Morgunblaðið - 11.04.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.04.1999, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Teiknimyndasöguspuni í Norræna húsinu Söngnámskeið fyrir byrjendur INGVELDUR Ýr söngkona heldur söngnámskeið dag- ana 14. og 15. apríl fyrir byrjendur í Gerðubergi. Námskeiðin eru ætluð byrjendum á öllum aldri og eru byggð upp til að Ingveldur Yr vejta þátttakendum innsýn í grunnatriði í söng og tón- list. Morgunblaðið/Ásdís ESBJÖRN Jorsater og Bert Gradin bregða á leik. TEIKNIMYNDASÖGUSPUNI verður haldinn í Norræna hús- inu í dag, sunnudag, kl. 14 og kl. 15 í tengslum við sýninguna Myndasögur í Mýrinni sem stendur yfir til 23. maí. I fréttatilkynningu segir: „Esbjörn Jorsáter og Bert Gra- din frá Svíþjóð verða með teiknimyndasöguspuna og sýna okkur á fyndinn og skemmti- legan hátt hvernig skrípókall verður til. Bert sprellar og spinnur og Esbjörn teiknar um leið. Áhorfendur fá síðan að spreyta sig á að teikna sjálfir og búa til sína/sínar eigin per- sónur.“ Esbjörn Jorsáter er lærður teiknari og leikskólakennari og hefur fengist við teiknimyndir sl. 15 ár. Hann vinnur við „Serieskolan“ í Stokkhólmi sem hefur sérhæft sig í kennslu teiknimyndagerðar bæði fyrir börn og fullorðna. Esbjörn hef- ur kennt víða þessa list og einnig gert sjónvarpsþætti um þetta efni fyrir sænska kennslu- sjónvarpið. Bert Gradin er leikari og hef- ur unnið við teiknimyndagerð lengi en undanfarin ár hefur hann snúið sér meira að leiklist- inni og unnið aðallega sem trúður og við allskyns uppá- komur í Stokkhólmi og víðar. Bert og Esbjörn hafa unnið saman við skrípó sl. 10 ár með ýmsum hætti og teiknuðu reglulega fyrir „Dagens Nyhet- er“ og „Vár bostad" sem eru meðal stærstu blaðanna í Sví- þjóð. Verk eftir þá má sjá á sýning- unni „Norrænar myndasögur í dagblöðum" sem er í anddyri Norræna hússins og stendur til 25. aprfl. Þetta er ætlað eldri börnum og fullorðnum. Uið sttjðjum Stjörnuna * « cór STJARNAN - VALUR 12. aprií Asqarði kl. 20.00 14. apríl Valshús kl. 20.00 Ef oddaleikur: 16. apríl Ásgarði kl. 20.00 [Úrslit hefjast svo 21. apríl) Stjörnufólk, fjölmennum á úrslitakeppnina og huetjum okkar lifl til sigurs Illætum öll í bláu! llpjihitun í Stjfnmheimilimi kl. 18.30, bnðid upp aamiliismálun. IWfiK yr7 • TAm ^ -r Gorðabær ISLANDSBANKI Volkswagen Öruggur á alla vegul Landsbanki Islands Fréttir á Netinu /§> mbl.is AL.L.TAf= e/-TTH\SAT> NÝTl Mynstraður heimur MYNPLIST Listasafn ASÍ, Ás- mnndarsal, Freyjngötu MÁLVERKVALGARÐUR GUNNARSSON Til 18. aprfl. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Aðgangur kr. 200. VALGARÐUR Gunnarsson lét fyrst að sér kveða á öndverðum 9. áratugnum eins og svo margir kollegar hans og jafnaldrar. Það var í árdaga þeirrar alþjóðlegu sveiflu sem var kölluð „nýja mál- verkið" hér á landi, og boðaði skammlíft en athyglisvert andóf gegn upphafmni efnisneind hug- myndlistarinnar á ofanverðum 8. áratugnum. Þegar horft er um öxl getur maður vart varist þeirri hugsun að obbanum af þeim sem fögnuðu nýja málverkinu sem end- urlausn undan ládeyðu hugmynd- listarinnar hafí láðst að nýta sér umskiptin í þeim mæli sem efni stóðu til. Of margir listamenn tileinkuðu sér uppgang nýja málverksins til þess eins að halda til streitu „gamla góða málverkinu"; hefð eins og það var kallað þar sem ekki var bryddað upp á neinu nýju, hvorki í aðferðum né inntaki. Oðru nær var kapp lagt á straum- línulögun gagnvart markaðinum. Frelsinu og ferskleikanum sem vissulega fylgdi ieiftursókn þýskra og ítalskra listamanna beggja vegna Atlansála var ekki til að dreifa nema að litlu leyti í mynd- list íslenskra nýmálara. Sem betur fer eigum við þó nokkrar dásam- legar undantekningar frá þessari leiðindareglu; listmálara sem hafa þorað að skapa sér djarfa og per- sónulega braut í trássi við almenn- ar kröfur um litlausa meðal- mennsku. Valgarður skar sig úr sínum hópi iyrir sakir næmleiks í lit, áferð og grafískri áherslu. Verk hans voru smágerð og allfínleg; gjarnan löguð að þeim draumkenndu og frelsis- fagnandi fígúrum sem teygðu sig til og frá á myndfletinum með svif- kenndu og merkingarþrungnu lát- bragði. Með hliðsjón af eftirminnanlegri byrjun á síðasta áratug er erfítt að hrósa Valgarði fyrir þau verk sem hann sýnir núna í Ásmundarsal. I staðinn fyrir litlar, fígúratífar perl- ur með líflegri áferð og einföldu, af- gerandi litaspili, fylla nú salinn mun stæni málverk en listamaðurinn ræður við með góðu móti. Myndflet- inum er skipt upp í einingar sem eru afmarkaðar af kerfisbundnum pensildráttum sem mynda þétt og blæbrigðalaust, grafískt mynstur. Slík tækni hentar vel myndskreyt- ingum eða auglýsingaspjöldum en sómir sér ekki á striga. Til þess er hún of stöðluð og líflaus. Vissulega er það til bóta þegar Valgarður sleppir skiptingu mynd- flatarins og hverfur frá allri fígúra- sjón. Þá næst heild sem ekki er spillt af stirfinni og kerfisbundinni teikningu. Slík einbeiting að áferð- in gæti verið skref í rétta átt; í átt- ina frá þurru og auglýsingakenndu yfírbragði. Hvort listamaðurinn leitar í þá áttina eða reynir að feta sig aftur til líflegri og leikandi áferðarhátta er algjörlega undir sjálfum honum komið, en eitthvað krassandi verður hann að gera til að endurheimta horfinn anda og snerpu. Halldór Björn Runólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.