Morgunblaðið - 11.04.1999, Side 29

Morgunblaðið - 11.04.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 29 samfara þessu neitað tilvist ýmissa þekktra króatískra og múslamskra höfunda. Námsdeildir lagðar niður Námsdeildum hefur einnig fækk- að til muna og hefur deild saman- burðarbókmennta til að mynda að mestu verið lögð niður og því lýst ít- rekað yfir, m.a. af Miru Markovic, eiginkonu Milosevic, og Vojislav Seselj, aðstoðarforsætisráðherra, að serbnesk fræðimennska hafi beð- ið hnekki frá „fimmtu herdeildinni". Með fimmtu herdeildinni er átt við „óvini fóðurlandsins [Serbíu] sem eru undir áhrifum vestrænnar menningar." Fráfarandi deildarforseti þessar- ar deildar, Vladeta Jankovic, sem er stjórnarandstæðingur og stofnandi Lýðræðisflokks Serbíu, hafði þetta um aðgerðina að segja: „Ég er hræddur um að mínar stjómmálaskoðanir séu ástæðan fyrir því að deildin varð svona illa úti.“ En Jankovic var rekinn úr starfi í nóvember sl. Það að virða tjáningarfrelsi há- skólakennara að vettugi með því að reka þá úr starfi, hrekja þá burt eða áreita þá á annan hátt vegna and- stöðu þeirra við ríkisstjórnina brýt- ur í bága við alþjóðlegan sáttmála um borgaraleg og pólitísk réttindi, sem Júgóslavía er aðili að. Laga- setningin er einnig á skjön við stjórnarskrá Serbíu þar sem kenn- urum er sagt upp þrátt fyrir að fyr- ir liggi eldri starfssamningur. Andspyrnuhreyfing gegn háskólalöggjöfinni Nemendur og kennarar hafa sett á stofn andspymuhreyfmgu gegn löggjöfinni og hertum aðgerðum stjómvalda. Til að mynda hafa námsmenn gengið í mótmælagöngu þar sem þeir eru merktir númerum til að vekja athygli á því sem þeir kalla „fangelsisrist þeima í eigin landi“. Mótmælaaðgerðimar hafa hins vegar farið fram á minna áber- andi hátt sl. mánuði þar sem rið- brögð stjórnvalda verða sífellt harð- ari. Sem dæmi voru fjórir nemendur teknir höndum 4. nóvember sl. af fimmtíu vopnuðum lögreglumönnum auk nokkurra leynilögreglumanna íyrir að mála merki andspymuhreyf- ingarinnar á vegg í Belgrad. Námsmennirnir voru dæmdir í tíu daga fangelsi eftir réttarhöld, sem haldin voru í beinu framhaldi af handtökunni, fyrir að „sýna stefnu serbneskra stjórnvalda óhlýðni". Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna fylgdist náið með hand- tökunni og réttarhöldunum og lýsti óánægju sinni yfir dómnum, af þri er upplýsingaskrifstofa andspyrnu- hreyfmgarinnar, Otpor, skýrði frá. Andspyrnan orðin að kæfðu ópi Kjör almennings í Serbíu hafa versnað jafnt og þétt síðustu ár og sífellt færri hætta á að missa rinn- una, vera fangelsaðir eða líflátnir vegna mótmæla þeirra rið ríkis- stjórnina. Aðrir eru einfaldlega orðnir vonlitlir um árangur and- spyrnu þeima sem rirðist leiða til aukinnar kúgunar yfirvalda gegn almenningi. Aðgerðirnar hafa einnig haft það í fór með sér að fjöl- margir kennarar og aðrir mennta- menn hafa flúið Serbíu. Meðal þeirra kennara sem undir- ritað hafa starfssamninginn, em margir sem ekki eru fylgjandi stefnu stjómvalda. Þeir telja hins vegar, að undirriti þeh' ekki samninginn geti það haft verri afleiðingar í fór með sér þar sem óhæfir einstaklingar komi að öllum líkindum í þeima stað. Segjast þeir vonast til að ástandið líði hjá og að fi'amundan séu bjartai-i stjórnartímai' sem hafi í for með sér að sú lýðræðisþróun sem átt hafði sér stað í Serbíu áður en Miloseric komst tO valda, taki sig upp á ný. Sem stendur er ekki hægt að segja til um frekari afleiðingar og eftirmála laganna þar sem öllum skólum í Belgrad hefur verið lokað vegna loftárása NATO. • Heimildir: Human Rights Watch, Chronicle of Higher Education, Financial Times, The Wall Street Journal, Time Atlantic, Belgrad Circle. & GÓLFEFNABÚÐIN Borgartáni 33 íjjiæða flísar iTÍyæða parket ^yóð verð ^yóð þjónusta No^ StórtiQundi! 