Morgunblaðið - 20.04.1999, Side 45

Morgunblaðið - 20.04.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 45 áðiheimildum sé einn stærsti ókostur núverandi kvótakerfis skattleggja eiðiheimilda? , Morgunblaðið/Jón Svavarsson STEINGRIMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar, segist fram að þessu hafa talað fyrir daufum eyrum í þau fjögur ár sem hann hafi verið að mæla fyrir sérstakri skattlagningu hagnaðar af sölu veiðiheimilda. I umræðum um kvótakerfið hafi menn frekar viljað fara aðrar leiðir. Ríkisskattstj óri útilokar ekki að hægt sé að skattleggja söluhagnað veiðiheimilda Gagnlegt að skoða þetta viðfangsefni Æskilegt að skattlagningin nái einnig til innleysts hagnaðar í formi hlutabréfa ISVARI ríkisskattstjóra við fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni kemur fram að erfiðasta við- fangsefnið við hugsanlega skatt- lagningu á hagnaði af sölu veiði- heimilda er sá hagnaður sem þeg- ar hefur verið innleystur í formi hlutabréfaverðs í sjávarútvegs- fyrirtækjum. Ríkisskattstjóri tel- ur nauðsynlegt að. þessi hluti hagnaðarins verði einnig skatt- lagður til að gæta jafnræðis. Hér fer á eftir þessi hluti svarsins. „Ríkisskattstjórí tekur undir að í raun væri skattlagning á þessum nótum æskileg út frá jafnræðis- sjónarmiðum ef af skattlagningu verður í samræmi við það sem um hefur verið fjallað varðandi tölu- liði 1-4. Hins vegar yrði þetta mjög erfitt í framkvæmd. Hér kemur líka upp spuming um hvernig á að framkvæma þetta og ná fram jafnræði milli lögaðila og einstaklinga. Hjá einstaklingum er þetta hluti af fjármagnstekju- skattsskattlagningunni en ekki hjá lögaðilum. Hvað með líka t.d. ef selt ef hlutabréf í fyrirtæki sem á stóran hluta í sjávarátvegsfyrir- tæki sem hefur mjög góða kvóta- stöðu. A að elta þetta þannig að við sölu í félaginu A (sem ekki er í útgerð) þá verði hluti af söluhagn- aðinum skattlagður hærra á þeim forsendum að hann sé vegna óbeinnar kvótaeignar. Ef af skattlagningu yrði í þessu formi þá væri ómögulegt að ætla að framkvæma það þannig að við hverja og eina sölu þá færi fram mat á fyrírtækinu og fundið út hve stór hluti söluhagnaðarins væri v’egna aflaheimilda. Slíkt væri mjög tímafrekt þar sem mjög flóknir útreikningar lægju þessu til grundvallar. Omögulegt væri að ætla skattkerfinu miðað við núverandi mannafla að taka þetta verkefni á sig. Þá hlýtur einnig að koma upp við hvaða tímapunkt ætti að miða skattlagn- inguna. Ef þetta ætti að miðast við þann tíma sem sala bréfanna fer fram þá þyrfti að fara fram út- tekt á fyrirtækinu nákvæmlega á þeim tímapunkti. Þetta væri auð- vitað óhugsandi í dag þegar al- gengt er að bréf í einstökum fyr- irtækjum séu seld daglega. Eina leiðin til að koma við skattlagn- ingu í þessa veru væri væntanlega ef fram færi í eitt skipti úttekt á fyrirtækjum og fundnir yrðu út stuðlar sem ætti að nota við þessa útreikninga sem yrðu þá mismun- andi eftir því t.d. hvort um hrein útgerðarfyrirtæki væri að ræða eða blandaða starfsemi. Svona skattlagning yi'ði aldrei návæm en hún yrði einfaldari fyrir alla aðila þótt hún myndi kosta gríðar- lega vinnu í upphafi. Eins og hér kemur glögglega fram telur ríkisskattstjóri að það yrði