Morgunblaðið - 22.04.1999, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Júlíus varð
af titlinum
ST. OTMAR, lið Júlíusar Jón-
assonar, tapaði oddaleiknum
við TV Suhr í úrslitum um
svissneska meistaratitilinn í
handknattleik í gærkvöldi,
19:18. Leikurinn fór fram á
heimavelli St. Otmar og var
hann hnífjafn og spennandi
allan tímann. Sigurinn féll Su-
hr í skaut en liðin höfðu áður
unnið einn leik hvort í einvíg-
inu. St. Otmar hafði ekki tap-
að á heimavelli síðan í nóvem-
ber.
Þetta var síðasti leikur Júh'-
usar með St. Otmar. Hann hef-
ur ákveðið að flytja heim í vor
og leika með Val á næsta vetri
eftir tíu ára atvinnumennsku í
Evrópu. Draurnur Júlíusar var
að enda með meistaraititli í
Sviss en honum varð sem sagt
ekki að ósk sinni.
Kiel komst
á toppinn
ÞYSKU meistaramir í hand-
knattleik, Kiel, komust í gær í
efsta sæti þýsku 1. deildarinn-
ar er þeir lögði Flensburg í
Kiel, 24:19, í uppgjöri tveggja
efstu liða deildarinnar. Kiel
hafði örugga forystu í Ieikn-
um og var með annars 15:9 yf-
ir í hálfleik. Þegar þijár um-
ferðir eru eftir af deildar-
keppninni hefur Kiel 42 stig,
Flensburg hefur 41 og Lemgo
sem lagði Schutterwald,
26:21, heima er í þriðja sæti
með 40 stig. Öll hafa liðin leik-
ið 27 leiki og er því ljóst að
ekkert verður gefið eftir í ein-
vígi þessara liða á lokasprett-
inum.
Duranona
lagði Ólaf
JULIAN Róbert Duranona
skoraði 4 mörk, þar af eitt úr
vítakasti, í 22:20 sigri
Eisenach á heimavelli á Ólafi
Stefánssyni og samheijum í
Magdeburg. Ólafur náði að-
eins að setja eitt mark fyrir lið
sitt í leikuum en liðið hampaði
um sl. helgi sigri í Evrópu-
keppni félagsliða, EHF-keppn-
inni.
Eisenach var 14:7 yfir í hálf-
leik. Eisenach er með 24 stig í
12. sæti, en Magdeburg er sem
fyrr í 7. sæti með 27 stig.
Arnar var
í sigurliði
ARNAR Gunnlaugsson var í
byrjunarliði Leicester sem
lagði Liverpool á Anfield
Road í gærkvöldi, 1:0. Arnar
lék í 55. mínútur en var þá
skipt út af fyrir Stuart Camp-
bell. Sigurmark Leicester
skoraði Ian Marshall á síðustu
mínútu leiksins. Liverpool en
nú í 10. sæti með 44 stig og
hefur ekki staðið verr að vígi í
áratugi.
Anderson
framlengir
SVÍINN Kent-Harry Anderson
framlengdi í gær þjálfara-
samning sinn við nýliða 1.
deildar þýska handknattleiks-
ins, Nordhorn. Anderson hefur
verið þjálfari liðsins sl. tvö ár
og var með samning við liðið
til næstu tveggja ára. í fram-
haldi af góðum árangri liðsins
buðu forráðamemi félagsins
honum samning til vorsins
2004 sem var umsvifalaust
samþykktur. Guðmundur
Hrafnkelsson leikur með
Nordhom næstu tvö árin.
w W 11
. P W m
„ Morgunblaðið/Golli
INGA FRIÐA Tryggvadóttir úr Stjörnunni reynir að komast í gegnum vörn FH en Hildur Erlíngsdóttir, fyrirliði FH, hefur náð tökum á
henni og Drífa Skúladóttir og Gunnur Sveinsdóttir bíða átekta.
