Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
MENNTUN
Kennslubók Kynnumst Suðurnesjum er kennslubók sem gerir náttúrufari Suðurnesja skil. Bókin er á
tveimur tungumálum og í vandaðri útgáfu. Gunnar Hersveinn las bókina og hitti ritstjóra hennar að máli. Suð-
urnes leyna á sér fyrir mikla náttúrufegurð: Fuglabjörg, jarðvegsmyndanir, eldgíga og sandeyðimörk.
Athyglisvert
náttúrufar á
Suðumesjum
• Yst á skaganum skríður Atlantshafs-
hryggurinn á land
• Bókin er með litmyndum og allan
texta á ensku og íslensku
ASUÐURNES leggja flest-
allir íslendingar leið sína
og á flugvöllinn fara um
milljón farþegar árlega.
Suðurnes eru aðeins um 1-2% af flat-
armáli ísiands, en þar og á suðvest-
urhomi landsins búa um 70% þjóðar-
innar. Suðumes er á Reykja-
nesskaga og er mjög áhugavert
svæði m.t.t. jarðfræði, veðurfars,
gróðurs, dýralífs og sögu og þar eru
einnig áhugaverðar útivistarleiðir.
Suðurnes er dæmi um svæði með
faldri fegurð því þótt flestir eigi þar
leið nota ef tii vill fæstir tækifærið til
að njóta þess. Ný kennslubók varpar
góðu ljósi á Suðumes.
Bókin er bæði á ensku og íslensku
og heitir Kynnumst Suðumesjum,
íræðsluefni um náttúru og sögu og
Exploring Sudurnes Iceland, An En-
vironmental Handbook. Kristján
Björn Þórðarson hannaði þannig að
á blaðsíðum bókarinnar eru iðulega
litmyndir á vinstri síðu, enski textinn
á efri hluta hægri síðu og íslenski á
þeim neðri með orðaskýringum á
spássíu.
Nemendur í skóla varnarliðsins á
Keflavíkurvelli munu læra bókina.
Hún verður einnig notuð í grunn-
skólum á Suðurnesjum og stendur
reyndar öllum áhugasömum kennur-
um um Suðumes til boða sem
kennslubók. Hún er líka hugsuð sem
fræðslu- og kynningarefni fyrir íbúa
svæðisins, ferðamenn og aðra sem
áhuga hafa á náttúm þessa svæðið.
Hún er gefin út af umhverfisdeild
flotastöðvar varnarliðsins í Keflavík.
Hún fæst ekki í búðum - heldur án
endurgreiðslu hjá þessari deild.
„Einn meginkostur hennar er að
vera tvítyngd,“ segir Ingvi Þor-
steinsson náttúrufræðingur og rit-
stjóri bókarinnar, „sambærilegar
bækur hafa verið gerðar fyrir banda-
rískar varnarstöðvar í Portúgal,
Þýskalandi og á Spáni.“ Bækurnar
eiga þó aðeins það sameiginlegt að
vera á tveimur tungumálum, efnis-
tökin em önnur og hönnunin ný í
hverri bók. „Við lögðum einnig sér-
staka áherslu á góðar ljósmyndir og
prentun (Steindórsprent Guten-
berg),“ segir Ingvi.
Stærsta fuglabjarg Evrópu?
I bókinni er fjallað um ýmsa um-
hverfisþætti Suðurnesja og einnig um
ísland almennt. Ingvi Þorsteinsson
og Haukur Jóhannesson jarðfræðing-
ur skiifa kafla um Island. Haukur rit>
ar um jarðfræði Reykjanesskaga,
Þóranna Pálsdóttir veðurfræðingur
um veðurfai-, Ingvi um jarðveg og
gróður, Páll Hersteinsson prófessor
um dýralíf, Bjami Guðmarsson sagn-
fræðingui- um söguna og Friðþór Ey-
dal upplýsingafulltrái um vamarstöð-
ina og Keflavíkurflugvöll.
Ingvi, sem á ættir að rekja í Garð-
REYKJANESVITI um sólsetur.