mjög erfitt í framkvæmd að skattleggja sérstaklega við sölu á hlutabréfum þann hluta söluhagn- aðarins sem telja má að stafi af aflaheimildum viðkomandi fyrir- tækis. Ef aftur á móti er vilji til að skattleggja þetta í ríkari mæli en annan söluhagnað hlutabréfa þá gæti t.d. komið til greina að taka þetta út úr skattlagningu fjár- magnstekna og skattleggja þetta með venjulegri skattprósentu, eða breyta þessu þannig að allur sölu- hagnaður umfram 3.000.000 kr. hjá einstaklingum eða 6.000.000 kr. hjá hjónum komi til skattlagn- ingar með almennri skattpró- sentu, án þess að heimilt sé að fresta um tvenn áramót skatt- lagningu eða án þess að heimilt sé að færa niður stofnverð annarra hlutabréfa sem keypt verða. Ríkisskattstjóri vill taka fram að um margt er hér að ræða skattalega mjög flókið úrlausnar- efni sem gagnlegt væri að fengi mjög nákvæma skoðun áður en þetta yrði að lögum.“ væri hægt að jafna öðrum fjárfesting- um eða rekstrartapi á móti söluhagn- aði veiðiheimilda. Hann kæmi til skattlagningar án frádráttarheimilda fyrir utan keyptar veiðiheimildir. „Við erum því þegar komnir út á þá braut að meðhöndla veiðiheimildir sem alveg sérstakt skattalegt fyrir- bæri. Það á líka að vera þannig því að kvóti er mjög sérstakt fyrirbæri. Ég sé ekki að það sé ástæða til að óttast að þessi skattlagning sé brot á stjórn- arskránni eða almennum jafnræðis- reglum. Það þarf vissulega að hafa þær í huga. Ríkisskattstjóri nefnir þær í þessu eina sambandi að æskilegt væri að koma þeim við gagnvart öll- um, bæði liðinni tíð og því sem framundan er,“ sagði Steingrímur. Fyrir fáum árum var tekin ákvörð- un um að breyta lögum um trygginga- gjald m.a. á þeim rökum að þær reglur sem notast hefði verið við stæðust ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinn- ar. Sjávarútvegur og landbúnaður greiddu þá lægra tryggingagjald en aðrar atvinnugreinar. Þess má einnig geta að oft hafa verið uppi efasemdir um að sjómannaafslátturinn stæðist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Vill banna leigu á kvóta en leyfa sölu Steingrímur vill að öll leiga á veiði- heimildum verði bönnuð. Hann segir þessa leigu siðleysi, en hann vill að áfram verði heimilt að selja og kaupa varanlega aflahlutdeild. Hann vill hins vegar skattleggja hagnað af slíkri sölu. Hann segir að skattlagning þessa hagnaðar sé tæknilega möguleg og vitnar til bréfs ríkisskattstjóra máli sínu til stuðnings. „Ég vil banna leigu á veiðiheimild- um. Það á að leyfa mönnum að skipta, geyma, taka fram fyrir sig og hugsan- lega leigja kvóta ef þeir verða fyi-ir meiriháttar bilunum, en að öðni leyti á engin leiga að vera. Aðlögunin á að gerast á mai'kaði með varanlega hlut- deild. Þessi leigumöguleiki verður aldrei annað en siðleysi. í þeim tilvik- um eru menn með réttindi án þess að hafa borgað fyrir þau og láta svo aðra nota þau fyrir sig og græða á öllu sam- an. Það er mikill munur á varanlegri sölu á kvóta og leigu. Menn hafa ekki möguleika á að selja nema einu sinni og eru þar með að láta varanlega frá sér réttindi, en með leigunni eru menn að leigja ár eftir ár. Mér finnst útilok- að að réttlæta slík viðskipti," sagði Steingrímur. Hagræðing og réttlæti takast á