Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Vorferð sunnu-
s
dagsskóla Ar-
bæjarkirkju
EFTIR góðan vetur í starfi sunnu-
dagsskólans verður uppskeruhátíð
fjölskyldunnar haldin í Ölveri
(miðja vegu milli Akraness og
Borgamess) laugardaginn 24. apr-
íl. Ath. breyting frá áður auglýst-
um tíma. Lagt verður af stað frá
Árbæjarkirkju kl. 12.30. Áætluð
heimkoma verður u.þ.b. kl. 17.
Viljum við hvetja foreldra, afa og
ömmur til að koma með börnum
sínum. í Ölveri er góð aðstaða til
að neyta nestis og staður til leikja.
Böm úr TTT-starfi kirkjunnar í
Ártúnsskóla, leiðtogar, Guðni og
Bendt og prestar munu taka á
móti ferðalöngum á áfangastað.
Allar nánari upplýsingar og
skráning er í síma 587 2405. Gott
væri að skrá sig fyrir kl. 16 fóstu-
daginn 23. apríl. Fjölmennum!
Ama Grétars, Guðrún
og prestarnir.
Askirkja. Opið hús fýrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður. Samverastund foreldra
ungra bama kl. 14-16. Fundur í
æskulýðsfélaginu kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Dómkirkjan. Barnastarf fyrir 6-9
ára börn ki. 10.15 og kl. 14.15 í
safnaðarheimilinu.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund ki.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Hailgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Æskuiýðsfélagið Órk
(yngri deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
böm kl. 17.
Laugarneskirkja. „Þriðjudagur
með Þorvaldi“ kl. 21. Lofgjörðar-
stund.
Seltjarnameskirkja. For-
ejdramorgunn kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar
í safnaðarheimilinu kl. 10-12.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir guð-
fræðingur fjallar um böm og trú.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi, léttar veitingar,
helgistund og samvera. Æskulýðs-
starf kl. 20 á vegum KFUM & K
og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára stúlkur kl. 17.30. Æskulýðs-
starf fyrir 8. bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30-15.30. Helgi-
stund, söngur, handavinna, létt
spjall og kaffiveitingar. Æskulýðs-
starf fyrir 8. bekk kl. 20-22 í kirkj-
unni. KFUM fyrir drengi 9-12 ára
kl. 17.30-18.30. „Kirkjukrakkar" í
Rimaskóla fyrir böm 7-9 ára kl.
17-18.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigur-
jóns Árna Eyjólfssonar.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn
í safnaðarheimilinu Borgum í dag
kl. 10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Fríkirkjan / Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára böm frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. TTT-starf
fyrii-10-12 ára kl. 17-18.30 í Von-
arhöfn Strandbergs. Kristin íhug-
un í Stafni, Kapellu Strandbergs,
kl. 21.30-22. Heimsborgin - Róm-
verjabréfið, lestur í Vonarhöfn kl.
18.30-20.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
14-16. Starfsfólk verður á sama
tíma í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu milli kl. 10
og 12. Helgistund í kirkjunni sömu
daga kl. 18.30.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. AUir vel-
komnir.
KEFAS. Þriðjudagur: bænastund
kl. 20.30.
Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf
fermingarbama á miðvikudögum
kl. 20. Umsjón Sigurður Rúnar
Ragnarsson.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
KFUM og K fyrir 9-12 ára kl. 16.
Biblíulestur í Sæborg kl. 20.
Vorboði -
Eranthis hyemalis
ÁGÆTI lesandi. Það fer vel á
því að fylgja Blómi vikunnar úr
hlaði á þessu ári með ósk um
gleðilegt og gott sumar. Veturinn
hefur verið misjafn eftir lands-
hlutum eins og gengur, skipst á
skin og skúrir, ég ætti
heldur að segja hret
og þíðviðri og oft hef-
ur vorað fyrr en nú
þar sem vetrarveður
hafa geisað alveg
fram á sumarmál og
illveðurskafli liðlega
viku fyrir sumarkomu
með tilheyrandi snjó-
komu, veðurofsa og
ófærð vakti upp nafn-
ið hrafnahret, sem er
tengt því að þjóðsag-
an segir að hrafninn
verpi níu nóttum fyrir
sumarmál.