Morgunblaðið/Sverrir
INGVI: „Suðurnes bjóða upp á merkilega náttúru," segir hann, „t.d.
fuglabjörg og sandstrendur með fjölbreyttum hryggleysingjum."
inn, ritar einnig um áhugaverðar
leiðir á Suðurnesjum. „Suðumes
bjóða upp á merkilega náttúra,“ seg-
ir hann, „t.d. fuglabjörg og sand-
strendur með fjölbreyttum hrygg-
leysingjum.“ Hann nefnir einnig at-
hyglisverð náttúrafyi’irbrigði: Jarð-
fræðimyndanir, eldgíga, víðáttumikla
sandeyðimörk, háhitasvæði, sem nýtt
var til framleiðslu á náttúralegu sjáv-
arsalti, auðugt fuglalíf, fuglaberg,
sjávarlón, fagurt umhverfi vitans og
víðáttumikið útsýni.
Ein af vettvangsleiðunum sem
Ingvi skrifar um liggur til austurs frá
Grindavík til Kiýsuvíkur. Þar er
Krýsuvíkurberg, sem er eitt af
stærstu fuglabjörgum landsins og
sennilega alh’ar Evrópu.
„Atlantshafshryggurinn gengur á
land á Reykjanesi," segir Ingvi.
Hann vitnar í jarðfræðina og að
Reykjanesskaginn sé háhitasvæði en
einkenni þess eru gufuaugu, leir- og
brennisteinshverir. I Krýsuvík eru til
dæmis leirhverir og gufuaugu en í
þeim sést gulur brennisteinn.
Veður, gróður,
dýralíf, saga
1. Veðrið á Suðurnesjum er tvísýnt
eins og annars staðar á landinu en
Þóranna Pálsdóttir segir samt um
það: „Breytileiki er mikill í veðráttu
Suðumesja. En þegar á heildina er
litið er þetta veðursvæði með þeim
mildari á landinu." (Bls. 59.)
2. Endurheimt gróðurs á Suður-
Mikill áhugi á fram-
haldsnámi við KHÍ
Tímarit
• 2. TBL. Uppeldis 1999 er
komið út. Blaðið er litprentað
og kennir ýmissa grasa í efn-
isvali.
Þar má telja meðal annars
tengsl móður og barns, hvaða
áhrif hafa þau á heilaþroska
bamsins, sagt frá námskeið-
inu Börn eru líka fólk, sem
Stefán Jóhannsson fjölskyldu-
ráðgjafi stendur fyrir, en þar
er bömum kennt að tilfinning-
ar séu eðlilegar og að börn
geti ekki borið ábyrgð á hegð-
un foreldra sinna.
Það fæðast ekki öll börn
heilbrigð, en hvað með foreld-
rana? Hugsar einhver um þá?
Guðrán Bryndís Karlsdóttir,
sjúkraliði og móðir, segir frá
reynslu sinni eftir að barn
hennar greindist einhverft.
Auður Haralds rithöfundur
liggur ekki á skoðunum sínum
frekar en fyrri daginn og svo
er það hann Höskuldur litli
sem hefur gíraffa í svefnher-
berginu sínu, en honum þykir
afar vænt um frumskógardýr
af öllum gerðum.
Af öðra efni má nefna tón-
list fyrir alla, ungbarnanudd,
baðað í fótu og viðtal við þau
Vöndu Sigurðardóttur, þjálf-
ara meistaraflokks kvenna hjá
KR og Jakob Frímann Þor-
steinsson, fræðslustjóra hjá
ITR, sem nýverið eignuðust
sitt fyrsta barn.
FRAMHALDSDEILD hins nýja
Kennaraháskóla Islands býður
þeim stéttum sem skólinn þjónar
framhaldsnám á nokkram náms-
brautum. 170 nemendur stunda nú
nám við deildina, ýmist í fjarnámi
eða staðbundnu námi. Unnt er að
ljúka framhaldsnámi við Kennara-
háskólann með tvennum hætti,
formlegri viðurkenningu (diplómu)
eða meistara-prófi (M.Ed.). Alls
hafa tuttugu nemendur lokið
meistaragráðu frá skólanum.
í febrúar síðastliðnum voru aug-
lýstar sjö námsbrautir og við það
miðað að bjóða 60-70 kennurum og
þroskaþjálfum að hefja framhalds-
nám næsta haust.
Eftirfarandi námsbrautir voru
auglýstar:
* Böm og unglingar með sér-
þarfir í skóla og samfélagi (30 ein-
inga fjarnám, tvö ár), námsbraut
sem einkum er ætluð leikskóla-
kennuram, grunnskólakennuram
og þroskaþjálfum.
* íslenskukennsla (15 eininga
fjarnám, eitt ár), einkum ætluð ís-
lenskukennurum í grann- og fram-
haldsskólum.
