Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Nýtt afbrigði lungnapestar komið upp í borgfírsku sauðfé
Bólusetja þarf
þúsundir fjár
AFBRIGÐI lungnapestar sem
ekki hefur verið gi'eint í sauðfé á
Islandi áður og talið er alvarlegra
en það afbrigði, sem þekkt er hér,
hefur komið upp á bæ í Borgar-
firði. Sigurður Sigurðarson, dýra-
læknir á Keldum, og Halldór Run-
ólfsson yfirdýralæknir munu í dag
funda með þeim bændum af Hvít-
ársíðu, úr Hálsasveit, Reykholtsdal
a og Flókadal sem reka fé sitt á af-
rétt, um bólusetningu sauðfjár
þeirra.
Að sögn Sigurðar þarf að bólu-
setja nokkur þúsund sauðfjár, en
bændur bera allan kostnað af bólu-
setningunni, og leitað verður eftir
samstöðu bændanna á svæðinu um
hana.
Ekki víst að afbrigðið
sé nýtt á Islandi
Lungnapestar hefur aðeins orðið
Om>» vart þrisvar áður í Borgarfirði, árið
1979 í Lundarreykjadal, 1989 á
Hvítársíðu og um áramótin
1996/1997 í Stafholtstungum. Með
bólusetningu á nokki'u svæði í
kringum bæina þar sem veikin
kom upp tókst að afstýra því að
hún breiddist út og yrði landlæg.
Lungnapest er meðal annars land-
læg á Norðurlandi, Austurlandi og
Suðurlandi vestanverðu.
„Það er vonandi hægt að afstýra
því að þetta verði landlægt í Borg-
arfirði og eilífur tjónvaldur úr því,“
segir Sigurður. „Þetta sýnir hvað
fyrir okkur getur komið ef opnaðar
eru of harkalega og ógætilega
vamir landsins gagnvart útlöndum
með innflutningi sauðfjár. Erlendis
era tugir sjúkdóma sem geta borist
hingað með ógætni.“
Sigurður segir ekki víst að þetta
afbrigði lungnapestarsýkilsins sé
nýtt hér á landi. „Það getur vel
verið að þetta afbrigði hafi áður
komið upp þó við vitum ekki af því,
því að við fáum ekki til okkar nema
brot af öllum tilfellum lungnapest-
ar,“ segir Sigurður.
Hann segir að erlendis, þar sem
bæði afbrigðin þekkjast, sé það
sem nú er komið upp í Borgarfirði
talið alvarlegra.
Getur valdið dauða á
hálfum sólarhring
Lungnapestarinnar varð vart í
febrúar sl. en senda þurfti sýni til
útlanda til rannsóknar. Sigurður
segir að þegar niðurstöður hafi
borist í mars, hafi bóluefni verið út-
búið á Keldum og féð á bænum
verið bólusett.
Lungnapestarsýkillinn veldur
bólgu og drepi í framblöðum
lungnanna og brjósthimnubólgu og
getur dregið sauðfé til dauða á
hálfum sólai-hring frá því að fyrst
sér á því, en algengt er að það
drepist á 1-2 dögum úr veikinni.
„Þetta byrjar oft með því að það
finnst dauð kind án þess að ein-
kenna hafi orðið vart,“ segir Sig-
m-ður.
Mikilvægt að vera á varðbergi
„Þegar menn athuga það nánar
verða þeir varir við að ein eða örfáar
kindur era deyfðarlegar og éta ekki
eða draga sig út úr. Svo fara menn
að taka eftir hósta sem kindumar
reyna að bæla niður vegna sársauka
af völdum brjósthimnubólgunnar.
Með því að vera á varðbergi er oft
hægt að bjarga kindunum með lyfja-
gjöf og hjúkrun og síðan bólusetn-
ingu eins og fljótt og hægt er. Það
er mjög mikilvægt í þessu sambandi
að menn séu ekki að hýsa ókunnugt
fé, og þetta undirstrikar það hversu
bráðnauðsynlegt er að menn merki
fé sitt með löggiltum merkjum,“
segir Sigurður.
s
Þakkar Islendingum
stuðninginn
GUNTIS Ulmanis, forseti Lett-
lands, bar Islendingum þökk frá
lettnesku þjóðinni fyrir viður-
kenningu þeirra á sjálfstæði Lett-
lands í ágúst árið 1991 í ræðu,
sem hann flutti í móttöku fyrir
hann og eiginkonu hans, Ainu
Ulmane, á Bessastöðum í gær-
kvöld. I ræðu forsetans kom
einnig fram að hafist hefði verið
handa við að semja íslensk-lett-
neska og lettnesk-íslenska orða-
bók í Lettlandi.
I gærkvöld var hátíðarkvöld-
verður haldinn á Bessastöðum
forsetahjónunum til heiðurs. í
ræðu Olafs Ragnars Grímssonar,
forseta íslands, kom m.a. fram að
forseti Lettlands væri fyrsti þjóð-
höfðingi nýfijálsra ríkja við
Eystrasalt sem sækti ísland heim.
