mynd. Þess vegna getur hann staðið fastur á sínu.“ Woody Harrelson, sem leikur Keck liðþjálfa, segir: „Það vai' frá- bært að vinna með Terry. Mér hefur alltaf fundist að vinna við kvikmynd- ir gangi ekki upp nema fólkið, sem vinnur við hana sé eins og ein fjöl- skylda. Það er nákvæmlega þannig umhvei'fi sem Terry skapar.“ Auk þeirra, sem getið hefur verið að ofan koma m.a. John Travolta, Ben Chaplin, Jared Leto og nýliði að nafni Jim Caviezel við sögu í myndinni. Arnar, Rakel, Halldór, Solveig, Margrét Pollý, Guðrún og Hrefna Hlín. Fyrir framan eru Þóroddur og Sólveig. TÓMAS Beck og Jón Hannes í hlut- verkum Tarsans og Atla, besta vin- ar Grettis. Söngleikurinn Grettir í fönkstíl í Félagsheimili Kópavogs Þrjár þrautir þreyttar fyrir ástir Siggu I kvöld frumsýna menntskælingar í Kópa- vogi söngleikinn um Gretti í Félagsheimili Kópavogs. Dóra Ósk Halldórsdóttir hitti aðalleikara verksins, þau Þórodd Guð- mundsson og Sólveigu Jónsdóttur og spurði þau um sýninguna. SÖNGLEIKURINN Grettir er eftir þá Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin Eldjám og Egil Ólafsson og fjallar um þann foma kappa Gretti As- mundarson sem í heimi verksins er sextán ára unglingur í Breiðholtinu, en í uppfærslu Menntaskólans í Kópavogi er hann vitaskuld ungling- ur í Kópavogi. Söngleikurinn var fyrst settur upp af Leikfélagi Reykjavíkur í Austurbæjarbíói árið 1980 en frá þeim tíma hafa nokkur áhugaleikfélög tekist á við Gretti. Leikstjóri er Valur Freyr Einarsson, en 26 leikarar taka þátt í sýningunni. Hljómsveitin Jagúar sér um tónlist- ina og útsetti lögin í „fönk-stfl“. Grettir nútímans „Við erum búin að æfa stíft frá því í byrjun janúar,“ segir Sólveig Jóns- dóttir, sem leikur annað aðalhlut- verkið í söngleiknum, stúlkuna Siggu, sem hefur fangað hug Grettis. „Söngleikurinn fjallar um Gretti, og þótt vísað sé í Gretti úr íslendinga- sögunum, þá er sagan komin í nú- tímabúning. Hann verður skotinn í Siggu en hún. leggur fyrir hann þrjár þrautir sem hann þarf að leysa til að vinna ástir hennar," segir Þóroddur Guðmundsson sem fer með hlutverk Grettis. „Söguþráðurinn gengur síð- an talsvert út á það hvernig Grettir leysir þrautirnar sem felast í því að brjótast inn í sjoppu, verða mesta vöðvafjall landsins og ná heims- frægð.“ -Er hann þá stöðugt í líkams- rækt? „Neeei. Hann fer nú aðeins aðra leið, eiginlega," segir Þóroddur og verður dularfullur á svipinn. -En hvernig persóna er Grettir nútímans? „Hann er nú svolítill aumingi, hálf- gerður væskill," segir Þóroddur, „sérstaklega í byrjun. En hann verð- ur mannalegri eftir að hann leysir þrautimar sem Sigga leggur fyrir hann.“ Sólveig og Þóroddur segja að söngleikurinn sé á léttum nótum og mikið lagt upp úr söngvum, dansi og léttu gríni. Leiklistin heillar - Er þetta í fyrsta skipti sem þið stígið á fjalirnar? ÞÓRODDUR Guðmundsson og Sólveig Jónsdóttir í hlutverkum Grettis og Siggu. „Nei,“ segir Þóroddur. „Ætli þetta sé ekki í fímmta skipti sem ég tek þátt í leiksýningu. En ég hef tekið talsverðan þátt í starfí Leikfélags Kópavogs.“ -Ætlarðu að leggja leiklistina fyr- irþig? „Jahá, ekki spurning.“ Sólveig er að koma fram á sviði í fyrsta skipti en segir að undirbún- ingur sýningarinnar hafí verið alveg „ofboðslega skemmtilegur". „Við þurfum að syngja og dansa líka, en ég syng reyndar frekar lítið en Þór- oddur meira, enda syngur hann ótrú- lega vel,“ segir Sólveig sem segist hafa meiri reynslu af dansi, enda hafi hún stundað fímleika lengi. Aðspurð um hvernig frumsýningin leggist í þau segja þau bæði að þau hlakki til. „Maður er eiginlega búinn að vera spenntur í mánuð,“ segir ’þóroddur að lokum. Sporlaust Hilmars Oddssonar á myndbandi Poppstjarna í fríi á Fugley GÓÐ aðsókn var að myndinni Sporlaust þegar hún var sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Gauta- borg. En hvernig hefur gengið að koma myndinni á framfæri? „Eftir að við hættum að sýna hana hérlendis hefur hún verið sýnd á hátíðum hér og þar,“ segir leikstjórinn Hilmar Odds- son. „Svo var hún að koma út á myndbandi,“ bætir hann við. Sporlaust er í alþjóðlegri dreifingu hjá Nordisk Film og það gengur ágætlega, að sögn Hilmars. „En þetta er mynd sem er að því leytinu ólík Tárum úr steini að hún er ekki dæmigerð hátíðarmynd," segir hann. „Þar af leiðandi verður ferlið allt ann Tökum er ný- lokið á mynd með Leiklist- arskólanum að. Ég komst ekki til Gauta- borgar vegna þess að ég var í tökum á annarri mynd. Svona er þetta þegar maður sökkvir sér ofan í ný verkefni og dettur úr sambandi við gömlu börnin. En ég er glaður að heyra að þetta hafi gengið vel.“ En hvaða verkefni er Hilmar að vinna að? „Ég er að leikstýra Nemendaleikhúsinu," svarar hann. „Það er sjónvarpsmynd sem verður annað verkefni Nemendaleikhússins á þessu ári og nefnist Guð er til, og ástin. Handritið er skrifað af Illuga Jökulssyni, ég leikstýri og aðal- tökustaður er Flatey í Breiða- firði. Tökum lauk fyrir nokkr- um dögum og ég er að byrja að klippa myndina. Líkur eru á að þetta verði páskamynd Sjón- varpsins." Hann segir að myndin fjalli um poppstjörnu sem hefur komið lagi í sjötta sæti breska vin- sældalistans og fer ásamt hirð sinni á ... fjarlæga eyju sem heitir Fugley. Svo fjallar mynd- in um samskipti sljörnunnar við þá sem þar búa; árekstur tveggja heima þar sem tvenns konar gildi eru í gangi. „Þetta er kómedía með alvarlegum undirtón,“ segir Hilmar. „Mér fannst einstaklega gaman að vinna að þessu með svona skemmtilegum bekk í Leikistar- skólanum.“ HILMAR Oddsson við tökur í Flatey á Guð er til, og ástin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.