Steingrímur var spm'ður hvort til- laga hans um að sala á öllum varanleg- um veiðiheimildum færi fram á opin- beru kaupþingi ætti ekki eftir að draga úr hagræðingu í sjávarútvegi vegna þein-a kvaða sem þingið setti um sameiningu fyrirtækja. Hann sagði að hagræðingin mætti ekki ganga svona stórkostlega á hlut rétt- lætisins eins og gerst hefði. Menn mættu ekki gefast upp við að sameina þetta tvennt, hagræðingu og réttlæti, þó einhver segði að það væri erfitt. „Samkvæmt mínum tillögum gæti útgerðarmaður ekki sameinað fyrir- tækið öðru fyrirtæki og innleyst hagn- aðinn þannig, né selt það öðruvísi en kvótinn yrði skattlagður. Ég get tekið dæmi um sameiningu Hrannai' á ísa- firði og Samherja. Við sameininguna hefði Samherji getað fengið Guðbjörg- ina, veiðarfæri, birgðir, fasteignir og fleii'a. Hins vegar hefði þurft að setja 4.000 tonna kvóta Guðbjargar á mark- að. Samherji hefði þá ekki fengið veiðiheimildii'nar heldui' endurgjaldið á markaðinum. Einhver kann að segja að við þessai' aðstæður hefðu fyi'ir- tækin ekki sameinast, en ég spyi-, var þá engin hagi-æðing af sameining- unni? Voru það bara veiðiheimildirnar sem menn voru að ná í?“ Aðspurður sagði Steingrímur að menn hefðu átt að athuga þetta mál fyrir löngu. „Ég fór að skoða þetta vegna þess að mér þóttu aðrar breyt- ingar sem voru til umræðu sumpart svo ógæfulegar. Mér fannst nauðsyn- legt að reyna að koma með skynsam- legri tillögur. Ég hef alltaf talið að meginmeinsemdin í þessu séu þeir fjármunir sem menn hirða út úr grein- inni þegar þeir hætta. Að mínu mati er ekki hægt að réttlæta það. Svo má spyrja; ef það er ekki hægt að skatt- leggja þetta, á þá ekki að slá kerfið af?“ Islenskur hjúkrunarfræðingur starfar meðal berklaveikra fanga í Georgíu Lyfín notuð sem gjaldmiðill Berklar eru eitt helsta heilbrigðisvandamál í Rússlandi og lýðveldum Sovétríkjanna fyrrverandi. Sjúkdómurinn breiðist ört út um þessar mundir og er ástandið í fangels- um sérstaklega slæmt. Ragna Sara Jóns- dóttir ræddi við hjúkrunarfræðinginn As- laugu Arnoldsdóttur sem starfar meðal berklaveikra fanga í Georgíu. Hjúkrunarfræðingurinn Ás- laug Arnoldsdóttir hefur starfað í fangelsi iyrir berklaveika fanga í Georg- íu undanfarna sex mánuði. Áslaug starfar á vegum Rauða kross íslands en Alþjóða rauði krossinn leggur nú sitt af mörkum við að uppræta berkla í Georgíu, einu af lýðveldum Sovétríkjanna fyrrverandi. Verkefnið hófst fyrir sex mánuð- um og er hlutverk Rauða krossins að koma verkefninu af stað, þróa það og láta síðan í hendur georgískra stjórnvalda. Sams konar verkefni hefur verið starfrækt í Aserbaídsjan í þrjú ár og hefur íslensk hjúkrunar- kona einnig starfað við það verkefni. Omurlegar aðstæður fanganna Áslaug hélt til Georgíu í júní sl. og verður þar líklega næstu þrjá mán- uði. Hún var stödd í vikufríi hérlend- is þegar Morgunblaðið tók hana tali. Að sögn Áslaugar er fangelsið sem hún starfar í eingöngu fyrir berkla- veika fanga. Greinist þeir með berkla í öðrum fangelsum landsins era þeir sendir í meðferð í þetta til- tekna fangelsi sem er það eina sinn- ar tegundar í Georgíu og stendur skammt utan við höfuðborgina Tíflis. Áslaug starfar sem annar tveggja yf- irmanna sem