Morgunblaðið - 22.04.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.04.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úr skýrslu Auðlindanefndar Guðiaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar: Fyrrverandi skrifstofustjóri landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneytis Nýja-Sjálands kynnti sér fískveiðistjórnun hér Enginn ágreining- ur um eignarhald og rekstrarform HARKALEG gagnrýni á „land- búnaðarkei’fið" kemur fram í við- tali við Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs hf., í Morgunblað- inu, síðastliðinn sunnudag. Jón As- geir segir afurðastöðvar hagnast án þess að skila bændum nokkru. Kerfínu verði að breyta og bændur þurfi að eignast hlutabréf í sínum afurðastöðvum. Guðlaugur Björg- vinsson, forstjóri Mjólkursamsöl- unnar, segir að enginn ágreiningur sé um eignarhald og rekstrarform MS. Jón Ásgeir bendir sérstaklega á Mjólkurbú Flóamanna og Mjólkur- samsöluna með samanlagða eign upp á 8 milljarða. Þessi eign sé hins vegar óskilgreind, þó að sagt sé að bændur eigi fyrirtækin. Af hverju fá þeir þá ekki hlutabréf í þeim, spyr Jón Ásgeir. Hann telur að ekkert verði hagrætt á fram- leiðslustigi afurðastöðvanna fyi-r en bændur fái þessi hlutabréf og geti selt þau. Guðlaugur Björgvinsson and- mælir því að bændur fái ekkert út úr Mjólkursamsölunni. „Við erum nú að skila þónokkuð á annað Blaðberar fá nýjar kerrur BLAÐBERAR Morgunblaðsins höfðu í gær sótt um 200 nýjar kerrur, sem byrjað var að af- henda um liðna helgi, og á næstu vikum verður áfram hægt að skipta á þeim nýju og gömlu kerrunum. Á nýju kerruna er hægt að hengja tvo blaðapoka. Hvor þeirra tekur 50 blöð. Kerrurnar eru bæði léttari og hljóðlátari en þær gömlu og endurskins- merki eru bæði á pokum og handfangi til að auka öryggi blaðberans. Þá er hægt að fella kerruna saman þegar bera á út færri blöð. Kerrurnar eru æt.I- aðar þeim, sem bera út meira en 30 blöð. hundrað milljónum í arðgreiðslur vegna síðasta árs. Þannig að ef það heitir að skila engu til bænda þá veit ég ekki alveg um hvað málið snýst.“ Guðlaugur telur fráleitt að halda því fram að engin hagræðing hafi átt sér stað í afurðasölunni. „Þegar ég kom að þessum hlutum voru sjö mjólkursamlög stai-fandi á þessu starfssvæði okkar. Nú er búið að leggja niður fjögur af sjö samlög- um. Eftir eru Mjólkurbú Flóa- manna, Mjólkurstöðin í Reykjavík og Mjólkursamlagið í Búðardal. Þetta kalla ég hagræðingu." Varðandi staðhæfingu um að bændur þurfi að eignast hlutabréf hafði Guðlaugur þetta að segja. „Það er enginn ágreiningur um það að mjólkurbændur eiga Mjólkur- stöðina og Mjólkurbú Flóamanna. Þeir fara með æðstu stjórn í þess- um fyrirtækjum og taka ákvarðan- ir um hvaða rekstrarform þeir telja að henti sér best. Þetta er niður- staðan í dag og ef bændur telja sér hag í því að breyta þessum fyrir- tækjum í hlutafélög þá gera þeir það.“ Morgunblaðið/Ásdís HÆGT er að setja tvo poka undir blöð á nýju blaðbera- kerruna, sem nú er verið að af- henda blaðberum Morgunblaðs- ins. Einnig er hægt að breyta hæð handfangsins. Laugavegur 53b Þrír dagar til að gELnga frá JÓN Sigurjónsson, einn bygg- ingaraðila hússins við Laugaveg 53b, segir að það taki þrjá daga að ganga frá á byggingarstað þannig að mönnum stafi ekki hætta af en sl. fimmtudag úr- skurðaði Úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingarmála að stöðva skyldi framkvæmdirnar. „Við vissum af úrskurði Úr- skurðarnefndar á fimmtudag," sagði Jón. „Þá var byrjað að undirbúa stöðvun byggingar- framkvæmda en föstudagur er stuttur vinnudagur hjá bygging- armönnum þannig að við þurft- um lengri tíma til að ganga frá vinnusvæðinu. Þrír dagar fóru í að ioka svæðinu til þess að valda ekki tjóni eða slysahættu, það var alveg lágmark." Jón sagðist vilja svara bygg- ingarfulltrúa því að hann kunni að lesa en ekki sé hægt að lesa bréf á mánudegi sem komi boðsent á miðvikudegi en haft var eftir byggingarfulltrúa í frétt Morgunblaðsins í gær, að hann reiknaði með að byggingaraðil- inn væri læs og að hann hefði fengið úrskurð úrskurðarnefnd- ar