Morgunblaðið - 20.04.1999, Side 62
—<52 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MESTI hrakfallabálk-
ur íslenskra bókmennta-
gagnrýnenda, Heimir
Pálsson, hefur seni frá
sér nýja bók: Sögur, ljóð
•^►og líf Undirtitill: ís-
lenskar bókmenntir á
20. öld. Og hann er sann-
arlega við sama hey-
garðshomið hvað snertir
rangfærslur og at-
vinnuróg.
I 1. útgáfu Strauma
og stefna eftir Heimi var
hvergi getið um Gunnar
Gunnarsson, Kristmann
eða Guðmund Daníels-
son. Þeirra er nú getið.
Kaílinn um Hagalín er
líka þokkalegur og í allt
öðrum dúr en Kristinn E. skrifaði.
Það er að sjálfsögðu til of mikils
mælst, að verkalýðshöfundar eins og
_ Vilhjálmur S. Vilhjáhnsson og Oskar
Aðalsteinn fljóti með í bókmennta-
sögu eftir Heimi Pálsson. Það versta
við Heimi er að hann hefur litla sem
Bókmenntir
Sovétkerfíð í íslenskum
skólum, segir Hilmar
Jónsson, er enn
við lýði.
enga sögulega sýn, hann veit ekki og
skilur ekki hvað hefur verið að gerast
í heiminum á þessari öld.
Upp úr 1930 verður hin rauða fylk-
ing ráðandi afl í bókmenntum og list-
um Evrópu og Ameríku. Gorki, Rol-
land, Bemard Shaw, Nexp, Steinbeck,
Picasso og García Lorca eru nöfo, sem
staðfesta það. Þessi stefoa sækir æ
meiri vind í seglin eftir að Churchill og
Roosevelt gera Stalín að liðsmanni sín-
um og nær hámarki eftir stríð, þegar
Stalín var búinn að setja stóran hluta
Evrópu á bak við lás og slá. En brátt
fóm augu pólitíkusa og rithöfunda að
opnast: Churchill heldur sína frægu
ræðu í Fulton 1946. Þar
hvatti hann fijálsar þjóð-
ir til að stofaa hemaðar-
bandalag gegn hinni
rauðu ógn. Köstler skrif-
ar Myrkur um miðjan
dag 1938-40 í tilefoi af
réttarhöldum Stalíns yfír
fyrri félögum og sendir
bókina á markað 1945,
sama árið kemur Dýra-
bær eftir Orweli. Hér á
Islandi höfðu Rauðir
pennar unnið afgerandi
sigur undir forystu Hall-
dórs Kiljans, Þórbergs
og Kristins E. Höfuð-
andstæðingur rauðliða
og sá eini íslenski póli-
tíkus sem hafði sögulega
yfirsýn, Jónas frá Hriflu, var í lok
stríðs áhrifalítill og einangraður. Um
þetta leyti klofnar Rithöfundafélagið
vegna ofríkis kommúnista. Flestir
borgaralegir höfundar undir foiystu
Hagalíns og Davíðs Stefánssonar
mynda sér félag. En þróunin frá
Rauðum pennum á íslandi er hæg.
Það er t.d. ekki fyrr en 1963, sem Hall-
dór Kiljan mannar sig upp í að skrifa
Skáldatíma og vitna um eigin fávisku
og þjónustu við einn blóðugasta morð-
hund sögunnar. Það fer ekki mikið
fyrir bamabókahöfondum í riti Heim-
is. Hann rámar í Hjaita-bækur eftir
Stefán Jónsson og að Guðrún Helga-
dóttir hafi skrifað eitthvað, það er á
tæm. Nýjar og áhugaverðar bama-
bækur, eins og Emil og Skundi og
Benjamín dúfa, em að sjálfsögðu ekki
nefndar. Mörg bestu ljóðskáld þjóðar-
innar em í þessu riti úti í myrkrinu:
Kristján frá Djúpalæk, Guðmundur
Frímann, Öm Amarson, Þorsteinn
Valdimarsson, Hjörtur Pálsson, Er-
lendur Jónsson, Kristinn Reyr, Þor-
geir Sveinbjamarson og Kristján
Karlsson. Sama gildir um marga
skáldsagnahöfúnda: Jón Dan, VSV,
Stefán Júlíusson, Loft Guðmundsson,
Guðmund L. Friðfinnsson og Þórleif
Bjamason. Þetta er vitaskuld ekki
tæmandi upptalning. Hverjum er þá
hossað? Fyrir hveija er barist?
