Morgunblaðið - 11.04.1999, Page 39

Morgunblaðið - 11.04.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 39*' + Tómas Sigxir- jónsson fæddist á Minni-Bæ í Grúns- nesi 3. október 1922. Hann andað- ist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Foss- vogi 20. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurjón Jónsson og Guðrún Guðmunds- dóttir, ábúendur á Minni-Bæ. Hann var næstyngstur sextán systkina. Eftirlif- andi eru fimm þeirra. Hinn 18. maí 1946 kvæntist Tómas eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Oskarsdóttur, f. 14. ágúst 1924, og er hún dóttir hjónanna Óskars Gíslasonar og Pétrúnar Þórarinsdóttur, ábú- enda á Hellu í Bervík á Snæ- fellsnesi. Tómas og Jóhanna eignuðust sjö börn: 1) Andvana dóttir, f. 2. desember 1945. 2) Nú þegar kveðjustundin er runn- in upp vil ég með fáum orðum minnast tengdaföður míns og vinar. Tengdapabbi var einn af nemend- um gamla skólans sem nú eru óðum að týna tölunni. Hann var einn af Guðrún Björg, f. 17. nóvember 1946, gift Hjálmtý Axel Guð- mundssyni og eiga þau fímm börn. 3) Birgir Már, f. 21. mai 1950 og á hann þrjú börn, þar af eitt með sambýlis- konu sinni Britt Ylvu Susan Löff. 4) Sigríður Guðlaug, f. 16. september 1954, gift Jóni Christen- sen og eiga þau þijú börn. 5) Óskar Pét- ur, f. 29. janúar 1956, kvæntur Fjólu Bender og eiga þau þijú börn. 6) Jón Ingi, f. 12. desember 1960 og á hann þijú börn, kvæntur Erlu Guðna- dóttur. 7) Tómas Sigurjón, f. 12. júní 1962, kvæntur Laufeyju Benediktsdóttur og eiga þau þijú börn. Útför Tómasar fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 26. mars. þeim sem horfðu á lífsgæðakapp- hlaupið úr fjarlægð og henti gaman að þátttakendum þess. Hans kapp- hlaup var að brauðfæða stóra fjöl- skyldu, það var hans sómi. Og þrátt fyrir að annar fótur hans væri styttri vdr gengið til allra verka. Nánast allan sinn starfsdag vann hann við ullarvinnslu. Að standa við kembivélamar allan daginn hentaði ekki manni sem þurfti að mestu leyti að treysta á annan fótinn, en þrátt fyrir það var ekki kvartað. Kjamgóður sveitamaturinn úr Grímsnesinu hafði byggt upp hraustan líkama sem vann upp á móti fötluninni og svo var það góða skapið, það létti ekki aðeins lífsbar- áttuna heldur laðaði ungviðið að honum. Barnabörnin og barnabama- börnin áttu alltaf hauk í horni þar sem afi var. Þau yngri vissu um nammidósina sem alltaf var á sín- um stað en þau eldri ræddu málin við hann og þá var kynslóðabil ekki til, hann skildi þau og þau skildu hann. Fyiir um það bil fjóram áram fór heilsan að gefa sig en alltaf bar hann sig vel og alltaf var létta lund- in til staðar. Fram til hinstu stund- ar var gert að gamni sínu. Og nú þegar komin er kveðju- stund og okkur sem eftir sitjum sem ekki er gefið að sjá yfir móð- una miklu þá er bara að láta hug- ann reika og sjá hann tengdapabba spá í bolla, kíkja í lófa eða dunda sér við eitthvað af þessum áhuga- málum sínum. En leið okkar allra á eftir að liggja þangað og þá komumst við að hinu sanna. Þang- að til, tengdapabbi, takk fyrir vin- áttu þína í þessu jarðlífi. Megi guð blessa minningu þína. Axel. TOMAS SIG URJÓNSSON T Aðalbjörg Guð- " mundsdóttir fæddist á Gilsár- stekk 25. nóvember 1908. Hún lést á Eskifirði 1. mars. síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Eskifjarðar- kirkju 9. mars. Mig langar til að minnast minnar góðu vinkonu, Aðalbjargar Guðmundsdóttur frá Eskifirði, með fáeinum línum, þótt nokkur tími sé liðinn síðan hún lést. Ég vissi lítið um hana annað en það að móðir mín var í bréfaskriftum við konu austan af landi, nánar tiltekið frá Eskifirði, í nokkur ár. Tildrög þess að þær kynntust vora þau að móðir mín lenti í