Morgunblaðið - 19.03.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 21
Svínabúið í Brautarholti kaupir sig inn í Kjötvinnsluna Esju
Aukin áhersla á úr-
vinnslu svínakjöts
DROTTNINGARSKINKA í framleiðslu. Kristinn Gylfi Jónsson, Sigurð-
ur Ólafsson og Jón Sigurðsson framleiðslustjóri standa við kassana.
SVÍNABÚIÐ í Brautarholti hef-
ur keypt sig inn í Kjötvinnslu
Sigurðar í Kópavogi. Jafnframt
hefur nafni fyrirtækisins verið
breytt í Kjötvinnslan Esja ehf.
og aukin áhersla á úrvinnslu
svínakjöts og sölu afurða á
neytendamarkaði.
Sigurður Ólafsson og íjöl-
skylda hans hefur rekið kjöt-
vinnslu undir hans nafni í tíu ár,
þar af siðastliðin fimm ár í nú-
verandi húsnæði á Smiðjuvegi
10 í Kópavogi. Starfsmenn eru
nú tuttugu. Kjötvinnslan hefur
lagt áherslu á alhliða þjónustu
við mötuneyti og veitingahús og
verið eitt af stærstu fyrirtækj-
unum á þeim markaði. Sigurður
segir að með tengslum við
Svínabúið í Brautarholti fái fyr-
irtækið góðan bakhjarl í svína-
kjötsframleiðslunni, eitt stærsta
og fullkomnasta svínabú lands-
ins. Með því að skipta við einn
öruggan framleiðanda sé auð-
veldara að tryggja gæði fram-
leiðslunnar frá upphafi til loka.
Á neytendamarkað
Jón Ólafsson í Brautarholti
og synir hans hafa unnið að
stækkun svínabúsins og er
framleiðslan að aukast. „Við
höfum haft áhuga á að tengjast
*
Ihuga
stofnun
Netsam-
taka
FYRIRTÆKI sem eiga hagsmuna
að gæta sem tengjast Netinu, eða
veraldarvefnum, íhuga að stofna
með sér hagsmunasamtök sem
myndu vinna að þeim málum sem
tengjast Netinu og vera sameigin-
legur talsmaður fyrir þau.
Hugmyndinni var varpað fram á
námstefnu sem haldin var á Hótel
Borg föstudaginn 12. mars síðastlið-
inn af Gæðamiðlun ehf og Hugviti
ehf með hinum kunna Netsérfræð-
ingi dr. Jakob Nielsen, þar sem stór
hluti þeirra sem starfa að slíkum
málum var samankominn. Parna
voru bæði aðilar frá fyrirtækjum
sem vinna að því að þróa vefsvæði,
sem og ýmsir fulltrúar stærri aðila
sem nota Netið í markaðsstarfi
sínu, og hlaut tillagan góðar undir-
tektir.
Að sögn Kjartans Guðbergssonar
hjá Gæðamiðlun er ekki enn komin
fram tillaga að nafni á samtökin, en
stefnt er að því að þau mál sem
samtökin varða skýrist innan fárra
vikna.
-------------
Axis og GKS
slíta samstarfí
AXIS húsgögn og GKS hf hús-
gagnagerð hafa slitið samstarfi um
rekstur trésmiðjunnar að Smiðju-
vegi 9 í Kópavogi, en stofnað var til
samstarfsins á tímum samdráttar í
samfélaginu.
Axis mun þann 1. apríl yfirtaka
rekstur trésmiðjunnar. í fréttatil-
kynningu kemur fram að Axis hafí
notið mikillar söluaukningar og
áætlanir geri ráð fyrir að hennar
muni njóta við á þessu ári einnig, en
fyrirtækið býður upp á íslenska
framleiðslu í fataskápum, eld-
húsinnréttingum og skrifstofuhús-
gögnum.
vinnsluþættinum betur til þess
að geta átt þátt í að fullvinna
hluta af afurðum búsins. Við
höfum góða reynslu af sam-
starfí við Sigurð og vitum að
starfsmenn fyrirtækisins búa
yfír mikilli þekkingu og að það
hefur góða stöðu á markaðn-
um,“ segir Kristinn Gylfi Jóns-
son, einn af eigendum Svína-
búsins í Brautarholti, þegar
hann er spurður um tilgang
svínabænda við að kaupa sig
inn í kjötvinnsluna.
Svínabúið keypti helming fyr-
irtækisins og á það á móti Sig-
urði Ólafssyni og íjölskyldu
hans. Samhliða breytingu á
eignarhaldi þótti eðlilegt að
breyta nafni fyrirtækisins og
varð Esjunafnið fyrir valinu.
Fyrirtækið hefur lagt áherslu á
þjónustu við mötuneyti og veit-
ingahús og nú bætist við sala
afurða svína í neytendapakkn-
ingum í verslanir.
Drottningarskinka
í búðir
„Við höfum talið að ýmsir
ónýttir möguleikar væru í sölu
svínakjöts, einkum með full-
vinnslu afurðanna, og teljum að
það muni styrkja stöðu vöru-
merkis svínabúsins, Gæða grís,
á markaðnum," segir Kristinn
Gylfí. Vörumerki búsins verður
notað samhliða vörumerki kjöt-
vinnslunnar.
Kjötvinnslan hefur á undan-
förnum árum þróað framleiðslu
á lúxusskinku undir heitinu
drottningarskinka. Hefur hún
notið vinsælda á hlaðborðum
veitingahúsanna og nú er hún
einnig á boðstólum í matvöru-
verslunum. Drottningarskinkan
er sérmeðhöndlað svínalæri, úr-
beinað, pressað, sérkryddað og
soðið við Iágan hita í langan
tíma. Hún er seld í ýmsum
stærðum og einnig er hægt að
fá hana léttreykta.
Kristinn Gylfi og Sigurður
telja líkur á að neysla svína-
kjöts haldi áfram að aukast og
mun Kjötvinnslan Esja leggja
áherslu á að nýta sér það með
því að þróa og framleiða vörur
úr svínakjöti, sem þekktar eru í
nágrannalöndunum og taldar
eru eiga erindi til neytenda á
Islandi. Ýmsar afurðir eru í at-
hugun í því sambandi, meðal
annars áleggstegundir og pyls-
ur.
Damstahl
Heildsölulager með ryðfrítt stál
föstudaginn 19. mars kl. 15.00 -19.00 að Skútuvogi 6
Við bjóðum starfsmönnum í málmiðnaðarfyrirtækjum, byggingarfyrirtækjum, hönnunar- og
ráðgjafafyrirtækjum og öðrum sem tengjast smíðum, framleiðslu, viðhaldi eða hönnun að
heimsækja okkur á nýja lagerinn okkar að Skútuvogi 6, föstudaginn 19. mars kl. 15.00 -19.00
og kynna sér starfsemi fyrirtækisins og þjónustu.
Damstahl
Damstahl hf., heildsala með ryðfrítt stál, Skútuvogi 6,104 Reykjavík. Sími 533 5700. Fax 533 5705