Veturinn hefur verið
þungur í skauti Blóms
vikunnar. Þessi þáttur er á vegum
Garðyrkjufélags íslands og hef'ur
allt frá upphafi verið í umsjón eins
af okkar ágætu félögum, Ágústu
Bjömsdóttur. Ágústa lést 15. janú-
ar. Hér vil ég aðeins minnast þess
mikla starfs sem hún leysti af
hendi varðandi Blóm vikunnar, en
þessi þáttur hóf göngu sína 1975 og
greinar um gróður hafa birst síðan
reglulega mikinn hluta ársins, þótt
hlé hafi orðið á nokkur ár á 9. ára-
tugnum. AIls annaðist Ágústa 700
greinar á þessum tíma og skrifaði
mikinn hluta þeirra sjálf. Þær eru
að vonum margar stundimar sem
hún varði í þágu þeirra, sem hafa
áhuga á gróðri og ófáar tegundir
jurta sem hún kynnti lesendum
Morgunblaðsins. Garðyrkjufélagið
stendur í mikilli þakkarskuld við
þessa góðu konu og syrgir farinn
félaga.
Það er von mín að við sem ætl-
um að reyna að halda merki
Ágústu á lofti með skrifum í Blóm
vikunnar bemm gæfu til að gera
það svo vel fari. En til þess er gott
að fá hjálp lesenda. Állar ábend-
ingar um efni eða efn-
istök era vel þegnar
og gott að koma þeim
til skrifstofu Garð-
yrkjufélagsins að
Frakkastíg 9.
Sumardagurinn
fyrsti er afmælisdag-
ur Garðyrkjuskólans
að Reykjum í Ölfusi.
Nú fagnar skólinn 60
ára afmæli. Félagið
vill nota þetta tæki-
færi að senda skólan-
um, núverandi og
fyrrverandi kennur-
um og nemendum
góðar kveðjur og árn-
aðaróskir. Garðyrkju-
skólinn og GÍ hafa frá upphafi átt
gott samstarf og fjölmargir garð-
yrkjufræðingar verið virldr innan
Garðyrkjufélagsins, sem er félag
áhugafólks um gróður, hvort sem
það er menntað á því sviði eða
ekki. Vonandi á samstarf garð-
yrkjufræðinga og félagsins eftir
að aukast á ókomnum áram til
hagsbóta fyrir þá sem hafa gaman
af gróðri.
Þrátt fyrir frost og kulda eru
margir farnir að huga að kom-
andi sumri. Það eru allra síðustu
forvöð að sá fyrir sumarblómum,
sem era forræktuð inni og betra
að athuga vel að þau þurfa mjög
mislangan vaxtartíma áður en
þau eru sett út. Enn er hins veg-
ar góður tími til að klippa tré og
ranna, sem hafa vaxið úr sér.
Þetta er annars dálítið skrítið,
fyrst bíður maður í ofvæni eftir
að eitthvað teygist úr þessum ve-
sælu hríslum sem settar eru nið-
ur en svo er nær strax orðið
tímabært að munda klippurnar.
En það er með trjákenndan gróð-
ur eins og börnin, það þarf að
beita ákveðnu aðhaldi og ekki
skilja eftir umhirðulaust og láta
guð og lukkuna ráða hvernig
tekst til.
Vorboðarnir, farfuglarnir,
flykkjast nú til landsins hver af
öðrum og vorboðarnir, litlu vor-
blómstrandi laukarnir era líka
famir á stjá í garðinum og brosa
við okkur um leið og frost og
snjór lyfta hendinni. Eitt þeirra
blóma sem er fyivst á ferðinni heit-
ir reyndar Vorboði - Eranthis
hyemalis, nafnið er dregið af
grísku, en fyrra orðið þýðir vor-
blóm og það seinna vetur. Vorboði
blómstrar mjög snemma, jafnvel í
febrúar-mars ef vetur eru mildir,
en apríl er þó algengasti blómg-
unartími sunnanlands. Blómin era
gul og minna fljótt á litið á sóleyj-
arblóm en undir blóminu situr
krans af grænum, mjóum háblöð-
um. Aðallaufblöðin era hins vegar
handskipt og flipótt. Vorboðinn er
lágvaxinn, aðeins 5-10 sm á hæð.
Á haustin era sett niður örsmá
rótarhnýði, um 1 sm á stærð, á
um 5 sm dýpi. Séu hnýðin sett of
djúpt er hætta á að þau blómstri
ekki næsta ár. Sunnanlands er
vorboði fyllilega harðgerður, en
viðkvæmari norðanlands. Vorboð-
inn þolir illa að rótað sé í moldinni
á vaxtarstaðnum, en erfitt er að
greina hnýðin frá moldai-köggl-
um. Hann er mjög fallegur undir
trjám og rannum, þar sem hann
fær laufbreiðu til að skýla sér á
vetram. Vorboðinn íjölgar sér og
myndar smám saman fallegar
breiður.
BLOM
VIKUMAR
404. þáttur
llmsjón Sigríður
Hjartar
Grjóthálsi 1
Sími 575 1200
www.bl.is
FREELANDER MEÐ SP0LVÓRN FRA 2.650.000 kr.
FREELANDER