Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Aðalfundur Félags hrossabænda
Lagt til að sam-
ræma fótabúnað
í kynbótadómum
og gæðingakeppni
HROSSABÆNDUR héldu aðal-
fund samkvæmt samþykkt síðasta
fundur en þar var ákveðið að
breyta fundartíma. I stað þess að
halda fundinn um miðjan nóvem-
ber verður hann haldinn framvegis
síðla vetrar. Ástæðan er sú að á
haustfundunum var alltaf verið að
samþykkja tæplega ársgamla
reikninga en nú eru bornir upp til-
tölulega nýlegir reikningar.
Tillögur og samþykktir fundar-
ins voru heldur færri en verið hef-
ur á fyrri fundum félagsins vegna
þess hve stutt er síðan síðasti aðal-
fundur var haldinn. Af helstu sam-
þykktum má nefna að fundurinn
beinir þeim tilmælum til Bænda-
samtaka Islands að fylgjast með
þróun mála varðandi örmerkingu
hrossa og hafa frumkvæði um að
notkun örmerkja verði sem örugg;
ust og hagkvæmust í framtíðinni. I
greinargerð með tillögunni segir að
hrossabændur fagni samkeppni í
framboði á örmerkjum en leggi
áherslu á að merki sem notuð eru
standist alþjóðlegar kröfur. Einnig
að leggja þurfí áherslu á að ekki
séu önnur aflestrartæki í notkun
en þau sem lesa af öllum gerðum
örmerkja. Fram kom breytingatil-
laga þar sem lagt var til að síðasta
málsgi-ein greinargerðarinnar yrði
felld út en hún felld og tillagan
samþykkt óbreytt.
Þá var þeim tilmælum beint til
Bændasamtakanna að þau kanni
réttarstöðu hrossaeigenda í um-
ferðinni og lagði fundurinn enn-
fremur áherslu á að hestar og
hestamenn hafi sinn ákveðna rétt í
umferðinni eins og aðrh- og að brýn
þörf væri á uppbyggingu reiðleiða
sem óháðar eru bflaumferð. Varð-
andi dóma á tveggja og þriggja
vetra stóðhestum var samþykkt að
leggja til við Fagráð að þær vinnu-
reglur verði viðhafðar að í fyi'sta
lagi sé mönnum gefinn kostur á að
fá umsögn ráðunauta um ungfola
og þá sé ekki krafist blóðflokka-
greiningar eða hinsvegar að menn
geti látið byggingardæma folana
og þá sé skylt að láta blóðflokka-
greina folana.
Samþykkt voru tilmæli til
stjórnar Landsambands hesta-
mannafélaga um að reglur um fóta-
búnað í gæðingakeppni yrðu sam-
ræmdar þeim reglum sem gilda í
sýningum kynbótahrossa. Segir í
samþykktinni að með því móti
megi nýta dómsniðurstöður í gæð-
ingakeppni til framfara í ræktun-
arstarfinu. Þessi tillaga var sam-
þykkt samhljóða og á hún sjálfsagt
eftir að vekja mikla athygli. Verður
fróðlegt að sjá hvaða undirtektir og
meðferð þessi hugmynd fær á vett-
vangi LH.
Vert er að geta þess að reglur
um fótabúnað í gæðingakeppni og
íþróttakeppni hafa fyrir all-
nokkrum árum síðan verið sam-
ræmdar og síðan þá verið sam-
hljóða. Ef breyta á reglum um
fótabúnað í gæðingakeppni verða
samhljóða breytingar væntanlega
gerðar í íþróttakeppninni. Ætla má
að þessi hugmynd hrossabænda
muni falla í grýttan jarðveg því
erfitt er að horfa framhjá þeirri
staðreynd að hrossin á íslandi í
dag eru enn of gangsöm til að þetta
sé gerlegt. Fjöldi hrossa gæti orðið
nánast ósýningarhæfur ef þau ekki
fá það svigrúm sem leyft er í gæð-
inga- og íþróttakeppni. Þá ber að
sjálfsögðu að taka með í reikning-
inn getu knapa sem er mjög mis-
munandi og þeim mikla fjölda sem
er að stíga sín fyrstu spor í keppni
veitir heldur ekkert af því að hafa
þetta hóflega svigrúm sem regl-
urnar gefa. Hugmyndin er eigi að
síður góðra gjalda verð en búast
má við að mörgum þyki ekki tíma-
bært að koma henni í framkvæmd.
Fjárhagsstaða Félags hrossa-
bænda hefur verið mönnum lengi
áhyggjuefni, félagið hefur enga
fasta tekjustofna og var samþykkt
á fundinum að taka upp tímabund-
ið félagsgjald. Verður það krónur
1500 á hvern félagsmann en þess í
stað falli niður gjald á hvern aðal-
fundai'fullti-úa eins og innheimt
hefur verið. Þess má geta að tillaga
um gjald á grunnskráningu hrossa
var felld. Þá beindi fundurinn því
til stjórnar að unnið yrði að breyt-
ingum á reglugerð um Útflutnings-
og markaðssjóð þannig að fjár-
magn í hann kemur renni óskipt til
markaðsstarfs Félags hrossa-
bænda.
Valdimar Kristinsson
50-70%
afsláttur
Sæktu kjarabótina til okkar núna!
Bóksala stúdenta efnir til stórútsölu
á þúsundum titla.
Bækur um allt milli
himins og jarðar!
Þú getur pantað útsölubækurnar
á netinu og fengið þær sendar hvert á
land sem er fyrir aðeins 200 króna
sendingargjald.
Útsalan stendur
19.-30. apríl!
/v»r^Áy-i. v i. KO.M.V.N IU I NM jv|
; í ; The Htwth Guide n?|}
to Literature
bók/a,la, /túdervta.
www.lioksala.is
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 67
OLL F
í LYFJU
(F Á STAONUM
Bjóddu \ örunum upp á
sannkaliaða litaveislu
Re-Nutriv
All day lipstick trá Estée Laudei j
Líttu barn á þetta stórkostlega úr\al vínrauðra,
kastaníubrúnna, hárauðra, glúbleikra,
kóralgullinna og náttúrulegra tóna. Leytðu
\örunum að njóta mvktarinnar og t’allegrar
áferðar þessara nýju varaiita. Þeir innihalda
andoxunarefni sem stuðla að því að halda
vörunum nijúkum og unglegum.
Líttu inn og íáðu persónulega ráðgjöf um litnvnl.
Litaveisluborðið bíður þín.
Estée Lauder ráðgjafi
verður í versluninni
Bankastræti 8, sími 551 3140 • dag °S á morgun.
Veöur og færö á Netinu
ýj> mbl.is
-J\LL-TAf= €/7TT/M4£7 A/YTT~