í ræðunni kom fram að íslending-
ar mundu styðja umsóknir
Eystrasaltsríkjanna um aðild að
Atlantshafsbandalaginu og að í
Ijósi atburðanna á Balkanskaga
væri brýnt að ná samstöðu um
nýja skipan sem mundi tryggja
öryggi og frið í álfunni.
I dag verður farið með hjónin í
skoðunaferð um Reykjavík, þá
verður haldið til Grindavíkur og
Bláa lónið heimsótt, orkuverið í
Svartsengi skoðað, sem og Gull-
foss, Geysir og Þingvellir, þar
sem snæddur verður kvöldverð-
ur. Forsetahjónin fara af landi
brott á fimmtudag.
■ Aðild að NATO/6
Virða fyrir
sér útsýnið
MARGIR höfuðborgarbúar
fóru í sund á sunnudaginn,
enda viðraði þá mætavel til
þess konar þolrauna. A slíkum
degi stinga sér margir beint til
sunds og synda sem ákafast
um stund á meðan aðrir sóla
sig í skjóli eða virða fyrir sér
sundgarpana og reyna að ráða
í það hvenær henti best að
sæta færis að koma sér í um-
ferð í þéttskipaðri lauginni -
sumum til hinnar mestu for-
vitni, eins og meðfylgjandi
mynd vitnar um.
Grunur
um
íkveikju
GRUNUR leikur á að um
íkveikju hafi verið að ræða þegar
eldur kviknaði í kjallara íbúðar-
húss við Miðstræti í Vestmanna-
eyjum síðdegis í gær. Var eldur-
inn byrjaður að læsa sig í loft og
veggi kjallarans er hann var
slökktur en að sögn lögreglunnar
í Vestmannaeyjum mátti litlu
muna að stórbrani yrði. Enginn
var í húsinu er eldurinn kviknaði
en vegfarandi, sem sá reyk stíga
út úr kjallaranum, tilkynnti lög-
reglu um eldinn og kallaði hún út
slökkvilið skömmu síðar. Reykur
fór um allt húsið og reykræsti
slökkviliðið það að loknu slökkvi-
starfi í kjallaranum.
Rannsókn málsins stendur
yfir hjá lögreglunni í Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Kristinn
Afkomuviðvörun frá
Vinnslustöðinni
Hlutabréf
lækka
um 7,7%
VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vest-
mannaeyjum sendi í gærmorgun frá
sér afkomuviðvörun þar sem ljóst
er að afkoma félagsins fyrstu sex
mánuði rekstrarársins er langt und-
ir þeim væntingum sem gerðar voru
til rekstrar þess á tímabilinu. Verð
hlutabréfa í Vinnslustöðinni lækk-
aði í gær um 7,7% á Verðbréfaþingi
Islands eftir að afkomuviðvöranin
var birt. Sex mánaða uppgjör fé-
lagsins verður birt í næstu viku.
Að sögn Sigurgeirs Brynjars
Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar, er helsta
ástæða fyrir lakari afkomu félagsins
sú að loðnufrystingin brást alger-
lega og einnig gríðarleg verðlækkun
sem orðið hefur á mjöli og lýsi.
■ Meira tap/20
Ríkisskattstjóri útilokar ekki að skattieggja megi söluhagnað veiðiheimilda
Yerkefnið flók-
ið en bent á leið
RÍKISSKATTSTJÓRI segir það
flókið úrlausnarefni skattalega að
setja reglur um skattlagningu
hagnaðar sem myndast við sölu
veiðiheimilda og erfiðast verði að
skattleggja hagnað af sölu veiði-
heimilda sem innleystur hafi verið
í verði hlutabréfa sjávarútvegsfyr-
irtækja. Hann bendir á að eina
leiðin væri að gera úttekt í eitt
skipti á fyrirtækjum og finna stuð-
ul sem notaður yrði við útreikn-
inga vegna skattlagningar. Hann
telur þó gagnlegt að fram fari ná-
kvæm skoðun á þessu viðfangs-
efni. Þetta kemur fram í skriflegu
svari hans til Steingríms J. Sigfús-
sonar alþingismanns við fyrir-
spurn sem Steingrímur sendi emb-
ættinu.
I bréfi sínu segir ríkisskattstjóri
m.a. um þetta álitamál: „Ef aftur á
móti er vilji til að skattleggja þetta
í ríkari mæli en annan söluhagnað
hlutabréfa þá gæti t.d. komið til
greina að taka þetta út úr skatt-
lagningu fjármagnstekna og skatt-
leggja þetta með venjulegri skatt-
prósentu, eða breyta þessu þannig
að allur söluhagnaður umfram
3.000.000 kr. hjá einstaklingum eða
6.000.000 kr. hjá hjónum komi til
skattlagningar með almennri
skattprósentu, án þess að heimilt
sé að fresta um tvenn áramót
skattlagningu eða án þess að heim-
ilt sé að færa niður stofnverð ann-
arra hlutabréfa sem keypt verða.
Ríkisskattstjóri vill taka fram að
um margt er hér að ræða skatta-
lega mjög flókið úrlausnarefni sem
gagnlegt væri að fengi mjög ná-
kvæma skoðun áður en þetta yrði
að lögum.“
■ Er hægt að/44