Við lifum á tíma æskufasismans.
Vinir og baráttufélagar Heimis
Pálssonar eru fyndna kynslóðin -
menn, sem halda að heimurinn hafi
orðið til um líkt leyti og þeir fædd-
ust, og svo fljóta fylgitunglin með,
Thor og Guðbergur. Eitt stórstirnið
í þessum hópi er Steinunn Sigurðar-
dóttir. Ég tvílas Tímaþjófinn. Bókin
fjallar um lífsleiða millistéttarkonu
sem heldur við giftan samkennara.
Sagan minnir á bækur Francoise
Sagan. Steinunn skrifaði líka for-
kostulega bók um Vigdísi forseta.
Sú bók hefur sennilega verið send á
enskan markað, því gagnrýnandi
Times Literary Magazine gaf henni
lægstu einkunn, taldi hana bæði lé-
lega og leiðinlega. Djöflaeyja Einars
Kárasonar er enn þekktara verk.
Þar er fjallað um utangarðsfólk.
Heimilisfaðirinn reynir að halda
fjölskyldunni saman en yngri kyn-
slóðin drekkur og drabbar. Höfund-
urinn byggir verkið á bröndurum.
Einar Kárason er snjall auglýsinga-
og sölumaður. Talið er að bókin hafi
selst í 40 þúsund eintökum og hefur
lengi verið skyldulesning í skólum.
Mér finnst þetta 2. flokks verk en
bókin hefur bæði verið sett á svið og
kvikmynduð. Einn mikilvirkasti
maður hópsins er Þórarinn Eldjárn.
Hann er góður hagyrðingur. Bestu
verk á síðari hluta aldarinnar eru að
mínum dómi: Vegurinn að brúnni,
Borgarlíf og Svört messa, Snai-an og
Land og synir, Að elska er að lifa,
Öld fíflsins og Maður og jörð, 1919 -
árið eftir spönsku veikina, Smiður-
inn mikli, ljóð Jóns Óskars og Ólafs
Jóhanns, Hrafnamál og Á Gnita-
heiði, leikritin: Inúk, Kaj Munk og
Fjögur hjörtu. Á fæst þessi verk
minnist Heimir Pálsson einu orði.
Einhver Morgunblaðsmaður sagði
að Mál og menning væri vel rekið
fyrirtæki. Er það einhver vandi að
gefa út og selja bækur, sem flestar
eru skyldulesning í öllum fram-
haldsskólum landsins? Sovétkerfið í
íslenskum skólum er enn við lýði.
Þar er engin viðhlítandi bókmennta-
eða Islandssaga á boðstólum, enda
nemendur á algeru gati, ef þeir eru
spurðir um listir og íslensk verk og
íslenska rithöfunda. Listamanna-
laun ríkisins fara til fyndnu kynslóð-
arinnar og annarra getulausra höf-
unda. Um þetta reginhneyksli vita
allir skólamenn landsins, þingmenn
og ráðherrar. Eitt fyrsta verk
Björns Bjarnasonar, núverandi
menntamálaráðherra, var að verð-
launa Vilborgu Dagbjartsdóttur fyr-
ir kunnáttu í íslensku máli.
Höfundur er rítliöfundur.
Heimir Pálsson
veldur nýju
hneyksli
Hilmar
Jónsson
PilíílU
M ^ V P flvnr»iridrit & J
Aðrar norpn-Tðnir ta*
átfffláhdBg, Idkk
og aðrfr litfr í tanMninga era með
Annað
sterkasta aflið
í íslenskum
stjórnmálum
Oft er ég spurður að
því hvers vegna ég
styðji Samfylkinguna í
komandi kosningum.
Aðdragandinn að
framboði Samfylking-
arinnar mótaðist af
átökum og erfíðleikum
þar sem á ýmsu gekk.
En liðin tíð er liðin.