* Stjómun (forysta, þróunar-
starf, matsfræði og gæðastjórnun;
30 eininga íjarnám, tvö ár eða stað-
bundið nám, eitt ár). Námið er ætl-
að skólastjóram og stjómendum
deilda og stofnana, fag- og ár-
gangastjóram, ráðgjöfum, kennur-
um og þroskaþjálfum sem stefna á
stjómunarstörf.
* Tölvu- og upplýsingatækni (15
eininga fjarnám, eitt ár). Náminu
er einkum ætlað að mennta frum-
kvöðla í upplýsingatækni í skóla-
starfi sem geta skipulagt og unnið
að framkvæmd upplýsingamála í
skóla- og uppeldisstofnunum og
leiðbeint samstarfsfólki um notkun
á tölvum og upplýsingatækni.
* Uppeldis- og kennslufræði (30
eininga fjarnám, tvö ár). I náminu,
sem ætlað er öllum starfsstéttum
sem Kennaraháskólinn þjónar, er
leitast við að dýpka þekkingu og
skilning á undirstöðuatriðum upp-
eldis og menntunar, s.s. uppeldis-
heimspeki, uppeldissögu, uppeldis-
sálarfræði og námskrárfræðum.
* Þroskaþjálfun fullorðinna (30
eininga fjarnám, tvö ár), einkum
ætlað þroskaþjálfum.
* Meistaranám til M.Ed.-prófs
(30 eininga fjarnám, tvö ár).
Greinilegt er að framhaldsnámið
hefur vakið mikinn áhuga því alls
bárast 258 umsóknir og hafa um-
sóknir um framhaldsnám aldrei
verið fleiri.
Um námið sóttu 39 leikskóla-
kennarar, 34 þroskaþjálfar, 141
grannskólakennari, 30 framhalds-
skólakennarar, 7 sérkennarar og 7
með aðra menntun. I þessum hópi
era margir skólastjórar og stjórn-
endur stofnana fyrir fatlaða.
Mestur áhugi er á tölvu- og
upplýsingatækni, en þá náms-
braut völdu 66. Þá er mikill áhugi
á stjórnun, en um þær brautir
sóttu 59 kennarar. 58 völdu náms-
braut um börn og unglinga með
sérþarfir.
„Þó að það sé fagnaðarefni
hversu margir sækjast eftir fram-
haldsnámi á sviði uppeldis- og
menntunarfræða veldur það
áhyggjum að ekki skuli hægt að
koma til móts við fleiri umsækj-
endur,“ segir Ingvar Sigurgeirs-
son dósent við Kennaraháskóla Is-
lands, „og hlýtur að teljast brýnt
að ráða bót á því og gera fleirum
kleift að stunda framhaldsnám hér
á landi.“
Nýjar bækur
• ÚT ER komin hjá Rannsóknar-
stofnun Kennaraháskóla Islands
bókin Skólastarf og gæðastjórnun
eftir dr. Börk Hansen dósent við
Kennaraháskólann og Smára S.
Sigurðsson gæðastjóra við Iðn-
tæknistofnun.
I bókinni eru skýrð á aðgengi-
legan hátt tiltekin sjónarmið við
stjórnun skóla sem sótt eru til
hugmynda um gæðastjórnun.
Fjallað er um skólaþróun og breyt-
ingar á skólastarfi og greint frá
rannsóknum á skilvirkni skóla og
eðli breytingastarfs. Reifuð era
helstu hugtök gæðastjórnunar,
m.a. gæðahugtakið, gæðastjórnun
og gæðakostnaður. Einnig er sjón-
um beint að þýðingarmiklum hug-
tökum sem varða stjórnun skóla,
svo sem markmiðum, forystu,
framtíðarsýn og stofnanabrag.
Vikið er að hefðbundnum vinnuað-
ferðum við gæðastjómun og upp-
byggingu gæðakerfis fyrir skóla.
Bókinni lýkur með umræðu um
gildi þessa vinnulags fyrir mark-
vissa stjórnun skóla.
Skólastarf og gæðastjórnun er
ætluð skólastjómendum, kennur-
um og öðru áhugafólki um umbæt-
ur í skólamálum.
Rannsóknarstofnun Kennarahá-
skóla Islands gefur bók-
ina út. Skólastarf oggæða-
stjórnun er 192 bls. og fæst í Bók-
sölu stúdenta, Bóksöiu kennara-
nema, stærrí bókaverslun-
um og hjá útgefanda.