bílslysi seint í nóvember 1968. Mamma var lögð inn á Landakots- spítala og var á stofu þar sem Aðal- björg lá. Mamma fékk afar slæmt höfuðhögg, var nær óþekkjanleg í andliti, svo mikil var bólgan. Þrátt fyrir þetta slys komst mamma heim til sín fyrir jól sem var okkur bömum hennar gleði- leg jólagjöf. Eitt varð mömmu undranarefni: Að fá jólakort með jólakveðju ásamt ósk um góðan bata frá Að- albjörgu - þessari ókunnu konu sem hún dvaldi aðeins með á sjúkrahúsi í nokkrar nætur, en Aðalbjörg hafði fótavist á spítal- anum og útskrifaðist nokkru síðar. Eftir að mamma fékk bréfið frá Aðalbjörgu urðu þær pennavinir, því mamma var fljót að senda henni línu með þökk fyrir þessa hlýju kveðju, þótt hún hefði varla þrek eða mátt til þess, svo máttfarin var hún eftir þetta slys. Nokkrum áram seinna fékk mamma áfall, hjartakast, gat ekki skrifað svo hún bað mig að skrifa fyrir sig og segja Aðalbjörgu frá heilsufari sínu. Eg gat ekki neitað mömmu um það, sem ég tel að hafi jafnframt orðið mér til mikillar gæfu því við urðum góðar vinkonur í gegnum þessar bréfaskriftir. Nú síðustu árin voram við Aðalbjörg latar við skriftirnar, höfðum símann sem var mun þægilegri og persónu- legri. Við höfðum ekki sést nema þrisvar fjórum sinnum að mig minn- ir öll þessi ár okkar. Hinn 28. febrúar sl. talaði Aðal- björg við mig, en svo illa stóð á að þann dag var ég ansi mikið veik svo samtalið var stutt. Aðalbjörg sagð- ist tala við mig næsta dag til að vita hvernig mér liði. Hún hringdi aldrei þann dag, og fannst mér það ólíkt henni að standa ekki við orð sín. I dánartilkynningum útvarpsins heyrði ég lát hennar. Ég trúði í fyrstu ekki mínum eigin eyrum, hélt jafnvel að mér hefði misheyrst. Hún dó þann dag sem ég bjóst við símtali frá henni. Ég kveð hana með sárum söknuði og einnig er minning mín um hana mér ógleym- anleg. Hafi hún hjartans þökk fyrir allar hennar góðu óskir og bænir mér til handa. Guð blessi minningu hennar. Þín vinkona, Gíslína (Didda). AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR ÁSTA GARÐARSDÓTTIR + Ásta Garðarsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 12. maí 1965. Hún lést á Landspítalanum 27. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Landakirkju 3. apríl. Ég trúði því ekki fyrir nokkrum dögum þegai- pabbi sagði að Ásta frænka ætti aðeins nokkra daga ólif- aða. Ég hugsaði bara: „Þessir lækn- ar vita ekkert, hún læknast öragg- lega bráðum. Hún fer bara í geisla eða verður skorin upp og læknast við það.“ Alla vikuna gat maður samt ekkert gert annað en beðið til Guðs og vonað að enginn myndi hringja með vondar fréttir, og alltaf hrökk maður við þegar síminn hringdi. En svo kom sjokkið í gær á afmælinu hans afa, Asta var dáin, ég fékk sting í magann og hugsaði nei, þetta er bara vitleysa, það átti ekki að gerast. Pabbi ætlaði að tala við þennan og hinn og redda þessu öllu. Svo fer maður að hugsa: Af hverju, af hverju hún? Það var aðeins fyrir Qóram áram að ég stóð í sömu spor- um. Bergrún vinkona mín lést aðeins 36 ára frá tveimur börnum, þá sátum við yfir henni ég, dóttir hennar og sonur, þetta var líka í mars. Ásta var alveg yndisleg mann- eskja og ég þakka henni fyrir allt sem hún kenndi mér. Ég er svo ánægð yfir að þú gafst þér tíma til að líta aðeins til mín og sjá nýju frænk- una þína, Alexör.dru Rán. Þá varstu búin að sjá bæði afabörnin hans Sigga bróður þíns. Ég gleymi ekki fyrstu skiptunum sem ég man eftir mér. Þá var ég sem oftar hjá ömmu og var uppi í herbergi með Ástu á Illugagötunni, sat hjá henni og ég hugsaði: „Voðalega ætli það sé erfitt að vera táningur og þurfa alltaf að bera þessi krem framan í sig.