Framtíðin skiptir öllu
og framundan eru ör-
lagaríkar ákvarðanir í
íslenskum stjórnmál-
um. Litlir flokkar hafa
eðli sínu samkvæmt
skarpari stefnu en
stórir flokkar en eru á
hinn bóginn áhrifalitlir
og sitja sjaldan í ríkisstjórn. í
breiðum, voldugum stjómmála-
samtökum sætta menn sig við
skiptar skoðanir í ýmsum málum
en ná um leið að hafa miklu meiri
áhrif á þróun landsmála. Samfylk-
ingin verður bersýnilega annað
sterkasta aflið í íslenskum stjórn-
málum eftir næstu kosningar. Hún
hefur alla burði til að verða það
sterkasta þegar fram líða stundir
Stjórnmál
Alþýðubandalagsmenn
ákváðu með miklum
meiríhluta atkvæða,
sefflr Ragnar Arnalds,
að taka þátt í stofnun
þessa volduga stjórn-
málaafls.
og á eftir að knýja fram stórfelldar
breytingar til batnaðar á íslensku
þjóðfélagi.
Alþýðubandalagsmenn ákváðu
með miklum meirihluta atkvæða
að taka þátt í stofnun þessa vold-
uga stjórnmálaafls og því er nú
brýnt að sem flestir úr okkar röð-
um taki þátt í starfí Samfylkingar-
innar og tryggi að baráttumál Al-
þýðubandalagsins eigi þar sem
tryggastan sess.
A Norðurlandi vestra er listi
Samfylkingarinnar afar vel skipað-
ur með þau Kristján Möller og
Önnu Kristínu Gunnarsdóttur í
tveimur efstu sætum. Staðan þar er
sú að Framsóknarflokkurinn hlýtur
að teljast öruggur með tvo kjör-
dæmiskjörna þing-
menn eins og ávallt áð-
ur en Sjálfstæðisfiokk-
urinn og Samfylkingin
fá líklegast einn kjör-
dæmiskjörinn mann
hvor fyrir sig. Þá er
fimmta þingsætið eftir
og það er jöfnunarsæti
sem deilist út bæði
með hliðsjón af heild-
arúrslitum á landinu
öllu og hlutfallslegu
fylgi framboða í kjör-
dæminu. Anna Kristín
sem sldpar annað sæt-
ið á lista Samfylking-
arinnar og kemur úr
röðum okkar Alþýðu-
bandalagsmanna hefor mikla
möguleika á að hljóta þetta fimmta
þingsæti en þó er ljóst að það getur
orðið tvísýnt.
Anna Kristín á sannarlega er-
indi á Alþingi. Hún hefur marg-
sýnt það í störfum sínum að hún er
afar öflugur málflytjandi og vand-
ar allt vel sem hún tekur sér fyrir
hendur. Þar að auki er hún eina
konan úr þessu kjördæmi í bar-
áttusæti.
Ný kjördæmaskipun er enn ekki
fullfrágengin. Allt útlit er fyrir að í
þarnæstu kosningum, sem gætu
orðið þegar í haust, eftir eitt ár
eða í seinasta lagi eftir fjögur ár,
verði Norðurland vestra hluti af
miklu stærra kjördæmi. Eg er að
vísu mjög ósáttur við þessi vænt-
anlegu risakjördæmi, en þetta er
það sem við blasir. Við ákvörðun
framboðslista í nýju kjördæmun-
um hafa þeir mesta möguleika sem
þegar hafa náð kjöri á þing og vak-
ið hafa athygli kjósenda utan síns
gamla kjördæmis. Frá því sjónar-
miði er einnig afar mikilvægt, ef
við eigum að njóta starfskrafta
Önnu Kristínar á Alþingi á kom-
andi árum, að hún nái kjöri í kosn-
ingunum í vor.
Eg hvet kjósendur á Norður-
landi vestra eindregið til að styðja
lista Samfylkingarinnar og tryggja
þannig kjör Önnu Kristínar. Eg
veit að hún verður öflugur fulltrúi
kjördæmisins. Hún mun berjast
ötullega fyrir þeim málum sem Al-
þýðubandalagið hefur ávallt lagt
höfuðáherslu á, þ.e. að stuðla að
jafnrétti og bæta lífskjör fólksins í
landinu og standa vörð um sjálf-
stæði þjóðarinnar.
Höfundur er þingmaður.
Ragnar
Arnalds
HUGBUNAÐUR
FYRIR WINDOWS
Frábær þjónusta
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Simi 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
mbl.is
Hvernig væri að láta
drauminn rætast? „ . .
Hrmgdu
Stanislas Bohic • Landsiagsarkitekt • ( 898 4332