Taugar þandar
í Garðabænum
HELDUR fóru FH-stúlkur illa að
ráði sínu í Garðabænum í gær-
kvöldi - þær fengu þrjú tæki-
færi á síðustu fimm mínútunum
til að jafna leikinn en létu verja
frá sér í hraðaupphlaupi, köst-
uðu beint í hendur Stjörnu-
stúlku í öðru og skutu í slá og
yfir í því þriðja. Fyrir vikið vann
Stjarnan, 20:19, í fyrsta úrslita-
leik liðanna en miðað við þenn-
an leik er Ijóst að áhorfendur
verða ekki sviknir um ekta
spennuþrungna úrslitaleiki.
Frá fyrstu mínútu reyndu Hafn-
firðingar að taka stórskyttuna
Ragnheiði Stephensen úr umferð og
það sló Garðbæinga
Stefán út af laginu svo að
Stefánsson FH náði með liprum
skr'far lgik að skora fyrstu
fjögur mörk leiksins.
Stjarnan komst ekki á blað fyi-r en
eftir 8 sóknir og tíu mínútur en
komst þá að skrið með sex næstu
mörkum leiksins enda höfðu leik-
menn fært Margréti Theódórsdóttir
framar á völlinn í vörninni til að
trufla sóknarleik gestanna. Eftir það
SÓKNARNÝTING
Fyrsti úrslitaleikur kvennaliðanna,
leikinn í Garðabæ 21. apríl 1999
Stjarnan FH
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
11 9 20 27 26 53 41 F.h 7 35 S.h 12 38 Alls 19 27 26 27 44 54 35
6 Langskot 5
3 Gegnumbrot 4
1 Hraðaupphlaup 0
5 Horn 7
4 Lína 2
1 Víti 1
Landsliðshópur 18
ára og yngri valinn
EINAR Þorvarðarson, handknatt-
leiksþjálfari, hefur valið 24 manna
hóp í unglingalandslið karla - 18
ára og yngri - í handknattleik fyrir
Evrópumót landsliða, sem fram fer
í Póllandi 20. maí næstkomandi.
Þar mun liðið etja kappi við Pól-
verja, Júgóslava og Úkraínumenn
en aðeins eitt lið kemst upp úr riðl-
inum og fær sæti í úrslitakeppninni
í Portúgal í ágúst. Að sögn Einars
er hægt að vera bjartsýnn á að lið-
ið komist áfram þó að mótherjar
séu sterkir - flestir leikmenn hafi
reynslu úr 1. deildinni, sem hafí
mikið að segja.
Liðið skipast þannig að mark-
verðir eru Stefán Hannesson og
Benedikt Olafsson úr Val, Hreiðar
Guðmundsson úr Gróttu/KR og
Hans Hreinsson úr KA. Útileik-
menn eru Bjarni Fritsson, Einar
Hólmgeirsson, Ingimundur Ingi-
mundarson og Sturla Asgeirsson
úr ÍR, Haukur Sigurvinsson,
Hilmar Stefánsson og Níels Reyn-
isson úr Aftureldingu, Bjarki Sig-
urðsson, Snorri Guðjónsson,
Markús Mikaelsson og Davíð
Höskuldsson úr Val, Sverrir
Pálmason og Gísli Kristjánsson úr
Gróttu/KR, Róbert Gunnarsson
og Níels Benediktsson úr Fram,
Brjánn Bjarnason og Hjalti
Pálmason úr Víkingi, Valdimar
Þórsson frá Selfossi, Jónatan
Magnússon úr KA og Sigursteinn
Arndal úr FH.
jafnaðist leikurinn meira, sóknar-
leikur beggja varð tilþrifalítill þó að
sjá mætti stöku fallegt mark. FH-
stúlkur voru frekar ragar við að
sækja á markið en Stjörnustúlkur þó
búnar að ná áttum, bættu við forystu
sína og höfðu fimm marka forskot
þegar tíu mínútur voru til leiksloka.