í hendurnar. „Byggingarfull- trúa ætti að vera fullkunnugt um að lokun á byggingarsvæðum á svona stað tekur alltaf nokkra daga,“ sagði Jón. „Þetta er dóna- skapur í okkar garð sem er al- gerlega óþarfur." Kostnað við fisk- veiðistjórnun ætti að innheimta að fullu Innheimta ætti þann kostnað sem hlýst af fískveiðistjórnun að fullu af sjávarútvegin- um, auk þess sem ekki ætti að vera um niðurgreiðslur til hans að ræða, að mati Phil Major, fyrrverandi skrifstofustjóra landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis Nýja-Sjálands, sem kynnti sér fískveiði- stjórnunina hér á landi. NOKKUR munur er á því fiskveiðistj órnunarkerfi sem notað hefur verið á íslandi og því sem kalla mætti besta kerfið út frá fræðilegu sjónarmiði, að mati Phil Major, fyrrverandi skrifstofustjóra í land- búnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti Nýja-Sjálands. Hins vegar er ljóst að kvótakei-fið á íslandi hefur verið árangursríkt við að gera fiskveið- arnar ábatasamari en áður, auk þess sem það stuðlar að verndun fiskistofna með því að takmarka veiði. „Þegar um slíkt er að ræða og óvissa er um áhrif stefnubreytinga varðandi það að láta atvinnugrein- ina borga fyrir þjónustuna og óvissa er um áhrif stefnubreytinga varðandi það að lagfæra stjórnun- arkerfið, ætti ekki að útiloka að gera alls ekki neitt þangað til frek- ari reynsla hefur fengist og hægt er að leggja mat á áhrif breytinga með meiri vissu. Verður að viður- kenna að atvinnugreinin er enn að laga sig að lagabreytingunum árið 1990,“ segir í umfjöllun Majors, sem birt er sem fylgiskjal með skýrslu Auðlindanefndar, sem kom út í mars, en hann kom hingað til lands á liðnu hausti og flutti erindi á ráðstefnu Hagfræðistofnunar Háskóla Islands um fiskveiði- stjómun. Major kynnti sér vand- lega fiskveiðistjórnun hér landi með fundum við hagsmunaaðila, stjómvöld og fræðimenn og skilaði að því loknu skýrslu til Auðlinda- nefndar um niðurstöðu sína. Skattaafsláttur sendir röng skilaboð I greininni ber Major saman fiskveiðistjómunarkerfíð á Islandi við það sem kalla mætti besta kerfi fiskveiðistjórnunar fræðilega séð. Hann telur upp nokkur atriði sem betur mættu fara, meðal annars að ekki hafi farið fram almenn um- ræða um um rannsóknir eða tillög- ur um leyfilegan hámarksafla með þátttöku óháðra vísindamanna og ráðgjafa og mögulegum ávinningi sé því fórnað. I öðra lagi segir hann að eigna- réttur í atvinnugreininni sé óör- uggur og illa skilgreindur og einnig að hann sé takmarkaður að því leyti að hann sé háður bátaeign, sem leiði til markaðsbrenglunar. Það að allur kostnaður við fisk- veiðistjómunina sé ekki innheimt- ur leiði til óhagkvæmni í atvinnu- greininni og að fé sé ekki varið á sem bestan hátt. Þetta leiði einnig til þess að aukahagnaður verði til í atvinnugreininni, sem hægt sé að nota sem rök fyrir því að leggja á hana auðlindaskatt. Hann segir að skattaafsláttur og aðrar niðurgreiðslur sem tíðkist í atvinnugreininni sendi röng skila- boð til hennar að því er varði stefnu hins opinbera og færi ýmsir sér það í nyt og komi það fram í kvótaverði. Fram kemur að Þjóð- hagsstofnun verði að gera grein fyrir þeim niðurgi-eiðslum sem fyr- ir hendi séu og síðan þurfi að af- nema þær. Þá segir Major að það að kvóta þurfi til áður en veiðar hefjist upp- fylli eina af kröfum fræðanna fyrir sem mestri hagkvæmni. Hins veg- ar brjóti það í bága við kröfur fræðanna að ekki séu allar veiðar innan kvótakerfisins. Hann bendir á að ákvörðun leyfilegs hámarks- afla haldi ekki veiðum innan leyfi- legra marka, þar sem óveiddur afli sé færður á milli ára þegar hann minnki auk þess sem smábátar séu utan kvótakerfisins. Þetta atriði verði að taka til gaumgæfilegrar athugunar, þar sem það uppfylli ekki kröfur fræðanna um að ákvörðun á leyfilegum hámarksafla takmarki veiðar. Ovíst hvernig kvóta verði úthlutað í framtíðinni Major bendir einnig á að óvíst sé hvernig kvóta verði úthlutað í framtíðinni í núverandi stjórn- málaumhverfi, þó svo að hátt verð á kvótamarkaði gefi vísbendingu um að fólk hafi trá á að það muni