sjá um framkvæmd verkefnisins í fangelsinu, en með þeim starfa einnig innlendir aðilar sem era á vegum Rauða krossins. Meðferðin stendur yfir í sex mán- uði og fyrstu fjóra mánuðina koma fangarnir á hverjum degi á stofu Ás- laugar til þess að fá lyf. Að loknum fyrstu mánuðunum koma þeir þrisvar til fjóram sinnum í viku. „Að- stæður í fangelsinu era ömurlegar. Maturinn er slæmur, þeir fá hvorki mjólkurmat né kjöt og ekkert er um skipulagða dægrastyttingu af hálfu fangelsisyfirvalda. Það er því milal tilbreyting fyrir þá að koma til okkar og þeir safnast gjaman saman inni á stofunni. I raun eiga einn til tveir að koma í einu en þeir fjölmenna iðu- lega á stofuna og hanga yfir okkur á meðan við gefum hinum lyfin,“ segir Áslaug. Margir smitast aftur eftir meðferð Hlutverk starfsfólksins er að koma lyfjunum niður í fangana og verða þau að horfa á eftir hverri töflu ofan í hvern og einn. „Lyfin era dýrmæt fyrir fangana og nota þeir þau gjarnan fyrir gjaldmiðil, til dæmis þegar þeir spila og svoleiðis. Þess vegna er mjög mikilvægt að við göngum úr skugga um að þeir kyngi töflunum,“ segir Áslaug. 300 manns eru í fangelsinu en það er aðeins brot af þeim sem ganga með berlda í landinu en talið er að 6-7.000 af hverjum 100 þúsund sem vistaðir era í georgískum fangelsum séu með berkla. Áslaug hefur starfað að verkefninu frá því það hófst og segir að fyrstu niðurstöður um ár- angur lofi góðu. Hins vegar sé margt sem vinni á móti þeim við að ná ár- angri í starfinu: Áslaug Arnoldsdóttir „Sumir ná bata eftir meðferð hjá okkur en era síðan sendir aftur í sitt uppranalega fangelsi til þess að ljúka afplánun og þar smitast þeir aftur. Ég hef þó sem betur fer séð tilvik um fanga sem nær bata og lýk- ur afplánun að lokinni meðferð. Það sem er erfiðast við þetta starf er að sjá ekki árangurinn. Við eigum til dæmis erfitt með að aðskilja smit- andi berkla frá ósmitandi berklum og það veldur okkur ákveðnum áhyggjum. Síðast en ekki síst stend- ur samfélagsskipanin í fangelsinu í vegi fyrir starfi okkar,“ segir Áslaug og útskýrir það nánar. Sterk stéttaskipting „Það er mjög sterk stéttaskipting meðal fanganna og þar má greina fjórar stéttir. Efsta stéttin era for- ingjar sem ráða öllu og fá einstak- lingsklefa með þægindum eins og sjónvarpi og myndbandstæki. Þeir sem era í lægsta þrepi era oftast kynferðisglæpamenn eða samkyn- hneigðir og þar deila milli 30 og 40 manns klefa. Það er alger gróðrastía fyrir berkla og ýmsa aðra sjúk- dóma,“ segir Áslaug og ítrekar að þetta innra kerfi geri þeim erfitt fyr- ir. Fangarnir eru nokkuð frjálsir inn- an veggja fangelsisins og öryggis- gæsla er mjög léleg. Fangaverðirnir era til dæmis ekki vopnaðir, en það eru fangarnir hins vegar. Áslaug segir að fangarnh- séu mjög þakklát- ir fyrir það starf sem hún og aðrir starfsmenn verkefnisins vinna og þeir beri mikla virðingu fyrh’ þeim. Hún segir að það taki á með tíman- um að starfa á þessum sama stað þar sem hún sé farin að þekkja suma fangana og horfir upp á slæmar að- stæður þeirra. Áslaug segist þó vera tilbúin að starfa áfram á þessum vettvangi en hvort hún staldrar lengi við í Georgíu sé óvíst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.