En þá fóru taugar þeirra að bresta,
FH raðaði inn fimm mörkum í röð á
sjö mínútum og jafnaði leikinn en
glutraði sem fyrr segir þremur
hraðaupphlaupum. Þar kom við sögu
Ragnheiður úr Stjörnunni því í einu
stjakaði hún löglega við FH-stúlku
og í annað sinn greip hún inn í send-
ingu fram völlinn. Hlutur Jolöntu
Slapikiene í marki FH var líka
drjúgur því á þessum kafla varði hún
sex góð skot og Anna Blöndal inn-
siglaði góðan leik sinn með sigur-
markinu rúmum tveimur mínútum
fyrir leikslok því fimm sekúndum
fyrir leikslok lauk hraðaupphlaupi
FH og möguleika á framlenginu með
skoti í slá og yfir.
„Við eigum ekki að fara á taugum
og verðum að fara að læra það enda
tími til korninn," sagði Sóley Hall-
dórsdóttii’ markvörður andstutt af
spenningi efth- leikinn. „Svona verða
leikirnir sem eftir eru. Þó að þetta
hafi verið tæpt og sigmánn getað lent
hvorum megin sem er erum við samt
nokkuð góðar en til að byrja með
vorum við eins og sjö styttur inni á
vellinum," bætti Sóley við en hún,
Ragnheiður, Anna og Inga Fríða
Tryggvadóttir voru góðar.
Ekki var sama hljóð í strokknum
hjá Björku Ægisdóttur úr FH og
hraðaupphlaup henni ofarlega í
huga. „Við vorum klaufar í hraða-
upphlaupunum og það setti strik í
reikninginn, við verðum að laga það í
næsta leik og ná fleirum til viðbótar.
Við erum hvergi smeykar við þessa
úrslitaleiki og munum undh-búa okk-
ur enn betur fyrir næsta leik því við
eigum alveg jafna möguleika á sigri,“
bætti Björk við. Hafnfirðingar byrj-
uðu nógu vel en virtust eiga erfitt
með að halda haus þegar leið á leik-
inn og mótspyrnan jókst en það
sýndi sig líka að sigur er innan seil-
ingar. Björk og Jolanta í markinu
voru ágætai’ og Drífa Skúladóttir og
Hildur Erlingsdóttir stóðu fyrir sínu.
Stjaman-FH 20:19
Iþróttahúsið Ásgarður í Garðabæ, ís-
landsmótið í handknattleik - 1. deild
kvenna, fyrsti úrslitaleik, miðvikud.
21. apríl 1999.
Gangur Iciksins: 0:4, 6:4, 8:5, 8:7, 11:7,
12:8,13:10, 16:13, 19:14, 19:19, 20:19.
Mörk Stjörnunnar: Anna Blöndal 6,
Margrét Vilhjálmsdóttir 3, Ragnheið-
ur Stephensen 3/1, Inga Fríða
Tryggvadóttir 2, Margrét Theódórs-
dóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 2,
Inga Steinunn Björgvinsdóttir 1, Nína
K. Björnsdóttir 1.
Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 14/1
(þar af 6/1 til mótherja) - 8 (2) lang-
skot, 2(1) hraðaupphlaup, 2 (2) af línu,
1 úr horni, 1 (1) vítakast.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk FH: Björk Ægisdóttir 5, Drífa
Skúladóttir 4, Hildur Pálsdóttir 2,
Hildur Erlingsdóttir 2, Guðrún Hólm-
geirsdóttir 2, Þórdís Brynjólfsdóttir
2/1, Hafdís Hinriksdóttir 1, Gunnur
Sveinsdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 18 (þar
af átta til mótherja) - 12 (5) langskot,
3 (1) úr horni, 3 (2) af línu.
Utan vallar: Aldrei.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og Guð-
jón L. Sigurðsson voru ágætir í heild-
ina.
Áhorfendur: Um 310.
Víðavangshlaup ÍR
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer fram að venju í dag, sumardaginn fyrsta og
hefst kl. 13. Hlaupin er 5 km leið umhverfis Tjörnina og er upphaf og endir
hlaupsins við Ráðhúsið. Þetta er í 84. sinn sem Víðavangshlaup ÍR fer fram,
en keppt er bæði í flokki einstaklinga og þriggja og fímm manna hópa.
Skráning hefst kl. 11 í dag í Ráðhúsinu.