ekki missa kvótann. Áðstæður gætu því breyst nokkuð í framtíð- inni þar sem þessi óvissa leiði ekki til eins mikillar hagkvæmni og ann- ars gæti orðið. Hann gerir líka athugasemdir við að margar hindranir séu í vegi frjálsra viðskipta með þjónustu við útgerðarfýrirtæki og aðgangi að erlendu fjármagni. Auk þess séu takmarkanir á viðskiptum með kvóta vegna vannýtingar á honum, takmarkanir á samansöfnun kvóta og sektir við að landa aíla erlendis. Allt þetta leiði til minni hag- kvæmni en annars gæti orðið sam- kvæmt fræðunum. Að lokum segir Major að sett séu fram mörg markmið í fyrstu grein fiskveiðistjórnunarlaganna, sem geti stangast á við aðrar greinar. Það endurspeglist í hug- tökunum verndun, almennings- eign, stöðug atvinna og sátt annars vegar og í hugtökunum notkun, einkanýting og hagkvæmni hins vegar. Major bendir á að núverandi hlutverk hins opinbera í fiskveiðum sé óljóst og til þess að taka á því leggur hann til að sjávarátvegs- ráðuneytið eða óháð nefnd sér- fræðinga endurskoði fiskveiði- stjómunarlögin með það að leiðar- ljósi að skýra tilgang og markmið þeirra. Einnig með tilliti til að þróa umhverfi til þess að gera kleift að atvinnugreinin taki á sig meiri ábyrgð en nú með sjálfstjórn. Nefndin skoði einnig þær takmark- anir sem nú séu fyrii' hendi í við- skiptum með þjónustu við útgerð- arfyrirtæki, auk þess sem hún skoði hversu æskilegt sé að skipta stofnum upp í undirstofna. Það gæti leitt til meiri verndunar stofna inn á fjörðum, en ef þeir væra hluti af heildarafla. Major segh- að áður en þessi endurskoðun geti átt sér stað þurfi að leysa þrjú atriði sem snerti al- menning, en þau séu í fyrsta lagi mögulegur flutningur á umsvifum frá einstökum byggðarlögum vegna sölu á kvóta til hagkvæmari eininga á fjölmennari svæðum. I öðru lagi samsöfnun auðs til frekar fárra þjóðfélagsþegna sem leiði til þess að samfélag jafnaðar sem fyr- ir var raskist og í þriðja lagi að fjarstaddir eigendur sem stjórni eignum samfélagsins geti hirt ábatann af veiðunum án þess að leggja neit áþreifanlegt af mörkum til samfélagsins. Major segir að þessi vandamál virðist tilkomin af tvennu, annars vegar fámennum hópi sem báta- kvóta var úthlutað til og hins vegar vilja til þess að notast við opinber afskipti í þessum málum frekar en horfa til markaðslausna. Niðurgreiðslur eiga ekki að tíðkast Hann segir að samkvæmt fræð- unum ætti innheimta auðlinda- gjalds ekki að koma til, en hins vegar ætti að innheimta þann kostnað sem hljótist af fískveiði- stjórnun að fullu af atvinnugrein- inni, auk þess sem ekki ætti að vera um niðurgreiðslur til hennar að ræða. Niðurgi-eiðslunum eigi að hætta, þ.á m. skattaafslætti sjó- manna fyrir um það bil 1,5 millj- arða króna. Þá þurfi að endur- heimta kostnað vegna þjónustu sjávarátvegsráðuneytis, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar við út- gerðarfyrirtæki fyrir u.þ.b. 2,5 milljarða króna. Halda þurfi áfram að innheimta kostnað vegna fyi'ri endurbóta fyrir um 750 milljónir kr., auk þess sem hugleiða þurfi hvort innheimta eigi hlua af kostn- aði eða allan kostnað við strand- gæslu upp á um 800 milljónir lcróna. Major segir að þetta myndi auka framlag atvinnugreinarinnar til hins opinbera úr 1 milljarði króna í 5,5 milljarða króna. Þar sem það myndi dragast frá áætluðum hagn- aði í greininni sem sé um 4 millj- arðar króna myndi það leiða til þess að veiðarnar yrðu óarðbærar fyrir eigendur og þess vegna sé æskilegt að hefja endurheimt þessa kostnaðar í áföngum. „Ef sú endurgreiðsla sem fjallað var um hér að framan er ekki næg til þess að samfélagið telji að það fái sanngjarnan ábata getur verið viðeigandi að leggja á auðlinda- gjald í meira mæli en nú er gert þó svo að það brjóti í bága við fræðin, komi ekki í veg fyrir sam- söfnun auðs, leiði ekki til beins ábata fyrir samfélagið með auk- inni atvinnu, sé erfitt að ákvarða og muni líklega ekki hafa áhrif á kvótaverð þar sem það virðist ákvarðast af spákaupmennsku frekar en raunverulegum hagn- aði,“ segir síðan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.