2 Nýjasti GSM- farsíminn frá SSiemens, C25, erkominn! yj «— Lítill, léttur, ódýr og ómót- stæði- legur! Ftétt stærð C25 SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 105 REYKJAVlK SÍMI 520 3000 FAX 520 301 1 www.sminor.is (í Q4> . 2«: f3 cli (4 6Hl ( § JU 6“"° : o + ■ 23.655 Ur. leí? í l5orffíirne-? Blóðbankinn verður með blóðsöfnun og skráningu nýrra blóðgjafa í Borgarnesi, þriðjudaginn 13. apríl kl. 10-18 í húsi Björgunarsveitarinnar Brákar. Blóðgjöf er lífgjöf! CélBLÓÐBANKINN ^ - gefðu með hjarta anu! Kaupendahegðun og nýit verslunarhættir ÞÆGINDAVERSLUN FRAMTÍÐARINNAR Fimmtudagur 15. apríl Kl. 09:00-13:00 Staður: Hótel Loftlelðir, Þingsalur 1 Hveinig á að stjórna í verslun framtíðarinnar? Samkeppnishæfni fyrirtækja byggist að miklu leyti á þekkingu“Búið ykkur undir að verða hrist óþyrmilega” segir Jef Harris, einn athyglisverðasti ráðgjafi og fyrirlesari um nútímaverslun, um væntanlega námstefnu þar sem fjallað verður um kaupendahegðun og nýja verslunarhætti. Jef Harris dregur ályktanir sínar af yfirgripsmiklum rannsóknum á viðskiptavinum verslana í 25 ár, að viðbættum nýjum rannsóknum á 50 þúsund kaupendum, yfir 5 þúsund starfsmönnum og nær 2 þúsund stjórnendum eða eigendum hraðbúða/þægindaverslana. Þarfir og forgangsröðun kaupandans virðast ekki vera svo ólík á milli landa, miðað við greiningarvinnu Jef Harris og félaga. Hann mun sýna margsönnuð viðhorf kaupenda sem koma mörgum reyndum verslunarmönnum á óvart. Þessar kannanir byggja á skoðun á breskum kaupendum í gegnum tvö leitarkerfi sem fyrirtæki hans vinnur með. Frá þeim straumum sem þar hafa greinst, fylgja spár sem ítrekað hafa hitt í mark. Þær varða breytingar á innkaupum og innkaupahegðun og hvernig kaupmenn eiga að bregðast við til að ná að stjórna verkefninu og ná betri árangri. Þessi námstefna er hlaðin einstæðum upplýsingum um kaupendahegðun, leiðina til framtíðar og hvernig hin nýja verslun getur styrkt stöðu sína. Um fyrirlesarann: Á Interfair ’98, sem haldin var í Danmörku í október s.l„ þóttu skilaboð eins fyrirlesarans bera af öðrum ágætum fyrirlestrum. Þetta var Jef Harris frá HIM í Bretlandi. Stjórnunarfélag íslands hefur boðið honum hingað til að kynna efni sitt ítarlegar en gert var í Danmörku. Jef er eigandi ráðgjafafyrirtækisins Harris International Marketing, í Bretlandi. Eina verkefni þessa fyrirtækis er að einbeita sér að hegðun kaupandans og læra að lesa úr henni líklegustu framtíðarmyndina. HIM er er hluti af Ebeltoft Group, alþjóðlegu ráðgjafaneti sem einbeitir sér að smásöluverslun og þjónustuiðnaði. Ráðgjafasérstaða Jef Harris er ekki síst hin einstæða áhersla á kaupendur og innkaup. Hann hefur áratugareynslu af ráðgjöf til kaupmanna og framleiðenda er byggir á mjög ítarlegum greiningarverkefnum, sem fyrirtæki hans hefur unnið. Fyrirtæki hans býryfir 10 milljón “kaupendaviðtölum”. Þessi reynsla kemur ekki aðeins frá Bretlandi, heldur víða að í gegnum Ebeltoft Group, og m.a. frá Danmörku. Skráning og nánari upplýsingar í síma: 533 4567 og www.stjornun.is Stjórnunarfélag íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.