“ Svo man ég eftir að það var þvflíkt reynt að troða ofan í mig kjöti með fitu, en ég vildi það alls ekki, þá var sagt: „Hún er bara að herma eftir Ástu frænku að vflja ekki fituna.“ Svo þegar ég fór að eldast hitti ég hana miklu meira, t.d. þegar hún, Kalli og Bjöm Ivar komu til Reykja- víkur vegna þess að Kalli átti eftir að klára læknanámið. Þá voru þau Björn ívar yfirleitt svona eins og pabbi segir, heimaalningar hjá okk- ur, því Kalli var í erfiðu námi og þurfti oft næði til að lesa. Svo gleymi ég ekki góðu stundun- um uppi í sumarbústað með þeim. Eitt skiptið er mér minnisstætt, þeg- ar Ásta var í sólbaði og var of lengi og brann. Þá var hún ekki ráðalaus í bústaðnum og bar á sig jarðarberja- jógúrt til að brenna ekki meira, ekki man ég hvort það dugði eitthvað, en það kældi vel. Þegar svona yndisleg og ung kona deyr úr svona hræðilegum sjúkdómi er maður orðlaus og sár, og ef maður hugsar aðeins meira, þá ætti maður að finna til smáléttis af því að öllum sársaukanum sem hún þurfti að ganga í gegnum er nú lokið. En það versta núna er allur sárs- aukinn sem Kalli, Björn ívar, Berg- lind, afi, amma og öll fjölskyldan er að ganga í gegnum. Vertu sæl, elsku Ásta mín, ég gleymi þér aldrei. Megi góður Guð taka vel á móti þér. Ég veit líka að Þórhallur bróðir minn tekur vel á móti þér. Svo vil ég biðja góðan Guð að styrkja okkur öll í þessari miklu sorg. Ásta Salný, Viðar Snær og Alex- andra Rán Viðarsdóttir. + Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐMUNDUR ÁSGEIRSSON pípulagningameistari, Sörlaskjóli 70, Reykjavík, lést að morgni skirdags. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 12. apríl kl. 13.30. Ingibjörg J. Jónsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Guðrún Úlfhildur Ömólfsdóttir, Jóna I. Guðmundsdóttir, Soffía R. Guðmundsdóttir, Ólafur Jónsson, Guðmundur Kari Guðmundsson, Bippe Morke, Þórunn B. Guðmundsdóttir, Runólfur Smári Steinþórsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANSÍNA BJARNADÓTTIR, lést á heimili sínu sunnudaginn 4. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 12. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar eru afbeðnir en þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, láti Krabbameins- félag íslands njóta þess. Sturlaugur Jón Einarsson, Valgerður Þóra Guðbjartsdóttir, Elísabet Sigrún Einarsdóttir, Bjarni Júlíus Einarsson, Margrét Sigurðardóttir, Einar Einarsson, Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, SVEINN JÓNSSON vélstjóri, Breiðagerði 7, Reykjavfk, lést á Hrafnistu laugardaginn 3. apríl sl. Jarðarförin auglýst síðar. Ester Sigurbjörnsdóttir, Ólafía Sveinsdóttir, Haukur Sveinsson, Jón Árni Sveinsson og fjölskyldur. + Elskuleg móðursystir okkar, MAGNEA S. HALLDÓRSDÓTTIR, áður til heimiiis á Kaplaskjólsvegi 1, sem andaðist sunnudaginn 4. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Dóra Gunnarsdóttir Jónasson, Hilmar Gunnarsson. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, sonarsonur, tengdasonur, bróðir og mágur, JÓN STEFÁNSSON, Tindum 1, Kjalarnesi, sem lést af slysförum laugardaginn 3. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu- daginn 12. aprfl kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands. Herdís Guðjónsdóttir, Jón Sveinbjörn Jónsson, Stefán Atli Jónsson, Marteinn Helgi Jónsson, Sigríður Sveinsdóttir, Stefán Jónsson, Jón Stefánsson, Nina Schjetne, Guðjón Haraldsson, Anna Björg Stefánsdóttir, Eiður Kristinsson, Sveinn Stefánsson, Dagný Arnþórsdóttir, Súsanna Harpa Stefánsdóttir, Helga Guðjónsdóttir, Geir H. Geirsson, Marta G. Guðjónsdóttir, Kristján H. Guðbrandsson, Haraldur H. Guðjónsson, Leífur Guðjónsson, Helga Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.