Morgunblaðið - 11.04.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 17
LISTIR
Greta Guðnadóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir
Tímarit
Tónleikar í Hvera-
gerði og Kópavogi
Morgunblaðið/Kristján
GRETA Guðnadóttir fiðluleikari og Helga
Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari.
GRETA Guðnadóttir
fiðluleikari og Helga
Bryndís Magnúsdóttir pí-
anóleikari halda tónleika í
Hveragerðiskirkju í dag,
sunnudaginn 11. apríl, kl.
14.00 og á morgun, mánu-
daginn 12. apríl, í Salnum
í Kópavogi kl. 20.30. Þær
stöllur voru á ferð um
Norðurland í vikunni og
héldu tónleika í Olafsfirði
og á Húsavík.
Greta sagði í samtali
við Morgunblaðið, að
þessi tónleikaröð væri lið-
ur í samstarfi Félags ís-
lenskra tónlistarmanna,
FÍT, og tónlistarféiaga út
um land. Hún sagði að á
tónleikunum væru leikin
verk eftir þrjá tónlistar-
menn, frá Þýskalandi, Frakklandi
og Póllandi, sem allir hafi jafn-
framt verið mjög góðir píanóleikar-
ar. Um er að ræða sónötur eftir
Ludwig van Beethoven og Francis
Poulenc og verkið Notturno e tar-
antella, eftir Karol Szymanowski.
„Þetta er fyrsta sónata Beet-
hovens fyrir fiðlu og píanó, ópus
12, númer 1 í d-dúr og er mjög
klassískt verk. Verkið eftir
Szymanowski er á austrænum
nótum en mjög skemmtilegt en
hann hefur orðið nokkuð fyrir
austurlenskum áhrifum. Poulenc,
sem hefði orðið 100 ára á þessu
ári, tileinkaði þessa sónötu skáld-
inu Fernando Garcia Lorca, sem
myrtur var í Borgarastyrjöldinni
á Spáni og er mjög áhrifamikið
verk,“ sagði Greta.
Helga Bi-yndís hefur stundað pí-
anókennslu á Akureyri og spilað
með ýmsum tónlistarmönnum en
verið í barneignarfríi í vetur en
Greta spilai- með Sinfóníuhljómsveit
Islands og er leiðari í 2. fiðlu. Þær
hafa áðm- spilað saman á tónleikum,
eða fyrir 9 árum en stilla nú saman
strengi sína á ný reynslunni ríkari.
Greta sagði alveg nauðsynlegt
að brjóta aðeins upp hefðina með
svona tónleikahaldi. „A svona tón-
leikum er maður sjálfs sín herra
og ræður verkunum sem flutt eru
en í Sinfóníunni er það stjórnand-
inn sem ræður. Það er því gott að
vera svolítið sjálfstæð af og til.“
• ARCHAELOGIA Islandica
fyrsta hefti tímarits Fornleifastofn-
unar íslands er nú komið út. í
þessu fyrsta hefti tímaritsins er
m.a. að finna yfirlitsgrein um sögu
fornleifaskráningar á Islandi og
hugleiðingu um rannsóknargidli
fornleifaskráningar. Stærsti hluti
ritsins er helgaður fornleifarann-
sóknum á fornbýli á Hofstöðum í
Mývatnssveit og er gerð grein fyrir
niðurstöðum undirbúningsrann-
sókna sem fram fóru á árunum
1991-1995 og greint fi-á ýmsum
nýjum aðferðum sem beitt hefur
verið við rannsóknimar síðan 1996.
Þá eru í tímaritinu ritdómar um ný-
legar bækur á sviði íslenskrar fom-
leifafærði og skýrsla um starf
Fornleifastofnunar Islands frá upp-
hafi.
Tímaritið er á íslensku og ensku.
Ritstjóri tímaritsins er dr. Gavin
Lucas og ritstjóm skipa Adolf Frið-
riksson, Garðar Guðmundsson og
Orri Vésteinsson.
Fyrirhugað er að tímaritið komi
út einu sinni á ári.
í kynningu segir: „Hvatinn að út-
gáfu tímaritsins er m.a. sú mikla
gróska sem er í íslenskri fornleifa-
fræði. Mikilvægt er að skapa vett-
vang fyrir alþjóðlega umræðu á
sviði íslenskrar fornleifafræði,
miðla árangri íslenskra fomleifa-
rannsókna til hins alþjóðlega vís-
indasamfélags og skila erlendri um-
fjöllun um íslenskar fornleifar til
Islendinga."
Utgefandi er Fornleifastofnun
íslands.
59 mb l.is
ALUrAf= GtTTH\4\£? HÝTl
Nýkomin sending af StÓr glæsílegum ítölslcum
usqogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
Verslunin
Asgeir G. Gunnlaugsson & co
Skipholti 9, sími 551 3102
Nýjar vörur Mikið úrval
LIF • STARF • NAM
í BANDARÍKJUNUM
50.000 innflytjendaáritanir (Green Card) eru í boði í nýju
ríkishappdrætti „U.S. Governmerrt Lottery". Möguleiki
á ríkisborgararétti. Ókeypis opinb. uppl. um happdrættið.
Sendið aðeins póstkort með nafni og heimilisfangi til:
4200 WISCONSIN AVENUE N.W.
WASHINGTON, D.C. • 20016 U.S.A.
______________Fax: 001 202 298 5601 • Sími 001 202 298 5600
01997 IMMIGRATION SERVICES WWW.dV-2001.COm.
NATIONfll^
VISA SERVICÉ
HÁTÍÐARFATNAÐUR
herradeild, Laugavegi, sími 511 1718,
herradeild, Kringlunni, sími 568 9017.
Hátíðarföt m/vesti
100% ull kr. 22.900
Tölur á vesti
þrykktar með íslenska
skjaldarmerkinu
Stærðir 46—64
ISLENSKRA
KARLMANNA
Ný sending
Pantanir óskast sóttar
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið
var að framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að
íslenskir karlmenn óski
að klæðast búningnum
á tyllidögum svo sem
við dtskriftir, giftingar,
á 17. júní, við opin-
berar athafnir hérlendis
og erlendis og við öll
önnur hátíðleg
tækifæri.
johann strauss